Morgunblaðið - 29.11.1978, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1978
29
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100KL 10—11
FRÁ MANUDEGI
ÍJJAJTVOi-Ua'iJ If
Er tíöarandinn virkilega orðinn
svona brenglaður? Nei. Bók-
menntasmekkur þjóðarinnar er
heilbrigðari en aðeins nokkurra
manna sem koma saman til þess
að dæma um bækur. Dómnefnd
eru menn, sem sitja á rökstólum
og dæma um það sem þeim er
trúað fyrir af öðrum eða að þeir
eru sjálfskipaðir. Það hvílir á þeim
ábyrgð. Þeir ættu fremur að
hjálpa og leiðbeina ungum höfund-
um en kynda undir eldinum sem
getur skaðbrennt þá. „Dómnefnd"
eru menn sem mega ekki koma
fram að hætti andlegra ótíma-
burða. Þjóð okkar þarfnast já-
kvæðra viðhorfa á bókmenntasvið-
inu ekki síður en í viðskipta- og
hversdagslífinu. Hún þarfnast
atkvæðamanna sem virða lög Guðs
og fara eftir þeim og hún á þá
marga góða. Við þurfum að geta
miðlað hvort öðru af nægta- og
vizkubrunnum heilbrigðra^ lifs-
skoðana, se'm hafa Guðs orð að
leiðarljósi. Við ættum að taka
höndum saman og standa vörð um
heilbrigða íslenzka menningu og
virða viðleitni þeirra sem vilja
vera heiðarlegir á verðinum, þótt
þeir við það ntissi einhvern tíma
spón úr askinum sínum í þessu
annars stutta jarðlífi.
S.K."
• „Metverðs-
kjaftæði?“
„Vegna margendurtekinna
fregna urn metsölur íslenskra
fiskiskipa á ísuðum fiski erlendis
langar mig að ræða aðeins um
tilefni þessara fregna. Ef lagt er
til grundvallar einungis verð pr.
kíló, þá er hægt að setja met með
lítinn afla og lélega veiðiferð. Hins
vegar ef notuð er enska reglan, það
er að segja, hversu mikið verð-
mæti skipið hefur aflað pr. dag í
veiðiferðinni, þá fellur fyrri reglan
strax. Ef hinsvegar er notuð
reglan um hæsta heildarverð, þá
fellur fyrri reglan oftast en hin
stenst oftast. Reglan pr. kíló er
fundin upp af hlaðamönnum og
fréttamönnum, sem gera sér ekki
grein fyrir fjárhagslegri afkomu
veiðiferðarinnar, heldur vilja
frétt, eða vilja vekja athygli á
skipi, sem ekki hefur koniist í
fréttir fyrir mikinn afla. Mig
hefur lengi langað að vekja athygli
á þessu metverðskjaftæði, en ekki
talið það fært vegna minnar eigin
þátttöku sem fiskimaður. Nú á ég
ekki lengur hagsmuna að gæta og
þess vegna læt ég eftir mér að
vekj;f athygli á þessari skoðun
minni.
Markús Guðmundsson."
Þessir hringdu . . .
• Hvert var
tilefnið?
Svanhildur Thorsi
— Mig langar að forvitnast
um það hjá Guðrúnu Jacobsen,
sem skrifað hefur í Velvakanda
nýlega tvö bréf, þar sem hún gerir
að umtalsefni unglinga í Voga-
hverfi í Reykjavík, af hvaða tilefni
þessi skrif hennar eru sprottin.
Mér finnst það ekki koma nógu
skýrt fram hvers vegna hún tekur
sér penna í hönd og skrifar, og hún
notar ýmis stór orð. Ég hefi átt
börn í Vogaskóla og hefi ekki haft
undan einu eða neinu að kvarta og
þau ekki átt í neinum vandræðum
í skólagöngu sinni. Og þar sem hún
ræðir um yfirkennarann heitinn
þá er ég alls ekki viss um að hann
hefði óskað eftir að allt félagslíf
innan skólans legðist niður.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A Olympíuskákmótinu í Buenos
Aires kom þessi sérkennilega
staða upp í skák þeirra Giardellis.
sem tefldi fyrir B sveit Argentínu,
og Jamiesons. Ástralíu, sem hafði
svart og átti leik.
... Bf8+?, 37. Hxf8+! - Hxf8, 38.
Hxf8+ — Kxf8, 39. Df5+ með
ágætum jafnteflismöguleikum).
37. Bxd2 — HbG+ og hvítur gafst
upp, því það eru aðeins þrír leikir
eftir í mátið. Nákvæmara var að
vísu 37. ... Hd8+!, því þá eru
aðeins tveir leikir í mátið.
• „Húsið á öðrum
tíma?“
Kona nokkur sem á fjölsk.vldu
og fer yfirleitt á skíði eða stundar
aðra útiveru á sunnudögum óskaði
eftir, að því yrði komið á framfæri
við sjónvarpið hvort ekki væri
hægt að sýna framhaldsþáttinn
nýja, „Húsið á sléttunni“, á öðrum
tíma. Sagði hún að hér væri um að
ræða gott sjónvarpsefni, kannski
eitt af fáu sem væri sérlega
skemmtilegt fyrir börnin og þau
gætu horft á án þess að bíða tjón
af, niiklu fremur lært af því, þarna
væri kennt hvernig fara ætti vel
að fólki. Kvað konan það ekki rétt
að hafa þetta efni á þeim tíma sem
e.t.v. helzt gamla fólkið horfir á
sjónvarp, það þyrfti vart að læra
góða siði, þar sem það kynni þá nú
þegar.
HÖGNI HREKKVÍSI
evá;i \jie
AÐ H/VNN MAFi VZW&
bNANGUe'-
S\G€A V/öGA í t/LVtítAK/
/ví/ö VAMTAZ m um. vs/'oTo) , \iVA% Éá J( ní /1m bví/$09\ m a<z vim vm \ \ v/ONOVf <bO£GA, \JÁÍG UúM/
Ingimarsskóli 1948
30 ára gagnfræðingar frá Ingimarsskóla, útskrif-
aðir 1948, hafa ákveðiö að hittast í Þjóðleikhús-
kjallaranum föstudaginn 1. des. kl. 19.00 og rifja
upp gamlar endurminningar.
KópavGgskaupstaðir K!
Byggingalánasjóður
Kópavogs
Auglýst er eftir umsóknum um lán úr bygginga-
lánasjóöi Kópavogs. Skilyrði, fyrir því aö
lánbeiöanda veröi veitt lán úr sjóönum eru þessi:
A Aö hann hafi verið búsettur í bænum a.m.k. í 5
ár
B Aö íbúðin fullnægi skilyröum húsnæöismála-
stjórnar um lánshæfi.
C Aö umsækjandi hafi aö dómi sjóösstjórnar
brýna þörf fyrir lánsfé til þess aö fullgera íbúö
sína. Umsóknum skal skila á þar til geröum
eyöublööum sem fást á bæjarskrifstofunni í
Kópavogi. Umsóknarfrestur er til 15. des. n.k.
Bæjarritarinn í Kópavogi.
iW AMERISKUR WWm
KULDAKLÆÐNAÐUR
FYRIR VINNU A
mföm og leik mk
Hetta
Úlpa
Buxur
Samfest-
ingur
meö hettu
I , Sendum í p6«5tkröfu f
ÍÁmi Olafssor* & Cd!
tf 40088