Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
Iðulaus stórhríð
fyrir Norðurlandi
Víða á landinu var komin ófærð eða færð ótrygg
Iðjulau.s stórhríð var í allan
Ka rdaK á Norðurlandi og allt upp
í 11 vindstijí með snjókomu á
miðunum þar úti fyrir og vart
>?ert ráð fyrir að drægi úr veðrinu
fyrr en líður á daginn í dag. að
söiín veðurfræðinK-s. en hins
veKar var komið skikkanlegt
veður á sunnanverðu landinu í
ga'rkvöld enda þótt þar væri élja-
og slydduveður framan af gær-
deginum. Meiri snjór er nú víða á
Suðurlandi en i'húar þar hafa átt
að venjast á þessum árstíma nú
síðustu árin.
Umferö gekk stirðlega víða í
nágrenni höfuðborgarinnar en að
sögn vegaeftirlitsmanns stafaði
það fremur af vanbúnaði ökutækja
heldur en að snjórinn væri svo
erfiður yfirferðar. Var í gær
greiðfært austur fyrir fjall, þótt
hálka væri mikil og krapavaðall en
síðan var ágæt færð allt austur í
Mýrdal. Undir kvöld var hins
vegar færð að þyngjast á Suð-
austurlandi, einkum þó Aimanna-
skarðið og á Austurlandi voru allir
fjallvegir færir nema Fagridalur,
en vel fært á Héraði og fyrir
stórar bifreiðar suður með fjörð-
Enn eitt
gangbraut-
arslysið
ENN eitt gangbrautarslysið
varð í gær, þegar 7 ára drengur
varð fyrir fólksbíl á Kirkju-
braut á móts við sjúkrahúsið.
Litli drengurinn lærbrotnaði og
liggur nú í sjúkrahúsinu þar í
bænum.
Slæmt skyggni var þegar
slysið átti sér stað, og ber
ökumaður fólksbílsins að
drengurinn hafi hlaupið fyrir-
varalaust út á gangbrautina
fvrir bílinn. Önnur vitni hafa
ekki fundizt að þessu slysi en
lögreglan á Akranesi biður þá
sem einhverjar upplýsingar
geta gefið að gefa sig fram.
Fátt var vitað um umferð í
Þingeyjarsýslunum vegna þess að
þar var víðast hvar stórhríð og í
grennd við Akureyri var ófært til
Ólafsfjarðar og reyndist ekki unnt
að opna Öxnadalsheiði. Þá var í
gærmorgun stórhríð í Skagafirði
en seinnipartinn var þar sæmileg
færð í héraði en ófært til Siglu-
fjarðar. Um Húnavatnssýslur og
yfir Holtavörðuheiði var sæmilega
greiðfært fyrir velbúnar bifreiðar
og fyrir jeppa og stórar bifreiðar
ailt til Hólmavíkur.
A Vestfjörðum voru allir fjall-
vegir ófærir en fært frá Reykjavík
í Reykhólasveit um Heydal en þó
aðeins stórum bílum vcstan
Búðardals..Brattabrekka var ófær
en tvísýnt um færð á Snæfellsnesi
vegna skafrennings.
.rflfl-S:.r
Snjórinn opnar ungviðinu nýja möguleika til að komast leiðar sinnar meðan hann lokar leiðum ýmissa
fyrirhyggjulausra hifreiðastjóra.
Sabena stef nir inn
á markað Loftleióa
Belgíska félagið áformar að hef ja flug
til Chicaco og Baltimore í skjóli nýs
loftferðasamnings við Bandaríkin
FORSVARSMENN Flugleiða búa
sig nú undir að mæta enn
harðnandi samkeppni á flugleið-
inni yfir N-Atlantshafið milli
meginlands Evrópu og Banda-
ríkjanna. þar sem belgíska flug-
félagið Sabena mun hafa áform
uppi um að taka upp áætlunar-
ferðir til tveggja nýrra borga
vestan hafs á grundvelli nýs
loftferðasamnings milli belgískra
og bandarískra stjórnvalda og
hefur þá aðallega augastað á
Chicago og Baltimore. Flugleiðir
halda uppi flugi til beggja
þessara staða með góðum
árangri. svo að ætla má að
Sabena hafi hug á að ná til
einhverra þeirra farþega, sem
Loftleiðir hafa flogið með á milli
þessara borga Bandarikjanna og
Luxemborgar. Talsmaður Flug-
leiða lýsti áhyggjum sínum yfir
þessari þróun í samtali við Mbl. í
gær.
