Morgunblaðið - 02.12.1978, Page 35

Morgunblaðið - 02.12.1978, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 35 Skemmtileg saga: Dúkkan mín Eftir Kristjönu Aðalsteinsdóttur 8 ára Við rákumst á þessa skemmtilegu sögu í skóla- blaði frá 1964. Nokkrum dögum áður en ég varð fimm ára, fór ég til Reykjavíkur með ömmu. Við skoðuðum í marga búðarglugga. Svo komum við að einum, þar sem voru eintómar dúkkur. Amma lyfti mér upp og spurði: „Hvaða dúkka finnst þér fallegust?" Eg hélt, að amma ætlaði að gefa mér dúkku í afmælisgjöf og ætlaði að fara að benda á fallegustu og stærstu dúkk- una. En þá bætti amma við: „Eg ætla nefnilega að gefa henni Huldu, frænku þinni hana.“ Aldrei hef ég orðið eins afbrýðisöm á ævi minni. Ég hætti við að benda á fallegu dúkkuna, en benti í þess stað á litla og ljóta tuskudúkku, og sagði, að mér þætti hún fallegust. Mér fannst hún rétt mátuleg handa Huldu. Amma spurði, hvort ég væri alveg viss. Ég kinkaði kolli. Amma fór þá inn í búðina og keypti dúkkuna, sem ég hafði bent á. En því gleymi ég seint, þegar ég á afmælisdaginn minn, sat og hélt á ljótustu dúkku, sem ég hef á ævi minni séð! Auðvitað hafði amma gefið mér dúkkuna, en ekki Huldu. Þá sá ég eftir að hafa ekki valið stóru og fallegu dúkk- una. Erlendur Guðmundsson, 9 ára, Látraströnd, Seltjarnar- nesi. Aðventa Mörg ykkar taka eftir því, að nú er talað um aðventu. Og 3. desember er fyrsti sunnudagur í aðventu. En aðventa kallast síðustu fjórar vikurnar fyrir jól. En sjálft orðið — aðventa — þýðir koma. Hún á að minna okkur á komu Jesú Krists, fæðingu frelsarans. En einmitt á þessum tíma, eigum við að leiða hugann frá amstri og erfiðleikum hversdagslífsins, og hugsa um aðal tilgang jólanna. Sjálft jólabarnið má ekki gleymast í ysi og þysi og undirbúningi hátíðarinnar. Við óskum þess einskis fremur en að jólin mættu koma með friði og hamingju inn á heimili ykkar allra. Fyrirheiti á aðventu í spádómsbók Jesaja stendur þetta mikla fyrirheiti: BARN ER OSS FÆTT Þetta sá spámaður Guðs mörg hundruð árum fyrir fæðingu Krists. Engillinn kunngjörði hirðunum það á jólanóttina og sagði þeim, að frelsari væri fæddur. Barnið Kristur er frelsarinn Jesús. Þetta barn er fæ'tt fyrir mig og þig. Trúir þú þessu, þá er líka barnið fætt í hjarta þínu. SONUR ER OSS GEFINN Guð gaf sinn eingetinn son til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Guðs-sonurinn varð mannssonurinn. Gefinn mér og þér — Jólagjöf. Trúir þú á hann? Á HANS HERÐUM SKAL HÖFÐINGJADÓMURINN HVÍLA Jesús sagði: Allt vald er mér gefið á himni og jörðu — Hefur þú gefið honum vald yfir þér? Nafn hans skal kallast UNDR ARÁÐG J AFI Hann er undur, því að allir leyndardómar Guðs eru í honum, og hann hefur gefið oss þau einustu RAÐ, sem leiða oss til sáluhjálpar, ef vér hlýður ráðum hans. Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld. (Matt. 11,28). málið. Þið skuluð hoppa upp á hakið á mér. og þá fáum við hráðlega úr þessu skorið. Þær voru ekki lengi á leiðinni inn í skógarþykknið. „Stansaðu." kallaði Magnús. „Þarna er tröllið. Sjáðu bara!" I sama bili kvað við hár og lciðinlegur skrækur. Dádýrið leit í allar áttir, en gat ekki séð neitt nema tvö kræklótt eikartré. Þá fór dádýrið að hlæja og sagði: „Þið a>tlið víst ekki að telja mér trú um. að þetta gamla eikartré sé tröll! Ja'ja. ugla frænka. Láttu okkur sjá þig." I sömu mund koma fram ugla, sem- var að springa úr hlátri. „Skammastu þín ekki. ugla. að hræða þessa tvo vini mína svona?" sagði dádýrið. Þarna var sem sagt tröllið komið. Iléra- ungarnir ráku upp skellihlátur. Þeir trúðu því varla, að tröllið væri bara ugla. En uglan og dádýrið veltust líka um af hlátri. Eikartréð hló víst líka, en það sá cnginn. Bazar í Félagsheimili Fáks sunnudag 3. desember kl. 2. Nytsamar og ódýrar jólagjafir. Félag einstæðra foreldra. Einstaklingsrúm 5 tegundir. Glæsilegt úrval húsgagna. Opiö til kl. 6. ______'m' i Hjónarúm 15 teg,undir. Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1 A. Sími 86112.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.