Morgunblaðið - 29.11.1978, Page 14

Morgunblaðið - 29.11.1978, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1978 Yitað var um öryggisleysið á flugvellinum Eítirfarandi grein hirtist í nýútkomnu tölublaði brezka tímaritsins „The Economist“ um flugslysið á Sri Lanka. bar sem þar kemur ýmislegt fram, sem ekki hefur áður birzt hér í blaðinu varðandi öryggismál á flugvellinum við Colombo, þykir rétt að greinin birtist óstytt. Loftferðayfirvöld á Sri Lanka höfðu fengið aðvaranir um það mörgum mánuðum áður en þota Flugleiða fórst í fyrri viku að flugstjórnartæki á Katunayake — alþjóðaflugvellinum við Colombo væru það óáreiðanleg að þau yllu öryggisleysi á flugvellinum. Fulltrúar annarra alþjóðaflugfélaga skýra frá því að rétt fyrir slysið mikla á miðvikudag hafi þrjú meiriháttar siglingatæki flugvallar- ins verið óstarfhæf. Það mikilvægasta þessara tækja, blindflugskerfið — rafeindageisli, sem flugstjórinn fylgir í tækjum sínum í flugstjórnarklefanum niður að flugbrautarendanum — var notað við þetta örlagaríka aðflug að því er yfirvöld segja. En daginn sem slysið varð hafði það farið úr sambandi hvað eftir annað. Og daginn eftir sagði flugstjóri hjá Singapore-flugfélaginu að tækið væri óöruggt. Enginn ágreiningur er um það að fjarlægðamælitækin, radíóvitinn og aðflugsljósin, voru ónothæf. Skortur á aðflugsljósum hafa torveldað lendinguna, sem var að næturlagi og í úrkomu. Því er einnig haldið fram af tæknimönnum, sem starfa fyrir alþjóðaflugfélög á flugvellinum, að blindflugskerfið hafi ekki verið samstillt með aðstoð sérstaklega útbúinnar flugvélar í rúmt ár. Alþjóðareglur samdar í samráði við alþjóða flugmálastofnunina mæla svo fyrir að þess konar samstilling skuli gerð á hálfs árs fresti. Rúmlega 200 af 259 manns um borð — pílagrímar á heimleið frá Mecca — fórust. Sumum sem komust af er ekki ætlað líf. Þetta er í annað skiptið sem bessi mynd birtist með greininni. en undir henni stendun Slysið, sem hefði ekki þurft að gerast. alvarlegt slys verður í leiguflugi með pílagríma á Katunayake —■ flugvelli. Frá því fyrra slysið varð, í desember 1974, hefur margsinnis verið farið fram á það við stjórn Sri Lanka að tækjabúnaður flugvallar- ins verði bættur og komið þar á betri stjórn. Síðasta ábendingin var frá International Aeradio Ldt., dótturfyrirtæki British Airways, sem 30 önnur flugfélög eiga einnig smærri hluti í. Undanfarna 15 mánuði hefur félag þetta staðið fyrir könnun á flugvellinum og tækjabúnaði þar. í maí skilaði það skýrslu þar sem segir að fjarskiptakerfi og siglinga- tæki á flugvellinum eigi það til að bila, sérstaklega í rigningu, vegna lélegs viðhalds og stjórnunar. Eini Sri Lanka starfsmaðurinn, sem fær er um að halda við fjarskipta- og siglingatækjum er nú í Bretlandi á námskeiði. Þá á Sri Lanka það sameiginlegt með Indlandi og Pakistan að margir lærðir flugum- ferðarstarfsmenn þar hverfa úr landi til mun betur launaðra starfa í arabisku furstadæmunum við Persaflóa. Ratsjártækin voru í góðu lagi, segir í skýrslu Aeradio, en kerfið er illa skipulagt. Langdræga ratsjáin Grátt er litur hversdagsleikans. Viö hjá PHILIPS höfum þess vegna spariklætt ryksugurnar okkar í rautt, grænt og hvítt. Hjá PHILIPS sameinum viö fallegt útlit og tæknilega fullkomnun. PHILIPS ryksugan hefur mikinn sogkraft en er samt hljóðlát. stór hjól og snúningstengsl ^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm gera hana lipra og hún I er fyrirferðarlítil í geymslu. I I Falleg og fullkomin vél ^ gerir verkin auðveld. „ HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 Fundin víkinga- mynt í Ameríku I>ondon, 28. nóvember — AP GAMALL peningur, sem fannst í Maine-ríki í Banda- ríkjunum, rennir stoÖum undir kenninguna um að víkingar hafi fundið Ameríku á undan Kólumbusi, að því er brezkur sérfræðingur segir. Þessi niðurstaða birtist í mánaðarritinu „Coin and Medal Bulletin“, sem myntsala Seabys í London gefur út. Forstöðumaður myntsölunnar, Peter Seaby, kveðst hafa rann- sakað ljósmyndir af myntinni og segir hana norræna, og senni- lega slegna milli 1065 og 1080. Hann segir hana svipaða mynt- Mannrán San Sebastian, Spáni. 28. nóvember. — AP. TVEIR grímuklæddir menn, sem talið er að séu úr aðskilnaðarsamtökum Baska, E.T.A., hafa rænt fulltrúa spænska mennta- málaráðuneytisins í borg- inni San Sebastian á Norð- ur-Spáni, að því er fjöl- skylduheimildir herma. Mannræningjarnir voru vopnað- ir og ruddust inn á heimili fulltrúans klukkan tíu á mánu- dagskvöld. Héldu þeir fjölskyld- unni þar á heimilinu til morguns, en fóru þá á brott í bifreið fulltrúans. Þriðji félagi mannræn- ingjanna varð eftir til að gæta þess að fjölskyldan gerði ekki lögreglunni viðvart fyrr en hinir voru hultir. um, sem slegnar voru fyrir Ólaf kyrra, son Hralds harðráða, sem féll í orrustunni um Stam- ford-brú á Englandi árið 1066. Seaby segir, að myntin hafi fundizt við Blue Hill-flóa í Maine fyrir um 17 árum þegar áhugamenn um fornleifafræði voru að grafa í rusla'haugi Indíána, sem er aldagamall, ef ekki árþúsunda. Ekkert er vitað um það hvernig Indíánar komust yfir myntina. Hún gæti hafa verið notuð til skrauts, þar sem svo virðist sem gat hafi verið borað á hana til að hengja hana um hálsinn. Þetta þarf ekki að þýða það að víkingar hafi átt búsetu þarna, segir Seaby, held- ur gæti hún hafa fundizt á líki víkings. Þvermál myntarinnar er tæp- ur tveir og hálfur sentímetri. Á framhliðinni er höfuð af dýri með opinn munn, hvöss eyru og sveran háls. Á bakhliðinni er kross inni í hring. Engin áletrun er sjáanleg. Peningurinn hefur verið í geymslu í ríkissafni Maine í Augusta frá því hann fannst og þar ranglega álitinn brezkur 12. aldar peningur, segir Seaby. Kína ofsóttir London, 28. nóvembor. — AP. SAMTÖKIN Amnesty International (AI) sökuðu Kín- verja í dag um að ba la allt andóf gegn stjórninni niður með kerfis- bundnum ofsóknum á hendur andófsmönnum. Væru andófsmenn beittir félagslegu misrétti, og allt frá því að kommúnistar komust til valda í landinu árið 1949 hefðu andófs- menn í Kína verið fangelsaðir, pyntaðir og jafnvel líflátnir. I skýrslu AI segir að niilljónir kínverskra andófsmanna hafi ver- ið ofsóttir frá 1949.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.