Morgunblaðið - 27.01.1979, Síða 46

Morgunblaðið - 27.01.1979, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979 í i Trent kominn til stúdenta f GÆRMORGUN kom til landsins Bandaríkjamaðurinn Trent Smock, en sem kunnugt er mun sá leikmaður koma f stað Dirk Dunbars, sem nú mun vera búið að skera upp í hnéi. Við komu Trents til landsins kom f ljós, að gleymst hafði að útvega honum atvinnuleyfi hér, en Trent er ætiað að þjálfa kvennaflokk stúdenta. Átti þvf ekki að hleypa honum inn f landið. KR-ingurinn Kolbeinn Pálsson tók þvf kapp- ann að sér, en Kolbeinn vinnur á Keflavfkurflugvelli. Það varð sfðan úr, að Bjarni Gunnar Sveinsson ábyrgðist að leyfi yrði útvegað án tafar og mun nú allt vera klappað og klárt. Trent kemur frá Indiana-fylki og sagði hann við komuna, að veðrið hérna væri mun betra en þar fyrir vestan og hefði það komið honum á óvart. Hins vegar væri loftið hérna mun tærara en annars staðar þar sem hann hefði komið. Aðspurður að því hvers vegna hann hefði hætt á miðju leiktíma- bili með meistaraliði Indiana University svaraði Trent, að hann hefði leikið „fótbolta" (rugby) á sama tíma og samkeppnin hefði verið geysilega hörð. Þess vegna hefði legið fyrir sér að velja á milli íþrótta og hann hefði valið fótbolt- ann. Trent kvaðst aðeins þekkja til KR-ingsins John Hudson, þeir hefðu verið saman í æfingabúðum í Chicago síðastliðið sumar. Til hinna Bandaríkjamannanna kvaðst hann ekki þekkja. Þrátt fyrir að hann væri van- svefta hélt Trent ásamt nokkrum félögum sínum úr stúdentaliðinu vestur í íþróttahús Háskólans og sýndi hann þá þegar að stúdenta- liðinu mun verða verulegur styrk- ur að honum. Virðist þetta vera skytta hin mesta og harður varnarmaður. Að lokinni æfingunni kvaðst Trent ekki vera í nægilega góðri æfingu, allavega ekki eins góðri og hann hefði viljað og væri það næst á dagskrá hjá honum að losa sig við ein tíu kíló. Um íslenskan körfuknattleik kvaðst Trent að sjálfsögðu ekkert vita, en þó hefði hann heyrt hjá umboðsmanni sínum að hér væru góðir leikmenn frá Bandarikjunum og allir væru þeir mjög ánægðir með að vera hérna og sjálfur vonaði hann að eins yrði með sig. Stúdentar eiga næsta leik við Njarðvíkinga í íþróttahúsi Kenn- araháskólans og mun þá Trent Smock leika sinn fyrsta leik með stúdentum. Verður fróðlegt að fylgjast með þeirri viðureign, því liðin eiga einnig að mætast í 1. umferð bikarkeppninnar, sem hefjast mun innan skamms. Njarðvíkingar eru i mikilli baráttu um Islandsmeistaratitilinn og Hilmar Hafsteinsson þjálfari þeirra hefur sagt að Bikarkeppnin verði meginmarkmið liðsins, en þar hafa stúdentar titil að verja. Spurningin er því hvort Trent lyfti stúdentum upp og leiði þá til góðs endaspretts í leikjum vetrarins. — gíg Hefna Haukar sín á liði HK? TÖLUVERT verður um að vera á handboltasviðinu um helgina, m.a. 3 leikir í 1. deild karla. Þeir leikir eru Fram — ÍR, HK — Haukar og Fylkir — FH. Þó að hér sé ekki um viðureignir toppliða að ræða, gætu leikirnir allir orðið hinir athyglisverðustu. Ef marka má það sem síðast sást til FH-inga, ættu Fylkismenn að eiga nokkra möguleika á að ná sér í eitt eða fleiri stig til að styrkja stöðu sína nærri botninum. Eini sigur HK í mótinu til þessa var einmitt gegn Haukum, er liðin áttust við í Hafnarfirði. Lið HK virðist hins vegar hafa misst töluvert flugið að undanförnu og ýmsir lykilmanna liðsins eiga við meiðsl að stríða. Hauksliðið virðist hins vegar hafa verið í sókn og ætti að krækja í tvö stig að þessu sinni. Um leik Fram og ÍR er ekkert hægt að segja og á pappírnum er leikurinn mjög jafn. í síðustu leikjum sínum voru ÍR-ingar óheppnir að tapa fyrir FH, en Framarar náðu jafntefli gegn skemmtilegu liði Haukanna. Laugardaguri Akureyri 2. deild karla Þór AK-Þór Ve kl. 15.30 1. deild kvenna Þór Ak-UBK kl. 16.45 Varmá 3. deild karla UMFA-ÍBK kl. 14.00 Laugardalsh. 