Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 33 GamlahöUin Innst inni í horni á geymsluloftinu, lá hrúga af gömlum leikföngum. Flest þeirra voru brotin og skemmd, og langt var síðan nokkur hafði notað þau. Dag einn fór Róbert litli með mömmu sinni upp á loft til að taka til. Allt, sem var ónothæft, var látið í kassa og átti að fleygja því, og gamla leikfangahöllin lenti í kassanum líka. Þegar Róbert sá, að sorphreinsunarmaðurinn kom og ók kassanum burt í grindinni sinni varð hann mjög hryggur. En til allrar hamingju datt gamla höllin úr grindinni og lá eftir úti á götu. Róbert hljóp á fullri ferð niður stigann og út á götu, tók upp gömlu höllina og faldi hana í garðinum. Tveimur dögum seinna, þegar mamma fór út í búð að verzla, fór Róbert út í garðinn til þess að leika sér með höllina. Og hvað heldur þú að hann hafi séð? Lítill fugl hafði byggt sér hreiður inni í höllinni og lá nú á eggj- unum sínum þar. Bíbí — halló, Róbert, sagði fuglinn. Eg vona, að þér sé ekki á móti skapi, þótt ég hafi flutt hérna inn? Eg skal koma og syngja fyrir þig á hverju kvöldi. Á hverju kvöldi kom fuglinn upp í gluggann til Róberts og söng fyrir hann þangað til hann sofnaði. Seinna, þegar eggin voru útunguð, og ungarnir gátu sungið líka, kom öll fjölskyldan upp að herbergi Róberts. Og á hverju kvöldi sungu fugla- mamma og fuglapabbi og ungarnir þeirra fjórir fyr- ir Róbert þangað til hann sofnaði. A ROKSTOLUM ________HANNES_________ HÓLMSTEINN GISSURARSON: Við gröf Marx í Lundúnum. KARL Marx deildi í bókinni Eymd heimspekinnar 1847 mjög á fræðilega eymd rót- tæklinganna, skoðanabræðra sinna í Norðurálfu á nítjándu öldinni. Og honum varð að orði í ellinni, þegar lærisveinarnir höfðu misnotað kenningu hans; „Um sjálfan mig er það að segja, að ég er ekki marxsinni!" Mér varð hugsað til bókar Marx og orða hans, þegar ég las tvær greinar lærisveina hans á ís- mér að það sé rétt athugað hjá Marx að vinna skapi verðmæti." Kristján þekkir kenningu Marx eins illa og Poppers. Að mati Marx voru hugtök eins og réttur „borgaraleg" og „hugmynda- fræðileg" og því óvísindaleg. Hann taldi, að verkamennirnir ættu ekki rétt til neins, heldur væri óhjákvæmilegt, að þeir fengju að lokum völdin vegna þeirra mótsagna, sem væru af því, að þeir hefðu þau ekki (og vísindaleg rök að því, að bylting væri óhjákvæmileg. Popper gagnpýndi þessi rök, og reynslan hefur rennt stoðum undir gagn- rýnina. Bragi Guðbrandsson reynir í grein sinni að verja áróðursrit Gísla Pálssonar, Samfélagsfræði, sem er notað til kennslu í framhaldsskólum og kenningu Marx fyrir rökum mínum. Bragi skrifar: „Hannes nefnir ekki hvar í bók sinni Gísli noti „vinnuverðgildiskenningu Marx“, enda engin furða, því hvergi er um neina vinnuverð- gildiskenningu fjallað." Þessi staðhæfing Braga er reyndar ósönn, því að Gísli skrifar á bls. 83 í Samfélagsfræði sinni: „Raunar er vinnuaflið eina varan sem hefur í för með sér síaukna verðmætasköpun." Bragi skrfar enn: „Tilraun Hannesar til að sýna fram á þetta er því hjákátlegt skrök. En hún er einnig hjáfræðileg vegna þess, að Hannes talar um „vinnuverðgildiskenningu Marx“, sem hvergi er til nema í heilabúinu á Hannesi. A.m.k. hefur Marx aldrei sett fram neina kenningu þess efnis að „verðgildi“ vöru færi eftir „því vinnuafli, sem notað væri til að framleiða hana“.