Morgunblaðið - 02.12.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978
19
Saehscnhauscn 1978i Minninsarathöfn.
— við vorum loksins á heimleið.
Þetta var fyrsti áfanginn — við
vorum á góðri leið að verða frjálsir
menn. Vonin, sem við höfðum
borið í brjóstum okkar varð að
veruleika — þó svo við hefðum á
stundum ekki trúað því að það
gæti orðið.
Þó náði þessi björgunarleiðang-
ur ekki til okkar án erfiðleika.
Stöðugt varð að breyta um áætlun
vegna þess að vegir voru ófærir
eftir sprengjuárásir, margar
krókaleiðir varð að fara áður en
komið var á áfangastað. Þessi
björgunarleiðangur þótti vera eitt
mesta afrek, sem nokkur hjálpar-
stofnun hefur leyst af hendi á
stríðstímum. Svíar, Danir og
Norðmenn lögðu allir hönd á
plóginn. Aðalstjórnandi leiðang-
ursins var hinn þekkti Svíi Grev
Folke Bernadotte.
Ekki er hægt að ljúka þessum
kafla án þess að minnast þess, að
bíllinn okkar varð fyrir skotárás á
leiðinni frá Nauengamme til Dan-
merkur, með þeim hörmulegu
afleiðingum að þrír af félögum
okkar létust. Þetta gerðist 25. apríl
1945 — aðeins nokkrum dögum
áður en stríðinu lauk. Þetta átti
sér stað að nóttu til en flugmenn
bandamanna vöruðu sig ekki á að
hérna var Sænski Rauði krossinn
á ferð, en ekki herflutningar
Þjóðverja.
„Sultur" hct þcssi tcikning fangans scm gcrði hana.
100.000 týndu lífinu
Talið er að samkvæmt opinber-
um heimildum að um tvö hundruð
þúsund fangað hafa dvalið lengri
eða skemmri tíma í þessum
fangabúðum, en aðeins helmingur-
inn komist lífs af. Flestir voru
hreinlega drepnir á ýmsan hátt,
annað hvort skotnir, myrtir í
gasklefum og með lyfjum eða
hengdir. Einnig dóu mjög margir
af ýmsum sjúkdómum. Stórir
hópar fórust, þegar verið var að
flytja þá milli fangabúða. Þegar
fangar drógust aftur úr á göngu
eða gáfust upp voru þeir yfirleitt
skotnir á staðnum.
í Sachsenhausen urðum við
iðulega vitni að því á veturna, að
sjá nýkomna fanga standa úti í
kuldanum frá því snemma morg-
uns og fram eftir deginum —
fáklædda og jafnvel berfætta.
Oftast voru þetta menn frá
Rússlandi og Póllandi, einnig
margir frá Ukrainu. Frakkar voru
einnig í stórum hópum í Sachsen-
hausen. Þessir vesalingar voru
aðframkomnir eftir að hafa verið
vikum eða mánuðum saman á
ferðalögum milli fangabúða. Ég
hefi oft minnst þessara atburða,
að hefði ég lent í slíkum hópi að
vetrarlagi væri ég annars staðar
niðurkominn í dag.
Þegar fangar komu fyrst í
fangabúðir eða fangelsi, voru öll
verðmæti tekin. I fangabúðunum
voru td. öll föt tekin og í staðinn
fengu%ienn röndóttan fangabún-
ing, þunna léreftsskyrtu, nærbux-
ur en enga sokka. í stað sokka
fengu menn bómullarklúta og svo
tréklossa. En það var fleira en
fatnaður, sem var hirtur af
föngunum — því allt tanngull var
hirt úr líkunum áður en þau voru
brennd. Þjóðverjar hafa alltaf
reynst vera nýtin þjóð og svo
reyndist einnig vera í Sachsen-
hausen.
Þegar fór að líða að stríðslokum,
þ.e. eftir áramótin 1944/45 gengu
ýmsar sögusagnir í fangabúðunum
um fjöldaaftökur. Meðal fanga
sem voru í einangrun, voru nokkr-
ir brezkir stríðsfangar, lögreglu-
menn frá Luxemburg og rússnesk-
ir liðsforingjar. Seinna fréttum við
að 178 fangar hefðu verið skotnir
um nóttina 2. febrúar. Meðal
þeirra sem myrtir vour, voru 7
Bretar, 19 Luxemburgarar og 60
Rússar. Ekki fréttum við alltaf af
þeim harmleikjum og fjöldamorð-
um sem áttu sér stað meðan við
dvöldum í Sachsenhausen. Sam-
kvæmt upplýsingum sem núna
liggja fyrir er talið á tímabilinu 2.
til 22. febrúar 1945 hafi um 4
þúsund fangar verið líflátnir á
stað sem kallaður var „Station Z“.
