Morgunblaðið - 27.01.1979, Page 13

Morgunblaðið - 27.01.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979 Rómantísk þjóðrækni og ihalds- semi íslenzkrar vinstristefnu Skírnir 1978 hefst á erindi eftir Ólaf Jónsson sem hann flutti á aðalfundi Hins íslenska bók- menntafélegs 4. desember 1977. Erindið nefnist Bókmenntir og samfélag eftir 1918. í því veltir Ólafur fyrir sér ýmsum hlutum um tengsl bókmennta og samfé- lags, bókmenntasögum, tímasetn- ingu ýmissa nýjunga í bókmennt- unum svo að fátt eitt sé nefnt. Hér er aðeins ætlunin að vekja athygli á skoðunum Ólafs, ekki brjóta þær til mergjar. Meðal þess sem athyglisvert má telja í erindi hans er hugleiðing um Rauða penna, Kristin E. Andrésson og þá höfunda sem söfnuðust kringum '•hann. Ólafur telur að marxísk hugmyndafræði hafi haft mikið gildi fyrir Halldór Laxness, en sá höfundur „sem með mestum fögn- uði tók boðskap Rauðra penna var þó án efa Jóhannes úr Kötlum". Siðan kemur ályktun sem flestir munu vera sammála um, en hér er hún sérkennilega orðuð: „En íslensk vinstristefna í bókmennt- um og pólitík hefur alla tíð verið menguð af rómantískri þjóðrækni, eins og glöggt sést af ýmsum ritum og ritgerðum Kristins E. Andréssonar ffá þessum árum og síðar, og margs konar íhaldssemi sem slíkum viðhorfum fylgir". Rétt þykir mér Ólafur hafa fyrir sér í því að á fjórða áratugnum kemur fram hjá Jóhannesi úr Kötlum „einhvers konar viðleitni til að endurnýja ljóðmál og stíl við hæfi nýrra tíma, viðhorfa, hug- mynda: þar er eins og sé í bígerð einskonar nýr ljóðrænn raunsæis- stíll sem áreiðanlega hefði orðið haganlegri miðill þjóðfélagslegri ádeilu og boðskap en tilfinninga- samar úrlausnir frásagnar- og yrkisefna, íborið hefðbundið ljóð- mál sem að sinni varð ofan á í skáldskap Jóhannesar". Það fer aftur á móti eftir því hvaöa skilningur er lagður í orð hvort taka á undir þá fullyrðingu að módernisminn í íslenskri ljóð- list hefjist með Ljóðum Steins 1937. Ólafur segir um Ljóð: „Þar verður einmanaleiki og angist, lífsfirring nútíðarmanns og lífs- hátta í fyrsta sinn yrkisefni á íslensku". Ég er ekki viss um að félagslegt raunsæi kreppuáranna Bðkmennllr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON hafi verið það „upphaf bæði formbyltingar og módernisma" sem Ólafur talar um. Tíminn og vatnið með stefnu sinni „burt úr mannheimi" sem ekki er þó einhlít skýring fremur en annað er dæmigerður módernismi að mínu mati. Og módernisma má rekja til skálda bæði heima fyrir og erlend- is sem voru að mörgu leyti rómantísk í viðhorfum en snerust þrátt fyrir það öndverð gegn gömlu lífsmati og aðferðum í skáldskap. Hitt er engu að síður staðreynd að „krafan um félags- lega hlutdeild bókmenntanna" hefur staðið nýjungamönnum í ljóðlist fyrir þrifum eins og Ólafur bendir á. Békmenntir og samfélag er gagnlegt rabb og getur án efa orðið tilefni til umræðna. Sama má segja um grein Hrafnhildar Hreinsdóttur 2141 lesandi og Bækur á markaði eftir Ólaf Jónsson í sama Skírnishefti. Grein Hrafnhildar hefur undirfyrirsögn- ina Athuganir um bóklestur, bókakaup, bókaeign, en grein Ólafs Um upplag