Morgunblaðið - 14.02.1979, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
37. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ayatollah Khomeini:
Það er synd gegn guði
að slíðraekki sverðin
Mehdi Bazargan (í ljósum
jakkafötum) hinn nýi for-
sætisráðherra heldur inn-
reið sína á nýja vinnustað-
inn í gær í fylgd með vopn-
uðum skæruliðum. Honum
á hægri hönd er Ibrahim
Yazdi, einn nánasti stuðn-
ingsmaður Ayatollah
Khoumeinis. (AP-síma-
mynd).
Baktiar handtekinn — ráðu-
neyti Bazargans fullskipað
Teheran — 13. febrúar — AP — Reuter
AYATOLLAIl Khomeini ávarpaði í kvöld æsta uppreisnarmenn í
sjónvarpi og atyrti þá harkalega fyrir að láta ekki skipast fyrst sigur
væri unninn í hinu heilaga striði. Hann skipaði þeim að leggja niður
vopn. og kvað það synd gegn guði, ef þcir hlýddu ekki fyrirskipunum
sínum. Bazargan forsætisráðherra skipaði í dag ráðuneyti, sem í eiga
sæti sjö menn. Þá tilkynnti stjórnin að Baktiar. fyrrverandi
forsætisráðherra. hefði verið tekinn höndum.
Þótt uppreisnarmenn hafi farið
með ránum, ofbeldi og gripdeild-
um, er ástandið í landinu smám
saman að færast í eðlilegra horf,
miðað við það sem verið hefur.
Haft er eftir áreiðanlegum heim-
ildum að óþekktir árásarmenn
hafi í dag hafið skothríð á bæki-
stöðvar Bazargans í Teheran,
skömmu eftir að forsætisráðherra
hinnar nýju stjórnar og utanríkis-
ráðherra, sem er Karim Sanjaby,
komu þar saman til fundar. Mun
enginn hafa særzt í árásinni, en
ráðherrarnir hröðuðu sér til aðset-
urs Khomeinis trúarleiðtoga.
I tilkynningu útvarpsins í dag
sagði að vopnaðir skæruliðar
hefðu handtekið Baktiar og hafi
hann síðan verið leiddur með
hundið fyrir augun til bústaðar
Khomeinis. Ekkert hafði spurzt til
Baktiars frá því að hann sagði af
sér í fyrradag, en áreiðanlegir
heimildarmenn segja, að
Bazargan, núverandi forsætisráð-
herra, hafi haldið yfir honum
hlífiskildi, en þeir eru gamlir
vinir. Baktiar var eindreginn
stuðningsmaður Þjóðarfylkingar-
innar, bandalags fyrrverandi
stjórnarandstöðuflokka, þar til
Reza Pahlevi skipaði hann forsæt-
isráðherra í síðasta mánuði.
Tvennum sögum fer af því hvaða
örlög biði Baktiars, en einn ráð-
herranna í hinni nýju stjórn sagði
í dag, að hann yrði kallaður til
ábyrgðar fyrir öll þau ódæði, sem
herinn hefði drýgt í stjórnartíð
hans.
Teheran-útvarpið skýrði frá því,
að sex hershöfðingjar hefðu verið
handteknir í dag. Greinilegt er að
stjórnin á fullt í fangi með að
hemja herinn, en í dag lét nýr
yfirhershöfðingi kalla út aukinn
liðsstyrk. Vopnaliðum á götum
Teheran hefur farið mjög fækk-
andi síðasta sólarhring, og er talið
að það megi þakka afskiptum
Khomeinis. Umferð er óðum að
færast í eðlilegt horf og í borginni
voru margar verzlanir opnar í dag.
Ráðizt var á byggingu bandarísku
upplýsingaþjónustunnar í Teheran
í dag, en Teheran-útvarpið tók
mönnum vara fyrir því að ónáða
þá útlendinga, sem í borginni eru.
Fjöldi ríkisstjórna hefur viður-
kennt stjórn Bazargans, þar á
meðal flest kommúnistaríki með
Sovétríkin í broddi fylkingar, svo
og Bretland. Bandaríkin hafa enn
ekki viðurkennt stjórnina form-
lega, en sýnt þykir að slík viður-
kenning sé á næsta leiti.
Stjórnin í Washington lýsti því
yfir í dag, að hún hefði verulegar
áhyggjur af því að stjórn Bazargans
tækist ekki að halda uppi stjórn í
landinu. Carter forseti hefur sent
hinni nýju stjórn boð um að Banda-
ríkjamenn hafi áhuga á að koma á
„friðsamlegri samvinnu" milli ríkj-
anna, og kvað Hodding Carter, tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins undirtektir við þeirri mála-
leitan lofa góðu um framhaldið.
Vloshe Dayan:
Ohjákvæmilegt að
taka tillit til PLO
Jerúsalem — 13. febrúar — Reuter.
