Morgunblaðið - 01.12.1978, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978
25
Anna Friðriks-
dóttir—Minning
gleði og eins meðal ljóðelskra
manna, ekki síst í kvæðamanna-
félaginu „Iðunni" en þar starfaði
hann mikið.
En nú er hann horfinn sjónum
okkar. Hann átti glæsilega móður,
sem hann elskaði, elskulega syst-
ur, sem dó gjafvaxta úr berklum
og bróður, sem dó á miðjum aldri,
góða konu, sem missti heilsuna
fyrir nokkrum árum og hefur
síðan dvalið á Vífilsstöðum og af 9
börnum eru nú á lífi 4 dætur, sem
hafa reynst honum sannar dætur,
tengdasyni og góð barnabörn og
auk þess bjó honum heimili
síðustu árin Stefanía Guömunds-
dóttir, sem reyndist honum vel til
síðustu stundar.
Ég kveð vin minn Þórarin með
söknuði. Hann var alltaf ungur í
anda, trúði á lífið hér og handan
grafar og á framtíð litlu sveitar-
innar okkar heima. Síðast hitti ég
hann helsjúkan á sjúkrahúsi
skömmu áður en hann dó. Við
ræddum þá um sveitina heima
eins og alltaf áður, þegar fundum
okkar bar saman.
í kirkjunni er hann var kvaddur
og ég hlustaði á séra Árelíus flytja
sanna og hugnæma kveðju, þá
hugsaði ég til lífs hans hér meðal
okkar og mér fannst i mannlegri
skammsýni minni, að lítið hefði
rætzt af vonum hans. En er við
stóðum upp og kista hans var
borin út úr kirkjunni af sex ungum
og glæsilegum mönnum, sem allir
voru dóttursynir hans, og allir
báru eitthvað af svipmóti afa síns,
þá fann ég hve skammsýnn ég var
og ég gladdist í hjarta mínu, því að
ég sá að líf hans hafði borið ávöxt.
Ég sendi öllum ættingjum hans
og vinum innilegar samúðarkveðj-
ur og kveð hann svo rneð síðasta
erindinu úr einu kvæða hans
„Jólin heima":
„Loks er að stjaka ljósið brenn-
ur
og liðin er æfin hjá,
kveikir á skarinu Kristur aftur
við hvíluna mína þá.“
Blessuð sé minning hans.
Jón Gunnlaugsson.
Fædd 28. desember 1898.
Dáin 23. nóvember 1978.
Veðrið var kyrrt, snjórinn hafði
hjúpað jörðina hvítum feldi og
hafaldan reis og féll við ströndina.
Ég var stödd suður í Garði, þegar
mér barst andlátsfregn kærrar
fóstursystur minnar, Önnu
Friðriksdóttur, en hún hafði látist
nokkrum klukkustundum áður
sama dag. Mig setti hljóða, þótt ég
teldi mig viðbúna þessari fregn.
Ég hafði komið að hvílu hennar
fáum dögum áður og litið hana
sofandi á hinu hvíta líni. Hún leit
upp andartak og við horfðumst í
augu. Ég kvaddi hljóðlega. Nú var
hún dáin. Hún, sem hafði vaggað
mér í svefn í bernsku og verið mér
svo góð í blíðu og stríðu síðar á
æfinni, hafði nú loks fengið hvíld
eftir margra ára sjúkrahúsvist.
Anna Sigurveig Friðriksdóttir,
en svo hét hún fullu nafni, var
fædd að Grund í Kelduhverfi í
Norður Þingeyjarsýslu 28. desem-
ber 1898. Foreldrar hennar voru
hjónin Kristjana Pétursdóttir og
Friðrik Jónsson, bæði af þingeysk-
um uppruna. Þau hjónin höfðu að
sjá fyrir þremur litlum stúlkum,
Jósefínu Sigtryggsdóttur, sem
Kristjana hafði eignast áður en
hún giftist, Önnu Sigurveigu og
Kristínu. Kristjana og Friðrik
bjuggu að Grund í Kelduhverfi
fyrstu búskaparár sín, en fluttust
síðar að Bangastöðum í Keldunes-
hreppi. Bangastaðir var lítil jörð
og er nú löngu komin í eyði.
Landrými var lítið og þau einyrkj-
ar, sem háðu harða lífsbaráttu.
Bangastaðir voru nyrst á Tjörnesi
og langt til næstu bæja á báða
vegu, að Máná á Tjörnesi og að
Auðbjargarstöðum í Kelduhverfi.
Býlið var afskekkt, en þó við
alfaraleið, er farið var í kring
Tjörnes, eins og það var nefnt.