og sölu nokkurra algengra bóka 1972—76. í greinun- um er ýmislegur fróðleikur, en niðurstöður eru ekki skýrar vegna þess að kannanir eins og þær sem sagt er frá gefa fyrst og fremst vísbendingar, ítarlegri rannsóknir þarf að gera til að verulegt mark sé á þeim takandi. Synd er ekki nema fyrir þræia nefnist ritgerð eftir Dagnýju Kristjánsdóttur og fjallar hún „um þema og hneigð í Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson". Dagný gerir grein fyrir niðurstöðum þriggja bókmenntafræðinga sem skrifað hafa um Svartfugl, en þeir eru Stellan Arvidson, Kristinn E. Andrésson og Fríða Sigurðardótt- ir. Niðurstöður þremenninganna eru að mati Dagnýjar að sögu- maðurinn Eyjólfur Kolbeinsson sé talsmaður höfundar í Svartfugli. ólafur Jónsson ritstjóri Skírnis Túlkun þeirra á verkinu mótist af því. Henni þykja það „mikil tíðindi ef ekki væri hægt að lesa jafn margslungið verk og Svartfugl Gunnars Gunnarssonar á fleiri en einn' veg.“ Eyjólfur er „fjarri því að vera eindreginn talsmaður höfundar" skrifar Dagný. Dagný talar um tvöfalda atburðarás Svartfugls. Annars vegar er túlk- un yfirstéttarmannsins Eyjólfs Kolbeinssonar, hins vegar önnur saga, saga þeirra Bjarna og Steinunnar. Samúð höfundar er með þeim segir Dagný, ekki Eyjólfi: „Siðferðileg og þar af leiðandi félagsleg uppreisn þeirra 13 ásamt stéttarlegri samstöðu fá- tæklinganna á Rauðasandi felur í sér ögrun við boð og bönn þessa þjóðfélags. Yfirstéttin á hins vegar hagsmuna að gæta í því að vernda þessi boð og bönn og gæta þess að enginn brjóti þau — nema hún sjálf“. Titill ritgerðarinnar er sóttur í orðræður þeirra Eyjólfs og Ólafar. Eyjólfur minnir Ólöfu á að til sé öðruvísi hamingja en þeirra, „hamingja í synd — og myrkri“. Ölöf svarar hlæjandi: „Synd er ekki nema fyrir þræla." Umræður um Svartfugl sýna að margbrotið verk má skýra á mismunandi vegu. Skýring Dagn- ýjar verður að öllum líkindum ein af mörgum skýringum á verkinu, en hún er forvitnileg og studd gildum rökum. Mér þótti gaman að lesa grein- ina Þýðing Ódáinsakurs eftir W.M. Sennar. Kvæðið Ódáinsakur er þýðing Bjarna Thorarensens á Elysium eftir Friedrich Schiller, en í grein sinni kemur Senner með þá tilgátu að Jónas Hallgrímsson sé höfundur þýðingarinnar. Þegar kemur að fornum bók- menntum og sögu í Skírni tekur það töluvert rúm. Helgi Þorláks- son skrifar ritgerðina Sjö örnefni og Landnáma, Vésteinn Ólason ræðir Frásagnarlist í fornum sögum og Lýður Björnsson á stutta en skemmtilega grein um andlátsorð Snorra Sturlusonar. Eigi skal höggva. Þótt ekki beri að lasta umfjöllun Skírnis um fornan tíma er það styrkur ritsins hve nútíminn fær mikið pláss í þetta skipti. Af efni er ótalið Bréf til Skírnis eftir Magnús Pétursson sem fjall- ar um hljóðfræði. Ritdómar eru eftir Jakob Benediktsson, Harald Sigurðsson, Bergstein Jónsson, Silju Aðalsteinsdóttur og Ólaf Jónsson. Bókmenntaskrá Skírnis eftir Einar Sigurðsson fylgir að venju. Allir munu vera á einu máli um nauðsyn hennar og vönduð vinnu- brögð höfundar. Kristján frá Djúpalæk: Fögur og fjölskrúðug veröld Einar Pálsson. Rammislagur. Útg. Mímir. Reykjavík 