Morgunblaðið - 02.12.1978, Page 24

Morgunblaðið - 02.12.1978, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 25 fMtogtnililjifrft Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fróttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiösla Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2500.00 kr. ó mónuöi innanlands. I lausasölu 125 kr. eintakiö. „Full vísitala beinlínis vörn gegn óðaverðbólgu,, Atburðir síðustu vikna og mánaða hafa brugðið upp óhugnanlegri mynd af því, í hvílíkri úlfakreppu pólitískra ofstækismanna íslenzk verkalýðshreyfing er. Mönnum er í fersku minni aðdragandi síðustu alþingiskosninga, þar sem ekki var látið við það sitja að hvetja til ólöglegra verkfalla og vinnustöðvana til þess að brjóta niður lögmæta stjórn landsins, heldur voru hafin skemmdarverk á sjávarútveginum með útflutningsbanni, sem stóð svo vikum skipti. Á þessum tíma komst formaður Verkamannasambands Islands m.a. svo að orði: „Fullar verðbætur skv. vísitölu er eina vörn launafólks gegn því að verðbólgan rífi niður kaupmáttinn. Full vísitala er líka beinlínis vörn gegn óðaverðbólgu. Reynslan sýnir, að því skertari sem vísitalan er þeim mun meiri er verðbólgan." I framhaldi af þessu talaði hann um, að setja þyrfti samningana í gildi með því að koma ríkisstjórninni frá. Nú er komið annað hljóð í strokkinn. Stjórn Verkamannasam- bands íslands lýsir sérstakri ánægju yfir skerðingu vísitölunnar og heitir ríkisstjórninni fulltingi til þess að halda áfram á sömu braut. „Verkalýðshreyfingin, flokkurinn og blaðið” Arsfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins var haldinn fyrir tæpum mánuði. Þar gátu menn ekki dulið ánægju sína yfir því, hversu vel þeim hefði tekizt að nota skipulag og fjármagn verkalýðshreyfingarinnar sjálfum sér til framdráttar. Afdráttarlausust var yfirlýsing Svavars Gestsson- ar, viðskiptaráðherra, þegar hann sagði: „Með því að stilla saman verkalýðshreyfinguna, flokkinn og blaðið tókst að ná glæsilegum árangri í bæjarstjórnar- og þingkosningunum sl. vor.“ Hér er það viðurkennt opinberlega og hælst yfir því, að kommúnistar höguðu aðgerðum verkalýðshreyfingarinnar í samræmi við flokkspólitíska hagsmuni sína undir því yfirskyni, að um kjaramálabaráttu verkamanna væri að ræða. Verkamenn og allir launþegar eru skattlagðir til verkalýðsfélaganna. Því mikla fjármagni á að sjálfsögðu að verja til faglegrar baráttu í þeim skilningi að tryggja vaxandi kaupmátt og meira atvinnuöryggi. Nú situr að völdum ríkisstjórn, sem hefur það að stefnumiði að draga svo úr hagvextinum, að lífskjörin hljóta að versna, og atvinnuleysi er þegar farið að gera vart við sig í byggingariðnaðinum. Við þessa ríkisstjórn sér Verkamannasam- band Islands ástæðu til að lýsa sérstökum stuðningi. Þannig er nú búið að stilla saman verkalýðshreyfinguna, Alþýðubandalagið og Þjóðviljann. „Sósíalismi, verkalýðs- hreyfing og þjóðfrelsi” Menn þurfa heldur ekki að ganga að því gruflandi, hver er sú framtíðarsýn, sem kommúnistarnir innan verkalýðshreyf- ingarinnar dreymir um. Svavar Gestsson lýsir henni svo: „Vonandi er ekki mikið um það í okkar röðum, að menn géri sér ekki ljóst, að við náum því aðeins árangri í baráttunni fyrir sósíalisma, að við tryggjum íslenzkt þjóðfrelsi. Og við gerum okkur þar af leiðandi vafalaust öll ljóst, að þjóðfrelsið, verkalýðsbaráttan og sósíalisminn verða aldrei