Morgunblaðið - 18.11.1978, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
Tekst þeim leikreyndu
að sigra landsliðið?
í DAG fer fram f Laugardalshöll-
inni ieikur milli íslenska Iands-
liðsins f handknattleik og liðs
sem fyrrverandi landsliðsþjálf-
ari, Hilmar Björnsson, hefur
valið. Hefst leikurinn kl. 15.30.
Leikur þessi er liður í undir-
búningi landsliðsins fyrir Frakk-
landsferðina sem hefst eftir
helgina.
Leikurinn í dag er mjög áhuga-
verður fyrir handknattleiksunn-
endur þar sem í liði Hilmars
Björnssonar eru þrautreyndir leik-
menn, sem enn eru í fullu fjöri.
Geir Hallsteinsson og Viðar
Símonarson, sem leikur nú sinn
fyrsta opinbera leik hér heima
eftir að hann dvaldi í Svíþjóð, hafa
báðir leikið yfir 100 landsleiki, þá
hafa þeir Jón Karlsson og Sigur-
bergur Sigsteinsson vel yfir 80
landsleiki að baki. Stefán Jónsson,
Haukum, hefur leikið 44 landsleiki
og fáir línumenn búa yfir meiri
krafti en hann.
Lið Hilmars Björnssonar er
skipað eftirtöldum lfeikmönnum:
Brynjar Kvaran Val
Kristján Sigmundsson Víkingi
Þorbjörn Jensson Val
Jón Pétur Jónsson Val
Jón H. Karlsson Val
Geir Hallsteinsson FH
Viðar Símonarson FH
Guðmundur Magnússon FH
Sigurbergur Sigsteinsson Fram
Gústaf Björnsson Fram
Stefán Jónsson Haukum
Ingimar Haraldsson Haukum
Sigurður Gunnarsson Víkingi.
Landsliðsþjálfarinn hefur valið
eftirtalda leikmenn í lið sitt:
Jens Einarsson ÍR
Ólaf Benediktsson Val
Þorbjörn Guðmundsson Val
Stefán Gunnarsson Val
Bjarna Guðmundsson Val
Steindór Gunnarsson Val
Pál Björgvinsson Víkingi
Árna Indriðason Víkingi
Ólaf Jónsson Víkingi
Hörð Harðarson Haukum
Andrés Kristjánsson Haukum
Hannes Leifsson Þór,
Vestmannaeyjum.
Viggó Sigurðsson er meiddur og
getur ekki leikið með.
- ÞR.
ÍR, án Stewarts,
mætir Njarðvík!
Helgin verður fremur róleg hjá
körfuboltamönnunum, aðeins 2
leikir í úrvalsdeildinni og aðrir
tveir f 1. deild. En til að bæta upp
hve fáir leikirnir eru, er hér um
hörkuleiki að ræða. Hér er um að
ræða fyrstu leikina í 2. umferð
íslandsmótsins, en alls eru leikn-
ar 4 umferðir.
Að öðrum leikjum ólöstuðum,
verður viðureign helgarinnar leik-
ur ÍR-inga og Njarðvíkur, sem
hefst í Hagaskólanum klukkan
14.00. Leikurinn er merkilegur
fyrir þær sakir, að Paul Stewart
verður ekki með IR-ingum, hann
byrjar að taka út leikbann sitt.
Leikbannið var á hann lagt eins og
kunnugt er, eftir að Stefáni
Bjarkarsyni og honum hafði lent
saman suður á Keflavíkurflugvelli
með þeim afleiðingum, að Stefán
hlaut áverka. Aganefnd KKÍ
dæmdi Stewart í 3ja vikna bann og
olli dómurinn sá miklum úlfaþyt
meðal ÍR-inga og fleirum, vegna
þess að dæmt var einungis eftir
lögregluskýrslum Stefáns og Inga
Gunnarssonar liðsstjóra Njarðvík-
ur. Bann þetta kemur á versta
tíma fyrir IR-inga, því að Stewart
missir úr tvo leiki . . . gegn
Njarðvík og gegn KR. Það verður
því ekki viðureign elsku vina í
Hagaskólanum að þessu sinni.
Njarðvíkingarnir eru sigurstrang-
legri vegna Stewartleysis ÍR-inga,
en áfallið gæti hæglega stappað
stálinu enn frekar í IR-inga,
þannið að úr verði hin æsilegasta
viðureign.
Þórsarar fá Valsmenn í heim-
sókn norður og hefst leikur
liðanna í Skemmunni klukkan
14.00. Valsmenn eru eitt af sterk-
ari liðum deildarinnar, en heima-
menn unnu síðasta leik sinn og
fengu þá sín fyrstu stig í mótinu.
Allt getur gerst.
Þá fara fram 2 leikir í 1.
deildinni, þeir áttu að vera 3, en
öllum heimaleikjum Snæfells fram
til jóla hefur verið frestað. Mun
keppnissalur félagsins ekki vera
tilbúinn til notkunar.
