Morgunblaðið - 18.11.1978, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
31
heimtu, til að draga úr umræddum
víxlhækkunum. Er nú samstaða um
þetta í ríkisstjórninni? Lúðvík
mótmælti því harðlega hér áðan að
dregið yrði úr niðurgreiðslum í
fjárl.frv. 1979, frá því sem verða mun
í desembermánuði n.k. Sighvatur
sagði hins vegar að Alþýðuflokkur-
inn myndi greiða atkvæði gegn
áframhaldandi niðurgreiðslum í
þeim mæli, sem frv. gerði ráð fyrir.
2. Fjármálaráðherra vill draga úr
fjárfestingu, stuðla að magnminnk-
un framkvæmda, að því er hann
segir, með frumvarpi stjórnarinnar.
Talsmaður Alþýðubandalags lýsir
því hins vegar yfir, að hann telji
þessa stefnu fráleita. Alþýðufl.
staðhæfir síðan að hvergi nærri sé
gengið nógu langt í samdrætti. Um
þetta virðist ekkert samkomulag.
3. Ríkisfjármálin eiga að verka
sem hemill á verðþenslu, segir
ráðherra. En hvernig kemur það
síðan heim og saman við það að
hækka væntanleg fjárlög (frumvarp-
ið) meir en sem nemur verðbólgu-
vexti? Eða saman við það að öll
rekstrargjöld hækka sjálfkrafa
vegna launa- og verðlagshækkana?
Frv. hækkar vegna launa og launa-
tengdra gjalda um 10.000 milljónir
króna.
Af því sem að framan er sagt er
ljóst, að enginn stuðningur virðist
vera í stjórnarliðinu við þær megin-
forsendur frumvarpsins, sem ráð-
herrann gefur sér.
Alþýðuflokkurinn hnýtti „sið-
gæðisstefnu" sína tveimur megin-
atriðum: að afnema tekjuskattinn og
stórlækka niðurgreiðslur búvöru.
Samkvæmt framlögðu stjórnarfrum-
varpi eiga beinir skattar (tekjuskatt-
ar) ríkissjóðs að hækka úr 18% af
heildarsköttun í 22% og niður-
greiðslur í nærri 20 milljarða.
Skyldu slíkar efndir háleitra
kosningaloforða kallast siðlegar? Nú
reyna þingmenn Alþýðuflokksins að
smokra sér fram hjá ábyrgð á
fjárlagafrumvarpinu — í orði. En
tekið verður eftir því, hverja afstöðu
og ábyrgð þeir axla með atkvæða-
greiðslu við endanlega afgreiðslu
fjárlagafrv.
Hér má skera,
hér má spara
Vilmundur Gylfason (A)
staðhæfði, að Alþýðuflokkurinn
hefði sömu stefnu eftir og fyrir
kosningar. Stefnan í búvörumálum
og skattamálum væri óbreytt. Vera
mætti að stefna stjórnarflokkanna
kæmi ekki heim og saman í megin-
atriðum í þessari bók (fjárlagafrum-
varpinu) en Alþýðuflokkurinn hefði
sett fram skýra stefnumörkun í
ríkisfjármálum, fjárfestingarmál-
Sameinað þing.
bólgu, sem væri að grafa undan
stoðum þjóðfélagsins, bæði efna-
hagslegum og siðferðilegum.
Byggðastefna Fram-
sóknar framlág
borvaldur Garðar Kristjánsson
(S) sagði gagnrýni VG á sjávarútveg
og landbúnað sýna, hve grunnhyggn-
um augum hann liti á hinn raun-
verulega vanda. Aðalatriðið væri,
varðandi fjárlagafrumvarpið, að
hyggja að hinum stóru liðum, sem
þyngst vega á útgjaldahliðinni.
Nefndi hann þar til heilbrigðis- og
tryggingamál og menntamál, sem
spönnuðu helming útgjaldasumm-
unnar. Ekki væri meining sín að
draga ætti úr þjónustu á þessum
vettvangi, en skipulag svo fjárfrekra
þátta þyrfti að vera í sífelldri
endurskoðun og hagræðingu til að
komast hjá oft óþörfum kostnaði.