“ Þessi staðhæfing Braga er ósönn, en líka dæmalaus, því að vinnu- verðgildiskenningin er ein undirstaðan í allri kenningu Marx! Allir vita það, sem vita eitthvað um kennínguna. Marx skrifaði til dæmis í greininni EYMD YINSTRI HYGGJUNNAR landi á þessu ári. Önnur greinin var Popperismi og marxismi eftir Kristján Arnason málfræðing, sem birtist í 2. hefti Tímariti Máls og menningar 1978, hin var Hjáfræði og ljúgfræði eftir Braga Guðbrandsson „félagsfræðing", sem birtist í Mbl. 28. september 1978. Báðir lærisveinarnir koma upp um eymd vinstrihyggjunnar á Islandi, vanþekkingu sína og misskilning. Kristján Árnason reynir í grein sinni að verja kenningu Marx fyrir rökum Karls R. Poppers, en hann þekkir þessi rök illa, og því mistekst vörnin. Popper færði meginrök sín gegn kenningu Marx í bókinni Opnu skipulagi og óvinum þess (The Open Society and Its Enemies), en ekki í bókinni RSkfræðl vísindalegrar rannsóknar (Logik der Ferschung, Logic of Scientific Discovery), en Kristján vitnar til ófullkomins ágrips hennar í tímaritsgrein eítir Þorstein Gylfason og hefur líklega ekki lesið annað um rök Poppers. Kristján skrifar: „Marx benti á að vinnan skapaði auð og þeir sem sköpuðu auðinn, verkamennirnir, ættu jafn- mikinn, og í raun meiri rétt til að hirða ágóðann sem skapaðist í einhverjum atvinnurekstri en þeir sem hafa peningana undir höndum. Af þessu leiðir svo, að mati Marx, að verkamenn eiga rétt til þess að ráða yfir atvinnutækjunum .. . Sýnist kenning sín væri vísindaleg lýsing og skýring þessara mót- sagna). Marx skrifaði til dæmis í Sameignarávarpinu 1848 á bls. 40 í Urvalsritum I. „Réttur yðar er ekkert annað en stéttar- vilji yðar, er þér hafið tekið í lög.“ Og hin vísindalega kenning Marx hefur verið hrakin. Dr. Gylfi Þ. Gíslason, sem er samhyggjumaður (sósíalisti), skrifar í bókinni Jafnaðarstefnunnii „Flestir hagfræðingar eru nú sammála um, að efnahagskenningar hans séu úreltar, svo sem hin hag- fræðilega skýring hans á verð- mæti hluta, sem eigi einvörð- ungu rót sína að rekja til þeirrar vinnu, sem varið hafi verið til þeirra, og skýring hans á eðli arðránsjns var byggð á.“ Kristján skrifar enn: „Það er því megnasta firra að halda því fram, að þær pólitísku hug- myndir sem Marx og Engels settu fram' hafi verið afsannað- ar, því þær eru ekki til þess fallnar. Pólitískar hugsjónir lúta ekki lögmálum hreinnar rökfræði og eru alls engin vísindi.“ Marx var á annarri skoðun. Hann hafnaði með öllu þeim greinarmuni, sem Kristján gerir í grein sinni á því, „hvernig hlutirnir eru,“ og hinu, „hvernig þeir eiga að vera.“ Ilann taldi, að hann hefði „hreinsað“ samhyggjuna af öllum hugsjónum, breytt henni úr draumórasamhyggju í vísindalega samhyggju, leitt Launavinnu og auðmagni 1849 á bls. 139 í Úrvalsritum L „Þetta sýnir oss, að verð hverrar vöru ákveðst af framleiðslukostnaðinum ... En ráði framleiðslukostnaðurinn verðinu, þá miðast það einmitt við þann vinnutíma, sem fram- leiðsla viðkomandi vöru út- heimtir." (Vinnuafl er vinna, mæld í tíma.) Vörn lærisveinanna tveggja er aumleg. Annar heldur í vinnuverðgildiskenninguna, sem er röng, en telur kenningu Marx ekki vísindalega í öðru, heidur „pólitíska", þvert á það, sem Marx kenndi. Hinn segir, að vinnuverðgildiskenningin sé ekki til! Þeir verja kenninguna varla með því að hlaupast frá henni. En eymd þeirra er þó ekki undantekningin, heldur reglan með íslenxkum marxsinnum. Tímarit rót- tæklinganna, Tímarit Máls og menningar og Réttur, eru dauð úr öllum æðum, þar birtast fáar sem engar frumsamdar greinar um heimspeki stjórnmálanna. Og það segir sitt, að rót- tæklingarnir hafa enn ekki brugðizt við hinni skarplegu gagnrýni Ólafs Björnssonar prófessors í bókinni Frjálshyggju og alræðis- hyggju. Geta þeir það ekki? Eymd vinstrihyggjunnar á Is- landi er fullkomin. Iiærisveinar Marx gefa honum tilefni til þess að stynja upp úr gröf sinni í Lundúnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.