1978. Nauðsyn væri að kanna forsendur bókaútgefenda hér á landi fyrir vali útgáfubóka og hvernig þeir hafa efni á að eyða tugmiljónum í auglýsingar á þessum bókum, sem vægast sagt eiga margar lítið erindi á markað og síst af öllu um jól. Þetta verður þó að bíða betri tíma. Sú bók, sem mér persónulega þótti mest til koma nú um hátíðarnar var nær ekkert auglýst og höfundur varð að gefa hana út á eigin reikning. Þó er þetta bók, sem ég álít stóran viðburð í íslenskum fræðum og þykir um leið listilega unnin. Þetta er 5. bindi í hinu mikla ritsafni Einars Pálssonar: Rætur íslenskrar menningar, merkt rúninni, Reið. Hinar bækurnar eru: Fé: Baksvið Njálu, 1967. Úr: Trú og landnám, 1970. Þurs: Tíminn og eldurinn 1972. Ás: Steinkross, 1976. Að baki rita þessara liggur fyrst og fremst skapandi hugvit, síðan óhemjuleg vinna við lestur, samanburð og rannsóknir. Hér hafa verið dregin saman þau ókjör af fornum fræðum, að við ekkert er að jafna á skyldu sviði svo ég viti hérlendis. Þessi fræði eru alþjóðleg en lykil þeirra fann höfundur í gullaldarritum okkar. Með þessum lykli hefur hann lokið upp miklum fjölda leynidyra og „marrar þar víða í hjörum". Allar þessar dyr eru að fornum hug- myndaheimi, veröld, sem var öllum vitrum mönnum og lærðum kunn, en týndist í hugmynda- þokum bókstafsþrælkunar síðari tíma fræðimanna. Þetta er fögur veröld, goðheimur fullur af tákn- um og stórmerkjum. Myndmál í orðum, trú í verki. Það er engin ný vitneskja, að mikill skáldskapur er ekki aðeins segjanlegur í orði eða öðru formi einu saman. Að baki forms liggur önnur og meiri saga, hugmynda- fræði, sem formið skírskotar til og þeir skilja og njóta, sem þekkja táknin að baki orðanna. Brennu-Njáls saga er af öllum viðurkennd sem eitt mesta snilldarverk bókmenntanna. Jafn- vel af þeim, sem aðeins lesa hana sem einfalda heimild samkvæmt orðanna hljóðan. Er þá sama hvort hún er talin skáldsaga eða sagn- fræði. Þegar Einar Pálsson hefur opnað okkur dyrnar inn á baksvið hennar, inn í hina fögru og fjölskrúðugu veröld táknmáls hennar, er hún orðin ósegjanleg list og slíkur spegill mannlegra vitsmuna og ímyndunarafls, að maður er annar og meiri; annar og fróðari, já, glaðari maður. Svona björgunarstarf hefur ekki áður verið unnið á sviði vitsmuna hérlendis, enda hefur það vakið óskipta athygli þeirra erlendra fræðimanna á sviðum goðfræða, sem mál okkar skilja eða séð hafa útdrátt þessara verka Einars á sinni tungu. Það eru engin ný sannindi að notað sé táknmál í skáldskap og predikun. Talið er, að vart hafi svo verið ritað nokkurt slíkt rit, að það hefði ekki tvöfalda merkingu eða meir. Hin dulda merking að baki venjulegrar sögu skildist af þeim, er þekktu þann veruleik, eða ímyndun, sem til var vísað með bókstafsfrásögninni, ellegar í ræðu. Þetta ættu þeir að skilja og viðurkenna, sem lesa t.d. Nýjatestamehtið. Kristur talaði yfirleitt í dæmisögum og fól aðra og dýpri merking í sögu eða dæmi. Tölvísi, trúarbrögð og stjarnfræði léku mikið hlutverk í þessum tvíleik frásagna og fullnægði þeim Einar Páisson er þekktu til. Hinum fávísu nægði hin einfalda saga