Morgunblaðið - 05.01.1979, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1979
Jón L.
efstur
í Prag
JÓN L. Árna.son er nú í efsta sœti
á alþjóðletja skákmótinu í Pra«.
Jón vann í gær skák sína gegn
Bravoda frá Tékkóslóvakíu og er
með C'/i vinninK. en næstu menn
cru með 6 vinninga. brjár um-
ferðir eru eftir ok saifði Jón í gær
að hann aetti frekar erfiða
andstæðinga eftir.
Fram hefur komið í fréttum, að
Jón þyrfti 8 vinninga til að ná
alþjóðlegum meistaratitli. Jón
sagði í gær að samkvæmt því sem
hann hefði nýjast frétt dygði það
ekki til titilsins. Hann þyrfti að
tefla minnst 24 skákir á mótum,
sem gæfi réttindi. Hann hefði teflt
11 skákir á móti í Bandaríkjunum
síðastliðið sumar og á þessu móti
tefldi hann 12 skákir. Þó hann
næði árangri til alþjóðlegs titils á
þessum mótum dygði það ekki því
eina skák vantaði í viðbót á
réttindamóti.
þessarar ferðar með sigri á
unglingameistaramótinu. Hann
sagði ennfremur, að þó árangur-
inn hefði e.t.v. ekki verið sem allra
beztur þá hefði hann haft bæði
gagn og gaman af þátttöku í
mótinu.
Tvö tonn
úr trossu
Swluíirói 4. janúar.
Áramótin voru góð í flesta staði
hér í Siglufirði og hátíðablær yfir
bænum. Bátarnir lögðu flestir net
sín í morgun, en einn þeirra lagði
þó í gær. Hann vitjaði um í
morgun og fékk þá m.a. 2 tonn af
góðum fiski úr einni trossu. Eftir
því sem ég hef fregnað að
undanförnu hefur afli togaranna
verið heldur tregur, nema af kola,
en þar hefur fiskast vel. Ég frétti
t.d. af einum togaranna, sem fékk
20tonníhali. _mj
Rannsókn
miðar vel
RANNSÓKN svokallaðs Fríhafn-
armáls miðar vel áfram. að stign
ólafs Hannessonar fulltrúa lög-
reglustjórans á Keflavíkurflug-
velli, sem hefur rannsóknina með
höndum.
Rannsóknin beinist að því að
ganga úr skugga um, að sögn
Ólafs, hvort eitthvað sé hæft í
fregnum um að ákveðnar vínteg-
undir hafi verið seldar hærra
verði en sagði í gjaldskrá Fríhafn-
arinnar til þess að hylma yfir
óeðlilega rýrnun í fyrirtækinu.
Allmargir starfsmenn Fríhafnar-
innar hafa verið yfirheyrðir vegna
rannsóknar málsins.
Svíar í sex
efstu sætin
RÓBERT Harðarson, nýhakaður
unglingameistari í skák, fékk 3Vt
vinning á fjölmennu unglinga-
móti í skák. sem haldið var f
Hallsherg í Svíþjóð. Keppendur
voru alls 38 og varð Róbert í
25.-29. sæti. Sænskir piltar
röðuðu sér í 6 efstu sætin og
sigurvegari varð Marklund með 7
vinninga. Þátttakendur voru frá
flestum löndum Evrópu og ísrael.
Róbert sagði í spjalli við Mbl. í
gærkvöldi að hann hefði unnið til
4 umsóknir
um 2 prófess-
orsembætti
RUNNINN er út umsóknarfrest-
ur um tvær prófessorsstöður í
lagadeild. aðalkennsiugreinar
réttarfar og rfkisréttur. Stöðum
þessum gegndu ólafur Jóhannes-
son forsætisráðherra og dr.
Gunnar Thoroddsen alþm. en
þeir sögðu þeim iausum á s.l. ári.
Umsækjendur eru fjórir: Dr.
Gunnar G. Schram, settur próf-
essor, Björn Guðmundsson, settur
prófessor, Stefán Már Stefánsson,
settur prófessor, og dr. Páll
Sigurðsson, dósent við lagadeild-
ina.
Mikiðtjón
í eldsvoða
á Akranesi
Akranesi 4. janúar
SLÖKKVIÐLIÐ Akraness var
kvatt út síðastliðna nótt
klukkan 1.30 að Þjóðhraut 3.
en þá var húsið þar. sem er
Rörasteypa Akraness. alelda.
