Morgunblaðið - 02.12.1978, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978
20
GunnarÞ. Þorsteins-
son hœstaréttarlög-
maöur - Minningarorð
Vinur minn og starfsbróðir,
Gunnar Þorsteinsson, er látinn.
Hann lézt 18. nóvember síðastlið-
inn á Landakotsspítala hér í borg
eftir stutta legu. Bálför hans fór
fram frá Fossvogskapellu 27. nóv.
s.l.
Kynni og vinátta okkar Gunnars
voru orðin býsna löng og varð mér
hverft við að frétta lát hans, þó að
það hafi ekki komið mér með öllu á
óvart. Ég kom nýlega til hans á
spítalann og tók í hönd hans til
hinztu kveðju og þakklætis fyrir
samveruna, en hann hafði þá misst
meðvitund.
Gunnar Þorsteinn Þorsteinsson
var fæddur 28. september 1903 í
Reykjavík. Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún Brynjólfsdóttir og
Þorsteinn Þorsteinsson skipstjóri,
en þau bjuggu lengst af í Þórs-
hamri við Templarasund hér í
borg. Gunnar ólst upp í foreldra-
húsum ásamt systkinum sínum,
Þórunni og Brynjólfi.
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1925 settist hann í Háskóla íslands
og lauk þaðan lagaprófi 1929.
Sama ár hélt hann til framhalds-
náms við Lundúnaháskóla. Að
loknu námi, sem gekk fljótt og vel,
var hann um skeið framkvæmda-
stjóri Fiskveiðihlutafélagsins Is-
lands, en árið 1931 gerðist hann
fulltrúi á málflutningsskrifstofu
okkar Jóns Ásbjörnssonar. Eftir
að Jón Ásbjörnsson var skipaður
hæstaréttardómari 1945, keypti
Gunnar hans hluta í skrifstofunni.
Við rákum svo saman lögfræði-
skrifstofuna, þar til hann hætti
lögfræðistörfum sökum heilsu-
brests árið 1965. Þó eru undanskil-
in árið 1949—50, er Gunnar var
bæjarfógeti í Vestmannaeyjum.
Eftir að Gunnar hætti lögfræði-
störfum, var hann um skeið
búsettur í Danmörku, en flutti
síðan til Islands aftur.
Gunnar var alvöru- og dugnað-
armaður; hann var mikill tilfinn-
ingamaður og drengur góður. Kom
það skýrast fram gagnvart þeim,
sem minna máttu sín eða áttu um
sárt að binda.
Samvinna okkar Gunnars var
löng og góð, og hygg ég, að fáir
hafi þekkt hann betur en ég. Eftir
að hann kom aftur heim frá
Danmörku, leit hann oft inn á
skrifstofuna til okkar og drakk
með okkur kaffisopa. Var það
okkur alltaf til mikillar gleði, er
hann birtist brosandi í dyrunum
og flutti með sér hlýju og vinsemd
og rifjaðar voru upp gamlar
ánægjustundir.
Gunnar og eiginkona hans, Jóna
Guðmundsdóttir, eignuðust tvö
mannvænleg börn. Dóttirin
Hrafnhildur, fædd 1935, er lög-
fræðingur í Danmörku, sonurinn
Þorsteinn, fæddur 1940, er arki-
tekt og leikari í Reykjavík, kvænt-
ur Valgerði Dan leikkonu. Börnin
og barnabörnin veittu Gunnari
mikið yndi, enda var hann barn-
góður með afbrigðum.
Eg vil að lokum þakka vini
mínum ógleymanlega vináttu og
óska þess, að við hittumst aftur, er
forsjónin vill að svo verði. Guð
fylgi honum.
Þinn gamli vinur
Sveinbjörn Jónsson.
Gunnar Þorsteinn Þorsteinsson
var fæddur 28. sept. 1903. Hann
lézt hinn 18. þ.m. eftir stutta legu
á sjúkrahúsi, 75 ára að aldri. Faðir
hans var Þorsteinn Þorsteinsson,
skipstjóri, sem löngum var kennd-
ur við Þórshamar, bróðir séra
Bjarna, tónskálds og fræðimanns
á Siglufirði, og Haildórs skipstjóra
á Háteigi, svo nefndir séu tveir
nafnkunnir bræður hans. Móðir
Gunnars var Guðrún Brynjólfs-
dóttir bónda og skipasmiðs í
Engey, sem smíðaði 180 báta um
ævina. (Og gerði þó Bjarni sonur
hans betur, því hann hafði þá
200.).
Systkini Gunnars eru Brynjólf-
ur, tæpu ári eldri en Gunnar, og
Þórunn, ekkja Gunnars Benja-
mínssonar læknis, talsvert yngri
en bræðurnir.
