Morgunblaðið - 27.01.1979, Side 26

Morgunblaðið - 27.01.1979, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979 Frá fréttariturum Mbl. í Stokk- hólmi og Ósló í gær. Fyrirhugaður samningur norsku ríkisstjórnarinnar og hinnar sænsku við Volvo um að Norðmenn kaupi 40% af hluta- bréfum fyrirtækisins er fallinn um sjálft sig þar sem 40% hluthafa vilja ekki styðja hann og samningurinn fær því ekki tilskilinn 2/3 meirihluta hlut- hafanna, að því er forstjóri Volvo, Pehr Gyllenhammer, •skýrði frá á blaðamannafundi í Gautaborg í dag. Þótt samningurinn sé þar með samningsins muni hafa alvar- legar pólitískar afleiðingar í för með sér, jafnt í Noregi sem Svíþjóð. En stjórnarkreppu hef- ur verið afstýrt í Noregi og Nordli verður áfram forsætis- ráðherra. Hann hefði neyðst til að segja af sér ef samningurinn hefði verið samþykktur í Sví- þjóð því að hann hefði ekki fengið meirihlutastuðning í Stórþinginu. Nú þarf þingið ekki að fjalla um samninginn. Lengi hefur verið vitað að mikil andstaða hefur verið gegn samningnum meðal hluthaf- Volvo-samningurinn féll á andstöðu 40% hluthafa úr sögunni verður þó athugað nánar hvort Volvo getur útvegað nægilegt fé til reksturs fyrir- tækisins á sænskum markaði í stað þess fjár sem Norðmenn áttu að leggja fram samkvæmt samningnum. Samningurinn hefur einkum verið gagnrýndur fyrir það að ekki skyldi athugað hvort hægt væri að útvega fé í Svíþjóð og því hefur verið haldið fram að það sé enginn vandi. Forsætisráðherrar Svíþjóðar og Noregs, Ola Ullstein og Odvar Nordli, hittast í Stokk- hólmi 9. febrúar þegar forsætis- ráðherrafundur Norðurlanda verður haldinn og ræða þá hvað hægt verður að gera í stað samningsins. Þeir hafa báðir harmað afdrif hans. Nordli sagði í Ósló að aðrir þættir samnings Norðmanna og Svía, til dæmis fyrirhuguð kaup Svía á olíu Norðmanna úr Norðursjó, væru einnig úr sög- unni. Hann lýsti miklum von- brigðum og sagði að sökina á því að þessi samningur um um- fangsmestu iðnaðarsamvinnu Norðurianda færi út um þúfur væru „skammsýn öfl íhalds- manna og kapitalista" sem skorti getu og framsýni til að skilja gildi slíkrar samvinnu. Þó kvað hann Norðmenn mundu halda áfram að beita sér fyrir eflingu norrænnar iðnaðarsam- vinnu. Ullsten sagði í Stokkhólmi að hann harmaði afdrif samnings- ins og bætti því við að það sem gerðist mætti ekki verða drag- bítur á vaxandi samvinnu Svía og Norðmanna á sviðum iðnaðar og orkumála. Fundur hafði verið ráðgerður eftir fjóra daga í Volvo-fyrir- tækinu til þess að taka ákvörðun um kaup Norðmanna á 40% hlutabréfanna, en að því er Gyllenhammer forstjóri skýrði frá á blaðamannafundinum í dag var fundinum frestað vegna þess að í ljós hefði komið að samningurinn naut ekki stuðn- ings tveggja þriðju hluthafanna. Fyrr í dag var verzlun með hlutabréf Volvo frestað til bráðabirgða þar sem mikilvægr- ar ákvörðunar stjórnar fyrir- tækisins væri að vænta. Gert er ráð fyrir því að afdrif anna í Volvo og þetta er í annað skipti á einu ári sem tilraun til að efla bágborinn bílaiðnað Svía fer út um þúfur. Fyrirhuguð sameining Volvo og SAAB strandaði í fyrra á persónuleg- um ágreiningi og andstöðu í stjórn Saab. En þótt samningur- inn sé úr sögunni segir Gyllen- hammer forstjóri að Volvo muni halda áfram að leita eftir takmarkaðri samvinnu við norskan iðnað. Afdrif samningsins hafa það í för með sér að Norðmenn fá ekki eins mikið af sænsku timbri og þeir höfðu gert sér vonir um auk þess sem Svíar missa af norsku olíunni. Norðmenn missa einnig af tækifæri til að útvega 3000—5000 manns atvinnu. Bretar sjá vonarglætu í vinnudeilunum miklu L>nd»n. 26. jan. Reuter-AP NOKKUÐ rofa^i til í vinnu- deilunum í Bre'tlandi í dag, að minnsta kosti í bili, vegna friðar umleitana í deilu lestarstjóra og dómsúrskurðar, sem getur haft víðtæk áhrif, þess efnis að