slitin úr samhengi hvert við annað." Þjóðfrelsi sósíalismans hefur verið bezt lýst sem myrkri um miðjan dag. Þegar er fengin 60 ára reynsla af þessu sósíalíska þjóðfrelsi í Sovétríkjunum og þarf ekki að hafa mörg orð um, hvernig þar er búið að hínum almenna borgara, hver sé réttur hans um laun sín og kjör og hver staða verkalýðshreyfingarinnar er þar. Sósíalistar og marxistar hafa það hvarvetna að sínu markmiði í lýðræðisríkjum að brjóta niður atvinnulífið og eyðileggja peningakerfið. Það er þess vegna sem Alþýðubandalagið og kommúnistarnir innan verkalýðshreyfingarinnar berjast nú svo hatramlega gegn því, að mörkuð verði stefna til frambúðar til viðnáms gegn verðbólgu. Þeir vilja láta sitja við bráðabirgðaráð- stafanir, en nota um leið tækifærið til að grafa undan atvinnuvegunum, þangað til svo verður komið, að þeir geta ekki gengið án opinberra styrkja. Slíku fyrirgreiðsluþjóðfélagi er markvisst verið að reyna að koma á með því að stilla saman verkalýðshreyfinguna, Þjóðviljann og Alþýðubandalagið. Geir Hallgrímsson í viðtali við Morgunblaðið: Kjaraskerðing láglaunafólks meiri nú en með febrúarlögum — Stóraukin I ga-r tóku gildi „kaupráns“-lög þau, sem ríkisstjórn Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknarflokks fékk samþykkt á Alþingi í fyrradag. í febrúarmánuði si. samþykkti Alþingi einnig lög, sem fólu í sér vísitöluskerð- ingu launa, en tveir af núverandi stjórnarflokk- um og verkalýðshreyfingin hófu harða baráttu gegn þeirri lagasetningu. Þcssir tveir flokkar og þeir hópar í verkalýðshreyfingunni, sem harðast liörðust gegn visitöluskerðingunni í febrúar hafa lagt blessun sína yfir vísitölu- skerðinguna nú. Morgunblaðið hefur átt stutt samtal við Geir Ilallgrímsson, formann Sjálfstæðisflokksins, um þessar aðgerðir og var fyrsta spurningin, sem beint var til Geirs Hallgrímssonar sú, hvaða rök hefðu legið til þeirrar afstöðu Sjálfstæðisflokksins að greiða atkvæði á móti 1. grein frv. en sitja hjá við atkvæðagreiðslu um aðrar greinar. — Það er skoðun okkar, að niðurgreiðslur séu nú þegar of háar, segir Geir Hallgrímsson, of miklar niðurgreiðslur skekkja verðmyndunina í landinu og gera auknar kröfur um skattheimtu á allan almenning, sem enginn grundvöllur er fyrir. Ennfremur hafa niðurgreiðslur meiri áhrif til lækkunar framfærsluvísitölu og þar af leiðandi kaupgjalds en útgjöld fjölskyldu segja til um og falsa því vísitöluna í raun. Niðurgreiðslur eru því liður í viðleitni stjórnvalda til þess að leika á hið falska hljóðfæri, sem vísitölukerfið er. I fyrstu grein laganna er gert ráð fyrir, að niðurgreiðslur verði auknar um 3 vísitölustig og það töldum við sjálfstæðismenn útilokað til skattheimta viðbótar því 7'/2 stigi, sem niðurgreiðslur voru auknar um í september. í hvorugu tilfelli var gerð grein fyrir tekjuöflun til þess að standa undir niðurgreiðslum og því töldum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins einsætt að greiða atkvæði á móti þessari grein frumvarpsins. Önnur og þriðja grein frumvarpsins voru almennar yfirlýsingar, sem áttu ekkert erindi í löggjöf, sbr. orðalagið: „ríkisstjórr.in mun beita sér fyrir...“ Slíkar yfirlýsingar geta átt erindi í greinargerð lagafrv. en ekki frv. sjálft. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins sátu þv hjá við atkvæða- greiðslu um þessar greinar. Fjórða grein laganna er raunar sú grein þeirra, sem veldur því, að þær, sem á undan koma, eru þarflausar og felur í sér kjarna málsins sem er, að kaupið skuli greiða skv. kaupgjaldsvísitölunni og bráðabirgðalögunum frá því í september, sem voru hornsteinn myndunar núverandi ríkis- stjórnar. Með bráðabirgðalögunum í september átti að setja samningana í gildi sbr. kosningaloforðin frægu. Þótt það væri ekki gert fólu bráðabirgða- lögin í sér 6—6 '/2% hækkun launakostnaðar í landinu. Að vísu varð þá engin hækkun á dagvinnutekjum láglauna- og miðlungstekjufólks — um 3 '/2% hækkun til þeirra, sem unnu í fiskvinnslu og höfðu venjulega yfirvinnu en um 10% hækkun til hinna hærra launuðu. Fjórða grein hinna nýju laga tekur sem sagt þessa ákvörðun bráðabirgðalaganna aftur, þar sem allir launþegar verða að hlíta 8% kauphækkun. Með því er stigið skref til baka frá septemberlög- unum, sem voru hornsteinn stjórnarmyndunar- innar og er því brostinn og hús stjórnarinnar í vændum tekið að hallast og gliðna sundur eins og heyra má af deilum stjórnarinnar. Við sjálfstæðismenn vorum ekki spurðir um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar, sem hafa heldur ekki fengið afgreiðslu Alþingis, og töldum allan málatilbúnað þess frumvarps, sem samþykkt var í gær um tímabundnar ráðstafanir þess eðlis, að stjórnarsinnar einir ættu að bera ábyrgð á þessari lagasetningu og sátum því hjá að öðru leyti en um 1. grein frumvarpsins. Ríkisstjórnin verður að glíma við sinn eigin draug Ber að skilja þá afstöðu svo, að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi talið, að 14,13% kauphækkun ætti að koma til útborgunar? — Nei, en efnahagsráðstafanir ríkisstjórnar- innar eiga mestan þátt í því, að vísitöluhækkunin varð meiri en ráð var fyrir gert og ríkisstjórnin verður aúðvitað sjálf að glíma við sinn eigin draug. Við sjálfstæðismenn bregðum ekki fæti fyrir viðleitni ríkisstjórnarinnar að þessu leyti, en viljum hins vegar ekki taka þátt í þeim sjónhverfingum, sem uppi voru hafðar að fyrirlagi Alþýðubandalagsins, sem vildi telja mönnum trú um, að unnt væri með auknum útgjöldum ríkissjóðs að bæta launþegum upp þau 8%, sem kaupið lækkar um. Við bendum á stefnu okkar, sem fram kom í efnahagsráðstöfunum í febrúar og maí og voru til þess fallnar að draga úr verðbólgu, styrkja kaupmátt launa þegar til lengdar Iætur og tryggja afkomu atvinnuvega og þar með atvinnuöryggi landsmanna. Náið samráð í tíð fyrrverandi stjórnar — Því hefur verið haldið fram, að sá grundvallarmunur sé á vinnubrögðum núverandi ríkisstjórnar og þeirrar, sem þú veittir forsæti, að núverandi ríkisstjórn hafi náið sámráð við aðila vinnumarkaðarins, en það hafi þín ríkisstjórn ekki gert. — Ég vísa þessum staðhæfingum á bug. Þegar ríkisstjórn mín tók við haustið 1974 stóðu málin þannig, að kaupgjaldsvísitalan hafði alveg verið tekin úr sambandi um vorið af vinstri stjórninni og bar Alþýðubandalagið m.a. fulla ábyrgð á því. Við gáfum þá út bráðabirgðalög, sem m.a. fólu í sér sérstakar láglaunabætur til þess að draga úr kjaraskerðingu láglaunafólks. Um það var haft ítarlegt samráð við forvígismenn launþegasam- takanna í landinu. Þeir gerðu hvorki að játa né neita. I þremur samningahrotum, sem fram fóru milli launþega og vinnuveitenda á árunum 1975 og 1976, var haft ítarlegt samráð við aðila vinnumarkaðar. Meðan á samningaumleitunum stóð vorið 1977 bauðst ríkisstjórnin til þess að