Æskuheimili Gunnars í Bakka-
búð, nú húsið númer 25 við
Lindargötu hér í borg, annað
Bakkabúðarhúsið, sem faðir hans
byggði, var veglegt og glæsilegt í
þá daga. Jafnskjótt og Þorsteinn
lauk stýrimannsprófi keypti hann
torfbæinn Bakkabúð til þess að
geta tekið til sín foreldra sína, sem
um þær mundir bjuggu við sára
fátækt að Presthólum á Kjalar-
nesi, þangað komin frá Mel í
Hraunhreppi. Þau fengu ekki að
flytja til bæjarins fyrr en talið var
að sonur þeirra gæti séð þeim
farborða. En húsakosturinn var
ekki þröngur til langframa, því
ekki liðu nema fá ár þar til
Þorsteinn byggði traust og vandað
timburhús. Seint fannst honum
ofgert við foreldra sína. Þetta var
rétt fyrir aldamótin síðustu, á
þeim árum þegar börn töldu sér til
skyldu, eða til gleði og þroska, að
hjálpa foreldrum sínum ef með
þurfti.
Ekki er ólíklegt að í þessum
veglegu húsakynnum hafi ein-
hverjum orðið hugsað upp í
Hraunhrepp, til gömlu baðstof-
unnar á Mel, sem hrundi ofan í
súkkulaðipottinn þegar fagna
skyldi syninum Bjarna, heim-
komnum frá námi.
Inn á þetta heimili leiðir Þor-
steinn brúði sína, Guðrúnu frá
Engey Brynjólfsdóttur, og takast
með þeim hjónum ævilangar ástir.
Þau áttu vel saman; hann félags-
h.Vggjumaður, athafnasamur og
traustur gáfumaður, höfðingi í
sjón og raun; hún rausnarleg
húsfreyja, mannblendin og stór í
sniðum með sömu hagleiksnáttúru
í blóðinu og faðir og bróðir,
listasmiðirnir góðu. Einkum hafði
hún yndi af málaralist og kemur
þar fram hið glögga smiðsauga,
sjálf málaði hún á postulín og
stundaði af kappi myndlist þá, er
konur þeirra tíma töldu sér bezt
henta, útsaum í allskyns dúka.
Næmar tilfinningar sínar geymdi
hún undir dagfarsglöðu yfirbragði.
I þessa stofna sækir Gunnar
skaphöfn sína: Góðar gáfur,
félagslyndi og skopskyn, vinnu-
semi og frískleika í framkomu.
Þegar Gunnar hafði lokið námi,
sem tafðist um tvö ár vegna
veikinda hans, og hefði raunar
seinkað meira ef læknar hefðu
fengið að ráða, hófst athafnaskeið
sem stóð í 35 ár, frá upphafi árs
1930 til ársins 1965. Stutta hríð
var hann framkvæmdastjóri ís-
landsfélagsins en tók síðan að
starfa í málflutningsskrifstofu
tveggja öðlingsmanna, þeirra Jóns
Ásbjörnssonar hrl. og Sveinbjarn-
ar Jónssonar hrl., og gerðist síðar
meðeigandi þegar Jón Ásbjröns-
son varð hæstaréttardómari.
Hann var mikill vinnuhestur og
hafði gaman að starfi sínu, enda
var hvort tveggja, að hann hafði
lent hjá hinum beztu mönnum og
vissi það, og þeir kunnu vel að
meta sinn unga liðsmann. Hann
gerðist æ virkari á sviði félags-
mála, sat í bæjarstjórn Reykjavík-
ur 1942—1946, varð formaður
Fasteignaeigendafélags Reykja-
víkur og fyrsti formaður íþrótta-
bandalags Reykjavíkur
1944—1946. Bæjarfógeti í Vest-
mannaeyjum var hann í tæpt ár,
1949-1950.
Hann kallaði sig aldrei íþrótta-
mann en þjálfaði sig þó æði vel.
Meðal annars iðkaði hann bogfimi
fyrir áeggjan Jóns húsbónda síns,
en áhugi Jóns mun hafa stafað af
lotningu fyrir hetjuskap söguald-
ar, sem aftur helgaðist af ást hans
á fornum fræðum. Fjallgöngur og
sund iðkaði Gunnar árum saman,
og kemur mér þá til hugar saga af
föður hans, gerólík á ytra borði en
ef til vill einungis svo.