lög takmarka rétt til verkfallsvörzlu. Fleiri vörubílar sáust á vegun- um þótt samningar um kaup og kjör 100.000 vörubílstjóra virðist eiga langt í land. Lestarstjórar, sem hafa staðið fyrir fjórum eins dags verkföllum ákváðu að grípa ekki til fleiri aðgerða í þessum mánuði og samþykktu að vísa máli sínu í gerðardóm. Þetta var niðurstaða fundar, sem Len Murray, aðalrit- ari verkalýðssambandsins (TUC), átti með leiðtogum þriggja félaga j árn brautarstarf smanna. Samkvæmt dómsúrskurðinum var bönnuð verkfallsvarzla við kexverksmiðju sem var ekki aðili að vörubílstjóradeilunni. Þetta er fyrsti dómurinn af þessu tagi og gæti hugsanlega losað um takið sem verkfallsverðir hafa á birgða- flutningum. Samband flutningaverkamanna, TGWU, hefur beðið vörubílstjóra að takmarka verkfallsvörzlu, en vinnuveitendur segja að fyrirmæl- in hafi verið virt að vettugi í stórum stíl. Kexverksmiðjan sem fór í mál gegn vörubílstjórunum segir að verkfallsverðir hafi beitt sleggjum til að hindra að birgðir bærust til hennar. Frost, snjókoma og ólögleg verkföll ollu umferðaröngþveiti í Englandi í dag og umferðarslys hafa sjaldan orðið meiri. Járn- brautakerfið var í lamasessi eftir verkföllin í gær og hundruð þúsunda áttu í erfiðleikum með að komast til vinnu. Salti var ekki dreift á götur og það átti mikinn þátt í slysunum en' auk þess sakaði lögreglan ökumenn um að virða ekki reglur um hámarkshraða. Sumum vegum var lokað vegna ástandsins. Jafnframt hefur Denis Healey fjármálaráðherra varað verkfalls- menn við því að ef þeir fái kröfum sínum framgengt muni það leiða til fjölauppsagna í atvinnufyrir- tækjum og þar að auki valda því að hann muni hækka skatta í næsta fjárlagafrumvarpi sínu í apríl. Healey sagði, að verðbólgan mundi aukast úr 8% í 10% í sumar SIGRI var fagnað í Phnom Penh og Hanoi i dag og á fjöldafundi í Phnom Penh var lögð áherzlu á vináttu Víetnama og Kambódíu- manna. Og fréttir hermdu að blöð og 13% í árslok og að.klukkan yrði færð aftur til 1976 þegar ríkis- stjórnin hóf viðnám gegn verð- bólgunni sem var þá 25%. Námumenn ræddu í dag við yfirmenn kolamála og þeir sögðu að fjárhagurinn leyfði aðeins '/2 % launahækkun. Þeir krefjast 40% launahækkunar, en viðræðum verður haldið áfram í næstu viku. hefðu birzt í Phnom Penh í fyrsta skipti í tæp fjögur ár. Kambódíski stjórnarleiðtoginn Heng Samrin fordæmdi í löngu máli ógnarstjórn síðustu fjögurra ára og hvatti hermenn sína til að „sópa burtu" leifum hersveita Pol Pots fyrrverandi forsætisráðherra. Hann kvað víetnamska „vopna- bræður" hafa hjálpað Þjóðeiningar- fylkingunni til bjargar þjóðinni „á öllum sviðum" til þess að sigra stjórn Pol Pots. Heng Samrin og aðrir leiðtogar byltingarinnar lögðu blómsveig að minnismerki um fallna hermenn í Phnom Penh og á honum stóð: „Ævarandi þakklæti við fallna félaga og íbúa sem féllu á vígvelli heiðurs og sóma fyrir málstað byltingarinnar." Þrátt fyrir sigurhátíðina hermdu heimildir í Bankok að áfram væri barizt á stórum svæöum í Kambódíu, meðal annars í nágrenni höfuð- borgarinnar. Útvarp Pol Pots segir, að hersveitir hans hafi náð bænum Takeo í annað sinn og að harðir bardagar geisi áfram við aðra fylkishöfuðborg, Kampong Chhnang, i Mið-Kambódíu. Útvarpið hélt því lika fram að þjóðvegurinn frá Phnom Penh í norðvestur væri á valdi hersveita Pol Pots. Jörð skalf í Mexíkó Mexíkóborg, 26. jan. AP. ÖFLUGIR jarðskjálftar hrelltu Mexíkana árla í morgun, aðeins níu klukkustundum áður en Jóhannes Páll páfi annar var væntanlegur í heimsókn til höfuð- borgar landsins. Engan sakaði þó og ekki urðu verulegar skemmdir á mannvirkjum, en styrkur fyrri skjálftans mældist 6,3 stig á Richterkvarða og sá seinni mæld- ist 5,0 stig. Upptök skjálftanna voru sögð á Kyrrahafinu, um 400 kílómetra í suðvestur frá Mexíkó- borg. Ferðamenn vöknuðu upp við