bGK sagði vanda á höndum, bæði
í ríkisfjármálum og öðrum þáttum
efnahagslífsins, þar sem verðbólga
væri komin upp fyrir öll vitræn
mörk. Þörf hefði verið samræmdra
aðgerða, bæði í bráð og lengd, til að
þoka efnahagsmálum okkar i héil-
brigða átt, en hvorki bólaði á slíku í
bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinn-
ar né í fjárlagafrumvarpi; vanavið-
fangsefnum væri ýmist slegið á frést
eða við þau bætt. Ekki væri sá
ræðumaður enn fram kominn í
þessum umræðum, sem lýst hefði sig
ánægðan með fjárlagafrumvarpið og
flestir fyndu því margt til foráttu,
bæði stjórnarsinnar og stjórnarand-
stæðingar. Þannig hefði gagnrýni
talsmanna Alþýðuflokksins verið
Nýr fjárlagaliður
— til mannræktar
Steinþór Gestsson (S) vitnaði til
stefnuræðu forsætisráðherra, fyrir-
heita þess efnis, að „dregið verði
markvisst úr verðbólgu", lækkað
verðlag og tilkostnaður, dregið úr
víxlhækkunum kaups og verðlags og
heildarumsvifum i þjóðarbúskapn-
um haldið innan hæfilegra marka.
Fjárlagafrumvarpið hefði átt að
vera nánari útfærsla á þessari
stefnumörkun í efnahagsmálum,
enda eru fjárlög það vopnið, sem
bezt getur gagnað stjórnvöldum í
baráttu við verðbólgu. En það
frumvarp, sem við höfum nú í
höndum, er hins vegar flausturslega
saman sett af sundurlausum kröft-
um og kæruleysislega tekið á ríkis-
fjármálum.
Eg hef hlustað á þessar umræður
með athygli, sagði StG, m.a. á menn,
sem ég hélt vera stuðningsmenn
ríkisstjórnarinnar, og ég verð að
segja, að ég hef „fyllst nokkrum
kvíða um það, að það sem hér er að
gerast í efnahagsmálum, komi alls
ekki heim og saman við þær frómu
fyrirætlanir, sem hæstv. forsætis-
ráðherra gaf lýsingu á í stefnuræðu
sinni. Eg undrast ekki aðeins þær
ræður, sem stjórnarliðar hafa hér
flutt, heldur hafa vinnubrögð þessa
þings að minni hyggju verið afar
einkennileg."
Sighvatur Björgvinsson mælti hér
í löngu máli gegn vaxandi útgjöldum
og framkvæmdum ríkissjóðs. Mér er
spurn, hvort frumvarp annars þing-
flokksins flytja hér á þingi frumvarp
um að ríkið reki að hluta til
dagvistunarheimili fyrir börn, sem
nú eru rekstrarlega alfarið á vegum
sveitarfélaga? Er það flutt til að
draga saman og spara í ríkisrekstri,
eins og Lúðvík segist vilja, eða er það
bara flutt út í bláinn?
Á hverju ári hefur lánasjóður
íslenzkra námsmanna verið alvar-
legt ádeiluefni núverandi stjórnar-
flokka tveggja á þáverandi stjórn-
völd, að ekki væri mætt 100%
umframfjárþörf íslenzkra náms-
manna. Nú eru aðrir herrar á
valdasessi. Og hvern veg standa
fyrrum ádeiluþingmenn að þessu
máli? 1977 var ætlað til þessara
hluta 1069 m. kr., 1978 1408 m. kr.
og með sama hætti eru áætlaðar nú
2234 m. kr. að lántökuheimild
meðtalinni. Þessi upphæð er byggð á
því sem næst 85% umframþörf, ekki
100%. Þannig efna fyrrum ádeilu- og
kröfugerðarmenn eigin orð — þegar
þeir hafa aðstöðuna og valdið til aö
breyta samkvæmt þeim.
Og hvern veg er farið með
Byggðasjóð? Ég sé ekki betur en
fjármálaráðherra, annar fram-
kvæmdastjóra Byggðasjóðs, þurfi nú
að standa að því að skjóta stjórn-
völdum undan því að sjóðurinn fái
lögákveðnar upphæðir. Þar skakkar
rúmum milljarði króna. Ég minnist
þess að þegar verið var að leggja
síðustu hönd á fjárlagafrumvarp
1978, þá kom núv. fjármálaráðherra
að máli við mig sem talsmaður
Byggðasjóðs, til að rökstyðja rétt
byggðasjóðsins um lögákveðin fram-
lög. Þannig stangast á orð og gerðir.
Vilmundur Gylfason mælti hér
Mér virðist málflutningur þing-
manna Alþýðuflokksins ganga þvert
á þessa boðuðu landbúnaðarstefnu,
sem ég nú las, og ég get tekið undir.
En ég er andvígur því að vegið sé að
einni stett í landinu frekar en
annarri. Og mér flaug í hug, þegar
Vilmundur Gylfason hafði orð á því
að sóað væri fjármunum til land-
búnaðar, t.d. til búfjárræktar (laun
til manna er starfa við þessa
atvinnugrein) að e.t.v. væri þörf á
því að taka upp nýjan fjárlagalið,
fjárveitingu, sem mætti heita „til
mannræktar“.
