Morgunblaðið - 02.12.1978, Síða 48
Verzliö
í sérverzlun með
litasjónvörp og hljómtæki.
Skipholti 19
BUOIN sími
- v 29800
Banaslys á
Egflsstöðum
BANASLYS varð skammt frá Egilsstöðum skömmu eftir
hádegi í gær er tvær bifreiðar lentu í árekstri. Kona sem
ók öðrum bílnum mun hafa látizt samstundis. Hún var
frá Egilsstöðum, 5 barna móðir, en nafn hennar er ekki
hægt að birta að svo stöddu.
Tildrög slyssins voru þau
að við afleggjarann að
flugvellinum á Egilsstöðum,
milli Egilsstaða og Lagar-
fljótsbrúar, lentu vörubif-
reið og Citroen-fólksbifreið
í árekstri. Svo virðist, sem
ökumaður vörubifreiðarinn-
ar hafi ætlað að fara fram
úr bifreið, en Citroenbif-
reiðin kom þá á móti. Mikil
hálka var á veginum, sem
Innbrot í
Bolungarvík
AÐFARARNÓTT föstu-
dagsins var framið innbrot í
Bolungarvík og var farið inn
í húsnæði heilsugæzlu-
stöðvarinnar þar. Hall-
varður Einvarðsson
rannsóknarlögreglustjóri
sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að sendir
hefðu verið tveir
rannsóknarlögreglumenn
vestur í gær að beiðni
bæjarfógetans í Bolungar-
vík og ynnu þeir nú að
rannsókn málsins í sam-
vinnu við hann. Hallvarður
kvaðst ekki vita nánari
málsatvik og ekki tókst Mbl.
að afla frekari frétta af
innbrotinu, en að rannsókn
þess var unnið í gærkvöldi.
var olíumalarborinn í sum-
ar og virðist vörubifreiðin
hafa runnið til í hálkunni er
bílstjórinn hemlaði. Lenti
vörubifreiðin inn í vinstri
hlið fólksbílsins.
Tvennt var í fólksbílnum.
Konan, sem ók, mun hafa
látizt samstundis, en maður
hennar slapp með skrámur
og að lokinni athugun á
sjúkrahúsi fékk hann að
fara heim til sín. Fólksbif-
reiðin, sem er frá Egilsstöð-
um, er talin gjörónýt.
Ljósm. Emilía.
Börnin sem dvelja daglangt á leikskólum borgarinnar takast stundum ferð á hendur til að skoða
bæjarlífið og hér eru nokkur úr þeirra hópi á Lækjartorgi og hafa lokið könnun á útimarkaðinum og
að sjáifssögðu er bandið ómissandi.
Samdráttur hjá verktakafyrirtækjum:
Verður 400 - 600 starfemönn-
um sagt upp fyrir áramót?
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ ístak sagði upp í fyrradag
45 starfsmönnum sínum, en fyrirtækið hefur undanfarið
séð um vinnu við Grundartanga að því er Ármann Örn
Ármannsson, formaður Verktakasambands íslands, tjáði
Mbl. í gær og sagði hann að fyrir dyrum væru uppsagnir
milli 400 og 600 starfsmanna verktakafyrirtækja innan
sambandsins í þessum mánuði.
— Það þykir engum gaman að
segja upp starfsfólki, sagði
Armann, en Istak varð að segja
upp 45 starfsmönnum sínum við
Fjórir Islendingar
dæmdir í Svíþjóð
DÓMSTÓLL í Svíþjóð hefur
nýlega dæmt fjóra íslendinga,
sem urðu uppvísir að fíkniefna-
smygli frá Danmörku tii Svíþjóð-
ar. Er hér um að ræða þrjá pilta
og eina stúlku.
Tvennt af þessum hópi hafði
reynt að smygla inn hálfu kílói af
hassi og fékk það 3 mánaða
fangelsi en tveir piltar reyndu að
smygla inn tæpum 200 grömmum
og voru þeir dæmdir í 45 daga
fangelsi.
Grundartanga í vikunni-. Islenzkir
aðalverktakar hafa sagt upp 30
smiðum og framkvæmdum við
Hrauneyjarfossvirkjun lýkur eftir
nokkra daga þannig að margir
missa vinnu þar. Samkvæmt könn-
un er fram fór á vegum Verktaka-
sambandsins fyrir stuttu er líklegt
að samtals verði fyrirtæki innan
þess að segja upp milli 400 og 600
starfsmönnum sínum. Þessi fyrir-
tæki og þá kannski sérstaklega
jarðvinnslufyrírtækin verða yfir-
leitt að segja upp einhverju
starfsfólki á hverju ári og eru
jafnan reiðubúin árstíðabundnum
sveiflum, en segja má að sveiflan í
ár sé stærri og verði sennilega
lengri en oft áður. Erfiðleikarnir
eru fólgnir í því að fyrirtækin fá
ekki verkefni og þegar t.d. hið
opinbera ákveður að draga úr
sínum verklegu framkvæmdum þá
hefur það vissulega sín áhrif. Það
er því engu líkara en þessi
fyrirtæki skuli vera til taks þegar
menn þurfa á þeim að halda, en
síðan verði þau að láta reka á
reiðanum þess á milli. Þessir
aðilar hafa byggt upp fyrirtækin
með miklum tilkostnaði á löngum
tíma og þegar afturkippur verður
getur það orðið til þess að þau
leggist niður og fari ekki í gang að
nýju.
