Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979 Kvikmyndagerðarmenn hætta þátt- töku í kvikmyndahátíð Listahátíðar FÉLAG kvikmyndagerðarman'na samþykkti á fundi sinum í fyrra- kvöld tillögu þess efnis að þeir tækju ekki þátt í fyrirhugaðri kvikmyndahátíð á vegum Listahá- tíðar í Reykjavfk, þar sem ekki hefði verið komið til móts við óskir fáiagsins um að fá að tilnefna fulltrúa sína í undirbúningsnefnd kvikmyndahátfðarinnar, Ifkt og verið hefði þegar kvikmyndahátfð var hér fyrst haldin. Formaður félagsins og formaður fram- kvæmdastjórnar Listahátfðar sögðu hins vegar f samtali við Mbl. f gær að verið væri að vinna að því að leysa þetta mál og töldu góðar horfur á að það tækist. Framkvæmdastjórn Listahátíðar í Reykjavík tilnefndi sjálf fulltrúa í nefnd þá sem ætlað er að vinna að undirbúningi fyrir væntanlega kvik- myndahátíð og úr röðum kvik- myndagerðarmanna sjálfra var Þor- steinn Jónsson, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna, tilnefndur í nefndina. Meðal félagsmanna í félagi kvikmyndagerðarmanna kom fljótlega í ljós megn óánægja með þessa breyttu tilhögun, því að við undirbúning fyrstu kvikmyndahátíð- arinnar hafði félaginu verið gefinn kostur á að tilnefna tvo fulltrúa sína í nefndina sem vann að því að koma þeirri hátíð á laggirnar. Var þá á SigurAur Sverrlr Þorsteinn félagsfundi hjá kvikmyndagerðar- mönnum samþykkt að leita skýringa á þessum breyttu starfsháttum hjá Listahátíð og ef fullnægjandi niður- staða fengist ekki skyldi skorað á formann félagsins að segja sig úr nefndinni. Á fundinum í fyrrakvöld var málið tekið fyrir að nýju og urðu miklar umræður meðal fundarmanna um það. Létu menn í ljós óánægju með þær skýringar sem höfðu borizt frá framkvæmdastjórn Listahátíðar og var að lokum samþykkt tillaga um að félagið tæki ekki þátt í kvik- myndahátíðinni. Kom fram í máli einstakra fundarmanna, að dygði þetta ekki til að fá framkvæmda- stjórn Listahátíðar til að endurskoða afstöðu sína skyldi leitað víðtækari stuðningsaðgerða, til að mynda hjá Bandalagi ísl. listamanna, sem félag- ið á aðild að, og meðal fagfélaga NjörAur erlendra starfsbræðra, svo sem á Norðurlöndum, sem íslenzkir kvik- myndagerðarmenn hafa nána sam- vinnu við. Morgunblaðið sneri sér til Sigurð- ar Sverris Pálssonar, sem var einn þeirra sem stóð að framangreindri tillögu, sem samþykkt var samhljóða á fundinum. „Við fengum þau svör frá Listahátíð þegar við óskuðum eftir því að framkvæmdastjórnin endurskoðaði afstöðu sína, að félag kvikmyndagerðarmanna væri ekki aðili að Listahátíð og af hálfu hennar væri ekki litið á það sem fordæmi, enda þótt þessi háttur hefði verið hafður á síðast," sagði Sigurður Sverrir. „Við höfum að vísu óskað eftir aðild að Listahátíð en hins vegar veit enginn hvenær sú umsókn verður tekin fyrir nema hvað það verður einhvern tíma í vor. Þessu teljum við okkur ekki geta unað, þannig að ef ganga á fram hjá félaginu algjörlega, þá teljum við það hreina lítilsvirðingu við félagið og íslenzka kvikmyndagerð og ætlum okkur því ekki að taka þátt í hátíð- inni. En við væntum þess að málið verði leyst svo að til þessa komi ekki í reynd.