Svör f jármálaráðherra
Það er erfitt verk að semja
fjárlagafrumvarp í landi, sem býr
við 50% verðbólgu, sagði Tómas
Árnason fjármálaráðherra í stuttri
svarræðu í lok fyrstu umræðu um
fjárlagafrumvarpið. Ég taldi
nauðáynlegt að leggja fram frv. sem
fæli í sér ákveðna stefnumörkun og
það gerir þetta frv. Sú stefnumörkun
kemur í fyrsta lagi fram í 8 milljarða
tekjuafgangi, 4 milljarða greiðsluaf-
gangi og verulegri niðurgreiðslu
skulda umfram nýjar lántökur. Ég
vona að þessi stefna fái samþykki
hér á Alþingi.
Fjármálaráðherra sagði þetta
þing að því leyti frábrugðið fyrra
þingi, að nú viðruðu stjórnarflokkar
ágreiningsmál sín á þingfundum, en
áður hefði slíkt gerst í þingflokkum
og ríkisstjórn, þar sem sjónarmið
hefðu verið samræmd og sameigin-
leg stefna mörkuð.
Við framsóknarmenn viljum
gjarnan hafa eitt og annað öðruvísi
en það er í frumvarpinu. Það ber svip
viðleitni til málamiðlunar. Við
teljum það okkar hlutverk að halda
ríkisstjórninni saman. Vék ráðherra
að ýmsum byggðamálum, sem hann
sagði Framsóknarfl. gjarnan vilja
gera betur við, en þetta fjárlaga-
frumvarp við erfiðar efnahagsað-
stæður sýndi. Vitnaði hann og til
fyrirvara í frumvarpinu um endur-
skoðun styrkja og útflutningsbóta-
kerfis landbúnaðar.
Ráðherra sagði Framsóknarfl.
ekki boðbera hárra skatta. En það
„er okkar hlutverk" að sjá til þess að
tekjuöflun ríkisins sé nægilega mikil
og örugg. Og það er ekkert
launungarmál, að seilst er fremur til
beinna skatta vegna þess að þeir eru
ekki inni í vísitölu. Það undirstrikar
með fleiru nauðsyn þess að breyta
vísitölugrundvellinum.
Skyldusparnaður er ekki skattur,
sagði ráðherra. Hann er lántaka, í
tilefni af orðum L. Jó. varðandi það
mál.
Ráðherra sagði að 70% af útgjöld-
um fjárlaga væru lögbundin. Stór
Lúðvíki
Við
leysum
ágreinings-
efnin.
Sighvatur<
Andvígir
skatta-
og búvöru-
þætti.
Lárusi
Eigið kaup
greitt
niður úr
eigin vasa.
Pálmii
Mest
eyðslu-
hækkun hjá
ráðuneytum
Ellerti
Falla at-
kvæði krata
að orðum
þeirra?
Vilmunduri
Viðnám
gegn verð-
bólgu haf i
forgang
Þorvaldur
Garðari
Allir
gagnrýna
frumvarpið
Steinþóri
Flausturs-
lega saman
sett
frumvarp
Tómasi
Skuldanið-
urgreiðsla,
tekju- og
greiðslu-
afgangur
um, skattamálum, vísitölumáli og
málefnum landbúnaðar. Við þessa
stefnumörkun yrði staðið í megin-
atriðum þótt samstarfsstjórnir
þyrftu að sameinast um málamiðlun.
VG sagði að Sighvatur Björgvinsson
(A) hefði túlkað stefnu þingflokks
Alþýðuflokksins til fjárlagafrum-
varpsins.
Þá fletti VG gegnum fjárlaga-
frumvarpið, nefndi ýmsa útgjalda-
liði, þ.á m. utanríkisþjónustuna,
Búnaðarfélagið, Landnám ríkisins
(sem hann sagði að lokið hefði fyrir
1000 árum), jarðræktarframlög í
offramleiðslu búvara, búfjárrækt,
Fiskveiðisjóð, framleiðslueftirlit
sjávarafurða (o.fl. útgjaldaþætti í
landbúnaði og sjávarútvegi) og sagði
jafnan: Hér má spara, eða hér má
skera niður. —
VG sagði fjárlagafrumvarpið of
bólgið. Þar gætti ekki nægilega þess
sparnaðar og aðhalds, sem nauðsyn-
legt væri við ríkjandi aðstæður og í
óhjákvæmilegu viðnámi gegn verð-
hörð og gengið þvert á ýmsa
meginþætti frumvarpsins, ekki sízt
skattastefnu þess. Orð væru góð —
en eftir væri að sýna heilindi þeirra í
verki — við afgreiðslu frumvarpsins.
