Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978 23 Rússar um f járútlát til varnarmála: Fjórum sinnum minni en hjá Bandaríkjunum Moskvu, 29. nóvembor. AP. SOVÉTRÍKIN tilkynntu í das. að áætlað væri að verja um 17.2 milljörðum rúblna til varnarmála á næsta ári eða sem nemur um 8300 milljörðum íslenzkra króna. Þetta er sama upphæð og tilkynnt var fyrir árið 1978 og líklena minni en búizt var við á Vestur- löndum. 1 Spánverjar EBE árið 1982 Brussel. 29. nóvember. AP. Ráðherranefnd Efnahagsbanda- lags Evrópu, EBE, lýsti því yfir eftir fund sinn í dag að hún mundi mæla með aðild Spánar þestar umsókn landsins verður formlega tekin til afgreiðslu, en varaði jafnframt við vandamálum sem upp kynnu á koma í sambandi við samskipti í landbúnaði og iðnaði. Samþykkt ráðherranefndarinnar var ekki birt í heild sinni en áreiðanlegar heimildir herma þó að ráðherrarnir hafi verið sammála um að nauðsynlegt væri að leysa nokkur stór vandamál í sambandi við efnahagsmál Spánar áður en af aðild gæti orðið. Búist er við að Spánverjar fái aðild að bandalaginu á árinu 1982 á eftir Grikkjum og ári á undan Portúgölum, en samningar milli EBE og Spánar verða að öllum líkindum undirritaðir á næsta ári. Það var fjármálaráðherra Sovétríkjanna, Vasily F. Garbuzov, sem lagði þessar tölur fyrir sovézka þingið í dag og sagði jafníramt, að Bandaríkjamenn áætluðu að verja til varnarmála á þessu ári sem næmi um 34600 milljörðum íslenzkra króna sem væri um 24% af öllum útgjöldum ríkisins. Áætlunartölur Sovétmanna eru ekki nema um 7% af heildarút- gjöidum ríkisins sem eru sam- kvæmt því, sem ráðherrann sagði, um 130 þúsund milljarðar ís- lenzkra króna. Vestrænir hernaðarsérfræðing- ar segja að tölur Sovétmanna séu fölsun ein, því að kostnaður sé falinn undir ýmsum öðrum liðum í frumvarpi til fjárlaga. Bandarískir hernaðarsérfræð- ingar telja öruggt að fjárútlát Sovétmanná til varnarmála fari vel yfir 30 þúsund milljarða og hafa reyndar fullyrt að útlátin árið 1976 hafi numið um 35 þúsund milljörðum íslenzkra króna. EfnahagsvandræðiBandaríkjamanna: Verðbólgan í 10% Washington. 29. nóvember. AP. AÐAL verðbólgusérfræðingur Jimmy Carters. Bandarikjafor- Ungverjar viija eðlilegt samband við Albaníumenn Budapest. 29. nóvember. AP. UNGVERJAR hvöttu í dag Albani til að taka upp aftur eðlileg samskipti við aðrar þjóðir Aust- ur-Evrópu og taka virkan þátt 1 starfsemi Varsjárbandalagsins. Hvatningin kemur á sama tíma og Albanir halda hátíðlegt að 34 ár eru liðin frá því, að þar var stofnað lýðveldi. — Ennfremur segir að samskipti Albana við Kínverja hafi verið Albönum til ills eins. Ungverj- ar segja einnig, að það yrði Albönum ótvírætt til framdráttar á öllum sviðum að taka aftur upp eðlilegt samband vaið nágranna sína í Austur-Evrópu. seta. Alfred Kahn. sagði í dag að verðbólga í Bandaríkjunum væri nú um 10% sem er það hæsta sem verðhólgan hefur komist í undan- farin ár. Einnig eru þessar tölur hærri en aðrir ráðgjafar forset- ans hafa látið fara frá sér að undanförnu. Kahn sagði. að 10% verðbólga væri hreint hræðileg fyrir Banda- ríkjamenn og yrði að herjast af alefli gegn þessari óheillaþróun. Til þessa hafa ráðamenn eins og Michael Blumenthal, fjármálaráð- herra, haldið því fram að verðbólg- an væri aðeins 8% og vekur því yfirlýsing Kahns verulega athygli þar vestra. Kahn sagði ennfremur við þetta tækifæri, að ekki væri við því að búast að hægt væri að ná verð- bólgunni niður að marki á næstu mánuðum. Það yrði verkefni næstu tveggja ára. Þá sagði Kahn ennfremur, að stjórn Carters ihugaðí nú að breyta stefnu sinni í launa- og verðlagsmálum verulega en vildi ekki fara nánar út í það hvernig þeim breytingum yrði háttað. Þriðji heimurinn: 15 milljónir bama mimu deyja árlega Manila. 