gera margvíslegar ráðstafanir til að greiða fyrir samningum. Okkur bárust óskalistar frá laun- þegasamtökum, þ. á m. ASI, sem voru langtum víðtækari en við töldum kleift að verða við. Áður en febrúarráðstafanir voru gerðar fóru fram ítarlegar viðræður við forvígismenn launþega- samtaka en það náðist ekki samkomulag við þá og þeir báru ekki sízt fyrir sig fyrirætlanir um að taka óbeina skatta og niðurgreiðslur út úr vísitölunni frá og með næstu áramótum. Þetta er þó eitt þeirra atriða sem þeir nú tjá sig viljuga til að ræða. Febrúarlögin hagstæðari láglaunafólki — Því hefur einnig verið haldið fram, að mikill munur sé á hinni nýju lagasetningu og febrúarlögunum að þvf leyti til að lögin nú séu launþcgum hagstæðari. Ilvað viltu segja um það? — I febrúar sl. stóðu málin þannig, að kaupgjaldsvísitalan átti að hækka um 10%. Þær ráðstafanir, sem við þá gerðum voru að því leyti til frábrugðnar þeim ráðstöfunum, sem nú hafa verið gerðar, að febrúarlögin voru mildari gagnvart hinum lægst launuðu. Samkvæmt þeim lögum voru fullar verðbætur ætlaðar þeim, sem höfðu 88 þúsund kr. í mánaðartekjur í desember 1977. Með hliðarráðstöfunum var kaupmáttur þeirra aukin um 1,5—2%. Það var gert með því að hækka barnabætur um 5%, sem létti skattbyrði barnmargra fjölskyldna. Sérstakt vörugjald var lækkað úr 18% í 16%. Lögfest var, að bætur almannatrygginga skyldu hækka með launum og á sömu dögum. Gert var ráð fyrir sérstakri hækkun tekjutryggingar og heimilisuppbótar umfram launahækkanir 1. marz. Ríkisstjórnin jók niðurgreiðslur nokkuð. Þegar á allt þetta er litið held ég, að það sé alveg ljóst, að lagasetningin nú hefur i för með sér enn frekari skerðingu en febrúarlögin, að ekki sé talað um maílögin. Verðbólgan á ábyrgð núverandi stjórnarflokka — Telur þú líklegt, að þessi vísitöluskerðing, sem nú heíur verið lögfest muni leiða til verulegs samdráttar í verðbólgustiginu? — Ef engar aðrar ráðstafanir fylgja í kjölfarið, en þær, sem í lögunum felast, er gert ráð fyrir, að verðbólgan verði nálægt 45% á næsta ári. í greinargerð frv. er talað um þann möguleika, að kaupgjald hækki mest um 5% í byrjun hvers vísitölutímabils og með þeim hætti stæðu vonir til, að verðbólgan milli ára færi niður í 35% og 30% frá upphafi til loka-árs. En þetta er einmitt svipuð áætlun og fylgdi febrúaraðgerðun- um. Hefðu þær fengið að standa en ekki verið eyðilagðar með pólitískri misbeitingu Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags á launþegasamtökun- um þá væri verðbólgan nú komin niður í 30%. Það er því á ábyrgð fyrrverandi stjórnarand- stöðuflokka og allra núverandi stjórnarflokka vegna bráðabirgðalaganna í september, að við stöndum nálægt 50% verðbólgu í stað þess að vera komin nálægt 30%. Stjóraukin skattheimta — Má ekki búast við stóraukinni skatt- heimtu á næstunni? — Allar þessar ráðstafanir gera ráð fyrir stóraukinni skattheimtu, sem fólki er talin trú um að komi eingöngu við hátekjufólk og atvinnurekendur. Jafnframt því sem sagt er að kaupið megi ekki hækka, þar sem atvinnu- reksturinn standi ekki undir hærra kaupgjaldi, er ætlast til að atvinnufyrirtækin borgi niður kaupið með auknum sköttum. Auðvitað er byrði atvinnufyrirtækjanna byrði allra landsmanna og þannig eru landsmenn látnir borga sitt eigið kaup niður en í leiðinni eykur ríkisvaldið umsvif sín, dregur aukna fjármuni frá atvinnuvegunum til þess