Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978 13 Sýning Magnúsar r r A. Arnasonar Blaður- bókmenntir Þaö er engin speki og því síður miklar fréttir, að aldur færist mjög misjafnt yfir fólk. Fáir halda lífsþreki óskertu, þar til yfir áttrætt. En undantekningar eru ætíð til staðar, og það kerr.ur fyrir, að sumir verða hvað fílefldastir, þegar árin færast yfir þá. Þannig virðist það vera með MAGNUS Á. ÁRNASON. Hann er nú að nálgast áttugasta og fjórða árið og lætur sig ekki muna um að efna til sýningar í FÍM-salnum, sem rúmar meir en nokkurn grunaði. Bókmenntir eftir VALTÝ PÉTURSSON Það eru ekki minna en áttatíu og fimm verk á þessari sýningu Magnúsar, og ég held einu betur, því að sonardóttir hans VALDÍS VÍFILSDÓTTIR fær að sýna sína fyrstu olíumynd með afa: Uppstill- ingu, sem stendur í gluggakistu. Magnús hefur lagt gjörva hönd á margt um ævina, og hér fáum við að sjá höggmyndir, teikningar og olíumálverk. Þar að auki hefur hann átt við tónsmíðar og skriftir. Því væri réttast að nefna hann listamann, en ekki aðeins málara eða myndhöggvara. Það virðist hafa verið einstæður kraftur í þeim Narfakotssystkinum, og eftir því sem ég best veit, er einn afkomandi þeirra skipstjóri á einu stæsta skipi heims. Magnús Á. Árnason er eitt þessara merku systkina. Það kennir ýmissa grasa á þessari sýningu Magnúsar. Þar eru margar fyrirmyndir úr landslagi íslands, og eru þær allar mjög líkar því, sem áður hefur sést eftir Magnús. Mikið er af teikningum, sem flestar eru gerðar erlendis, skógur og annar gróður, gömul klaustur. Margar af þessum teikningum munu gerðar, er Magnús dvaldi í Englandi eitt sumar og hafði ekki liti við hendina, en tók sér þá penna og blýant í hönd. Skúlptúrinn á þessari sýningu er eiginlega til- einkaður skáldum. Þarna eru þeir báðir hinir látnu heiðursmenn, Steinn Steinarr og Þorsteinn Valdimarsson, og svo torso, sem gæti táknað skáldgyðjuna. Nýj- ustu myndir Magnúsar skera sig nokkuð úr, hvað litameðferð snert- ir, og raunar formið einnig. Það er eins og hafi lifnaö yfir litum Magnúsar á seinustu árum og ég er ekki frá því, að þar takist honum best upp, þegar öllu er á botninn hvolft. Olíumálverkin „Hvíld“ og „Fótaferð" held ég, að sanni þessi orð mín. Ég hef áður vakið máls á því, að mér finnst þessi staður, sem FIM hefur komið sér upp, aldeilis ágætur til síns brúks. Það þarf að vísu að gera honum lítið eitt til góða, svo að hann verði bæði notalegri og betri til sýninga. Magnús gaf hér út á árunum Ljóð íslenskra listamanna, og var það gert til að fá fé til að byggja sýningarskála. Enn er þessi bók til sölu á sýningu Magnúsar, og enn á afgangurinn að renna til húsnæðis myndlistarmanna. Það er því gullið tækifæri til að styðja við bakið á eilíflega blönkum lista- mönnum, með því að gera góð kaup á ljóðum þeirra, enda mun þessi bók vera á þrotum og verðið er ekkert í ætt við verðbólguna, sem allir eru að berjast við, en sú barátta minnir oft á tíðum á frægan riddara spánskan, sem ekki mátti sjá vindmyllu. Ég óa mér við að kalla Magnús Á. Árnason öldung. Svo frár er hann á fæti og vinnuglaður, en hann hefur ekki góða heyrn, og