Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978 35 ÍI1I4IK/T XjL jl rmm E' Wm&m J8|55j<1fc' matr ... Fjórða ársrit Úti- vistar komið út „ÚTIVIST 4“, íjórða ársrit (Jti- vistar er komið út. í ritinu eru fjórar megingrein- ar. Björn Jónsson læknir í Kanada skrifar um vörðurnar á hinni upprunalegu Sprengisands- leið, en Björn kom m.a. tvö ár í röð til íslands og fór í rannsókn- arleiðangra inn á Sprengisand í sambandi við ritgerð þessa. Brynjólfur Jónsson prentari skrifar um sumarferð á Strandir árið 1973. Gísli Sigurðsson, fyrrv. lög- regluvarðstjóri í Hafnarfirði, skrifar um gönguferðir út frá Hafnarfirði, en hann skrifaði leiðarlýsingu á Selvogsgötu í fyrsta hefti Útivistar. Einar Þ. Guðjohnsen skrifar um ferð í Lónsöræfi, sem farin var á fyrsta starfsári félagsins. Þá eru í ritinu félagsmál, fundargerð frá aðalfundi 1978 og skýrsla framkvæmdastjóra. Ritið er nokkru stærra en hin fyrri, prýtt fjölda litmynda og skýringarkorta með greinum. Um- sjón með útgáfunni höfðu Einar Þ. Guðjohnsen og Jón I. Bjarnason. Útivist 4 Umræður hafa mjög snúist um, hvernig þessi hagrænu og félags- legu sjónarmið yrðu bezt sam- ræmd. Ég hefi hér lýst tvenns konar tillögum um skipulag raforku- vinnslunnar. Menn verða nú sjálfir að meta hvor tillagan nær betur hinum hagrænu og félagslegu markmiðum, sem við allir setjum okkur, hvor tillagan samræmir betur þessi markmið og hvor tillagan er raunhæfari leið til að koma í framkvæmd breyttu skipu- lagi, og ná þar með þessum markmiðum. Þýðing nefndarstarfsins Ég hef dvalið mjög við skipulag raforkuvinnslunnar. Það er að vonum svo mikilvægt sem það mál er auk þess að frá nefndinni koma tvær tillögur um þetta efni. En þetta tal um skipulag raforku- vinnslunnar dregur ekki úr mikil- vægi þeirra þátta orkumálanna, sem lúta að rannsóknum á orku- lindum landsins, áætlunargerð um orkubúskapinn og stefnumótun í orkumálum. Að mínu viti hefir ekki verið minni ástæða til breytinga í því efni nema síður sé. Um þessi mikilvægu mál gerir nefndin samhljóða tillögur eins og ég áður greindi frá. Að sjálfsögðu þurfa þessar tillögur ekki allar að vera á þann veg sem hver einstak- ur nefndarmanna hefði helzt kosið. Eðli slíkra nefndarstarfa, sem hér um ræðir, hlýtur að vera það, að menn leiti samstöðu og leitist við að samræma sjónarmið sín svo sem nokkur kostur er. Og engar sérathugasemdir frá ein- stökum nefndarmönnum fylgja tillögum nefndarinnar nema nokkrar athugasemdir frá Jakob Björnssyni, orkumálastjóra, við nefndarálitið. Ég hefi hér gert grein fyrir tillögum um skipulag orkumála. Ég veit, að ég mæli fyrir munn allra, sem sátu í þeirri nefnd, sem starfaði að þessari tillögugerð, þegar ég læt í ljós þá von, að tillögur þessar og starf nefndar- innar megi koma að gagni til þess að koma betri skipan á þann þýðingarmikla þátt í þjóðarbúskap Islendinga sem orkumálin eru. Tveir bílar eða fleiri á 45% heim- ila í Garðabæ í Hafnarfirði og Kópavogi eru um og yfir 10% heimila bíllaus, tæp 20% í Neskaupstað, en aðeins 2% heimila í Garðabæ eru bíllaus. Ein bifreið eráum 70% heimila í Hafnarfirði og Kópavogi, á rúm- lega 50% heimila í Garðabæ er einn bfll og á 65% heimila í Neskaupsstað. Tveir bflar eða fleiri eru á 45% heimila í Garða- bæ. á um 19% heimila í Kópavogi, á 17% heimila í Ilafnarfirði og á 13% heimila í Neskaupsstað. Hér er yfirleitt