vondan draum þegar jarð- skjálftarnir gengu yfir og þustu þeir fáklæddir út á götu. Margir Mexíkanar voru snemma á ferli, þar sem þeir vildu tryggja sér gott útsýni þegar páfi æki um miðbæ höfuðborgarinnar, og urðu margir þeirra skelfingu lostnir þegar jörðin undir fótum þeirra gekk í bylgjum. Las eigin eftirmœli Toronto, 26. janúar. AP. ÞAÐ VORU ekki ein af þessum venjulegu eftirmælum sem Nicolai Ivanenko var að lesa, heldur minningargrein um sjálf- an hann. „Einhver mistök hljóta að hafa átt sér stað,“ sagði hann. Ivanenko, sem er 81 árs og býr á heimili aldraðra Úkraníumanna í Toronto í Kanada, dó árið 1978 samkvæmt minningargreininni. Lögfræðingur nokkur, Robert Price, sagði að vinur Ivanenkos hefði ritað bróður og systur Ivanenkos í Sovétríkjunum og tjáð þeim andlát hans. Bróðirinn og systirinn, sem vildu kanna arf sinn, höfðu samband við rússnesk- an lögfræðing sem setti sig í samband við Price og um síðir kom sannleikurinn í ljós. Ivanenko hefur búið í Kanada í 51 ár og þekkir hann lítið til systur sinnar og ekkert til bróður síns enda fæddist bróðirinn eftir að Ivanenko fór frá Sovétríkjunum. Irak: Fyrstu kosningar í tuttugu ár Bagdad 26. jan. Reuter ALMENNAR kosningar íara fram í írak á þessu ári og verður það í fyrsta skipti síðan konungdæmi var afnum- ið í landinu árið 1958. Það var Saddar Hussein, varaforseti byltingarráðsins, scm sagði frá þessu á fundi. Síðan 1958 hefur írak verið stýrt af aðskiljanlegum ein- ræðisstjórnum og sl. tíu ár hefur það verið Baathflokkur- inn sem hefur stjórnað með tilskipunum. Athygli er vakin á að þessi tilkynning kemur skömmu áður en fundur með fulltrúum Sýr- lendinga um einhvers konar bandalag landanna er haldinn. Þess má geta að sá armur Baathflokksins sem stjórnar Sýrlandi hefur litið illu auga stjórn Baathflokksins á Sýr- landi og raunar hefur ríkt fjandskapur milli þessara ríkja um langa hríð þar til á Bagdadfundinum í nóvember sem var haldinn í tilefni Camp David-samkomulagsins. ERLENT 27. janúar Þetta gerðist 1973 — Vopnahléssamningar undirritaðir í París og binda enda á stríðið í Víetnam. 1%7 — Þrír Apollo-geimfarar (Grissom, White, Chaffee) far- ast í eldsvoða í geimfari — 62 ríki undirrita samning um takmörkun hernaðarumsvifa í geimnum. 1965 — Herforingjar í Suð- ur-Víetnam steypa stjórn Tran Van Huong. 1%4 — Frakkar taka upp stjórpmálasamband við Kínverja. 1944 — Leníngrad leyst úr umsátri að fuliu og öllu. 1943 — Fyrsta al-bandaríska loftárásin á Þýzkaland (Wil- helmshaven) — Herkvaðning kvenna hefst í Þýzkalandi. 1931 — Pierre Laval verður forsætisráðherra Frakka. 1926 — Sjónvarp sýnt í Bret- landi fyrsta sinni opinberlega. 1916 — „Spartakus" flokkur kommúnista stofnaður í Berlín. 1914 — Bandarískir landgöngu- liðar koma til Haiti eftir valda- afsal Oresta forseta. 1822 — Formlega lýst yfir sjálfstæði Grikklands. 1606 — Réttarhöldin gegn Guy Fawkes og öðrum samsæris- mönnum byrja. Afmælit Wolfgang Amadeus Mozart, austurrískt tónskáld (1756—1791) — Edouard Lalo, franskt tónskáld (1823—1892) — Lewis Carrol (Charles Dodgson), enskur rithöfundur (1832—1898) — Vilhjálmur II Þýzkalands- keisari (1859—1941) — Jerome Kern, bandarískt tónskáld (1885-1945) - Hyman Rick- over, bandarískur flotaforingi (1900:---). Andláti J.J. Audubon, fugla- fræðingur, 1851 — Adam Sedg- wick, jarðfræðingur 1873 — Giuseppe Verdi, tónskáld, 1901 — Carl Mannerheim, hermaður, 1951. Innlenti Útför Einars Bene- diktssonar 1940 — Loftferða- samningur við Bandaríkin undirritaður 1945 — „Óðinn“ kemur 1960 — f. Jón Eyþórsson 1893 — d. Þorleifur Þorleifsson í Bjarnarhöfn 1878. Orð dagsinsi Orð eru áhrifa- mesta lyfið sem mannkynið notar — Rudyard Kipling, ensk- ur rithöfundur (1865—1936). Sigurhátíð í Phnom Penh Bankok, 26. janúar. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.