Morgunblaðið - 27.01.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979
31
Ökuþórinn
DRIVER, am. 1978, leikstjóri Walter Hill. Einvígi ökuþórsins og lögreglumannsins,
sem eltir hann er hér sett fram á nánast abstrakt hátt. Með ótrúlega sparsömum
samtölum forðar Hill okkur að vísu frá því að þurfa að hlusta á léleg samtöl, en á hinn
bóginn eru hinar fáu, meitliiðu setningar aðeins fengnar að láni og margheyrðar áður
í myndum af svipuðu tagi. Árangurinn er nánast furðulegur, þar sem þagnirnar verða
miklu mikilvægari en hinar fáu setningar. Hins vegar þarf varla að taka það fram, að
persónurnar, sem aðeins bera nöfnin Driver, Detective o.s.frv. eru álíka líflegar og
kóngur og drottning á taflborði líkt og handritið (sem reyndar er skrifað af Hill), sé
skrifað af rafeindaheila.
Randal Kleiser -
leikstjóri Grease
Líkt og leikstjóri Saturday
Night Fever. John Badham,
er leikstjóri Grease, Randal
Kleiser, algjörlega óþekkt
pesóna. Nöfn þessara tveggja
leikstjóra höfðu ekki heyrst
nefnd áður um heimsbyggð-
ina og spurning, hvort þau
verða oft nefnd í framtíðinni,
a.m.k. gefa þessar myndir
enga vísbendingu um að svo
verði. En þetta eru ungir
menn, sem enn eiga margt
ólært og í tilefni sýninga á
Grease er ekki úr vegi að gefa
hér nokkrar upplýsingar um
Kleiser. Randal Kleiser fór í
gegnum kvikmyndaskóla, eft-
ir að hafa stundað 8 mm
kvikmyndagerð frá 12 ára
aldri. Sem lokamynd í skól-
anum gerði Kleiser myndina
Peegee, um deyjandi ömmu á
elliheimili og eina fjölskyldu-
meðliminn, sem var í sam-
bandi við gömlu konuna.
Kleiser sýndi Universal
myndina í þeirri von að þeir
vildu dreifa henni. Það vildu
þeir ekki, en höfðu hins vegar
áhuga á að nota Kleiser til að
leikstýra sjónvarpsþáttum.
Kleiser ráðfærði sig við
George Lucas, sem hafði
verið herbergisfélagi hans í
skóla og ráðlagði Lucas hon-
um eindregið að þiggja boðið.
Kleiser hafði áður verið að
velta því fyrir sér að skrifa
handrit, en Lueas benti hon-
um á, að ef hann leikstýrði
fyrir sjónvarpið yrði að
minnsta kosti litið á hann
sem leikstjóra en ekki hand-
ritahöfund, sem vildi verða
leikstjóri. Kleiser tók því
boði Universal, sem henti
honum umsvifalaust inn í
stúdíóið til að leikstýra
einum þætti af „Marcus
Welby". „Þetta var eldskírn,"
sagði Kleiser, sem síðan
hefur leikstýrt fjölda þátta
og kvikmynda fyrir sjónvarp.
Kleiser hafði þó alltaf áhuga
á gerð eigin kvikmynda og á
þessum tíma gerði hann
einskonar framhald af
Peegee, mynd sem nefnist
Portrait of Grandpa Doc.
Aðspurður um hvernig hefði
staðið á því að hann leik-
stýrði Grease, sagði Kleiser:
„Ég hafði gert sjónvarps-
mynd með Travolta, sem
nefndist Boy in the Plastic
Bubble, og okkur hafði komið
ágætlega saman. Ég hafði
einnig gert mynd, sem heitir
AIl Together Now fyrir
Robert Stigwood fyrirtækið
og þetta var eina Stig-
wood-myndin sem stóðst
tíma- og kostnaðaráætlun.
Stigwood hafði tæpast hug-
mynd um hver ég var, en ég
geri ráð fyrir að hann hafi
litið á tölurnar og séð, að
þessi litla mynd stóð sig. Og
ég held að Travolta hafi átt
stóran þátt í því. Upphaflega
var ég kallaður á fund vegna
Saturday Night Fever, en
áður en ég vissi af, hafði ég
verið settur til að leikstýra
Grease." Kleiser hafði á
skólaárum sínum verið stat-
isti í nokkrum dans- og
söngvamyndum, m.a. nokkr-
um Presley myndum,
Camelot og Thoroughly Mod-
ern Millie, sem Kleiser telur
sér ómetanlega reynslu. Að-
spurður kvaðst Kleiser vera
ánægður með Grease. sem
hann sagðist ekki hafa reynt
að breyta til muna frá
leiksviðsútfærslunni, nema
hvað söngleikurinn væri
„blásinn út“ í hefðbundnum
Hollywood-stíl. „Við gerðum
þetta á þann hátt, að við
fengum allt þetta fólk og
tæki og allt saman og sögðum
„búum til kvikmynd",
skemmtum okkur konunglega
og reyndum ekki að gera
neitt alvarlegt. Við vonum
svo sannarlega að sá andi,
sem við gerðum myndina í,
komist til skila á tjaldinu.“
Meira um Grease síðar, eftir
að „andinn" hefur birst und-
irrituðum á tjaldi Háskóla-
bíós.
