Morgunblaðið - 02.12.1978, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.12.1978, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 16 Vilhjálmur G. Skúlason skritar um I ‘ vaselín að mestum hluta eða eingöngu sem burðarefni. Krem (cremores) eru smyrsl, sem hafa mjög mjúka samsetningu og pasta (pastae) eru smyrsl, sem að jafnaði innihalda mikið af föstum efnum, sem eru óleysan- leg í burðarefninu. Pasta hafa því tiltölulega fasta samsetn- ingu. Smyrsl, sem nú eru mikið notuð, eru í lyfjaskrám kölluð unguenta (sem er fleirtala orðsins unguentum og leitt er af sögninni unguere= smyrja), er eitt af elztu lyfjaformunum. Um þau er skrifað þegar á baby- lónska-assyríska tímabilinu og um þau er fallað ítarlega í Papyrus Ebers. A þeim tíma voru burðarefni einkum fitur úr dýraríkinu, olíur, vöx og harpiksar. A grísk-rómverska tímabilinu er fjallað um hunang, smjör og það sýróp, sem verður eftir, þegar vín er látið gufa upp, sem burðarefni í smyrsli. Ullarfita var upphaf- lega notuð af Grikkjum við smyrslagerð og Díoskorídes minnist á þrjár mismunandi aðferðir til framleiðslu hennar. Galenos minnist í sínum ritum á samsetningu þess smyrsls, sem ennþá er notað í næstum sömu mynd og hann gerði undir nafninu koldkrem. Þau burðar- efni (önnur efni smyrslis en virka efnið) hafa að sjálfsögðu breytzt mjög á síðustu árum og áratugum með tilkomu nýrra náttúrulegra og samtengdra efnasambanda, sem hafa reynzt mjög vel sem burðarefni í smyrsli. Vaselín var fyrst fram- leitt úr jarðolíu af Ameríku- manninum Chesebrough árið 1871 og var strax farið að nota það sem burðarefni í smyrsli. Ullarfita var upphaflega notuð á Lyfjahandbókin Lyf jaf orm IV og geymsla lyf ja grísk-rómverksa tímabilinu, en féll síðan í gleymsku og var enduruppgötvuð af Þjóðverjan- •um Liebreich árið 1885, er hann setti lanolín á markað, en það er ullarfita, sem inniheldur 25% af vatni. Ullarfita og efni, sem hægt er að vinna úr ullarfitu, hafa þann eiginleika, að geta tekið í sig vatn og vatnsleysan- leg lyf og hafa þessvegna ennþá mikið notagildi. Á síðustu áratugum hafa orðið miklar framfarir í fram- leiðslu þessa lyfjaforms vegna þess, að áður óþekkt hjálparefni hafa verið uppgötvuð. Má þar til nefna svokallaða emulgatora, en með þeim er hægt að framleiða smyrst af emulsionsgerð (t.d. „absorption base“ og „vanishing cream") og auk þess nýja efnaflokka, sem geta verið Mixtúra (af latneska orðinu mixtura=blanda) er fljótandi lyfjaform ætlað til inntöku. Venjulegt magn, sem tekið er af mixtúru í einu getur verið breytilegt frá einni teskeið til einnar matskeiðar. Mixtúra inniheldur venjulega eitt eða fleiri lyf svo og hjálparefni, sem notuð eru til bragðbætis eða til þess að gera hana stöðugri. Nöfnin linctus liquor eru notuð yfir vissar mixtúrur. Linctus er notað um mixtúru, sem inni- heldur mikið af sætum efnum, sem ekki þurfa að vera sykur- tegundir (t.d. glyceról), en liquor um mixtúru, sem venjulega er tekin í teskeiðatali. Linctus og syrupus (saft) er því náskyld lyfjaform, þar eð saft er fljót- andi lyfjaform, sem inniheldur mikinn reyrsykur (oft um 60%) og er ætlað til inntöku. Mixtúra er mjög vinsælt lyfjaforni og er hún vel hæf til þess að gefa bæði börnum og öldruðum lyf. Dæmi um lyf, sem oft eru gefin í mixtúruformi eru fúkalyf, svefnlyf, hóstalyf og vítamín. Þá er saft oft einnig notuð til þess að bragðbæta lyf og má þar til nefna reyrsykur- saft, sólberjasaft og hindberja- saft. Sumar mixtúrur botnfalla eða skilja sig við geymslu og skulu þær auðkenndar sérstök- um merkimiða, sem á er letrað: Ilristið eða Ilristist. Þetta er mjög nauðsynlegt vegna þess, að annars getur skömmtun mixtúru orðið mjög ónákvæm og jafnvelt leitt