Eitt sinn afréðu Gunnar og
nokkrir sundfélagar hans að fara í
sjóböð hvern einasta dag á
komandi vetri, hvernig sem
viðraði. Mun það hafa verið
kaldsamt á stundum, en aldrei féll
niður dagur hjá Gunnari og var
hann hressari eftir en áður. Ekki
kom til máia að láta undan þó
veður væru slæm. Þannig var og
um föður hans. Þegar hann var
skipstjóri á togara reyndist hann
hverjum manni aflasælli, enda
sótti hann sjóinn fast. Og sagt var
að þegar aðrir skipstjórar forðuðu
sér undan foraðsveðrum, hafi
Þorsteinn haldið áfram og kastað
þar til hafið tók til sinna ráða og
slengdi vörpunni jafnharðan aftur
upp á þilfar. Þá fyrst var látið
undan.
Árið 1932 kvæntist Gunnar Jónu
Mörtu Guðmundsdóttur, sem nú er
látin fyrir rúmu ári, hinni vænstu
konu. Þau áttu tvö börn: Hrafn-
hildi, lögfræðing að mennt, og
Þorstein, leikara og arkitekt. Þau
Gunnar og Jóna slitu samvistum
eftir alllanga sambúð og kvæntist
Gunnar tvívegis eftir það, fyrst
Guðrúnu Á. Þórðardóttur og síðar
Þóru E.M. Júlíusdóttur Hafsteen.
Urðu bæði þessi hjónabönd
skammvinn. Þó þau Jóna tækju
ekki upp sambúð á ný varð ekki
annað séð *en með þeim ríkti
vinátta og nærgætni hin síðari ár.
Um miðjan sjöunda tug aldar-
innar verða þáttaskil á ævi
Gunnars. Hann leggur niður mál-
flutning hér heima, yfirgefur
viðskiptavini og starf, sem hann
hefur varið áratugum í að byggja
upp, og sezt að í Kaupmannahöfn.
Hann er orðinn 62 ára, heilsunni
hefur hrakað, starfið, sem sífellt
hleður á sig, er farið að þreyta
hann og, það sem gerist næst
hinum snöggu umskiptum, móðir
hans dáin fyrir ári. Áður var faðir
hans farinn. Ekki er ofmælt þó
sagt sé að með Gunnari og móður
hans hafi alla tíð verið miklir
kærleikar, og það svo að Gunnari
hafi þótt sem hann hefði aldrei
gert nógu vel við hana. Fátt er sem
bindur hann og ekki viðlit að
dveljast í Reykjavík þar sem hann
slyppi ekki undan áleitnum kröf-
um viðskiptavina sinna.
En dvölin í Kaupmannahöfn
varð styttri en ætla mætti. Árið
1972 fluttist hann aftur til íslands
og treysti við son sinn vináttu-
bönd, sem aldrei höfðu slitnað.
Síðustu æviárin urðu barnabörnin
honum til ánægju, sonarsynir hér
heima og dótturdóttir í Kaup-
mannahöfn.
Gunnar var glæsimenni og hinn
skörulegasti í framgöngu. Hann
var dagfarsprúður og hjálpsamur,
hlýr og traustvekjandi. Síðari ár
ævinnar átti hann við vanheilsu að
stríða, en var þó að jafnaði hress í
viðmóti og hafði lifandi áhuga á
félags- og stjórnmálum. Dauða
hans bar að fyrr en varði, hann
fékk slag en var með lífsmarki í
vikutíma, sofnaði svo til drottins
síns í næturkyrrð hinn 18. þ.m.
Jón Dan.
Kirkjudagur
Árbæ j arsafnaðar
Ilinn árlegi kirkjudagur Ár-
bæjarsafnaðar verður að þessu
sinni hátíðlegur haldinn sunnu-
daginn 3. desember (1. s.d. í
aðventu) í Safnaðarheimili Ár-
bæjarsóknar og hátiðasai Árbæj-
arskóla.
Hátíðahöld á kirkjudegi í að-
ventubyrjun hafa frá upphafi vega
safnaðarins verið árviss viðburður
í safnaðarlífinu og dagskrárliðir
kirkjudagsins jafnan verið fjöl-
sóttir af safnaðarfólki.
Sú er einlæg von allra þeirra, er
að þessum degi standa, að svo
verði einnig nú. Aðventan er
undirbúningstími okkar fyrir jól-
in, trúarhátíðina æðstu meðal
kristinna manna. Því er það vel við
hæfi, að við hefjum aðventuundir-
búninginn með því að koma saman
á kirkjuhátíð, okkur til líkamlegr-
ar og andlegrar uppbyggingar og
styðjum þá um leið stofnunina
öldnu, kirkjuna, sem er okkur
kristnum móðir og mikilvægastan
boðskap Ijóss og lífs hefur að
flytja okkur í myrkum heimi
forgengileikans.