Það tók slökkviliðið tvær
klukkustundir að kæfa eldinn,
en þá var allt brunnið, sem
brunnið gat. l»ar með talið ein
bifreið og dráttarvél.
Við Rörasteypuna var við-
bygging, þar sem var birgða-
geymsla Vatnsveitu Akraness,
sem brann ásamt öllu innan-
stokks til kaldra kola.
Eldsupptök eru enn ókunn.
Húsin voru byggð árið 1900 og
voru tryggð fyrir 30 milljónir
króna. Búast má við að tjónið sé
þó enn meira en þeirri upphæð
nemur. - j6|(ns_
*■**»¥!“»-■ • *
v»
50 ár frá því að Neskaupstaður fékk
kaupstaðarréttindi:
Öllum íbúum bæjarins
boðið á bæ jarst jórn-
arf und á sunnudaginn
NORÐFIRÐINGAR minnast
þess í ár að 50 ár eru nú liðin
síðan Neskaupstaður fékk
kaupstaðarréttindi. Það var
hinn 1. janúar 1929 sem Nes-
hreppur í Norðfirði fékk kaup-
staðarréttindin og strax dag-
inn eftir fóru fram kosningar
til ba'jarstjórnarinnar. Nýkjör-
in bæjarstjórn hélt síðan sinn
fyrsta fund 7. janúar 1929.
Hátíðahöld afmælisársins
hefjast með hátíðafundi bæjar-
stjórnar í Egilsbúð klukkan 14 á
sunnudaginn 7. janúar og eru
allir Norðfirðingar hvattir tii að
mæta á fundinn. Bæjarstjórnar-
fundurinn stendur í tæpa
klukkustund og standa allir
bæjarfulltrúar sameiginlega að
tillögum þeim, sem fluttar
verða, en forsetar bæjarstjórnar
fylgja þeim úr hlaði. Það ætti að
auka á hátíðablæ fundarins að
hið gamla fundarborð hefur nú
verið gert upp og verður tekið í
notkun á nýjan leik á fundinum.
Að fundi bæjarstjórnar lokn-
um er öllum Norðfirðingum úr
sveit og bæ boðið til kaffisam-
sætis og verður opið hús í
Egilsbúð frá klukkan 15—19.
Auk þessa verður afmælisins
minnst á margvíslegan annan
hátt á árinu.
75% fyrirf ramgreidsla
ekki í alla staði vond
— segir Guðmundur J. Guðmundsson
„Ég get nú ekki beint svarað
fyrir mín samtök. en ég held ekki
að það sé í alla staði vont að
fyrirframgreiðsla skatta ha’kki í
75%,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Verkamanna-
samhands íslands, í samtali við
Morgunblaðið. Fjármálaráðuneyt-
ið hefur sem kunnugt er ákveðið
Guðmundur H. Garðarsson um 75% fyrirframgreiðslu:
, ,I>ad er ver ið að r áð-
ast á dugmikið fólk”
„MEÐ 75% fyrirframgreiðslu upp í
væntanlega skatta þessa árs á
grundvelli álagðra skatta síðastlið-
ið ár er vinstri stjórnin, eða
réttara sagt fjármálaráðherra
fyrir hennar hönd. að slá því föstu
að verðhólgan í ár verði hið
minnsta 50%.“ sagði Guðmundur
IL Garðarsson formaður Verslun-
armannafélags Reykjavíkur í gær.
er Morgunhlaðið spurði hann álits
á þeirri ákvörðun fjármálaráðu-
neytisins að innheimta 75% af
sköttum fyrirfram á fyrstu 5
mánuðum þessa árs.
„Þetta er athyglisverður dómur
útaf fyrir sig,“ sagði Guðmundur
ennfremur. „En alvariegasta hlið
þessarar skattheimtu er sú, að með
henni er greiðslugetu almennings
gjörsamlega ofboðið. — Hvað skyldi
verða mikið eftir til framfærslu
meðaifjölskyldu um næstu mánaöa-
mót, þegar ríkið hefur heimtað sitt
samkvæmt 75% reglunni, og stór-
hækkuð fasteignagjöld í Reykjavík
koma til innheimtu? —Ég er anzi
hræddur um að þröngt verði í búi
hjá þúsundum manna ujn land allt
á næstu mánuðum vegna hinnar
röngu, ég vil bæta við ranglátu
stefnu vinstri stjórnarinnar í
skattamálum.