til eitrana. Einnig er rétt að benda á, að aldrei ætti að nota heimilisteskeiðar og heimilismatskeiðar til þess að mæla skammt mixtúru vegna þess, að til þeirra nota eru þær allt of ónákvæmar. Þegar fyrir- skrifað er að taka 1 teskeið af einhverju lyfjaformi merkir það, að taka skuli 5 ml af því. Á sama hátt, þegar fyrirskrifað er að taka 1 barnaskeið eða 1 matskeið, þá merkir það 10 ml eða 15 ml í sömu röð. Þess vegna ætti aldrei að láta úti lyf í mixtúruformi, nema að afhenda jafnframt mæliskeið eða mæli- bikar úr plasti til þess að gera skömmtun þess nægilega nákvæma. Dæmi: Fenoxcillin (penicillin- mixtúra), sem er sérlyf, Mixtura chlorali (klóralhýdratmixtúra, svefnlyf), Syrupus noscapini (noskapínsaft, hóstasaft), Syrupus C-vítamini (c-vítamín- saft), Liquor pectralis (brjóst- dropar, kvefmixtúra). Úðalyf er kallað nebulogenum í lyfjaskrá og er latneska orðið myndað af nafnorðinu nebula=þoka og sögninni gennao=mynda, framleiða, búa til. Úðalyf er venjulega fljótandi lyfjaform, sem ætlað er til þess að bera á slímhimnu í nefi, munni, koki eða til innöndunar í lungu eftir að búið er að mynda úða úr þeim með úðakönnu (spray) eða á annan hátt. Verkun úðalyfja er annað tveggja staðbundin eða almenn. Þetta lýfjaform er oft notað handa sjúklingum, sem þjást af astma og er það þá afhent í lyfjaskrá kallað oculoguttae (af oculos=auga og Guttae=dropar). Þar sem augndropar eru notaðir til íkomu í eitt af viðkvæmustu líffærum líkamans, eru gerðar margvíslegar kröfur til fram- leiðslu þeirra umfram ýmis önnur lyfjaform þar á meðal krafa um, að þeir séu sæfðir.’ Stundum hafa augndropar fast efni dreift í fljótandi -efni- (svokallaðar dreifur) og eru þá gerðar ákveðnar kröfur um kornastærð fasta efnisins svo að kristallar þess særi ekki augað. Slíkir dropar skilja sig auðveld- lega við geymslu og skal því merkja þá sérstökum merki- miða, sem á er letrað: Hristið eða Hristist. Geymsluþol augn- dropa er mjög takmarkað eftir að þeir hafa verið teknir í notkun, einkum vegna vaxtar örvera, sem geta valdið smitun í auga. Dæmi: Eppy (augn- dropar), sem er sérlyf, Oculoguttae chloramphenicoli, klóramfeníkólaugndropar. Augnsmyrsl er í lyfjaskrá kallað oculentum (af oculos= auga og unguentum= smyrsl* og er lyfjaform, sem hefur hæfi- leika smyrslkennda samsetn- ingu og er ætlað til þess að bera í auga. Þetta lyfjaform er á ensku kallað eye-ointment. Augnsmyrsl þarf vegna sér- stakrar notkunar að vera sæft. Dæmi: Aureomycin augnsmyrsl, sem er serlyf, Oculentum bibrocatholi, bíbrókatólaugn- smyrsl. Eyrnadropar eru fljótandi lyfjaform, sem ætlað er til þess að dreypa í ytra eyra. Latneska orðið, otoguttae, er samsett úr nafnorunum otos=eyra og Guttae=dropar Á sama hátt og sérstökum ílátum, er gefa ákveðinn skammt í úðaformi, þegar þrýst er á loka efst á ílátinu (dosisspray) og úðanum síðan andað hægt og djúpt niður í lungu (innúðalyf). Stundum eru lyf, sem innihalda hormóna úr aftari hluta heiladinguls látin úti í þessu formi, en þeim er ætlað að hafa almenna verkun. Einnig eru nefdropar (rhinoguttae af rhinos=nef og guttae=dropar), en þeir eru fljótandi lyfjaform, sem er ætlað að dreypa í nef, stundum látnir úti í úðakönnu og eru þeir þá kallaðir nefúðalyf. Dæmi: Bricanyl innúðalyf (astmalyf), Antistine-Privine nefúðalyf, sem hvoru tveggja eru sérlyf, Rhinoguttae náphazolini, nafazólínnef- dropar. Augndropareru fljótandi lyf, sem ætluð eru til þess að dreypa í auga. Þetta lyfjaform er í um augndropa er m.a. gerð sú krafa til eyrnadropa, að þeir séu sæfðir. Þau lyf, sem einkum eru framleidd í þessu formi eru staðdeyfilyf til þess að draga úr staðbundnum sársauka og fúka- lyf til þess að ráða niðurlögum staðbundinna