“. Þorsteinn Jónsson, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann teldi þessa samþykkt félagsins hafa verið ótímabæra. „Ég hef verið að vinna að lausn þessa máls og tel hana vera á leiðinni, þannig að unnt verði að aflétta þessu banni á hátíð- inni núna á næstunni," sagði Þor- steinn. Hann kvaðst á fundinum hafa lýst því yfir að hann mundi segja sig úr nefndinni ef fyrirsjáan- legt yrði að íslenzk kvikmyndagerð gæti ekki verið með á hátíðinni. „Síðan hefur það gerzt að ég hef átt viðræður við Njörð P. Njarðvík, formann framkvæmdastjórnar Listahátíðar, og við teljum okkur eygja möguleika á samkomulagi." Njörður P. Njarðvík, formaður framkvæmdastjórnar Listahátíðar, sagði þegar Mbl. leitaði umsagnar hans: „Mér þykir þetta heldur leiðin- leg samþykkt hjá þeim kvikmynda- gerðarmönnum og bera vott um hvort tveggja í senn — misskilning og óþolinmæði. Framkvæmdastjórn Listahátíðar hefur tvívegis skrifað Félagi kvikmyndagerðarmanna bréf þar sem hún hefur sagt að hún væri fús til að endurskoða afstöðu sína til þessarar undirbúningsnefndar kvik- myndahátíðar en okkur finnst við eiga dálítið óhægt um vik með að láta félagið tilnefna fulltrúa í nefnd- ina á þessari stundu, þar sem félagið á ekki aðild að Listahátíðinni. Nú hafa kvikmyndagerðarmenn hins vegar sent inn umsókn um aðild og ég geri ráð fyrir því að hún verði samþykkt á næsta fulltrúaráðsfundi og þá horfir málið allt öðru vísi við. Þessi undirbúningsnefnd er í raun- inni eins konar undirnefnd fram- kvæmdastjórnar Listahátíðar og það er framkvæmdastjórnin sem slík sem ber alla ábyrgð á kvikmynda- hátíðinni. Hins vegar vonast ég til þess að unnt verði að finna lausn á þessu máli.“ Karmv hátíb tsýnc ótel Söfju Súl nnudamnn í Kl. 19.00 Húsiö opnað. Hressandi svalardrykkir og lystaukar á barnum Kl. 19.30 Kjötkveöjuhátíöin hefst stundvíslega meö Brochette d’agneau grillée Careme. undir stjórn franska matreiöslu- meistarans Francois Fon’s. Matarverð aðeins kr. 3.500,- Lúðrasveit undir stjórn Lárusar Sveinssonar leik- ur Karnival lög og létta tónlist. SKEMMTIATRIÐI: Myndasýning: Forstjóri Útsýnar sýnir nýjar litmyndir frá sólarlöndum. Jóhanna Sveínsdóttir söngkona og Jónas Þórir Þórisson fflytja létt lög. Danssýning: Sigurvegarar á forkeppni diskó danskeppni Útsýnar og Klúbbs- ins 25.2 í hópdönsum og para- dansi sýna diskódans. BINGO 3 Útsýnarferöir Fegurðar- samkeppni: Ljósmyndafyrirsætur Útsýnar. Stúlkur 17—22 ára valdar úr hópi gesta. 10 Útsýnarferöir í vinning. Forkeppni. Tízkusýning Módelsamtökin sýna undir stjórn Unnar Arngríms- dóttur. Hópferðir ÚTSÝNAR 1979 kynntar. Dans til kl. 01.00 Hin hressilega og bráðskemmtilega hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt söngkonunni Þuríði Sigurðardóttur leika fjölbreytta tónlist viö allra hæfi. Allar dömur fá gjafarsýnis- horn af frönskum ilmvötnum frá „Nina Ricci“ og Nitchewo/ og fyrir herra „Gainsborough". Allir matargestir fá Karni- val-hatta. Missið ekki af glæsilegri skemmtun og möguleikum á ókeypis Útsýnarferð. Allir velkomnir enginn aðgangseyrir aóeins rúllugjald en tryggið borð tímanlega hjá yfir- Þjóni í síma 20221 frá kl. 15.00 á fimmtudag. ATH .Allir gestir, sem koma fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happdrmttismiöa. Vinningur Utsýnarferö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.