-Vinstri menn halda að þeir séu að
skattpína einhverja auðmenn á
íslandi með þessum aðferðum.
Staðreyndin er hins vegar sú, að
vinstri-skattheimtustefnan kemur
harðast niður á millitekjufólki, —
öllum almenningi í landjnu. Það er
verið að ráðast á dugmikið fólk til
sjávar og sveita. Fólk sem lagt
hefur á sig mikið erfiði við íbúðar-
byggingar, í námi og í starfi til þess
að verða sjálfstætt og bjargálna.
Því miður heyrist það alltof víða
þessa dagana að hin neikvæða
stefna vinstri stjórnarinnar í at-
vinnu- og skattamálum sé að
eyðileggja heilbrigða sjálfsbjargar-
hvöt dugmikils fólks og að margir
hafi hug á að hverfa til starfa
erlendis þar sem betur sé að fólki
búið í þessum efnum.
Það er tími til kominn, að
almenningur rísi upp og mótmæli
hinni siðlausu ofsköttun sem nú
tröllríður íslensku þjóðfélagi," sagði
Guðmundur að lokum.
að fólk greiði 75% af gjöldum
fyrra árs á fyrstu 5 mánuðum
þessa árs, en það er hærra hlutfall
en nokkru sinni áður.
Kvaðst Guðmundur sjálfur vera
hlynntur staðgreiðslukerfi skatta,
og þetta væri raunverulega skref í
þá átt. Sagði hann að ef ástæða
þætti til að hafa staðgreiðslukerfi í
stöðugum og sveiflulitlum iðnaðar-
þjóðfélögum, þar sem tekjur fóiks
væru mjög jafnar frá ári til árs, þá
væri enn meiri þörf á slíku kerfi hér
á landi, þar sem tekjur fólks væru
gífurlega misjafnar frá einu ári til
annars.
Sagði Guðmundur að þótt það
kynni að verða erfitt fyrir einhverja
að greiða svo mikið fyrirfram nú, þá
væri þess að geta að það kæmi þá
væntanlega í veg fyrir að þeir hinir
sömu ættu það allt eftir í lok ársins,
en algengt væri að öll laun fólks
væru tekin í skatta síðustu mánuði
ársins. „Mín afstaða er ósköp hrein
og klár,“ sagði Guðmundur, „ég er
með staðgreiðslukerfi, þó að sumir
tali um að það borgi sig ekki í
verðbólgu. Þó vera kunni að þetta sé
hálfgert „grams“ hjá fjármálaráð-
herra, og raunar finnst mér það nú
bera keim af því, og þótt þetta stökk
kunni að vera of stórt á þessu ári,
þá er þetta að mínu mati til bóta.“
Þar með væri þó alls ekki verið að
segja að þetta væri gert af göfugum
eða djúpum hvötum hjá fjármála-
ráðherra, sagði Guðmundúr enn-
fremur, og ef til vill mætti segja að
of langt væri farið. „Skoðun mín á
þessari 75% fyrirframgreiðslu
skatta er því dálítið tengd þessu
staðgreiðslukerfi, og er það furðu-
legt, að þrátt fyrir allan þann fjölda
nefnda sem um málið hefur fjallað,
að þá skuli ekkert hafa gerst enn. —
Allar þær nefndir sem fjallað hafa
um staðgreiðslukerfi skatta á
undanförnum árum kæmust ekki
inn í hina nýju breiðþotu Flugleiða,
svo margar eru þær,“ sagði Guð-
mundur að lokum.
Framtalsnefnd Rvíkur kosin í gær
Á fundi borgarstjórnar Reykja-
víkur í gærkvöldi var kosið í
framtalsnefnd til eins árs. Eru
kjörnir fimm menn í nefndina og
jafnmargir til vara, þrír tilnefndir
af meirihlutanum og tveir af
sjálfstæðismönnum.
I nefndina voru kjörin: Sigurður
Armannsson, Kristín Guðmunds-
dóttir, Ragnar Ólafsson, Björn
Þórhallsson og Jón Guðmundsson.
Til vara voru kosnir: Sigurður
Guðgeirsson, Jón B. ívarsson, Jón
Snæbjörnsson, Þorvarður Alfonsson
og Einar Árnason.