Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978 21 Helmingur kennara HÍ stundakennarar Formannaskipti á aðalfundi Félags háskólakennara Á AÐALFUNDI Félags háskóla- kennara, sem haldinn var siðast- liðinn fimmtudag. var Sigurður Steinþórsson kosinn _ formaður félagsins í stað Braga Árnasonar, sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Á fundinum var samþykkt ályktun þess efnis að Félag háskólakennara vill vekja athygli stjórnvalda á því ófremdarástandi. sem orðið er í málefnum Háskólans vegna þess að ailt að helmingur kennslu í skólanum er nú í höndum stunda- kennara. Hvatti fundurinn stjórnvöld til að ráða nú þegar bót á þessu og fjölga föstum kennurum. I>á vekur félagið athygli á því að rannsóknarað- staða margra fastra kennara er lítil sem engin. Þá lýsti fundurinn yfir stuðningi við baráttu stundakennara við HI fyrir bættum kjörum og auknum réttindum. Fundurinn skoraði á félagsmenn sína að ganga ekki inn í verk stundakennara meðan á átökum stendur og hvetur þá til að leggja fé í verkfallssjóð Félags stundakennara, eins og segir í ályktuninni. í frétt frá Félagi háskólakenn- ara kemur fram að talsverðar endurbætur hafa verið gerðar á Herdísarvík, en þar væri nú orðinn vinsæll sumardvalarstaður fyrir félaga. Þá kom á fundinum fram mikill áhugi á því að félagið nýtti rétt sinn til byggingar á orlofshúsi í landi BHM að Brekku í Biskups- tungum. Með Sigurði Steinþórssyni í stjórn Félags háskólakennara eru: Bjarni Einarsson, Þráínn Eggerts- son, María Jóhannsdóttir og Guð- laugur Tryggvi Karlsson. Fallþungi dilka meiri en í fyrra: 10 þúsund lestir á innanlandsmarkað en 5 þús. fluttar út ALLS var í haust slátrað 1.018.970 fjár og þar af voru 930.509 diikar. Slátrað var í fyrra alls 873.399 dilkum. bá var meðalfallþungi 14.03 kg. þegar nýmör hefur verið dregin frá en í ár 14.45. Þessi aukning fallþunga hefur gefið 390 lestum meira kjöt en ef fallþunginn hefði verið óbreyttur frá í fyrra. Dilkakjöt sem kom á markaðinn í haust reyndist vera alls 13.442 lestir eða nálægt þúsund lestum meira en fyrra. Heildarmagn kindakjöts í haust var um 15.400 lestir. Miðað við sölu innanlands und- anfarna mánuði má gera ráð fyrir að innanlands seljist um 10 þúsund lestir af kindakjöti, en flutt verði út um 5 þúsund lestir af dilkakjöti þessa árs framleiðslu, að því er segir í fréttabréfi Upplýsingaþjónustu landbúnaðar- ins. „Þrjár vikur fram yfir” Ný bók eftir Gunnel Beckman „Þrjár vikur fram yfir“ nefnist nýútkomin bók eftir sænska rithöfundinn Gunnel Beckman. Í bókinni er sagt frá mennta- skólastúlku, sem gerir sér grein fyrir því, að hún eigi ef til vill von á barni. Margvíslegum lausnum skýtur upp í kolli hennar. Hún aflar sér þess fróðleiks, sem hún kemst yfir, og meðal annars efnis eru blaðaskrif um fóstureyðingar. „Otímabær þungun er vandamál, sem snertir mjög marga og í þessari bók er fjallað um efnið af skilningi og nærfærni," segir m.a. í fréttatilkynningu frá útgefanda. Gunnel Beckman hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir bækur sínar, m.a. Nils-Holgerson- verðlaunin, sem er mesta viður- kenning, sem barnabókahöfundum er veitt í