SSP.
Fréttahornið
Robert Altman (Nashville,
California Split) hefur ekki
slegið slöku við siðasta árið,
en enn þá eru ósýndar eftir
hann hér á landi tvær mynd-
ir, Buffalo Bill and the
Indians (1976) og 3 Women
(1977). Á síðasta ári vann
hann að þremur myndum, A
Wedding, sem frumsýnd var
sl. haust, þar sem fjallað er
um allsnægtarbrúðkaup á
gamansaman hátt, næst kom
Quintet, með Paul Newman
og Bibi Anderson i aðalhlut-
verkum og þriðja myndin,
sem hann mun nú vera að
vinna að, nefnist A Romance.
Quintet er framtíðarsýn og
fjallar um vandamál of-
fjölgunar, sem er reynt að
leysa á þann hátt, að skipa
fólki saman í hópa, fimm
persónum í hvern hóp, sem
síðan er fengið það verkefni
að drepa hvert annað. A
Romance slær á aðeins létt-
ari strengi og segir frá
öldruðum auðkýfingi, sem
verður ástfanginn af ungri
stúlku, sem syngur með lítilli
rokkhljómsveit, en þáu kynn-
ast vegna mistaka hjá tölvu,
sem sér um stefnumót.
Werner Herzog lauk sl.
haust við upptökur á mynd
sinni Nosferatu í bænum
Delft í Hollandi og vafalítið
hafa bæjarbúar varpað önd-
inni léttar, þegar þeir horfðu
á eftir Herzog og fylgdarliði
hans út fyrir bæjarmörkin.
Til að auka áhrifin í mynd-
inni hafði Herzog fengið
nokkur þúsund rottur úr
tilraunastöð einni og sleppt
þeim lausum en flestar
náðust aftur, eftir að kvik-
myndatökunni lauk (það auð-
veldaði mikið þessa smala-
mennsku að rotturnar voru
hvítar, en nokkrar tilraunir
til að mála þær svartar höfðu
mistekist.). Með aðalhlutverk
í Nosferatu fara Klaus
Kinski, Bruno Ganz og Isa-
belle Adjani. Adjani, sem
fyrst náði frægð í mynd
Truffauts, The Story of
Adéle H„ og lék einnig í
Leigjanda Polanskis, situr
svo sannarlega ekki auðum
höndum. Þessa dagana má
sjá hana i Hafnarbíó í
myndinni Drivcr. en hún
mun nú vera að leika
í mynd sem nefnist
Bronte-systurnar (Les
Soeurs Bronté), sem Andre
Techine leikstýrir, ásamt
Marie-France Pisier og Isa-
belle Huppert.
Francis Ford Coppola
(The Godfather) hefur nú í
nokkur ár verið að vinna að
myndinni Apocalypse Now,
en frumsýning á henni var
áætluð fyrir rúmu ári.
Coppola setti myndina til
hliðar um tíma og hefur verið
að kíkja á hana öðru hvoru,
stytta hér og lengja þar, en
nú mun vera ákveðið að
frumsýna myndina í vor.
Coppola, sem hefur lagt allt
undir við gerð þessarar
myndar, hefur beðið um, að
fyrstu kópíurnar, verði
sýndar án nokkurra titla eða
leikaranafna, en í staðinn fái
áhorfendur í hendur prent-
aða leikskrá líkt og í leik-
húsunum.
Sylvester Stallone (Rocky)
hefur nú snúið sér að gerð
Rocky II, sem hann hefur
skrifað handrit að, leikstýrir
og leikur aðalhlutverk ásamt
Thalia Shire. Stallone lék í
millitíðinni í F'.I.S.T., mynd
um verkalýðsbaráttu vörubíl-
stjóra undir leikstjórn
Norman Jewison. Stallone
átti þar hlut að handritinu
ásamt höfundi sögunnar, Joe
Eszterhas.
Bernardo Bertolucci hefur
nú snúið sér að gerð myndar,
sem hann kallar Mánann (La
Luna) og er Jill Clayburgh
þar meðal aðalleikara.
Roman Polanski er aftur
kominn á kreik og vinnur nú
að mynd i Frakklandi, sem
hann kallar Tess.
Woody Allen er einnig
byrjaður á nýrri mynd eftir
Interiors. og nefnist hún
Manhatten. með Allen og
Diane Keaton í aðalhlutverki,
gerð eftir handriti Allens.
Nicholas Roeg (The Man
who Fell to Earth) er að
undirbúa mynd um Flash
Gordon. sem Dino De
Laurentiis framleiðir ...
John Badham er um það
bil að fá á sig stimpil sem
leikstjóri, sem tekur við
verkum, sem öðrum eru upp-
haflega ætluð. Badham tók
við The Bingo Lon Travell-
ing All Stars eftir að Spiel-
berg, sem átti að leikstýra
lenti i hákarlinum. Badham
tók við Saturday Night
Fever eftir að John Avildsen
(Rocky) hafði verið rekinn og
nú lítur svo út, að Badham
hafi tekið að sér leikstjórn á
Dracula. með Laurence
Olivier og Frank Langella,
eftir að Ken Russell hafði
skrifað undir samning um að
leikstvra mvndinni.
SSP.
Matarboð í Nosferatu.