Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978 Námskeið fyrir áhugaljósmyndara „Ætlunin að gera námskeiðin að ríkum þætti í þjónustu fyrirtækisins,” segir Mats Wibe Lund Illuti þátttakcndanna á námskeiðinu. Ljósm. Mbl. Emilía. LJÓSMYNDAÞJÓNUSTA Mats Wibe Lund hefur að undanfiírnu haldið námskeið fvrir áhugaljós- myndara. Blaðamenn Mbl. litu inn á eitt þessara námskeiða sem var það 3. er haldið var. ..Þessi námskeið hafa verið vel sótt en við höfum ekki viljað hafa uf stóra hópa í hvert skipti,“ sanði Mats. „Þetta er hálfgerð tilraun hjá okkur núna en við gerum ráð fyrir að halda áfram með ljósmynda- námskeið eftir áramótin í nokkuð breyttu formi. Námskeiðin eru eftir sænskri fyrirmynd en við ætlum að reyna að aðlaga þau íslenskum aðstæðum og gera þau að ríkum þætti í þjónustu fyrir- tækisins. Margir eru mjög óánægðir með þær myndir sem þeir fá úr framköllun og okkur langar mjög til að skýra það fyrir fólki hvers vegna myndirnar eru ekki góðar. Hundruð þúsunda mynda sem íslendingar taka fara beint í ruslakörfuna og nær 3.-4. hver mynd sem áhugaljósmyndari tekur er misheppnuð. í framtíðinni höfum við einnig áhuga á að koma á fót sérstökum námskeiðum í samráði við skól- ana. Margir nemendur eru að fikta við ljósmyndun en vantar góða leiðsögn. Góð aðstaða er oft fyrir hendi í skólunum. Þar má alltaf finna einhverjar myrkra- kompur.“ Mats sagði að námskeiðin hefðu gengið vel en það eina sem hefði valdið honum vonbrigðum væri það að fáir hefðu látið sjá sig með einfaldar myndavélar. Hann sagði að flestir þeir sem kæmu væru með myndavélar af flóknari gerð en námskeiðið væri allt eins við hæfi þeirra sem ættu einfaldar myndavélar. Námskeiðið fer þannig fram að skoðaðar eru skuggamyndir og Mats skýrir út hverja mynd fyrir sig. Fólk tekur með sér vélarnar sínar og ef til vill einnig myndir sem það hefur tekið. Velt er vöngum yfir þessum myndum og þær eru bæði gagnrýndar er þess þykir þurfa og borið á þær hrós ef þær þykja góðar. A framhalds- námskeiðunum sem haldin munu síðar fá þátttakendurnir síðan einhver verkefni til að glíma við. Við ræddum við nokkra þátttak- endanna á námskeiðinu og höfðu þeir allir stundað myndatökur um einhvern tíma en enginn þeirra hafði lært neitt áður. Mats Wibe Lund og aðstoðarmaður hans, Páll Reynisson, með nýju kvikmyndatöku- og sýningarvélina frá Poloroid. Halldóra Hreggviðsdóttir fékk áhuga á myndatöku í sumar. „Þetta er nokkuð dýrt áhugamál en ég hef hugsað mér að læra framköllun hér og vonast þá til að geta minnkað kostnaðinn. Hingað til hef ég látið framkalla allt fyrir mig og það er kostnaðarsamasta hliðin," sagði Halldóra. Sigurjón Jónsson hafði tekið myndir nokkuð lengi en að sögn ekki tekið margar góðar myndir. „Ég er búinn að læra ýmislegt það sem af er námskeiðinu en ég hafði nú samt hugmynd um flest," sagði hann. Axel Eiríksson sagðist hafa tekið myndir í að minnsta kosti 15 ár. Axel sagði að það hefði sennilega verið söfnunaráhuginn sem olli því að hann fór að taka myndir. „Það skemmtilegasta við þetta tómstundastarf er að ná góðum myndum, grípa rétta augnablik- ið,“ sagði Axel. Hildur Jónsdóttir hafði aðallega tekið myndir af börnum en einnig hafði hún tekið landslagsmyndir. „Ég hef tekið myndir síðast liðin 10 ár en ég hef ekki tekið margar myndir. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt fyrir þá sem kunna lítið til myndatöku að fara á námskeið sem þessi," sagði Hildur. Er blaðamenn voru staddir hjá Mats kom þangað pakki með nýju tæki. Það var kvikmyndavél frá Poloroid-fyrirtækinu. Þar var um að ræða bæði tökuvél og sýningar- vél. Myndirnar eru teknar í lit á kasettu sem að töku lokinni er sett í sýningarvélina en hún er lík í laginu og sjónvarp. Eftir 90 sekúndur er myndin tilbúin til sýningar og kemur þá fram á skermi á sýningarvélinni en varp- ast ekki á tjald. Þetta tæki er hið fyrsta sinnar tegundar sem kemur hingað til landsins. rmn. húsgögn í barna- og unglingaherbergí Eftirlitsmenn um borð í humarbátum — til að forðast að óhemju af smáhumri sé mokað í sjóinn A FISKIblNGI var gerð sam- þykkt þess eínis að leggja beri aukna áherzlu á ieit að rækjumið- um og tilraunum með veiðar úthafsra kju. Bendir þingið í því samhandi á rækuleit á djúpslóð undan Suðurlandi. í sambandi við humarveiðarnar kemur fram að svo virðist sem hlutur smáhumars fari vaxandi ár frá ári. Þingið telur því rétt að auka eftirlit með veiðunum t.d. með því að hafa eftirlitsmenn í bátum, sem hafi vald til að loka svæðum fyrirvaralsust um tiltek- inn tíma ef um óeðlilega mikínn smáhumar er að ræða. Þingið telur að þetta sé eina leiðin til að koma í veg fyrir að þeir atburðir endur- taki sig er áttu sér stað s.l. sumar þegar óhemju af smáhumri var mokað í sjóinn með ófyrirsjáan- legum afleiðingum varðandi fram- hald þessara veiða, eins og segir í ályktun þingsins. Mjólkurfram- leiðslan jókst Miklar sm jörbirgðir í landinu Mjólkurframleiðslan fyrstu 9 mánuði þessa árs varð 3,2% meiri en á sömu mánuðum í fyrra. Aðeins hjá tveimur mjólkursamlögum á landinu varð smávegis sam- dráttur í innveginni mjólk — á Hvammstanga og Sauðárkróki. Lítilsháttar samdráttur varð á sölu nýmjólkur á þessu tímabili, en hins vegar varð aftur nokkur aukning í síðasta mánuði og það sem af er nóvember. Þá hefur sam- dráttur orðið á sölu undan- rennu eða um 9,2% miðað við sömu mánuði í fyrra, en sala rjóma hefur aukizt eða um 6,5%. Skyrsala hefur einnig aukizt eða um 3^>%. Minna var framleiti af smjöri fyrstu 9 mánuði ársins heldur en á sama tíma í fyrra eða um 35 lestum minna, en sala á smjöri er um 16% meiri í ár heldur en í fyrra. Miklar smjörbirgðir eru þó í landinu. I lok september voru þær um 1436 lestir, en nokkuð hefur gengið á þær, því að í síðasta mápuði minnkuðu þær um 30 lestir. Framleitt hafði verið um 27% meira af ostum í ár en á sama tíma í fyrra og heildar- framleiðsla fyrstu 9 mánuði ársins var 2696 lestir. Sala á 45% og 30% ostum var mjög svipuð og í fyrra en nokkur aukning varð á sölu á brædd- um ostum. Fyrstu 9 mánuði ársins 1977 voru fluttar út 504 lestir af ostum en í ár hafa verið fluttar út 1283 lestir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.