Þá kæmi raunstefna Alþýðuflokks-
ins fram í veruleikann.
Þá vék ÞGK að orkumálum og
benti á að smáupphæð í fjárlagafrv.
til að styrkja dreifikerfi rafmagns í
sveitum væri sýndarmennskan ein
og óraunhæf. Hér væri þó brýnt
verkefni, sem hinar strjálli byggðir
hefðu átt von á að hefði forgang.
Svipað mætti segja um sýndarfram-
lög til sveitarafvæðingar, jarðhita-
leitar og hitaveituframkvæmda. en
jarðvarmanýting hefði þjóðhagslegt
gildi og sparaði rándýran orkuinn-
flutning. Aðhald væri gott — en
handahóf ætti ekki við í þessum
efnum. „Byggðastefna" Framsóknar
væri og framlág. Þá taldi ÞGK ekki
þann veg gengið frá málum að
Orkubú Vestfjarða fengi lögskilinn
hluta af verðjöfnunargjaldi raforku.
manns Alþýðuflokksins — um
virðingarvert mál — framkvæmda-
sjóð öryrkja, þar sem gert er ráð
fyrir að hafa tiltækar 1000 milljónir
á ári til að byggja stofnanir fyrir
þroskahömluð börn, er nánari útlist-
un á framkvæmdasamdrætti Al-
þýðuflokksins eða storkun við fjár-
málaráðherra? Skólar fyrir þroska-
hömluð börn fengu tæpar 16 milljón-
ir 1977. Þessi upphæð var hækkuð í
60 milljónir 1978. I frumvarpi
fjármálaráðherra og ríkisstjórnar-
innar er þessari upphæð 60 m. kr.,
haldið óbreyttri. En til samanburðar
ieggur síðan einn þingmaður Alþ.fl,-
til 1000 m. kr. framlag í sérstakri
tillögu.
Lúðvík Jósepsson var á öðru máh
en Sighvatur Björgvinsson. Hann
vill ekki draga úr ríkisframkvæmd-
um, heldur hafa þær sem mestar. En
hann viil hins vegar, i oröi, draga úr
rekstrarkostnaði ríkisins. En mér er
einnig spurn: er það til að undir-
strika þetta sem þingmenn Alþýðu-
áðan gegn ýmsum fjárlagafjár-
veitingum til landbúnaðar. Það er
e.t.v. sú stefna sem Alþýðuflokkur-
inn boðar í höfuðborginni. En hvern
veg hljóðar stefna Alþýðuflokksins í
landbúnaðarmálum í kosningaplaggi
sem a.m.k. var sent Suðurlandskjör-
dæmi í vor. Þar segir orðrétt m.a.:
„Alþýðuflokkurinn vill efla land-
búnað á Islandi og nýta þannig þá
auðlind. sem gróður landsins er.
Landbúnaðinn og markaðskerfi
hans ber að endurskipuleggja
þannig. að framtak bænda og
hagsýni nýtist þjóðarbúinu. Mcð
skipulagðri nýtingu og markvissri
uppgræðslu ber að auka að nýju
gróðurlendi Islands.“ — Og enn-
fremuri „Landhúnaðurinn er
grundvöllur byggðar í mörgum
héruðum landsins og verður því að
skipuleggja hann í samræmi við
byggðastefnu. Þörf cr á sérstökum
stuðningi við bændur í rýrari
sveitum, sem þarf að halda í byggð
vegna byggðasjónarmiða.“
hluti þeirra hafi því legið fyrir á
blaði í fjármálaráðuneytinu, þegar
hann kom þar. Að hluta til væru
menn því að fjalla um „Matthíasar-
guðspjall" í þessari umræðu. Það
liggur í augum uppi að fjárlagafrum-
varpið verður að fylgja verðlagi og
kaupsamningum. Mergurinn málsins
er, að sem viðnám gegn verðbólgu
þarf frumvarpið að skila greiðsluaf-
gangi. Frá því meginsjónarmiði
verði ekki horfið.
Ráðherra sagði Byggðasjóð hafa
heimild til lántöku og með henni og
fjárveitingu væri staðið við 2 %
ákvæðið um ráðstöfunarfé
Þá kvaðst ráðherra vona að „það
takist samkomuiag fyrir 1. desem-
ber, sem verði með þeim hætti, að
forðað verði þeim boðaföllum verð-
bólgu, sem nú blasi við“.
Hann sagöi og, að fjárlagaliðir
varðandi Orkubú Vestfjarða væru
fleiri en einn og að farið væri að
lögum varðandi þessa hluti í verð-
jöfnunargjaldi.