Að þessu sinni er það óblandið
gleðiefni að geta haldið kirkjudag í
nýlega vígðu safnaðarheimili, en
það bætir alla starfsaðstöðu safn-
aðarins að miklum mun. Því er þó
ekki að leyna, að verulegar skuldir
hvíla enn á þessum fyrri áfanga
kirkjubyggingarinnar, en sann-
færing mín er sú, að þessi
kirkjudagur verði enn sem fyrr
drjúgur fjáröflunardagur og að
unnt reynist að grynnka eitthvað á
skuldunum að honum afstöðnum.
Heitið er þess vegna á safnaðar-
menn, yngri sem eldri, að fjöl-
menna á dagskrárliði kirkjudags-
ins og rétta þannig fram örvandi
hjálparhönd til styrktar safnaðar-
starfsinu.
Helstu dagskrárliðir' kirkju-
dagsins eru á þá leið, að kl. 10.30
ardegis er barnasamkoma í Safn-
aðarheimili Árbæjarsóknar og eru
foreldrar velkomnir með börnum
sínum.
Kl. 2 hefst guðsþjónusta fyrir
alla fjölskylduna í safnaðarheimil-
inu. Kirkjukór safnaðarins syngur
undir stjórn Geirlaugs Árnasonar
og Unnur Jensdóttir syngur stól-
vers. Sérstaklega er vænst þátt-
töku væntanlegra fermingarbarna
næsta árs og foreldra þeý-ra í
messunni.
Að lokinni guðsþjónustu um kl.
3 hefst kaffisala á vegum kirkju-
nefndar Kvenfélags Árbæjarsókn-
ar í hátíðasal Árbæjarskóla og þar
munu borð svigna undan dýrindis
veislukökum kvenfélagskvenna og
annarra safnaðarkvenna.
Auk kaffisölunnar efnir kirkju-
nefndin til glæsilegs happdrættis
með fjölmörgum góðum og gagn-
legum vinningum. Þar á meðal má
nefna vandað skrifborð er Bræðra-
félag safnaðarins hefur gefið sem
aðalvinning í happdrættinu.
Klukkan hálf níu síðdegis hefst
síðan hátíðasamkoma í Safnaðar-
heimilinu. Gunnar Petersen, safn-
aðarfulltrúi, setur samkomuna.
Organisti safnaðarins, Geirlaug-
ur Árnason, leikur á orgel og
stýrir almennum söng samkomu-
gesta. Unnur Jensdóttir syngur
einsöng. Þór Magnússon þjóð-
minjavörður flytur erindi og sýnir
litskuggamyndir með máli sínu.
Barnakór Árbæjarskóla syngur
undir stjórn Jóns Stefánssonar
söngstjóra. Loks verður helgistund
í umsjá sóknarprests.
Árbæingar, eignumst sameigin-
lega hátíð. Búum hugi okkar undir
komu jólanna með glæsilegri
þátttöku í kirkjuhátíð safnaðarins
á fyrsta helgidegi nýs kirkjuárs.
Verið öll hjartanlega velkomin á
samkomur kirkjudagsins á morg-
un.
Guðmundur Þorsteinsson.
TK vann TR óvænt
í deildakeppninni
NÝLEGA áttust við sveitir Taflfélags Reykjavíkur og Tafl- Björn Halldórss. Sævar Bjarnason — 1:0
félags Kópavogs í 4. umferð deilda- kcppni Skáksambands íslands. Guðni Sigurbjarnarss. Björn Þorsteinss. — 0:1
Teflt var á 8 borðum og lyktaði viðureigninni með óvæntum sigri Jón Þorvarðars. Ásgeir Þ. Árnass. — 0:1
Taflfélags Kópavogs, i'A vinningur gegn 3‘/2 vinningi. Sigurður Kristjánss. Jóhann Hjartarss. — 1:0
Úrslit einstakra skáka urðu sem hér segir, TR talið á undan: Jörundur Þórðars. Jónas P. Erlingss. — 0:1
Helgi Olafsson — Ómar Jónss. 1:0 Egill Þórðars. Gunnar Gunnarss. — 'k:'k
Margeir Péturss. — Jóhann Stefánss. 0:1
Anna Kristín
eftir Margit Ravn
Bókaútgáfan Hildur hef-
ur gefið út bókina Anna
Kristín eftir norsku skáld-
konuna Margit Ravn. Þessi
bók kom út fyrir 3—4
áratugum og segir í til-
kynningu útgáfunnar að
ekki muni bókin njóta síðri
vinsælda ungra stúlkna nú
en hjá mömmum þeirra og
ömmum á sínum tíma.