Það var á síðasta þingi alþjóða-'
samtaka flugfélaganna IATA í
Genf að kynntir voru nýir loft-
ferðasamningar sem bandarísk
stjórnvöld hafa gert við þrjú ríki
— ísrael, Pólland og Belgíu, en
þessir samningar fela allir í sér
aukningu á viðkomustöðum flug-
félaga landanna vestan hafs ásamt
ákvæðum um að stjórnvöld land-
anna blandi sé ekki inn í far-
gjaldamál þeirra nema ríkis-
stjórnir beggja landanna verði
ásáttar um slíkt.
Birgir Þorgilsson, fulltrúi Flug-
leiða á þessu IATA-þingi, sagði að
þessir samningar og þó sérstak-
lega hinn belgíski gætu vegna
nálægðarinnar við Luxemborg,
haft hinar margvíslegustu afleið-
ingar. Strax og búið er að stað-
festa þennan loftferðasamning
mun belgíska flugfélagið fá tvo
nýja viðkomustaði í Bandaríkjun-
um og síðan sex mánuðum síðar
þriðja staðinn, en Birgir kvað talið
næsta víst að forsvarsmenn
Sabena hefðu í hyggju að taka
Chicago og Baltimore sem fyrstu
viðkomustaðina.
Birgir sagði, að því væri ekki að
neita að þeir Flugleiðamenn hefðu
töluverðar áhyggjur af þessari
þróun mála, því að loftferðasamn-
ingar þessir hefðu í för með sér að
flugfélögin gætu raunverulega
ákveðið hvert fyrir sig fargjöldin
hverju sinni og væri búist við að
þetta myndi hafa í för með sér að
fargjöld flugfélaga þessara landa
færu lækkandi.
Flugleiðir skipa sér-
staka rannsóknanefnd
Islendingarnir fhitt-
ir í einkasjúkrahús
—Eru þar til frekari rannsóknar
ÍSLENZKI læknirinn. sem
Flugleiðir sendu til Sri Lanka.
sendi félaginu upplýsingar í
gær um líðan íslendinganna,
sem komust af í slysinu. Sam-
kvæmt upplýsingum Flugleiða
ítrekaði læknirinn. Katrín
Fjeldsted. að enginn íslending-
anna væri í lífshættu.
í gær voru íslendingarnir
allir fluttir af Negomba-sjúkra-
húsinu í fyrsta flokks sjúkra-
hús. þar sem brezkir læknar
stunda þá. Samkvæmt upplýs-
ingum Helgu Ingólfsdóttur hjá
Flugleiðum eru íslendingarnir
nú í mjög góðum höndum.
Kristin Kristleifsdóttir flug-
freyja fékk í gær að fara af
sjúkrahúsinu og var komin í
hótel í Colombo, en Jónína
Sigmarsdóttir og. Þuríður Vil-
hjálmsdóttir voru enn í sjúkra-
húsinu, en þó ferðafærar. Oddný
Björgólfsdóttir flugfreyja er
eins og áður er getið mjaðma-
grindarbrotin og nokkuð marin,
en hún verður að halda kyrru
fyrir og liggja. Harald Snæhólm
flugstjóri, sem meiddist á
hrygg. yar í rannsókn í gær, er
Morgunblaðið hafði síðast
spurnir af líðan íslendinganna.
Samkvæmt fréttaskeyti frá
Associated Press fréttastofunni,
sem Morgunblaðinu barst í
gærkveldi, segir, að sjúkrahúsið,
sem Islendingarnir voru fluttir
á, sé bezti einkaspítalinn á Sri
Lanka. I skeytinu segir jafn-
framt að þótt Kristín Kristleifs-
dóttir hafi flutzt í hótel, þá eigi
hún að fara enn til rannsóknar í
sjúkrahúsið í dag, laugardag.
Hún hafði fengið hc-ilahristing.