Svíþjóð. Jóhanna Sveinsdóttir þýddi bók- ina en útgefandi er Iðunn. Álit fjárhagsnefndar Fiskiþings: Skammtímaráðstaf anir duga ekki í baráttunni við verðbólguna ÞAÐ ER álit 37. Fiskiþings að lengur sé ekki hægt að una þeim vanmætti. sem stjórnmálamenn þjóðarinnar hafa sýnt til að taka á þeim vanda er snýr að ríkisfjár- málum og opinberum fram- kvæmdum sérstaklega, af fullri ábyrgð. Fiskiþing skorar því á Alþingi og ríkisstjórn að ganga nú til verks af fullri einurð og kveða verðbólguna niður. í áliti þingsins kemur fram, að við það verk verði 'stjórnmála- mennirnir m.a. að hafa í huga, að ráðstafanir til skamms tíma duga ekki, að hugað verði að þeirri sérstöðu sjávarútvegsins að hann verður að langmestu leyti að sæta því verðlagi, sem er á erlendum mörkuðum á hverjum tíma, og að við afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár verði tekin upp ströng sam- ræming þeirra þátta, sem fólgnir eru í ríkisrekstrinum, fjárfest- ingarmálum, kjaramálum og pen- ingamálum og allt verði þetta að stefna að verulegum tekjuafgangi ríkissjóðs. Þá vekur Fiskiþing athygli á rekstrarvanda þeirra frystihúsa sem verið hafa í byggingu undan- farið og sé að ýmsu leyti ólokið, en þarna þurfi að koma til opinberar ráðstafanir í þá veru að útvega lánsfé til að ljúka byggingunum og kaupa nauðsynleg tæki, svo og að lausaskuldum og lánum til skamms tíma verði breytt í hæfilega löng lán. Þá er lagt til að vextir af afurða- og rekstrarlánum vegna fisk- vinnslu og fiskiskipa verði lækkað- ir og lánin hækkuð verulega, að rafmagnsgjöld fiskvinnslufyrir- tækja verði tekin til endurskoðun- ar svo og að málefni bátaflotans verði tekin til gaumgæfilegrar athugunar en þar ríki ófremdar- ástand vegna stórminnkandi afla, og skorað er á stjórnvöld að beita sér fyrir því að fiskverkendum verði gert kleyft að bæta úr ástandi varðandi hreinlæti og hollustuhætti í og við fiskverkun- arstöðvar og ítrekar fyrri tillögur um að verðbætur ríkissjóðs fyrir línufisk verði færðar til sama hlutfalls og þær voru, þegar þær hófust. Loks varar fiskiþing við þeirri viðleitni sem nú er höfð frammi, að stórhækka skuli útlánavexti, og er m.a. bent á, að útgerð og fiskvinnsla hafi þá sérstöðu að geta ^kki líkt og aðrar atvinnu- greinar velt vaxtakostnaði út í verðlagið. Sérstaklega bendir þingið á að vextir og verðtrygging lána, sem tekin eru vegna nýsmíði skipa miðað við sl. áramót, séu útgerð slíkra skipa algjörlega ofviða, og nefnt er sem dæmi að afborganir, vextir og verðtrygging geti orðið um 60% af aflaverðmæti skipanna miðað við rekstur á heilu ári. Komið og skoðið ITT Schaub-Lorens litsjónvarpstcekin hjá Gelli, Brceðraborgarstíg 1. ITT litsjónvarpstcekin sýna raunverulega liti, hafa fallegt útlit og eru vestur-þýsk tcekniframleiðsla sem vert er að veita athygli. Forsenda góðrar þjónustu er tceknikunnátta sem tceknimenn okkar scekja beint til framleiðanda. Vestur-þýsku ITT litsjónvarpstcekin eru vönduð og vegleg eign. Þau eru gerð til að endast lengur Veljið varanlegt. Brceðraborgarstíg I Sími 20080 (Gengið inn frá Vesturgötu) Litið til beggja hliða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.