Margir ferðamenn, sem áttu leið
milli Tjörness og Kelduhverfis,
komu til þeirra Kristjönu og
Friðriks og nutu fyrirgreiðslu og
gestrisni. Ljós í gluggum þeirra
hafa án efa glatt margan ferða-
lang, sem átti leið um i vetrar-
hörkum á leið frá Húsavík með
þungar byrðar á baki, en þangað
sóttu Kelduhverfungar gjarnan
nauðsynjar sínar á þeim tíma. Mér
er ekki kunnugt um hve lengi þau
Kristjana og Friðrik bjuggu að
Bangastöðum, en síðar voru þau
búsett um tíma að Sandhólum á
Tjörnesi og fluttust þaðan til
Húsavíkur. Friðrik andaðist árið
1919 á Hálsi á Sléttu, en Kristjana
fór til Reykjavíkur til Kristínar
dóttur sinnar og lést þar árið 1940.
Níu ára að aldri kom Anna
Sigurveig á heimili foreldra
minna, Sigrúnar Árnadóttur og
Kára Sigurjónssonar, að Hall-
bjarnarstöðum á Tjörnesi. Ólst
Anna þar upp ásamt okkur,
fóstursystkinum hennar, sem öll
vorum yngri en hún, fimm að tölu,
þrjár stúlkur og tveir drengir.
Bernskan leið fljótt við leiki, störf
og nám. Anna reyndist okkur
systkinununv sem besta systir og
gerði allt serh hún gat, til þess að
verða að liði á heimilinu. Foreldr-
ar mínir báru til hennar vinarhug,
enda brást aldrei tryggð hennar.
Anna var að eðlisfari glaðlynd
og góðlynd. Hún var framúrskar-
andi viljug og rösk að hverju sem
hún gekk. Handlagni hennar var
einstök. Hún var mjög hneigð fyrir
saumaskap og þegar á fermingar-
aldri var henni komið fyrir hjá
Helgu Eggertsdóttur, saumakonu
á Húsavík, til þess að læra
fatasaum.
Um tvitúgsaldur fór Anna í
fyrsta skipti til Reykjavíkur og
var þar í vetrarvist. Nokkrum
árum síðar réðist hún í vist til
Guðmundar Vilhjálmssonar fyrr-
um framkvæmdastjóra Eimskipa-
félags Islands h/f og eiginkonu
hans, Kristínar, dóttur Thors
Jensens, er þá voru búsett í
Edinborg í Skotlandi. Næstu 2—3
árin voru Önnu mikill lærdóms-
tími, eins og bréf og myndir frá
þessum tíma bera með sér. Eftir-
læti hennar voru börn þeirra
hjóna, Thör og Helga. Eftir
dvölina í Skotlandi settist Anna að
í Reykjavík og lagði stund á
fatasaum.
Árið 1934 giftist Anna Snæbirni
G. Jónssyni húsgagnasmíðameist-
ara. Hann var breiðfirskrar ættar.
Þau stofnuðu heimili og bjuggu í
Reykjavík allan sinn búskap.
Synir þeirra Önnu og Snæbjarnar
eru Snæbjörn Þór, múrari, kvænt-
ur Unni Björgvinsdóttur, Rauða-
hjalla 13, Kópavogi og Stefán,
innanhússarkitekt, kvæntur
Kristjönu Aðalsteinsdóttur,
Heiðarlundi 7, Garðabæ. Fóstur-
sonur þeirra Önnu og Snæbjarnar
er Þorvaldur Hrafn Valsson,
loftskeytamaður.
Heimili þeirra Snæbjarnar og
Önnu var með miklum myndar-
brag og stóð opið fyrir öllum, sem
að garði bar. Snæbjörn var höfð-
ingi í lund, vinmargur og glaðlynd-
ur og naut sín vel á mannfundum.
Á síðari búskaparárum sínum
reistu þau sér stórhýsi á Sel-
tjarnarnesi og nefndu Brunnakur,
en það heitir nú Bjarg.
Tengslin milli heimilis okkar
Sigurbergs Þorleifssonar suður í
Garði og heimilis þeirra Önnu og
Snæbjarnar í Reykjavík, voru ætíð
náin. Þegar börn okkar Sigurbergs
stunduðu skólanám í Reykjavík
dvöldust þau langtímum saman á
heimili þeirra, en í staðinn komu
drengir þeirra til okkar við og við.
Snæbjörn Þór var hjá okkur í
nokkra vetur.
Snæbjörn Jónsson rak hús-
gagnasmíðaverkstæði í Reykjavík
árum saman. Ásamt heimilisstörf-
unum stundaði Anna kjólasaum og
rak saumastofu í mörg ár á heimili
sínu. Handbragði hennar og list-
fengi við saumaskapinn var við-
brugðið.
Árið 1962 urðu þáttaskil í lífi
fjölskyldunnar að Brunnakri, en
þá andaðist Snæbjörn G. Jónsson
snögglega 69 ára að aldri. Kraftar
Önnu voru þá farnir að minnka.
Síðustu árin var Anna á Vífils-
staðaspítala, þar sem hún naut
frábærrar umönnunar lækna og
hjúkrunarfólks. Hún átti orðið
erfitt um mál, en minnið var að
mestu óskert og hún fylgdist með
því sem fram fór og því sem
ættingjar og vinir sögðu henni.