smitana í eyra. Dæmi: Ciloprine cum anaest- hetico eyrnadropar, sem er sérlyf. Smyrsl er lyfjaform, sem venjulega er ætlað til útvortis notkunar. Á ensku er þetta lyfjaform oft nefnt ointment. Smyrsl hefur venjulega hæfi- lega mjúka, hálffasta samsetingu við venjulegt hita- stig og verður venjulega mýkra við hitastig húðarinnar. Vaselín (vaselina) er notað sem heiti yfir viss smyrsl, sem hafa vatnssæknir (t.d. makrógólar) eða vatnsfælnir (t.d. silíkónar). Þau lyf, sem einkum eru notuð í smyrslisformi eru sótthreins- andi lyf, sem notuð eru í sárasmyrsli, staðdeyfilyf og sterar, sem notaðir eru gegn blettahreistri (psoriasis), eks- emi og fleri húðsjúkdómum. Þegar sterar eru notaðir í smyrslisformi verður að reikna með, að hluti lyfsins geti frásog- ast í gegnum húð og inn í blóðbraut og þannig haft al- menna verkun og sjást stundum steraaukaverkanir, þegar stera- smyrsli eru smurð á stór hús- svæði. Smyrsli eru mjög gjarn- an látin úti í túbum eða í smyrslakrukkum. Dæmi: Unugentum banzal- koni, benzalkónsmyrsl (sótt- hreinsandi), Unguentum cincaini, cínkaónsmyrsl (stað- deyfandi), Pasta zinci, zínkpasta (vægt sótthreinsandi og vörn gegn ertingu), Vaselinum eufla- vini, euflavínvaselín (sótt- hreinsandi, brunasmyrsl), Cremor hydrocortisoni acetatis, hydrókirtisónacetakrem (stera- krem), Betnovate (sterakrem og smyrsl), sem er sérlyf, Synalar (sterakrem og smyrsl), sem er sérlyf. Hér að framan hefur verið minnst á þau lyfjaform, sem mest eru notuð og drepið á nokkra helztu eiginleika og notkun þeirra. Mörg lyfjaform eru ótalin, en 1 þessu samhengi hafa þau minni þýðingu og verða þau því ekki talin. En þróun á sviði lyfjaforma er mikil og gefist sérstakt tilefni til þess að lýsa nánar nýjum eða gömlum lyfjaformum, verður það væntanlega gert. Geymsla lyf ja — Varúð — Geymið þar, sem börn ná ekki til Áður en lengra er haldið, er nauðsynlegt að fjalla í stuttu máli um geymslu lyfja. Verður það gert frá tveimur sjónar- hornum, annars vegar því, að lyf séu ávallt geymd þannig, að þau verði engum að tjóni og hins vegar því, að þau skemmist ekki óþarflega hratt og geti þess vegna komið að því gagni, sem þeim er ætlað. Þessi sjónarmið eru hvort öðru mikilvægara og fátt er eins sorglegt og þegar lyf verða óvitum-að fjörtjóni, vegna þess, að ekki hefur verið hirt um að geyma þau á tryggum stað á heimilinu.. Allir hljóta að viðurkenna, að okkar þjóðfélag er þjóðfélag mikilla slagorða og hefur sá, sem þessar línur ritar lítið gert af því að mæla þeim bót, en dálítið af hinu gagnstæða. En eitt er það slagorð, sem ég hygg, að hugsanlega gæti orðið til nokkurs gagns og það mætti gjarnan hljóða þannig: „Geymið lyf ávallt þar. sem börn ná ekki til“. Þetta merkir, að á hverju heimili í landinu þyrfti að vera lítill skápur, sem þannig væri búinn, að í honum væru einung- is geymd lyf og að hann væri aðeins aðgengilegur þeim, sem komnir eru til vits og ára og eiga þangað brýnt erindi. Ef slíkt fyrirkomulag yrði í heiðri haft, mundi það draga verulega úr þeirri hættu, sem í því er fólgin, að börn komist í lyfja- birgðir heimilisins, en einnig úr þeirri hættu, sem í því er fólgin, að fullorðnir geymi lyfjabirgðir sínar undir vissum kringum- stæðum á stað, sem er of auðveldur aðgangs. Á síðara atriðiið einkum við um svefnlyf og verður síðar vikið að því. Samkvæmt íslenzkum lögum eru lyfjabúðir skyldugar að auðkenna nánar tiltekin lyf aðvörunarmiða, sem á er letrað: „Varúð — Geymið þar, sem börn ná ekki til. En í raun væri það mjög til bóta, ef almenningur héldi þessa reglu í heiðri í öllum tilvikum, þegar um lyf er að ræða, hvort sem það er letrað á umbúðir þeirra eða ekki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.