Skeytið er að öðru Ieyti sam-
hljóða upplýsingum um líðan
íslendinganna, sem Flugleiðir
gáfu í gær.
Læknirinn, sem annast hin
slösuðu, dr. Thevar Buell, kvað
illa hafa farið um íslendingana
á ríkissjúkrahúsinu, þar sem
þeir voru innan um fjölda
annarra slasaðra. Sjúkrahúsið,
sem þeir voru síðan fluttir á, var
upphaflega byggt í stjórnartíð
Breta á eynni og þá reist
eingöngu fyrir útlendinga.
Þá segir í skeyti AP, að
upphafleg áætlun hafi verið sú,
að íslendingarnir héldu áleiðis
til Evrópu á laugardag með
flugfélaginu Garuda, en vegna
þess hve margir farþegar hefðu
verið bókaðir í flugvélina hefði
ekki verið unnt að koma líkkist-
um hinna látnu íslendinga með.
Var vonazt til þess að íslend-
ingarnir kæmust af stað frá Sri
Lanka á sunnudag.
í SAMRÆMI við öryggisreglur
Flugleiða hefur félagið skipað
slysarannsóknarnefnd vegna
flugslyssins er var við
Katunyake-flugvöll í Colombo á
Sri Lanka sl. miðvikudagskvöld
og fer hér á eftir frétt Flugleiða
þar sem greint er frá þvú
Formaður nefndarinnar er Leif-
ur Magnússon framkvæmdastjóri
flugrekstrar- og tæknisviðs, aðrir
nefndarmenn eru þessir:
Grétar Br. Kristjánsson, for-
stöðumaður flugstöðvardeildar,
Halldór Guðmundsson, forstöðu-
maður tæknideildar, Jóhannes
Óskarsson, deildarstjóri í flug-
deild, Jón Óttarr Ólafsson, fulltrúi
í fíugdeild, Guðlaugur Helgason,
flugstjóri og eftirlitsflugmaður á
DC-8 þotum félagsins og Ólafur
Agnar Jónasson, yfirflugvélstjóri
á DC-8 þotum félagsins.
Þrír hinir síðastnefndu fara
utan í fyrramálið (laugardag, 18.
nóv.) áleiðis til Sri Lanka. Þar
munu þeir vera til aðstoðar fyrir
félagsins hönd við ra annsókn
slyssins og veita jafnframt hinni
opinberu rannsóknarnefnd á
staðnum , allar þær upplýsingar,
sem með þarf varðandi flugrekstur
félagsins. Fyrirliði þremenning-
anna er Jón Óttarr Ólafsson. Búist
er við að þeir verði ytra a.m.k.
viku.
Nefndarmönnum til ráðgjafar
verða þrír fulltrúar frá viðhalds-
deildum bandaríska flugfélagsins
Seaboard World Airlines í New
York og Cargolux í Luxemborg,
sem annast viðhald DC-8 véla
Flugleiða. Verða þeir komnir til
Sri Lanka um svipað leyti og
Islendingarnir.
Skv. reglum alþjóðaflugmála-
þjónustunnar (ICAO) hafa stjórn-
völd í Sri Lanka með höndum
rannsókn flygslysa er verða þar í
landi. Þau geta þó leitað aðstoðar
utanaðkomandi aðila, ef nauðsyn-
legt er talið. Vitað er að þegar
hefur verið leitað til eftirfarandi
aðila um slíka aðstoð:
Loftferðacftirlits íslensku flug-
málastjórnarinnar. Þaðan fer
Skúli J. Sigurðsson, deildarstjóri,
og verður hann samferða nefndar-
mönnunum þremur frá Flugleið-
um.
Slysarannsóknaráðs Banda-
ríkjanna. Þaðan fara a.m.k. tveir
fulltrúar, Russell og H.W.R.
Banks, en ef að líkum lætur verða
þeir fleiri.
McDonnel Ilouglas flugvéla-
verksmiðjanna í Kaliforníu í
Bandarfkjunum. Þaðan fer einn
fulltrúi, Steve Lund, og er gert ráð
fyrir að hann verði kominn til
Colombo á morgun (laugardag) og
þá fer einnig fulltrúi frá trygging-
arfélögum.