Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978 39 Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurlandi: Helgi ívarsson kjörinn formaður kjördæmisráðsl Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisílokksins í Suður- landskjördæmi var haldinn að Hellu á Rangárvöllum þann 11. nóvember síðastliðinn. Við stjórnarkjör baðst Jón Þorgilsson undan endurkjöri, og var í hans stað kjörinn formaður Helgi ívarsson, Hólum. Aðrir í stjórn voru kjörnin Jón Þorgils- son, Hellu, ólafur Þorðarson, Vík, Ingibjörg Johnsen, Vest- mannaeyjum, og ólafur Steins- son, Hvcragerði. í varastjórn voru kosin Hilmar Jónasson, Hellu, Sigrún Sigfús- dóttir, Hveragerði, Björn Þorláks- son, Eyjarhólum, Eyjólfur Martinsson, Vestmannaeyjum, og Helgi Björgvinsson, Selfossi. Þá voru eftirtalin kjörin í flokksráð: Jón Ólafsson, Eystra Geldinga- holti, Ari Þorgilsson, Vík, Jóhann Friðfinnsson, Vestmannaeyjum, Guðmundur Sigurðsson, Selfossi, Sigurðiir Óskarsson, Hellu, og Jón Þorgilsson, Hellu. Varamenn í flokksráð: Magnús Jónasson, Vest- mannaeyjum, Sigþór Sigurðsson, Litla-Hvammi, Hermann Sigur- jónsson, Raftholti, Óskar Magnús- son, Eyrarbakka, Tómas Pálsson, Litlu-Heiði, og Arnar Sigur- mundsson, Vestmannaeyjum. Fram kom í starfsskýrslu er formaður stjórnar kjördæmisráðs- ins, Jón Þorgilsson, flutti í upphafi fundar, að sjálfstæðisfélögin á Suðurlandi eru fjölmenn og starf þeirra öflugt og þróttmikið. Auk venjulegra aðalfundarstarfa urðu á fundinum miklar umræður um landsmál og héraðasmál og höfðu þingmenn flokksins í kjördæminu framsögu. í máli fundarmanna kom fram ákveðinn vilji fyrir því að efla á ný áhrif Sjálfstæðis- flokksins í þjóðmálum til heilla fyrir land og lýð. m Graskögglaframleiðslan var liðlega 11 þtís. lestir Blóð Guömundur L. Friöfinnsson Framleiðsla allra grasköggla- verksmiðja f landinu á þessu ári varð samtals 11.140 lestir, og er framleiðslan nokkru meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Fóður og fræ í Gunnarsholti framleiddi alls 3400 lestir, Stórólfsvellir í Hvolhreppi fram- leiddu 2960 lestir, Fiatey í A-Skaftafellssýslu 2200 lestir og Brautarholt á Kjalarnesi alls 1200 lestir. Verðið hefur verið ákveðið og er það 68 til 72 þúsund krónur fyrir hverja lest, en þetta verð gildir fram að áramótum. Veittur er magn- og staðgreiðsluafsláttur. Af heildarfóðurbætisnotkun hér á landi eru graskögglar rétt um 13%, að því er segir í fréttabréfi Upplýsingaþjónustu landbúnaðar- ins. / Þetta nýja verk skáldbóndans á Egilsá er bæði áhrifamikið og nýstárlegt í íslenzkum sagnaskáldskap. Sagan er jafnt fyrir aldna sem unga, full af húmor en undir niðri er alvarlepur tónn. Lögmál fjölskyldunnar í sögunni er að ekkert sé fagurt utan þaö eitt er étiö veröur eöa hag- nýtt á annan hátt. Miskunn er tákn veikleika og sjálfseyöingar. Ein persónan getur þó ekki tileinkað sér þessi lögmál en finnst svo ótalmargt í veröldinni undurfagurt, þó aö hún viti, að frumhvatirnar stjórni lífinu. Hvernig farnast slíkum^ frávillingi í kaldrænum heimi? Almenna bókafélagið Austurstræti 18 — Sími 19707. Skemmuvegi 36, Kópavogi — Sími 73055. Stórmarkaðurinn OPNAÐUR Á MORGUN 2200 fermetra ný og glæsileg verslun Ótrúlegalágtverö■ Greiðaðkeyrsla■ Góóbilastæði með alla matvöru (kjöt, mjólk, brauð, ^vvs pakkavöru og niðursuðuvörurj-pappírs- STORMARKAÐURINN vörur, kerti-leikföng og gjafavörur. OAW3SKEMMUVEGI 4A KÓPAVOGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.