að úthluta þeim að hluta aftur. Með þessum hætti er atvinnureksturinn í landinu kominn upp á náð og miskunn stjórnarherranna og það -er einmitt markmið Alþýðubandalagsmanna, sem segja til verka á stjórnarheimilinu. Birgirlsl. Gunnarsson: Vinstri meirihlutinn í Reykjavík undirbýr nýjan fasteignaskatt Um langt árabil hafa skattar, sem borgarstjórn hefur inn- heimt í borgarsjóð verið lagðir á eftir sömu reglum og engir nýir skattar hafa séð dagsins Ijós í Reykjavík í mörg ár. Skattarnir hafa að vísu hækkað að krónu- tölu í samræmi við verðbólguna, en álagningarreglur hafa verið þær sömu, þannig að um raun- hækkun skatta hefur ekki verið að ræða. Auðvitað hefur oft verið erfitt að láta enda ná saman, en með aðhaldi í rekstri og takmörkun framkvæmda hefur það tekizt og við Sjálf- stæðismenn höfum ekki fallið í þá freistni að auka álögur á borgarbúa. Slíkt höfum við talið ósæmilegt með öllu. Nú er skyndilega komið annað hljóð í strokkinn með tilkomu vinstri meirihluta og er það reyndar ekki annað en búast mátti við. Samkvæmt fyrirmæl- um vinstri herranna í borgar- stjórn vinna embættismenn borgarinnar nú að því baki brotnu að reikna út nýja skatta og hvernig breyta megi álagningarreglum, þannig að unnt verði að sjúga eins mikið fé út úr borgarbúum og lög frekast leyfa. Fasteignagjöld, aðstöðu- gjöld, lóðarleiga — allt er þetta nú í endurskoðun til hækkunar og reynt er að finna upp ný gjöld og nýja skatta. Einn nýjan skatt hafa vinstri borgarfulltrúarnir þegar ákveðið að beita sér fyrir. Það er nýr fasteignaskattur, sem á að bera nafnið sorphirðugjald. Fyrirhugað er að nú eigi borgar- búar að greiða sérstakt gjald fyrir að láta hreinsa sorp frá húsum sínum. Til að gefa mönnum nokkra hugmynd um, hvað hér er á farðinni er rétt að nefna nokkrar tölur. Sorphreinsun í Reykjavík á þessu ári er ætlað að kosta um 600 millj. kr. en fasteignaskatt- ar borgarbúa gefa um 1800 millj. króna í tekjur. Sorp- hreinsunin kostar því um 'h af fasteignasköttunum. Ef inn- heimta á sorphirðugjald, sem greiði að fullu kostnað við sorphreinsun þýðir það því í raun um 33% hækkun fast- eignaskatta umfram hækkun vegna verðbólgunnar. Að auki er gert ráð fyrir að öll sorpílát verði hér eftir seld á kostnaðar- verði, en hingað til hafa þau verið leigð gegn vægu gjaldi. Að vísu er að því stefnt, að á næsta ári verði skrefið ekki stigið til fulls. Fyrsti áfanginn verður sá, að sorphirðugjaldið standi undir 20% sorpsöfnunar- kostnaðar við íbúðarhús, en 85% kostnaðar við atvinnuhúsnæði. „Atvinnureksturinn er ekkert of góður til að borga“, er viðkvæði vinstri manna þessa dagana. Á þennan hátt er gert ráð fyrir að gjaldið gefi í borgarsjóð 308 millj. kr. á næsta ári, en áætlaður heildarkostnaður er 709 millj. kr. Gjaldið á því í þessum fyrsta áfanga að standa undir 43% heildarkostnaðar við sorphreinsun, en yfirlýst er, að smám saman hækki gjaldið .