Morgunblaðið - 02.12.1978, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978
Sigríður Snaevarr
Berglind Ásgeirsdóttir
Fyrstu konurnar
ráðnar beint til
embættisstarfa í
utanríkisþ j ónustu
IIINN 25. september sl. rann ár
umsóknarfrestur um fulitrúa-
stöður í utanrfkisþjónustunni.
Bárust utanríkisráðuneytinu 26
umsóknir.
Hefur Sigríður Ásdís Snævarr
verið ráðin fulltrúi frá og með 13.
október 1978. Sigríður hefur lokið
meistaraprófi frá Fletcher School
of Law and Diplomacy í Banda-
ríkjunum. Hún hefur hafið störf í
INNLENT
almennu deild ráðuneytisins og
mun starfa þar fyrst um sinn.
Sigríður Berglind Ásgeirsdóttir
lögfræðingur hefur verið ráðin
fulltrúi í utanríkisþjónustunni frá
og með 1. janúar 1979. Hún lauk
lagaprófi frá Háskóla Islands á sl.
vori og mun starfa í upplýsinga-
og menntadeild ráðuneytisins.
Þær Sigríður Snævarr og Sigríð-
ur Berglind Ásgeirsdóttir eru
fyrstu konurnar sem ráönar eru
beint til embættisstarfa í utan-
ríkisþjónustunni. Ein kona hefur
um árabil gegnt embættisstörfum,
þ.e. frú Halla Bergs sendiráðu-
nautur, sem starfaði lengi sem
ritari áður en hún tók við skipum
sem fulltrúi. Á sama hátt hafa
Anna Stephenseh og Svanhildur
Olafsdóttir áður gegnt embættis-
störfum í utanríkisþjónustunni.
Sólarferd sýnd
á Reydarfirði
Reyðarfirði, 1. des.
Leikfélag Reyðarfjarðar er nú
tekið til starfa eftir nokkurt hlé.
Á morgun, 2. desember, sýnir
leikfélagið Sólarferð eftir Guð-
mund Steinsson. Leikstjóri er
Ingunn Jensdóttir leikkona úr
Reykjavík.
Með aðalhlutverk fara þau
Ragnar Ingi Aðalsteinsson kenn-
ari og frú Helga Guðmundsdóttir.
Ætlunin er að sýna leikritið
Sólarferð á nærliggjandi fjörðum.
Bátarnir Gunnar og Snæfugl
hafa lokið síldarkvóta sínum,
saltað var hjá GSR í 3280 tunnur.
Von er á útskipun á 160 tunnur
síldar til Póllands verði nú á
næstunni. Snæfugl er farinn á
netaveiðar, en Gunnar er í lagfær-
ingu hér heima.
Fiskvinna hefur legið niðri í
frystihúsi KHB síðan um mánaða-
mótin ágúst-september, en frysti-
húsið er nú tilbúið til móttöku á
fiski um leið og hann berst á land.
Aðeins tvær konur eru á atvinnu-
leysisstyrk hér.
Hér hefur rignt í þrjá sólar-
hringa, hiti hefur farið upp í 10
stig og snjór er iítill. — Gréta.
Lionsmenn
áísafirði
selja
jólapappír
Lionsklúbbur ísafjarðar selur
sælgæti og jólapappír í dag. í
dreifibréfi sem fylgir sælgætispok-
unum segir að klúbburinn hafi varið
2 milljónum króna til líknar- og
menningarmála á síðasta starfsári.
Þar af runnu 700.000 til byggingar
fyrir þroskahefta á Vestfjörðum. Þá
safnaði klúbburinn nú nýlega 1,5
milljón krónum meðal almennings
til sama málefnis. Það starfsár sem
nú fer í hönd, verður að mestu
helgað ári barnsins. Hafa þegar
verið ákveðin framlög til dag-
heimila á ísafirði, Hnífsdal og
Súðavík og á síðasta fundi klúbbs-
ins var samþykkt tillaga formanns
fjáröflunarnefndar Agústs Har-
aldssonar um kaup á fullkomnum
súrefniskassa fyrir nýfædd börn og
gefa Fjórðungssjúkrahúsinu á ísa-
f.irði, en kassinn kostar um ellefu-
hundruðþúsund krónur. Lionsmenn
ganga í hús eftir hádegi á laugar-
dag.
Jólamarkaður Félags
einstæðra foreldra
FÉLAG einstæöra foreldra heldur
sinn árlega jólamarkað í Félags-
heimili Fáks sunnudaginn 3.
desember n.k. kl. 14.00. Þar verður
á boðstólum margt góðra muna
sem félagsfólk hefur sjálft unnið,
mikið úrval af tuskudýrum og
dúkkum, barnafatnaður, sokkar og
vettlingar, heklaðar gólfmottur,
púðar og dúkar, jólatrésfætur og
ýmislegt fleira. Sömuleiðis jóla-
kort félagsins og hinir vel þekktu
íþróttatreflar og húfur. Heitar
vöflur með eftirmiðdagskaffinu
verða seldar á staðnum, verði
verður mjög stillt í hóf og er fólk
hvatt til að koma, gera góð kaup
og styrkja verðugt málefni, en
allur ágóði af sölunni rennur í
húsbyggingasjóð félagsins.
