Morgunblaðið - 05.01.1979, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1979
17
Hvað segja þeir um nýja fiskverðið?
Guðjón Jónsson form.
Sjómannafélags Eyjafjarðari
Menn sætta sig
við fiskverðið
en fleira þarf
að koma til
„Ég verð að segja það að þetta hafi
sennilegast verið það sem hæst varð
komizt með fiskverðið, en hitt er svo
aftur annað mál, hvort menn eru fyllilega
ánægðir, þótt þeir sætti sig við þessa
niðurstöðu," sagði Guðjón Jónsson for-
maður Sjómannafélags Eyjafjarðar er
Mbl. leitaði álits hans á fiskverðinu.
„Ég legg mikið upp úr því að eitthvað
komi í sambandi við þær kröfur sem við
lögðum fyrir ríkisstjórnina, “ sagði
Guðjón. Mbl. spurði hvort þar væri eitt
mál öðru fremur, sem hann vildi fá lausn
á. „Þetta eru allt mikilsverð mál fyrir
sjómennina," sagði Guðjón. „Það hefur
mikið verið talað um skattamálin og það
er stórt atriði fyrir eyfirzka sjómenn sem
aðra að fá lagfæringar á þeim.“
Sigfinnur Karlsson form.
Verkalýðsfélags Norðfirðingai
Sjómenn á Nes-
kaupstað gáfu
verkfallsheimild
„Við vorum með fund á gamlársdag og
þá var slegið á að fiskverðshækkunin yrði
10—11%. Menn samþykktu að fara á
sjóinn með það, en gáfu stjórn og
trúnaðarmannaráði verkfallsheimild,
sem er til taks, ef ekki kemur viðunandi
lausn í félagsmálunum og þá einkum
skattamálunum. Og svo er loðnuverðið
ókomið,“ sagði Sigfinnur Karlsson for-
maður Verkalýðsfélags Norðfirðinga er
Mbl. spurði hann um álit austfirzkra
sjómanna á fiskverðinu.
„Ég er út af fyrir sig ekkert ánægður
með þessa fiskverðshækkun," sagði
Sigfinnur. „En heldur ekki beint óánægð-
ur með tilliti til þeirra vona sem sjómenn
binda við félagsmálapakkann sem er hjá
ríkisstjórninni. Þar binda menn helzt
vonir við skattafríðindi og svo orlofsmál-
in. Verði þau mál leyst á viðunandi hátt
geta sjómenn unað heildarlausn málsins.
Varðandi loðnuverðið er það að segjar'
að enn eru nokkrir dagar til stefnu. En
auðvitað verður verðið að koma.“
Bjarni L. Björnsson varaform.
Sjómannafélags ísfirðinga<
Sjómenn sætta sig
við fiskverðið
í von um fleiri
aðgerðir
„Það sem ég hef heyrt bendir ti! að
menn sætti sig nokkuð vel við fiskverðs-
hækkunina en það er ljóst að vonin um
einhverjar félagslegar aðgerðir og þá
helzt i skattamálunum hjálpar mönnum
til þess,“ sagði Bjarni L. Björnsson
varaformaður Sjómannafélags Isfirðinga,
er Mbl. spurði hann álits á fiskverðinu.
Bjarni sagði að landróðrabátar hefðu
farið einn róður og togarar væru komnir
á sjó.