þá eins og nú. Kenning Einars er ekki sú, að fornir íslendingar hafi skapað nýjan hugmyndaheim, heldur að þeir hafi þekkt sömu hugmyndir og allur hinn kunni heimur þeirrar tíðar. Indland, Egyptaland og Grikkland kunnu þessi fræði og þau bárust eins og aðrir menningarstraumar eftir hinum eðlilegu farvegum hingað norður. Með mönnum. Snorri segir Óðin þaðan að sunnan kominn í norður- veg og allt frá landnámi og fram um aldir var íslenskt fólk að spássera suður til Róm. íslenskir nemar voru í Frahkaríki og þeir voru í Þýskalandi. Almenn þekk- ing var vitanlega kennd og þeir báru hana heim og nýttu í verkum sínum. Ein grein var að fela leyndan vísdóm í almennri frásögn. Bókin Steinkross, er kom frá hendi Einars 1976, er firna mikið verk. Hún er nær 550 bls. Sú bók er nokkuð flókin fyrir menn, sem eru slakir að skilja tölvísi eins og ég. En Einar er mjög heppinn. Árin fyrir og eftir útkomu þeirrar bókar voru þekktir sérfræðingar að uppgötva sömu leyndardóma talna og mælinga og Einar hér heima. Nú er hann einnig heppinn, því norskur háskólakennari, Maren-Sofie Röstvig, sérhæfð í miðaldabókmenntum og sögu Endurfæðingartímans, hefur nú fundið í Jólaóði Miltons frá 1629 sömu notkun tölvísi og tákna eins og Einar áður í,t.d. Njálu. Gildin eru hin sömu. Allt er ein og hin sama þekking svo langt fram og raunar nær þetta allt fram á síðustu öld. Og enn er það grunn versagjörð, er aðeins er frásögn hversdagsathafna án baksviðs eða skírskotunar út yfir orð. Nú nefni ég ekki þessi dæmi fyrir þá sök, að ég hyggi sannleik hóti betri hafðan eftir Sankti-Pétri, heldur en ef svo hending tækist, húsgangurinn á hann rækist. Ég nefni það fyrir þá, sem trúa ekki á spámanninn í föðurlandi þeirra, heldur ein- hverra annarra. En það er ekki gildi talna og mælinga, sem heilla mig mest, heldur goðfræðin og stjarnfræðin með dýrahring sinn og önnur undur. Og goð norðursins voru svo sannarlega komin að sunnan eins og Snorri segir, þó nöfn hafi eitthvað breyst á sumum. Tíminn og gangur sólar, stjarnheimurinn og seiður niðandi vatna er alls- staðar af sömu ætt með sömu eigindir. Skynjan manna er ein og söm án landamæra og litarháttar. Trú, tilbeiðsla, varúð og tilraun að milda og blíðka örlagavöld og.hina ósýnilegu guði. Allt er mannkyni sameiginlegt. Islenskir landnáms- .menn og afkomendur þeirra voru af sömu greindargráðu og menn annarra þjóða. Þeir höfðu öll skilyrði til að afla sér þeirrar þekkingar, sem aðrar þjóðir bjuggu yfir. Þeir höfðu ríka hneigð til skáldskapar og sagnritunar og því hafa þeir síst af öllu vanrækt þau fræði, er lutu að þessum áhuga og nauðsynjamálum. Upplýsifígar Einars Pálssonar um „baksvið“ bókmennta okkar fornra er ómetanleg gjöf til allra, sent fornum fræðum og skáldskap unna. Það verður vart kennt við annað en „hetjuskap“, að hundsa verk hans, er rætt er unt fornar bækur okkar. Eddur og íslendingasögur hafa aukist að dýpt og visku við upplýsingar Einars. Leið til full- komins skilnings á þeint og þar með lestrarunaðar hefur opnast okkur öllum. Kristján frá Djúpala'k.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.