„Fjallafriður“, eitt verka Sigrúnar á sýningunni á Hótel Borg. —
Batikhökklar, en þeir eru meðal hinna kirkjulegu muna sem verða á
sýningu Sigrúnar í Kirkjustræti 10, sem hefst á morgun, sunnudag.
?
Aðventuhátíð í
Bústaðakirkju
BÚSTAÐASÖFNUÐUR hefur Hermannsson kirkjumálaráðherra
allt frá fyrsta sunnudegi í að-
ventu árið 1964 gert þennan dag
að sérstökum hátíðisdegi og
verður svo einnig í ár. Hefst hann
með barnasamkomu kl. 11 f.h. og
kl. 14 er almenn hátíðarmessa
þar sem sr. Pálmi Matthíasson
sóknarprestur í Meistaðarpresta-
kalli predikar, en hann var
fyrrum kirkjuvörður í Bústaða-
kirkju.
Að lokinni messu verður kaffi á
boðstólum og jólamarkaður verður
opinn þar sem lukkupokar og
ýmsir munir vera seldir. Um
kvöldið kl. 8:30 verður hefðbundin
aðventusamkoma. Steingrímur
flytur ræðu, kirkjukórinn, ein-
söngvarar og hljóðfæraleikarar
flytja fjölbreytta tónlist undir
stjórn Guðna Þ. Guðmundssonar
organista kirkjunnar. Sigurður B.
Magnússon, formaður Bræðra-
félags Bústaðasóknar, flytur ávarp
og gestir fá lítil kerti í hendur sem
tendruð verðá frá altariskertunum
í helgistund í umsjá sóknarprests-
ins.
r
Utimarkaðurinn
opinn laugardaga
Utimarkaðurinn á Lækjartorgi
hefur nú verið útbúinn með
geislahitun og raflýsingu. Borgar-
ráð hefur gefið heimild til að
markaðurinn verði opinn á laugar-
dögum til jóla auk föstudaga og
vikuna fyrir jól verði hann opinn á
hverjum degi.
Batiksýning
á Hótel Borg
SYNING á batik-verkum eftir
Sigrúnu Jónsdóttur verður opnuð
í dag, laugardag 2. desember, í
Gyllta sal Ilótel Borgar og mun
sýningin standa fram í byrjun
janúar.
Batik-verk er unnið á sérstakt
hvítt lakkefni með Kyp-litum
svokölluðum, en þeir eru kornóttir
og eru muldir fyrst. Þá er vax
borið beggja vegna myndflatarins
utan þess kafla, sem lita skal, en
verkið er síðan sett í sérstakt
litabað. Þannig er haldið áfram
jafnoft og litirnir í verkinu eru
margir og vaxborið á milli.
Sigrún Jónsdóttir hefur stundað
batiklist í 30 ár. Lærði hún
textilgerð í Svíþjóð í fjögur ár, fór
síðar í námsferð til Italíu og tók
eftir það einnig til við hönnun á
kirkjulegum munum, svo sem
steindum gluggum. Sigrún hefur
haldið fjölda sýninga á verkum
sínum bæði hérlendis og erlendis,
svo sem í Svíþjóð og Frakklandi,
en hún er þar félagi í ýmsum
myndlistarhópum, sem sýna víðs
vegar f Evrópu. Einnig hefur hún
sýnt í Bandaríkjunum hjá Samein-
uðu þjóðunum á vegum UNESCO,
en í eigu íslensku sendinefndar-
innar þar er eitt verka hennar,
sem hún hlaut verðlaun fyrir á
sínum tíma. Hún hefur hlotið
ágæta dóma fyrir verk sín og
hannað verk fyrir ýmsar stofnanir
sér í lagi í Svíþjóð.
Auk sýningarinnar á Hótel Borg
heldur Sigrún einnig sýningu hér
árlega á kirkjulegum munum í
byrjun nýs kirkjuárs, og nú í ár
hefst sú sýning á morgun, sunnu-
dag, í Kirkjustræti 10. Meðal
hinna kirkjulegumuna, sem þar
eru til sýnis, eru batikhöklar,
handofnir og útsaumaðir hökklar
og steindir gluggar.
Sýningin er opin frá 9—6 og
stendur til loka desembermán-
aðar.
..
Nýr dóm-
organisti
MARTEINN Hunger Friðriksson
tekur við dómorganistastarfinu
um þessi mánaðamót. Hann leikur
í fyrsta sinn sem slíkur við
hjónavígslur í Dómkirkjunni í dag
og síðan við athafnir sunnudags-
ins, messuna kl. 11 f.h. og á
aðventukvöldinu kl. 8.30.
Þá kemur einnig fram nýstofn-
aður dómkór, sem syngur í fyrsta
SÍnn á Sunnudag. (Frá Dúmkirkjunnl).
Síðasti sýning-
ardagur
Myndhópsins
á sunnudag n.k.
MYNDHÓPURINN hefur
undanfarið haldið sam-
sýningu í Iðnskólanum á
Akureyri og eru síðustu
sýningardagarnir um
þessa helgi. Lýkur sýn-
ingunni kl. 22 á sunnu-
dagskvöld. Þessa tvo síð-
ustu daga verða teiknar-
ar á sýningunni og munu
teikna andlitsmyndir af
þeim sýningargestum
sem þess óska, en kl. 15 á
sunnudag eða strax og
sýningin opnar munu
akureyskir tónlistar-
menn vera þar fyrir og
fremja uppákomu.