Framarar sækja Eyjamenn
heim í dag og hefst leikur liðanna
klukkan 13.30. Á morjjun leika
síðan Tindastóll og Armann í
Glerárskóla og hefst leikurinn
klukkan 15.00.
• Ragnar
• Björgvin
Ragnar og Björgvin
fara til Hawaii
BJÖRGVIN Þorsteinsson og
Ragnar ólafsson, golfmenn,
halda á þriðjudaginn áleiðis til
Hawaii-eyja, þar sem þeir taka
þátt í heimsmeistaramótinu í
golfi dagana 30. nóvember til 3.
desember. Þetta er árleg keppni
og fór síðast fram á Filipseyjum.
Björgvin sagði í stuttu viðtali
við Mbl. í gær, að 50 þjóðir sendu
2 keppendur hver í keppnina, sem
væri sveitakeppni. Keppt væri í
höggleik og samanlagt skor yfir
alla keppnisdagana skæri úr um
niðurröðun liðanna.
Alþjóðagolfsambandið og ýmis
stórfyrirtæki greiða allan kostnað
fyrir keppendurna, ferðir, gistingu
og uppihald.
Þetta er í annað skiptið sem
íslendingar taka þátt í HM í golfi.
í fyrra fór keppnin fram á Manila
á Filipseyjum og voru þeir Björg-
vin og Ragnar einnig þá fulltrúar
Islands. Þeir urðu þá í 7. sæti
neðan frá, en meðal þeirra, sem á
eftir komu, voru þjóðir eins og
Júgóslavía, ísrael o.fl. Aðspurður
um hvar hann reiknaði með að
þeir félagar yrðu í röðinni að þessu
sinni, svaraði Björgvin: — Við
stefnum að því að vera a.m.k. ekki
neðar nú en þá. — gg
• Samvinna þeirra Axels og Björgvins í landsleikjum hefur verið
rómuð. Þær eru ófáar línusendingarnar frá Axel sem Björgvin hefur
skorað úr eins og honum er einum lagið. Á myndinni sjást þeir félagar
í landsleik og Axel hefur ógnað, lyft sér og lætur boltann síðan detta á
Björgvin sem er við öllu búinn.
Axel og Björg-
vin verða ekki
með landsliðinu
Nú er ljóst að hvorki Björgvin
Björgvinsson né Axel Áxelson
gefa kost á sér í íslenska
landsliðið í handknattleik í vetur.
Og óvíst er hvort ólafur Jónsson
verður með en það mun ekki
skýrast fyrr en á mánudag. Er
þetta að vissu leyti bagalegt þar
sem fsland þarf á öllum sínum
bestu leikmönnum að halda þegar
haldið verður til B keppninnar í
handknattleik sem hefst á Spáni f
febrúarlok.
Jóhann Ingi hafði fullan hug á
að fá þessa þrjá leikmenn til liðs
við sig og fór gagngert út til
Þýskalands til að sjá þá leika og
ræða við þá, eins og skýrt hefur
verið frá. En vissir annmarkar
voru á hlutunum og nú er ljóst að
leikmennirnir að Ólafi undan-
skildum verða ekki með. Samt er
enn smá von um að Ólafur gefi
kost á sér í æfingar og keppnina
sjálfa.
Allir þessir leikmenn eru í góðri
æfingu og hafa fengið góða dóma
fyrir frammistöðu sína í leikjum
að undanförnu.
- ÞR.
Ársþing Glímusambandsins
FIMMTÁNDA ársþing Glímu-
sambands íslands var haldið á
Hótel Loftlciðum í Reykjavík 29.
nóvember s.l.
Þingforsetar voru kjörnir
Ilermann Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Í.S.Í. og Páll Aðal-
steinsson formaður U.M.S.K.
Gestir þingsins voru Gísli
Ilalldórsson forseti Í.S.Í. og
Hafsteinn Þorvaldsson formaður
U.M.F.I. og fluttu þcir báðir
ávarp.
I skýrslu stjórnar kom m.a.
fram að fimm landsmót í glímu
voru haldin á árinu.
Unnið er að ritun glímusögu
íslands sem ráðgert er að komi út í
tveim bindum og er fyrra bindið.
sem ritað er af Þorsteini Einars-
syni, að verða fullbúið til
prentunar.
Miklar umræður urðu um
málefni glímunnar, m.a. um hvaða
keppnistilbrigði hentuðu glímunni
best og var samþykkt að Glímu-
sambandið heföi forgöngu um að
reyna ný tilbrigði.
Tækninefnd Glímusambandsins
hefur undirbúið námskeið fyrir
leiðbeinendur í glímu, sem haldið
verður í lok nóvember.
I stjórn fyrir næsta starfsár
voru kosnir: Formaður Ólafur
Guölaugsson. Meðstjórnendur,
Sigtryggur Sigurðsson, Þorvaldur
Þorsteinsson, Sigurður Jónsson og
Steinþór Þráinsson.