— Við höfum bent ráðamönnum
á þetta, sagði Armann, og við
áttum t.d. fyrir stuttu fund með
samgönguráðherra, Ragnari Arn-
alds, þar sem m.a. var rætt um að
vegaframkvæmdir yrðu boðnar út
og lýsti hann sig mjög hlynntan
þeim hugmyndum og líka hvað
varðaði hafnarframkvæmdir.
Kaupmenn nyrðra
draga úr þjónustu
VERZLANIR á Akureyri verða
almennt ekki opnar í dag svo sem
venjan hefur oftast verið fyrsta
laugardag í desembermánuði. Að
því er Björn Baldursson
verzlunarfulltrúi hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga tjáði Mbl. hafa KEA,
Kaupfélag verkamanna og Kaup-
mannafélag Akureyrar ákveðið
Nær
riðin
100 ungmenni við-
víðtækt fíkniefnamál
Söluverðmætið tugir milljóna -Heróínmeðhöndlun sönnuð
UNDANFARNA mánuði hefur
fikniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík unnið að rannsókn á
umfangsmiklu fíkniefnamáli
eins og fram hefur komið í
fréttum Mbl.
Guðmundur Gígja, lögreglu-
fulltrúi, veitti Mbl. þær upplýs-
ingar í gær, að mál þetta fjallaði
að mestu um fíkniefnasmygl frá
Hollandi og dreifingu þessara
efna. Um var að ræða kannabis-
efni (hass og marihuana),
amfetamín, kókaín, LSD og
heróin. Langmest var af kanna-
bisefnunum, eöa yfir 20 kg., og
hefur mestum hluta þeirra verið
dreift í Danmörku og Svíþjóð,
en í minna mæli á Islandi.
Fíkniefnadeildin hefur í máli
þessu lagt hald á um 1.5 kg af
kannabis og smávegis af LSD og
kokaíni. Rannsókn málsins er
langt komin og voru nokkrir
aðilar úrskruðaðir í gæzluvarð-
hald, en alls hafa komið við sögu
rannsóknarinnar um 100 manns,
mest allt Islendingar og nær
eingöngu ungt fólk.
Þetta er eitt
fíkniefnamál,
sem
umfangsmesta
Islendingar
hafa verið viðriðnir, en sölu-
verðmæti fíkniefnanna skiptir
tugum milljóna króna. Þá mark-
ar rannsókn þessa máls nokkur
tímamót, því nú er í fyrsta
skipti sönnuð meðhöndlun ís-
lendinga á hinu stórhættulega
fíkniefni heróíni, sem segja má
að flætt hafi yfir Norðurlönd sl.
2—3 ár og valdið dauða mörg
hundruð ungmenna.
að hafa samráð um breyttan
verzlunartíma í desembcr.
Björn sagði að ákveðið hefði verið
að hafa alveg lokað í dag, en
venjan hefði verið að hafa opið til
12 eða jafnvel 16 þennan fyrsta
laugardag. Þó verða þrjár kjör-
búðir opnar, en þær hafa verið
opnar á laugardögum í sumar og
verður ekki breyting á opnunar-
tíma þeirra. Björn sagði að næsta
laugardag, 9. desember, yrði opið
til kl. 16 í stað 18 eins og oftast
áður. Því miður eru tímarnir
þannig, sagði Björn, að menn
barma sér undan afkomu
verzlunarinnar um þessar mundir
og það hlýtur að koma fram í
skertri þjónustu við neytendur,
sem vissulega er ekki æskileg
þróun, en við sjáum bar ekki aðra
leið út úr þessum erfiðleikum.
Þá sagði Björn að kannað hefði
verið að hve miklu leyti menn
notfærðu sér tímann milli kl. 18
og 19 á föstudögum, en verzlanir á
Akureyri hafa jafnan haft opið til
kl. 19 á föstudögum. Sagði hann að
svo virtist sem innan við 10%
verzlunar færi fram á þeim tíma
þannig að verzlunarmenn hug-
leiddu að fella hann niður, að sá
opnunartími væri vart réttlætan-
legur.