í STJÓRNARIIERBÚÐUNUM í ísrael varð uppi fótur og fit er Moshe Dayan utanríkisráðherra lýsti því
yfir í dag, að ekki yröi hjá því komizt að taka tiilit til PLO í sambandi við friðarsamninga í
Miðausturlöndum. Menachem Begin. forsætisráðherra lýsti því afdráttarlaust yfir í kvöld. að þessi
ummæli utanríkisráðherrans þýddu á engan hátt breytingu á stefnu stjórnarinnar gagnvart PLO.
Hefur utanríkisráðherrann síðan
sagt að það hafi ekki verið ætlun
sín að draga taum PLO, heldur hafi
hann átt við að PLO þvældist fyrir
Aröbum í samningaviðræðum.
Þetta er í fyrsta sinn, sem háttsett-
ur ráðamaður lætur orð falla í þá
átt að taka þurfi mark á PLO sem
aðila að deilunum í Miðausturlönd-
59 létu lífið í eldflaugarárás
skæruliða Nkomos á farþegavél
Salisbury — 13. febrúar. — AP — I Nkomo, sem nú er staddur í I Hann var reyndar ekki farþegi í I tak vélarinnar, sem skotin var niður.
Reuter
RAUÐUR skór af barni, framhand-
leggir konu, jakki, seðlaveski og
flugvélarstélið voru það eina heil-
lega, sem fannst í flaki Vis-
count-farþegavélarinnar er
skæruliðar Nkomos skutu niður
með cldflaug í Rhodesíu í gær-
kvöidi. 59 manns, eða allir sem í
vélinni voru, létu lífið. Atburðurinn
átti sér stað skammt frá landamær-
um Zambíu, á sömu slóðum og sams
konar árás var gerð á aðra farþega-
vél í septembermánuði s.l., þar sem
48 manns létu lífið, en af þeim 18
sem af komust myrtu skæruliðar
síðan tíu.
Árásin hefur vakið mikla reiði í
Rhodesíu og hefur bráðabirgða-
stjórnin í landinu heitið því að
koma fram hefndum á skæruliðun-
um, scm hafa bækistöðvar sínar í
Lusaka.
Nairobi, kvaðst telja, að skæruliðar
hefðu ætlað að drepa æðsta yfir-
mann Rhodesíuhers, Peter Walls.
vélinni, heldur lagði hann af stað
með annarri vél frá Kariba til
Salisbury skammri stundu eftir flug-
Síðan í september hefur
Rhodesíu-her lagt í rúst að mim.sta
kosti 13 bækistöðvar skæruliða í
Zambíu, og ætla má að þar hafi látið
lífið um tvö þúsund þeirra tíu
þúsund skæruliða, sem talið er að
herji á Rhodesíu frá Zambíu.
Talið er víst að Viscount-vélin hafi
steypzt niður í ljósum logum og hafi
hún sprungið í loft upp um leið og
hún stakkst á nefið. Mikill eldur
logaði í brakinu sex stundum eftir að
vélin kom niður, og rúmum sólar-
hring síðar rauk enn úr brakinu.
Ekki var hafizt handa við að ryðja
svæðið þegar síðast fréttist.
Þannig var umhorfs þar sem
Viscount-vélin splundraðist eft-
ir að skæruliöar skutu hana
niður með eldflaug. (AP-síma-
mynd).
„Þetta eru ekki bara hryðju-
verkasamtök," sagði Dayan í ræðu
sinni á fundi uppgjafarhermanna.
„Þetta eru líka samtök venjulegra
borgara, það er að segja pale-
stínskra flóttamanna. Enginn, og
allra sízt við, látum okkur til hugar
koma að hægt sé að leysa deiluna í
Miðausturlöndum til frambúðar, án
þess að flóttamannavandamálið
verði leyst,“ sagði hann orðrétt.
Likud-menn og aðrir harðlínumenn
í Israel hafa gagnrýnt Dayan harð-
lega, og segja að hér sé ekki sízt um
alvarlegt athæfi að ræða þar sem
komið sé að nýjum Camp Dav-
id-fundi.
Ný viðhorf í
máli Bhuttos?
Rawalpindi — 13. febrúar. — AP.
LÖGFRÆÐINGAR Ali Bhuttos hafa
beint því til hæstaréttar i Pakistan
að frestað verði aftöku hans á
grundvelli nýrra sönnunargagna í
morðmálinu, sem líflátsdómur hans
gekk í. Segir verjandi Bhuttos að
helzta vitnið gegn honum hafi átt
eigin hagsmuna að gæta í málinu og
haft ríka ástæðu til að stuðla að því
pólitíska morði sem framið var fyrir
fimm árum, en Bhutto var dæmdur
fyrir. Verði frestunarbeiðnin ekki
tekin til greina er sennilegt að
Bhutto verði hengdur í dagrenningu
á fimmtudaginn.