„Það var nú búið að hræða sjómennina
svo illa með því að láta leka út að
fiskverðshækkunin yrði ekki nema 8,5% ,
sagði Bjarni. „Þetta voru klækjabrögð,
því þegar hækkunin reyndist 11%. gekk
sjómönnum betur að kyngja hækkuninni,
þótt léleg væri, og um leið ýtti þetta undir
vonir manna um að staðið yrði við
fyrirheit um að félagslegar aðgerðir, sem
mér skilst að búið sé að gefa undir fótinn
með að sjái dagsins ljós.“
Bárður Jensson formaður
Jökuls í Ólafsvfki
Vonin um hliöar-
ráöstafanir heldur
mönnum á sjó
„Við héldum nú fund og stöðvuðum
fyíir jólin, en menn eru aftur farnir á sjó
núna, þótt ekki séu þeir ánægðir með
fiskverðshækkunina. Hins vegar binda
menn miklar vonir við hliðarráðstafanir,
eins og til dæmis skattfríðindi og frítt
fæði og það er þessi von sem heldur-þeim
á sjónum þessa dagana," sagði Bárður
Jensson formaður verkalýðsfélagsins
Jökuls í Ólafsvík, er Mbl. leitaði álits
Snaefellinga á fiskverðinu.
„Ég held að sjómenn verði fyrir
ákaflega miklum vonbrigðum ef ekkert
verður gert fiskverðshækkuninni til
viðbótar," sagði Bárður. „Fari svo hljóta
þeir að endurskoða afstöðu sína, þótt ég
geti nú ekki orða bundist og harma það,
hvað það hefur verið lítil samstaða meðal
sjómanna, bæði hér á Snæfellsnesinu og
hringinn í kringum allt landið."
i að pakka
Igendurna ”
Fiskurinn, sem Rán var
með, var mjög góður, 56.2
tonn voru ýsa, 13.7 tonn af
flatfiski og 12.7 tonn af
þorski. Sagði Ásgeir að þeir
hefðu farið á veiðar nokkru
fyrir jól, síðan legið í höfn frá
því um hádegi á aðfangadag
fram á kvöld annars í jólum.
Þá farið út og verið að
Rán GK 42, sem áður hét Boston Wellvale.
veiðum fram undir áramótin.
— Þegar það var ákveðið
að við sigldum til Englands,
segir Ásgeir einsetti ég mér
að fá sem mest af fiski sem
hentaði bezt fyrir enska
markaðinn, sem þýðir að
reyna að fá sem minnst af
ufsa og karfa og það tókst,
segir hann.
Ef nefna á einhver dæmi
um það verð, sem Rán fékk
fyrir fiskinn, má nefna að
hæst verð fyrir þorsk var 992
krónur á kíló. Fyrir kíló af
stórlúðu fengust alls að 1792
krónur. Fyrir kíló af ufsa 391
króna og fyrir kíló af karfa
376 krónur.
Það var viðbúið að Rán
gerði metsölu hér í dag
sökum þess að sama og
enginn fiskur hefur verið á
markaðnum síðan fyrir jól.
Vonzkuveður hefur verið í
Norðursjó frá því um áramót,
þannig að bátar héðan hafa
ekki komist á sjó. Ekki er
væntanlegur neinn fiskur á
markaðinn hér í næstu viku
nema frá íslenzkum skipum
og má því frekar reikna með
að þau fái gott verð. Það sem
hér setur helzt strik í
reikninginn er að vörubif-
reiðarstjórar hér um slóðir
hafa boðað verkfall í næstu
viku — en öllum fiski er
dreift með vörubifreiðum —
og getur það haft sínar
afleiðingar. Fiskkaupmenn
hér í Grimsby, sem eru yfir
240 að tölu, geta þó afgreitt
eitt skip á dag, þar sem þeir
geta notað eigin bifreiðar til
að dreifa fiskinum. í Hull er
slíkt verkfall þegar skollið á
en þar eiga kaupmenn ekki
eins auðvelt um vik þar sem
þeir eru aðeins 60—70. Ekki
er vitað nákvæmlega hvernig
verður með Fleetwood, en
talið er að vörubifreiðastjór-
ar þar hefjist ekki handa
fyrst um sinn.
Hæsta meðalverð sem áður
hafði fengist fékk Krossvík
AK, sem seldi 13. desember
síðastliðinn í Grimsby og
meðalverðið var 517 krónur.
Rán er annar tveggja síðu-
togaranna, sem enn eru gerð-
ir út á íslandi og hét áður
Boston Wellvale.