Þangað var farið með hina dauða-
dæmdu — og af því að Z er síðasti
stafurinn í stafrófinu og þetta var
einnig síðasti dvalarstaður þeirra,
fékk byggingin nafnið „Station Z“.
Vissulega voru það mikil við-
brigði að sjá fangabúðirnar svona
mannlausar — þær voru ekki
nema svipur hjá sjón, miðað við
það sem áður var. Fyrir ókunnuga
er ekki hægt með nokkru móti að
gera sér grein fyrir hvað menn
höfðu orðið að þola dag eftir dag,
mánuðum og árum saman, enda
gafst fjöldi þeirra upp eða urðu
veikir, og dauðinn var það eins
sem beið þeirra. Gálginn var
horfinn og flestir skálarnir eins og
áður hefur verið nefnt.
I Sachsenhausen hafði ^g mest
samskipti við Norðmenn, bjó í
sama skála og þeir og lenti í
ýmsum vinnuflokkum þar sem
þeir voru flestir. Danir voru þarna
líka nokkrir og kynntist ég þeim
flestum. Einn Islendingur kom til
Sachsenhausen um áramótin
1943/44. Sá hét Óskar Vilhjálms-
son og var frá Reykjavík. Hann
kom á versta tíma, um hávetur,
fékk lungnabólgu og lézt eftir
fáeinar vikur. Óskar var eini
íslendingurinn sem ég hitti meðan
á fangavist minni stóð.
Björgunarleiðangur
Sænska Rauöa krossins
Sá atburður, sem mun ávallt
verða okkur minnisstæðastur er
við dvöldum í Sachsenhausen, er
skiljanlega björgunarleiðangur
Sænska Rauða krossins. „Hvita
Bussarna", sem birtist okkur og
við gátum yfirgefið búðirnar fyrir
fullt og allt. Það ótrúlega var skeð
Átti aö drekkja
45.000 föngum
Meðfylgjandi norsk blaðafrétt
úr „Arbeiderbladet", dags. 9.
desember 1947 staðfestir það, sem
við fangarnir vorum farnir að
óttast fljótlega eftir áramótin
1944—45, um áform Þjóðverjanna,
að enginn ætti að sleppa lifandi úr
Sachsenhausen.
Þetta voru þá endalokin sem
nasistarnir voru búnir að ætla
okkur. Þá átti að smala okkur
saman og senda á prömmum til
Eystrasalts og út á Norðursjóinn,
sökkva þeim á nægilegu dýpi, svo
öruggt væri að engar sannanir
væri hægt að færa fram um afdrif
okkar.
Það er mér enn í dag í fersku
minni, að síðustu vikurnar í
Sachsenhausen var mikill beygur í
okkur; eitthvað örlagaríkt gæti
skeð þá og þegar. Einhvern pata
höfðum við af að hroðalegar
aftökur færu fram allan sólar-
hringinn í fangabúðúnum (fangar
sem voru sjúkir og enga lífsvon
áttu voru ýmist skotnir eða
drepnir með sprautum) — enda
var reykjarmökkurinn mikill frá
líkbrennsluofnunum. Það var ekki
laust við að þetta ástand hefði
áhrif á svefn okkar. Aldrei var
þetta rætt — en hver hugsaði sitt.
En eins og áður er sagt kom
Sænski Rauði krossinn í tæka tíð
og bjargaði okkur frá þessum
ömurlegu örlögum er nasistarnir
voru búnir að ætla okkur.
JRtir0imbIabií>
óskar eftir
blaðburðarfólki
AUSTURBÆR:
□ Laugavegur 1—33,
d
o
sBRlÍÍTSfiÍn
0BBEH3B0UI1Í®
Karnabær
tiLJCMCEILD
Fyrir 2 plötur ókeypis buröargjald.
Fyrir 4 plötur10% afsláttur og
ókeypis buröargjala.
Vinsælar plötur
Meatloaf — Bat Out of Hell
Gunnar Þóröarson
Billy Joel — 52nd Street
Diddú og Egill — Þegar Mamma var ung
Queen — Jazz
Star Party — Ýmsir
Ljósin í bænum
John Paul Young
Björgvin Halldórsson — Ég syng fyrir þig.
Krossið við þær plötur sem óskað er,'
sendið okkur listann og við sendum
samdægurs til baka í póstkröfu.
Nafn____
Heimilisfang
Kamabær, HIjómplötudeild
Laugavegi 66
S. 28155
Glæsibæ
S.81915
Austurstræti 22
S. 28155.