Morgunblaðið - 02.12.1978, Síða 47

Morgunblaðið - 02.12.1978, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978 47 • ólafur Jónsson og félagi hans Axel Axelsson léku ekki með íslenska liðinu í gærkvöldi á móti Frökk- um. Hér sést ólafur skora í landsleik. Þeir félagar höfðu átt góða leiki með íslenska liðinu í þeim þrem leikjum sem þeir gátu tekið þátt í. ísland tanðl fvrir FnhUamf 18-15 ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik lék í gærkvöldi við Frakkland A og tapaði með 18 mörkum gegn 15. Ekki tókst að ná sambandi við neinn úr íslenska liðinu áður en blaðið íór í prentun og því ekki hægt að greina írá gangi leiksins. Önnur úrslit í gærkvöldi urðu þessi: Pólverjar sigruðu Frakkland B með 35 mörkum gegn 25 og Kínverjar sigruðu Túnis með 39 mörkum gegn 23. I dag leika Islendingar við Kínverja, og er það síðasti leikur liðsins í þessu handknattleiksmóti. Liðið kemur svo heim á mánudag. þg Naumur sigur ÞAÐ VAR ekki sami glansinn yíir frammistöðu íslenska lands- liðsins í handknattleik, er liðið lék gegn Frakklandi-B og þegar liðið tapaði með aðeins einu marki fyrir Póllandi. Islenskur sigur var að vísu raunin, en aðeins eitt mark skildi á milli er upp var staðið, lokatölur 22—21, en staðan í hálfleik var 13—11 fyrir Island. Leikurinn var allan tímann í járnum og ekki er ósennilegt, að þreytan sé farin að setja mark sitt á landsliðs- mennina, en mest hefur mætt á fáum leikmönnum. Þetta var síðasti leikur þeirra félaga Ólafs H. Jónssonar og Axels Axelssonar í ferðinni, en þeir hafa staðið sig manna best í leikjum liðsins til þessa. Axel hefur skorað hvorki meira né minna en 27 mörk í ieikjunum þremur, en hann skor- aði 10 mörk að þessu sinni. Jens Einarsson, Stefán Gunn- arsson, Þorbjörn Guðmundsson, Hannes Leifsson og Viggó Sigurðs- son hvíldu að þessu sinni, en Viggó átti að leika sinn fyrsta leik í keppninni í gærkvöldi. Mök íslands skoruðu: Axel 10 (5 víti), Ólafur H. Jónsson 3, Ólafur Vík. Jónsson 3, Hörður Harðarson 2, Sigurður Gunnarsson 2, Páll Björgvinsson og Þorbjörn Jensson eitt hvor. Frá Handknattleiks- sambandi íslands Ársþing sambandsins veröur haldið í Reykjavík dagana 12. og 13. janúar 1979. Nánar auglýst síöar. H.S.Í. Vetur víðar en á Fróni VETUR konungur herjar á Breta eins og er og það hefur orðið til þess, að íþróttalíf þeirra lamast. Hrossaveðreiðarnar, krikkettinn Ferguson rekinn FYRRUM kunningi íslendinga, einkum Skagamanna, Mick Ferguson, sem þjálfaði ÍA fyrir nokkrum árum, hefur nú verið rekinn frá smáliðinu Rochdale, sem leikur í 4. deild. Stjórn féiagsins mun ekki hafa líkað sérlega vel, þegar liðið tapaði í FA-bikarnum fyrir Droylsden, utandeildarliði fyrir skömmu. Rochdale er næst neðst í 4. deild, aðcins gæðingarnir hans Gorge Kirby eru neðar, Halifax! og rögbíið frestast allt saman. En það sem okkur hér norður frá varðar mest um í þessu sambandi, er knattspyrnan. Snemma í dag neyðast umsjón- armenn flestra valla á Bretlands- eyjum til þess að grandskoða völlinn og kanna hvort hægt sé að leika á honum knattspyrnu eður ei. I gær hafði nokkrum leikjum þegar verið frestað og fleiri eru líklegir til að slást í hópinn. Ljóst er að eftirfarandi leikir verða að bíða betri tíma: 1. deildi Middlesbrough—Tottenham Man. Utd—Norwich 2. deildt Burnley —Luton Preston—Charlton Auk þess nokkrir leikir bæði í 3. og 4. deild. Einnig hafa Skotar orðið fyrir barðinu á veðurfjand- anum og einum leik í úrvalsdeild- inni hefur þegar verið frestað, leik Partick og Aberdeen. „Ætlum að ÞRÓTTARAR eiga harma að hefna, er þeir mæta ÍS í blakinu á sunnudagskvöldið. Þetta er önnur viðureign iiðanna á vetrin- um, en þá fyrstu unnu stúdentar með 3 hrinum gegn tvcimur. Mbl. sló á þráðinn til Gunnars Árna- sonar, fyrirliða Þróttar, og spurði hann hvort Þróttarar hygðu ekki á hefndir. — Jú, að sjálfsögðu, voru fyrstu viðbrögð Gunnars. — Síðustu 2 árin hefur ÍS aldrei unnið okkur tvívegis í röð og þar sem liðin eru mjög áþekk að getu, tel ég af og frá að við töpum að þessu sinni. Ræður það að þínu mati úrslit- um í mótinu, ef þið tapið leiknum, Gunnar? — Nei, það ræður ekki úrslitum. Við ættum þá auðvitað mjög erfitt uppdráttar, en við erum fullfærir hefna4 að vinna hina tvo leikina. Þá má heldur ekki gleyma því, að þó að Þróttur og IS virðist vera með sterkustu liðin, er til í dæminu, að önnur lið gætu klekkt á þeim ef sigurvissan væri of mikil. — Ég tel að Þróttur hafi jafnari einstaklingum á að skipa en ÍS. Við höfðum unnið þá í síðustu leikjunum áður en leikið var í Eyjum og því var mikil pressa á okkur, auk þess sem sigurvissan hefur örugglega verið of mikil. Við klúðruðum 19 uppgjöfum í leikn- um. Þrátt fyrir það og tauga- spennuna, töpuðum við aðeins 3—2 og við skoruðum fleiri stig í hrinunum fimm en stúdentar. — Það er að duga eða drepast í Hagaskólanum, við verðum að halda mótinu opnu og þá dugir ekkert minna en sigur í leiknum. — gg- til kl. 6. Vörumarkaðurinn h

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.