Morgunblaðið - 02.12.1978, Page 18

Morgunblaðið - 02.12.1978, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 LEIFUR MULLER I FANGABUDUM NASISTA III ..Yinna skapar írclsi". Gengió á ný gegnum hið illræmda hlið... Ég var fangi í Sachsenhaus- en-Oranienburg fangabúðunum í tæp 2 ár á árunum 1943—1945. Við vorum alls tíu í hópi ferðalang- anna, sem komum þangað að nýju í vor, sem fyrir 33 árum. Það var óneitanlega einkennileg tilfinning að minnast fangavistarinnar, og ýmis atvik rifjuðust upp, þegar við nú gengum í gegnum þetta sama hlið og við höfðum gert tvisvar á dag í 22 mánuði. Nú eftir að ég er kominn heim aftur, þá held ég að gangan gegnum hliðið „Arbeit macht Frei“ sé eitt minnisstæð- asta augnablikið í þessu ferðalagi. Það fvrsta sem maður veitti athygli var að alla „umgjörðina“ vantaði. Engir vopnaðir SS-verðir eða SS-yfirmenn voru nálægir til þess að „taka á móti okkur“. Engir hundar — varðturnarnir tómir og vélbyssulausir, en rafmagnsgirð- ingin og gaddavírsgirðingin á sama stað. Samt minnti staðurinn mann enn á hrópin og köllin Frá húðunumi Tíu fyrrvorandi fangar 33 árum síðar. forðum, þegar „heim“ var komið að kvöldi: „eins — zwei, eins — zwei einn tveir — einn tveir „Miissen ab" takið ofan „vorder man" gangið í takt „Kopf hoch" lyftið höfðinu „gerade aus" , _ _ beint afram „Finger lang" beinar hendur „Miissen ab — du Schweinhund" taktu ofan — svínið þitt „eins — zwei. eins — zwei" einn tveir — einn tveir „links um" beygið til vinstri o.s.frv., o.s.frv. Eins og áður er getið stóð á hliðinu hin kaldhæðnislega áletr- un „Arbeit macht Frei“ (vinna skapar frelsi) — er þýddi algerlega hið gagnstæða hér. Kraftar manns voru takmarkaðir, því að fæðið var lélegt og ófullnægjandi með þeim afleiðingum að margir hverjir dóu úr hungri. Það veitti því ekki af að draga úr hverju átaki og hlífa líkamanum eins og mögulegt var og varðveita það þrek, sem maður hafði þegar komið var í fangabúð- irnar. Enda sögðu gömlu fangarnir við okkur nýliðana: „immer langsam — immer langsam" — farðu þér hægt, farðu þér hægt, og það kom fljótt á daginn að þetta var hverju orði sannara. Annað sem hinir reyndu gömlu fangar ráðlögðu okkur ef við ættum nokkurn tíma að komast lifandi úr þessu helvíti, var að reyna að „hverfa“ inn í fjöldann og forðast að láta á sér bera á nokkurn hátt. Þegar gengið væri fylktu liði til og frá vinnu átti maður að forðast að vera fremstur eða aftastur — halda sig í miðjunni. Röðin var yfirleitt fimmföld. Ef einhver gekk ekki í takt dundu á honum höggin og spörkin. Það átti aldeilis að kenna okkur að „marchéra" eins og hermenn. Ef menn veiktust og gátu ekki mætt til vinnu þá var voðinn vís. Þó að þarna væru sjúkraskálar (Revier) þá voru möguleikar á Iyfjum litlir og þar sem fæðið var ófullnægjandi var erfitt að ná sér aftur — og leiðin var þá oft stutt í líkbrennsluofninn. Þegar við nú komum 33 árum seinna inn á mannlaust nafna- kallstorgið (Appelplass) fór ég í raun og veru fyrst að gera mér grein fyrir stærðinni á þessum fangabúðum, þótt ég hefði átt heima þar í tæp tvö ár. Maður var vanur því að þarna væru á ferli milli 15 og 20 þúsund manns og fannst svæðið ekki vera nein ósköp. Talan á föngunum gat farið upp í 20 til 30 þúsund manns — og það tók sinn tíma að telja allan þann fjölda tvisvar á dag. Ég gæti ímyndað mér að opna svæðið í Sachsenhausen hafi verið svona 3 sinnum stærra en gamli Melavöll- urinn í Reykjavík. 'U.D .OWtr/ SflARSCH APRIL 1945 o; h mmw HAFimSÍf des im K2-SAaP6hlF OBER 6000 WURDEN Piff DESEM MARSCH DURCM Dfls SS ERMORDET. mnstoot mmm m npgonuwo íBtmmm IVERMACHTNIS LEBT UNSEREN TATEN FORT. SíCWStMHWKM Sachsenhauseni Gaddavír. rafmagn og frelsið (dauðinn). Dauðagangan frá Sachsenhausen — SS myrti fi.000 fanga á göngunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.