þangað til það greiði ailan kostnað við sorphreinsun. Ákvörðun um álagningu þessa n.vja gjalds vinstri manna er hjúpuð orðaflaumi um það að gjaldið stuðli að hagræðingu og hagkvæmni í sorphreinsun. Öll hagræðing í þessu efni er sjálfsögð, en henni eiga ekki að fylgja aukaskattar á borgarbúa. Þetta nýja gjald er ekkert annaö en nýr fasteignaskattur. Nú hafa fasteignaskattar á venjulegt íbúðarhúsnæði verið óvinsælir skattar, því að þeir koma oft illa við tekjulítið fólk sem þó á eigið íbúðarhúsnæði. Fasteignaskattarnir hafa því oft verið gagnrýndir, en því hefur* 'þá gjarnan verið svarað til, að hóflegir fasteignaskattar séu eðlilegir til að standa undir ýmissi þjónustu við fasteignir og þá verið á það bent að V3 hluti fasteignaskatta fari í hreinsun sorps frá húsum. Nú á að breyta þessu og hækka fasteignagjöldin sem nemur hreinsunarkostnaðinum. Hvenær kemur sérstakt slökkvi- liðsgjald til að standa undir kostnaði við slökkvi liöið? Hvenær kemur sérstakt hol- ræsagjald til að greiða holræsa- kostnað? Spyr sá, sem ekki veit, en ljóst er að við öllu má búast. FjárÞörf vinstri meiri hlut- ans er óseðjandi. Einn er þó hængur á öllum þessum málatilbúnaði. Eftir að framkvæmdaráð borgarinnar hafði samþykkt hinn nýja skatt og þegar málið átti að fá samþykki í borgarráði, kom það í ljós, að engin lagaheimild er til fyrir hinum nýja skatti. Á það var að vísu bent í framkvæmda- ráði, en vinstri meirihlutinn lét það eins og vind um eyru þjóta þar. í borgarráði runnu hins- vegar á þá tvær grímur, enda ótvírætt að heimild verður að vera í lögum fyrir nýjum álögum eins og þessum. Þeir hafa því borið fram tillögu um að reynt verði að fá lagaheimild. Við Sjálfstæðismenn munum berjast hart gegn þessari nýju skattlagningu og reyndar gegn öllum breytingum á álagningar- reglum, sem hafa í för með sér auknar álögur á borgarbúa. Arni Öla nírædur Árni Óla rithöfundur og fyrrum ritstjóri Lesbókar Morg- unblaðsins er níræður í dag. Hann er fæddur 2. desember 1888 á Víkingavatni í Keldu- hverfi, N-Þing., sonur Óla Jóns Kristjánssonar bónda og smiðs þar og konu hans Hólmfríðar Þórarinsdóttur. Árni lauk prófi frá Verzlunarskóla íslands 1910, starfaði sem verzlunarmaður í Reykjavík til 1913, en réðst þá til Morgunblaðsins þegar það var stofnað og vann við blaðið sleitulaust til 1920. Hann réðst svo aftur blaðamaður til Morg- unblaðsins 1926, en áratug síðar varð hann auglýsingastjóri blaðsins og gegndi því starfi til 1945. Þá tók hann aftur við blaðamannastarfi á Morgun- blaðinu og gegndi því unz hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hann var ritstjóri Lesbókar Morgunblaðsins 1926 og næsta áratug og tók svo aftur við ritstjórn Lesbókar 1945 og gegndi því starfi til ársloka 1961, þegar breyting varð á Lesbók og hann hætti fastri vinnu við blaðamennsku. í íslenzkum samtíöarmönnum er sagt, að Árni Óla hafi orðið fyrsti blaðamaður á Islandi, „þ.e. fyrsti maður, sem gerist starfsm. í ritstjórnarskrifstofu. Áður voru hér aðeins ritstjór- ar.“ Hann er heiðursfélagi í Blaðamannafélgi Islands og Stórstúku Islands. Árni Óla hefur skrifað fjölda rita, sem notið hafa mikilla vinsælda og verða þau ekki talin upp hér, en þess má þó geta, að hann hefur skrifað bók um Morgunblaðið og störf sín þar og við Lesbók. Það er ekki venja að birta afmælisgreinar í Lesbókinni en eins og þar kemur fram í dag er þó brugðið frá þessari venju í tilefni af níræðisafmæli Árna Óla, enda ber það upp á útgáfudag Lesbókar. Ekki er ástæða til að bæta neinu við það sem þar stendur um þennan aldna heiðursmann og mikil- hæfa blaðamann og rithöfund en afmæliskveðjurnar einungis ítrekaðar. Morgunblaðið og útgáfufyrir- tæki þess, Árvakur, senda Árna Óla heillaóskir á þessum merku tímamótum og þakka löng og gifturík störf í þágu Morgun- blaðsins og alþjóðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.