er það ef til vill það einasta, er gefur manni til kynna, að hér er ekki fertugur á ferð. Ég óska Magnúsi til hamingju með þessa sýningu og vona, að hann haldi sinni frábæru líkamsorku og megi vel lifa á komandi árum. Ólafur Jónsson á Oddhóli> ÁFRAM MEÐ SMÉRIÐ, PILTAR Dagur Þorleifsson skróði 198 bls. Rvk. '78 - Örn og Örlygur hf, Framan á kápu þessarar bókar stendur m.a. þetta: „Þú hlærð þig máttlausan við lesturinn og á stundum getur þú ekki lesið fyrir hláturrokunum." Nú kann það að vera á ég sé alveg sérstakt tilfelli, en satt að segja háðu hláturrokur mér lítt við lestur þessa ritverks. Það er sennilega mjög dapurlegt, því vissulega virðist lítið hægt að gera við þessa bók, annað en að hlægja að henni, en svona var þetta nú samt. Þessi bók er annað bindi ævi- minninga Ólafs á Oddhóli, en hið fyrsta „Ég vil nú hafa mínar konur sjálfur" kom út fyrir jólin 1976 og varð metsölubók. Þótti fólki þó mikið til koma hve hispurslaust Ólafur greindi frá aðskiljanlegum Ólafur Jónsson. uppáferðum sínum. Hefur mér og skilist að slíkar frásagnir hafi verið meginuppistaða bókarinnar. I þessari nýju bók hafa uppáferðir hins vegar orðið að víkja að nokkru fyrir almennara karla- grobbi. Á bókarkápu hins nýja ritverks segir að það sé „mörgum sinnum skemmtilegra" en fyrra bindið, „því nú sleppir hann alveg fram af sér beislinu í kyngimögnuðu hispursleysi...“ Mér er ekki alveg ljóst í hverju „kyngimagnað hisp- Bókmenntlr eftir SVEINBJÖRN L BALDVINSSON ursleysi" Ólafs er fólgið, en sennilega mun þar vera átt við setningar á borð við þessa: „Ég tók hana þrisvar um nóttina, þarna á rimlunum, og ekkert undir nema teppi.“ Sumum finr'st þetta sjálf- sagt voða dónalegt, en það eina sem mér finnst athyglisvert við svona setningar er það að af henni og öðrum álíka virðist mér vera hægt að greina hina forvitnilegu afstöðu Ólafs til kvenna og kynlífs. I augum hans virðist kynlíf vera ein grein afreksíþrótta og konur íþróttaáhöld. Er Ólafur sjálfur mikill íþrótta- maður, eins og marka má af eftirfarandi lýsingu á næturævin- týri í Kaupinhafn: „Ég tók hana sex sinnum yfir nóttina, sem er.varla mjög slæm frammistaða af tæplega sextugum manni." Með slíkum lýsingum vill Ólafur bóndi, að því er mér virðist, sýna sér og öðrum fram á það, hvað hann hafi lifað dæmalaust skemmtilegu lífi og viðburðaríku. Það er svo sem gott og blessað og sauðmeinlaust, en ekki get ég sagt að ég hrífist mikið af svona blaðurbókmenntum, en þeim sem kann að finnast þær tilvitnanir í bókina sem hér er að finna, krassandi eða. spennandi ættu að kaupa þessa bók strax, því hver veit nema hægt sé að lesa þetta sér til ánægju sem klám. Um efni bókarinnar að öðru leyti er lítið að segja. Þar er einkum um að ræða snakk Ólafs bónda um eigið ágæti á hinum ólikustu sviðum, m.a. allmargar frásagnir af ýmsum voða sniðug- um hrekkjum hans og prettum. Að loknum lestri þessarar bókar hef ég komist að þessum niður- stöðum: Mér finnst Ólafur bóndi á Oddhóli ekki merkilegur maður og „Áfram með smérið, piltar" ekki merkileg bók. Það sem er merki- legt er sá fróðleikur sem útgáfa hennar veitir um andlegt ástand hinnar „bókelsku" íslensku þjóðar. Að lokum vil ég óska Ólafi bónda til hamingju með hina yfirnáttúrulegu kynorku sína og Degi Þorleifssyni með ritlaunin. Ási í Bæ> SKÁLDAÐí SKÖRÐIN 200 bls. Iðunn, Rvík. ‘78. Þessi bók Ása í Bæ hefur að geyma marga stutta frásagna- þætti um forfeður hans og ýmis- legt fólk sem hann hefur kynnst á lífsleiðinni. Hinn kímnilegi og óuppskrúfaði stíll hans nýtur sín einkar vel í þessum þáttum sem eru skemmtilegir aflestrar, sumir bráðfyndnir, en aðrir alvarlegri. Ási í Bæ. „Skáldað í skörðin" er hvorki brandarabók, né heldur er þar að finna hádramatískar lofræður um liðna tíð og horfna snillinga. Þessi bók er skilgetið afkvæmi íslenskrar sagnahefðar, þar sem sögumaður segir frá ýmsum at- burðum og einstaklingum og bætir nokkru við frá eigin brjósti, til að undirstrika ákveðna þætti frá- sagnarinnar. Þetta gerir Ási í Bæ, enda gefur nafn bókarinnar það til kynna að hann sé ekki fást við skýrslugerð.. Formið á bókinni er kannski einna næst því að vera af því tagi sem viðhaft er í svokölluð- um essay-rómönum, en þeirrar Skrifar bókmennta- gagnrjjni í Morgunblaðið Sveinbjörn I. Baldvinsson mun skrifa um bókmenntir í Morgunblaðið nú í vetur. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Tjörnina vorið 1977 og er nú við nám í almennri þókmenntafræði við Háskóla íslands. Árið 1976 sendi Sveinbjörn frá sér ljóða- bókina „í skugga mannsins“ og nú fyrir skömmu kom út hjá Almenna bókafélaginu hljóm- plata með lögum og ljóðum eftir hann. ber hún nafnið „Stjörnur í skónum“. Svein- björn hefur starfað sem blaða- maður við Morgunblaðið tvö sumur. Bókmenntlr eftir SVEINBJÖRN I. BALDVINSSON gerðar er m.a. endurminningatrí- lógía Halldórs Laxness. Einn þeirra þátta sem mér þóttu hvað athyglisverðastir var stuttur kafli sem fjallar um kynni Ása af Steini Steinarr, þar sem lýst er þeim mun sem var á háttalagi skáldsins þegar hann var í fjöl- menni og þegar menn ræddu við hann einslega og þá kannski „yfir pela af kóníökkum" eins og Ási í Bæ. Það hefur mikið verið skrifað um Stein og til er aragrúi blaðaviðtala við hann, en mig grunar að í frásögn Ása af eintali þeirra Steins yfir koníakinu í Hljómskálagarðinum, felist sann- ari lýsing á þessum skáldjöfri en víða í fyrrgreindum ritsmíðum. Það sem Ási í Bæ fjallar um i þessari bók er í raun mannlegt líf í öllum þess ólíku myndum, en það sem einkennir frásögn hans er hinn mikli skilningur á þeim sam-mannlegu þáttum sem er að finna í allri mannlegri tilveru. Þetta kemur m.a. til af því að Ási er sjálfur til staðar í flestum frásagnanna og þær því byggðar á reynslu hans sjálfs. Hann setur sig ekki í stellingar ofurmerkilegs rithöfundar sem ætlar að gera skáldlega úttekt á mannlegu lífi yfirleitt, né heldur bregður hann sér í gervi sagnfræðings og þýlur staðreyndir í sögulegu samhengi. Hann skrifar bara um eitt og annað sem hann hefur sjálfur upplifað eða heyrt um, án þess að þykjast vera að gera eitthvað annað. Þetta ferst honum það vel úr hendi að maður les bókina sér til ánægju; og hvers er hægt að ' krefjast frekar? „Yfirpelaaf koníökkum”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.