um tvo bfla að ræða, þó eru um 6% heimila í Garðahæ með þrjá bfla eða fleiri. Þetta kemur m.a. fram í könnun sem Þorbjörn Broddason og Krist- inn Karlsson gerðu fyrir jafn- réttisnefndir í fyrrnefndum fjórum kaupstöðum. Þetta sýnir hversu útbreiðsla einkabílsins er orðin mikil, sér- staklega á höfuðborgarsvæðinu, þar sem vegalengdir geta verið töluverðar. Jafnvel á Neskaupstað, þar sem fjarlægðir innan bæjarins geta vart talist miklar, eru bílar á um 80% heimila. Þar sem gert er grein fyrir fjölda á heimilum í bæjarfélögun- um fjórum. eru fjögurra manna heimili algengasta heimilisstærð- in. Næst algengasta heimilis- stærðin og fylgir fast á eftir í hlutfallstölum, eru þriggja og fimm manná heimili. Þetta á ekki við um Garðabæ, þar sem minna er hlutfallslega um þriggja og tveggja manna heimili heldur en á hinum stöðunum, en aftur á móti hlutfallslega meira um sex manna heimili. Athygli er vakin á því að einbúar eru flestir í Neskaupstað eða 4%, á móti 1,4% í Hafnarfirði í i j j i í j 4 i') i i j) í t>r i iti i og 0,7% í Kópavogi og engum í Garðabæ. Kynslóðafjöldi á heimili ætti að geta sagt nokkuð til um þær fjölskyldugerðir, sem um er að ræða. Alls staðar voru tvær kynslóðir algengasti fjöldi eða frá 90% í Garðabæ niður í_ 77% í Neskaupstað. Ein kynslóð á heimili var á frá 13% heimila á Neskaupstað niður í 2,4% á heimili í Garðabæ. Bæði heimili með einni og tveimur kynslóðum væntanlega, þegar einbúar hafa verið dregnir frá, má ætla að standi að mestu leyti saman af kjarnafjölskyldum, foreldrum með börn sín eða barnlausum hjónum, segir í skýrslunni. Samsettar fjölskyldur, í anda stórfjölskyldunnar til sveita fyrr- um, birtast á þriggja og fjögurra kynslóða heimilum. Þar getur ýmist verið um að ræða hjón með ung börn, sem einnig hafa aldraða foreldra á heimilinu eða miðaldra hjón með uppkomin börn og eitt eða fleiri barnabörn á heimili sínu. Hvorttveggja er vottur um styrk ættarfjölskyldunnar. í öðru tilvik- inu er gamalmennið komið í hornið hjá miðkynslóðinni og í hennar forsjá, ,í hinu nýtur unga fólkið skjóls og stuðnings foreldra- heimilisins jafnvel eftir að það hefur stofnað til eigin kjarnafjöl- skyldu. Þriggja kynslóða fjölskyld- an er það útbreidd að rangt væri að flokka hana til undantekninga. Vert er einnig að hafa í huga að hér er um að ræða tímabundið ástand í lífi hvers einstaklings, þannig að miklu fleiri hafa um skeið lifað í þriggja kynslóða fjölskyldu heldur en hlutfallstölur einar gefa til kynna. - i 1 1 ll*ll . . 1 ) ( i i 1. M Sumir versla dýrt — aðrir versla hjá okkur. Okkar verð eru ekki tilboð, heldur árangur af hagstæðum innkaupum WQb <^<22s> ú.Sa , fo Hveiti Pillsbury 5 lbs. 335.— Best 10 lbs. 710.— Falke 2 kg. 311.— Falke 20 kg. 2.950.-------- (10X2kg) Hveiti, 50 kg. 5.980.— 119 pr.kg. Marsipan og kökuskraut í úrvali. í jóla baksturínn: Sykur kr. 50 kg. 5.980.— 119 pr.kg. Kókosmjöl 1 kg„ 980.— % kg. 495.— Möndluspænir 250 gr. 297.— Smjörlíki, Ljóma 195.— Ódýru ERIK bökunarvörurnar eru komnar: Heilar möndlur — Hakkaöar möndlur — Flysjaöar möndlur Valhnetukjarnar — Heslihnetukjarnar — Blandaöar hnetur — Kúrenur Rúsínur — Kókosmjöl 125 gr. og 250 gr. fínt og gróft. Opið á laugardögum frá kl. 9.00 — 12.00 fÚéfáfaUK STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆTI 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.