1. deild karla Fram-ÍR kl. 15.30 2. deild kvenna Þróttur-UMFG kl. 16.45 2. deild karla Þróttur-Leiknir kl. 18.00 Sunnudagur< Varmá 1. deild karla HK-Haukar kl. 15.00 Laugardalsh. 1. deild karla Fylkir-FH kl. 19.00 STAÐAN Valur Víkingur FH Haukar Fram ÍR Fylkir HK 7 6 10 8 6 11 8 5 0 3 8 4 13 8 3 14 8 2 15 8 12 5 7 115 137,111 189.162 153,145 165.158 156,169 144,157 139,150 127,152 Markhæstu leikmenn. Geir Hallsteinss. FH 50 13 Atli Hilmarss. Fram 46 13 Hörður Harðars. Haukum 45 10 Gústaf Björnsson Fram 41 9 Gunnar Baldursson Fylki 34 7 Páll Björgvinss. Vík. 32 5 Brynjólfur Markúss. ÍR 32 4 Guðjón Marteinss. ÍR 32 3 Viggó Sigurðsson Víkingi 32 TRENT KOMINN — Bjarni Gunnar Steinsson til vinstri á myndinni tók á móti Trent á Keflavíkurflugvelli í gær. Eins og sjá má á myndinni er Trent ekki mjög hávaxinn. Ferguson: Samningurinn sem Pétur Pétursson og hollenska stórliðið Feyenoord gerðu, vakti ekki aðeins athygli á íslandi og i Hollandi. 1 nýlegu eintaki af enska blaðinu Sports Guardian, er stuttlega spjallað við Mick nokkurn Ferguson. íslendingar og ekki sfst Skagamenn munu kannast við hann, því að henn þjálfaði lið ÍA eitt keppnistíma- bil, einmitt fyrsta sumarið sem Pétur Pétursson kom fram á sjónarsviðið. Ferguson tók síðan við stjórnvölunum hjá Rochdale, neðsta liðinu í 4. deild íEnglandi. Ferguson reyndi að fá Pétur til Rochdale og lét hafa það eftir sér í breskum blöðum, að hann hefði uppgötvað Pétur. I umræddu viðtalsbroti við Ferguson í Guardian, lýsir Fergu- son því yfir að Rochdale hafi naumlega beðið lægri hlut í kapphlaupi 3 félaga um að fá deadpan deliveTy that Rochdale of the Fourth Diviaion announced yesterday that they had narrowly lost a three club chase for an Icelandic inter- national . . . and that the other two clubs had been Ajax and Feyenoord. The player concemed, Petur ^Petursson is 19 and described 'as the hottest property in Ice- land. Enthusalst* there tip him as a future European Foot- baller of the Year. But, accord- ing to Rochdale’s manager, Mike Ferguaon, he very nearly came to set hls talents before the 1,200 dlehards of Spotland. Ferguson, who introduced Petursson to Icelandic League football with Akranea three years ago, said: “ I honestly thought I was golng to land him. We have remamed good friends and lt was only at the last minute that he chose Feyenoord rather than Roch- dale.” Pétur í sínar raðir. Hin félögin tvö hafi verið Ajax og Feyenoord! Síðan .segir Ferguson: „Ég hélt mér myndi takast að ná honum, við vorum ágætir félagar og það var ekki fyrr en á síðustu stundu, að hann ákvað að fara frekar til Feyenoord heldur en til Roch- dale“(!) Vera má að allt sé þetta rétt, en vera má einnig, að Ferguson hafi sagt þetta einungis til að koma Rochdale í fréttirnar, því að ekki aðeins er liðið jafnan neðst í 4. deild, heldur hefur liðið eitthvert lægsta meðaltal áhorfenda sem þekkist í Englandi. Hitt kemur flestum vafalaust spánskt fyrir sjónir, að stórefnilegur leikmaður skuli eiga erfitt með að gera upp hug sinn, hvort hann eigi meiri framtíð fyrir sér í 4. deildinni í Englandi, með lakasta liðinu, eða með einhverju sterkasta félagi Evrópu. Karfan um helgina: Stórleikur KR og Vals TVEIR leikir eru á dagskrá í úrvalsdeildinni í körfubolta um helgina, annar í Njarðvíkum, en hinn í Reykjavík. Stórleikur helgarinnar er viðureign Vals og KR f fþróttahúsi Ilagaskóla á sunnudaginn. Valsmenn töpuðu sfðasta leik sínum með miklum mun, en KR-ingar unnu hins vegar góðan sigur norður á Akureyri. Allt getur gerst og úrslitin skipta bæði liðin feikilega miklu máli. Njarðvfkingar eru gestfjafar Þórs frá Akureyri og á pappfrnum geta úrslitin f ljónagryfjunni aðeins orðið á einn veg. Leikir helgarinnar eru þessiri Laugardaguri Njarðvík 1. deild karla UMFG-Snæfell kl. 13.00 Narðvík 1. deild karla ÍBK-KFÍ kl. 14.30 Sunnudaguri Hagaskóli úrvalsdeild Valur—KR kl. 20.00 Njarðvík úrvalsdeild UMFN—Þór kl. 14.00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.