29. nóvember. AP UM 15 milljónir barna undir fimm ára aldri eru dæmdar til að deyja ár hvert í iöndum þriðja hcimsins vegna mikillar offjölgunar. segir í yfirlýsing- um starfsmanna Sameinuðu þjóðanna í Manila. Þar segir að komið hafi í ljós við rannsókn sem Sameinuðu þjóðirnar framkvæmdu hjá foreldrum í þessum löndum. að flestir reyndu að eiga sem flest börn af ótta við að cinungis fá þeirra na-ðu fullorðinsaldri. Yfirlýsing þessi kemur fram í upphafi ráðstefnu sem Samein- uðu þjóðirnar gangast fyrir í Manila um málefni barna. Á ráðstefnunni er meiningin að ræða framtíðaráætlanir um aukið velferði barna á næstu tíu árum. Þá kemur fram í yfirlýsing- unni, að sérfræðingar telja alveg nauðsynlegt að barns- fæðingum fækki um a.m.k. 30% í löndum þriðja heimsins til að komið verði í veg fyrir þetta hörmungarástand. Ford í verulega miklum kröggum Veður víða um heim Akureyrí Amsterdam Apena Barcelona Berlín Brilssel Chicago Frankfurt Genf 7 skýjaö 2 heiðskírt 15 skýjað 10 léttskýjað 4 rigning 5 heiðskirt -5 snjókoma 2 heiðskírt 2 skýjað Helsinkí -4 skýjaó Jerúsalem 18 skýjað Jóhannesarb. 23 heióskírt Kaupmannah. 3 skýjað Lissabon 15 rigning London 5 heiðskírt Los Angeles 20 heiðskírt Madríd 12 heiðskírt Malaga 12 skýjað Mallorca 11 léttskýjað Miami 27 skýjað Moskva 3 skýjað New York 6 skýjað Ósló -2 léttskýjað París 4 skýjað Reykjavík 5 rigning Rio Oe Janeiro 37 skýjað Rómaborg 10 skýjaö Stokkhólmur 3 skýjaö Tel Aviv 24 skýjað Tókýó 15 heiöskírt Vancouver 8 skýjað Vínarborg 1 skýjað London. 29. nóvembor. Reuter. BRESKU Ford-verksmiðj- urnar tilkynntu í dag, að búist væri við um 100 milljón sterlingspunda tapi fyrirtækisins vegna ákvörðunar bresku ríkis- stjórnarinnar að panta enga bíla frá verksmiðjun- um á næstu tólf mánuðum. Þetta nemur um 60 millj- örðum íslenzkra króna. Ennfremur segir í til- kynningunni, að framtíð fyrirtækisins hangi nú á bláþræði eftir að það varð fyrir 240 milljarða tapi vegna níu vikna langs verkfalls starfsmanna þess fyrir skömmu. Fod-verksmiðjurnar selja venju- lega um 25 þúsund bifreiðar til breska ríkisins, en stjórnin hefur tilkynnt að hún muni ekki kaupa neina nýja bíla á næsta ári og sé það í beinu sambandi við efna- hagsmálastefnu hennar. Vegna ummæla forráðamanna Ford sagði James Callaghan for- sætisráðherra að ekki væri rétt að láta efnahagsaðgerðirnar bitna á einum frekar en öðrum og því.yrði Ford-fyrirtækið að axla sínar byrðar eins og aðrir. Hráefni frá S-Afríku eru Þjóðverjum nauðsynleg Bonn. 29. nóvember. AP. ALLMARGAR milljónir Vest- ur-Þjóðverja eiga atvinnu sína undir því að hráefnisflutningar frá Suður-Afríku haldi áfram með eðlilegum hætti. sagði Ifelmut Schmidt, kanslari Vest- urÞýzkalands. á þingi í dag. Hann sagði að ef króminnflutn- ingur yrði skorinn niður um 30% gæti það þýtt allt að 25% minni iðnaðarframleiðslu landsmanna, en Vestur-Þjóðverjar fá um 60% af öllu innfluttu krómi frá Suð- ur-Afríku. Vestur-Þjóðverjar flytja alls inn um 48 tegundir hráefnis frá Suður-Afríku og þar af eru um 23 tegundir sem eru meira en 10% af heildarinnflutningi viðkomandi hráefnis til landsins. Sonarsonur Carters nýtur góðrar aðstoðar afans. Símamynd AP. Dan White ákærður fyrir morðin í San Francisco San Francisco. 29. nóvombcr. AP. DAN White. sem handtekinn var. grunaður um að haía myrt George Moscone og ráðgjafa hans. Ifarvey Milk. s.I. mánudag. verður ákærður fyrir morð og krafist hörðustu refsingar yfir honum. að því er áreiðanlegar heimildir hér herma. Talið er að White hafi myrt Moscone og Milk vegna þess annars vegar, að Moscone neitaði að endurráða hann eftir að hann sagði starfi sínu sem ráðgjafi lausu fyrir skömmu og hins'vegar vegna þess, aö hann var ákafur hatursmaður Milks og hafði barizt hart gegn því, aö hann yrði ráðinn ráðgjafi þar sem hann væri kvnvilltur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.