Hún fékk hægt andlát 23. þ.m.
tæpra áttatíu ára gömul.
Að leiðarlokum flyt ég með
söknuði hinstu kveðju frá systkin-
um mínum og fjölskyldum okkar.
Ástvinum hennar vottum við öli
djúpa samúð.
Útför Önnu Friðriksdóttur verð-
ur gerð í dag kl. 13.30 frá
Fossvogskapellu.
Asdís Káradóttir
írá Garðskagavita.
SIGGE ST/
Ekki er öll
í andliti l
Hi
Var um slys að ræða, — eða var
það morðtilraun? Aylward var
minnislaus eftir siysið, mundi
jafnvel ekki eftir unnustu sinni.
En þegar Constant Smith heim-
sótti hann á sjúkrahúsið, vakn-
aði hann á ný til lifsins ...
Þetta er ástarsaga af gamla
taginu, eins og þær gerðust
beztar hér áður fyrr. Og svo
sannarlega tekst Theresu
Charles að gera atburði og atvik,
sem tengjast rauðhærðu
hjúkrunarkonunni Constant
Smith, æsileg og spennandi.
Þessi bók er ein allra skemmti-
legasta ástarsagan sem Theresa
Charles hefur skrifað og eru þær
þó margar æsilega spennandi.
Kornelíu tæmdist arfur og
auðurinn gjörbreytti lífi hennar.
Hún varð ástfangin af hertogan-
um af Roehampton, hinum
töfrandi Drogo, eftirsóttasta
ungkarli Lundúna og þau ganga
í hjónaband. Vonbrigði hennar
verða mikil er hún kemst að því,
að hann hefur aðeins kvænst
henni til að geta hindrunarlítið
haldið við hina fögru frænku
hennar, sem hún býr hjá. Á
brúðkaupsferð þeirra í París
verður Drogo raunverulega ást-
fanginn, — en í hverri? Er það
hin leyndardómsfulla og töfrandi
Desirée, sem hann hefur fallið
fyrir, eða hefur hinni hugrökku
Kornelíu tekist að heilla hann?
Rauðu ástarsögumar
Morten er
sendiboði and-
and-spyrnu-
hreyfingarinnar
I einni slíkri
ferð hittir
hann írenu.
Karlotta var
kornung þeg-
ar hún giftist
Ancarberg
greifa, scm
var mun eldri
en hún. Iljóna-
bandið varð
þeim báðum
öriagaríkt. en
þó einkum
greifafrúnni
ungu. Hún
hrekst næst-
um ósjálfrátt í
faðminn á
ungum fiski-
Astnður Berk
var sérstæð
stúlka og
óvenjulega
sjálfstæð. Hún
bauð örlögun-
um vissulega
birginn og brátt
kæmi i Ijós
hvort henni
heppnaðist að
endurreisa
búskapinn á
Steinsvatni og
halda því
starfi áfram,
sem stúlkurn-
ar í Karl-
hataraklúbbnum höfðu hafið. En hvernig
átti hún að gera sér grcin fyrir, að hún, sem
engum tróð um tær og öllum vildi vel, ætti
svarinn og hættulegan óvin? Og þessi
óvinur gerði henni svo sannarlega lffið leitt!
Ástríður bognaði að vísu. en hún brast ekki.
— ekki fyrr en ástin kom inn í líf hennar.
Og þar féll síðasta vígi hins rómaða
Karlhataraklúbbs.
ELSE-MARIE NOHR
Margil Söderholm
BRÚÐURIN unga
rUOTTINN
þar sem hún
er fársjúk og
févana á
flótta. Hann
kemur henni
til hjálpar.
hættan tengir
þau nánum
böndum og
þau upplifa
hina einu
sönnu ást. Grunsemdir vakna um að hún sé
stúlkan. sem hrevfingin leitar og telur
valda að dauða systur Mortens. .Eðstaráðið
dæmir írenu til dauða í fjarveru hennar. —
og sennilega yrði Mortcn falið að fram-
kvæma aftökuna. Ást Mortens heldur aftur
af honum. hann vill sanna sakleysi írenu og
frestar að taka ákvörðun. En timinn Iíður
og félagar hans leita hennar ákaft.
--------------————— manni,
óreyndum í ástum. en engu að síður
löngunarfullum og lífsþyrstum. í kofa
fiskimannsins á Karlotta sínar mestu unaðs-
og sælustundir, stolnar stundir og örlaga-
ríkar. Greifafrúin unga verður barnshaf-
andi og framundan er þrjózkufull barátta
hennar fyrir framtið þessa ástarbarns, sem
vakið hefur lífslöngun hennar á ný. —
Brúðurin unga er ein Ijúfasta Hellubæjar
hringurinn
þrengist
banvæn
hættan
og
sagan, sem Margit Södcrholm hefur skrifað.
ijiálgast...
Gaftland
Hver ertu.
ástin mín?