Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979
Álafoss kynnir nýjungar:
1979“ en kynnt er nú ný lína
undir nafninu „Alafoss
Breeze". Er þar um að ræða
fatnað sem prjónaður er og
ofinn úr mun þynnra þandi
en hingað til hefur verið
notað í íslenzkan fatnað.
Fram til þessa hefur fram-
leiðslan einkum verið á sviði
vetrarfatnaðar og verkefni
því nokkuð árstímabundin
en fatnaðurinn í hinni nýju
línu er fyrst og fremst
ætlaður fyrir vor- og sumar-
markað og kvaðst Pétur vona
að með þessari nýjung væri
hægt að brúa að nokkru
verkefnalítið tímabil sem er
jafnan í ársbyrjun áður en
pantanir berast í vetrar-
flíkur. Hönnuður Álafoss,
Eva Vilhelmsdóttir, hefur
verið valin til að taka þátt í
keppni meðal fatahönnuða á
Norðurlöndum um bezt
hönnuðu flíkina 1979, en hún
er ein af níu þátttakendum í
keppninni.
Útflutningur Álafoss er nú
um 45% af heildarullarvöru-
útflutningi landsins að sögn
forráðamanna fyrirtækisins
en helztu markaðir eru
Bandaríkin, Kanada,
Norðurlönd, Vestur-Evrópa
og Japan en alls var flutt til
28 landa á síðasta ári. Fyrir-
tækið gefur árlega út lit-
prentaðan kynningar-
bækling og er honum að
þessu sinni dreift í 25 þúsund
eintökum meðal viðskipta-
vina fyrirtækisins.
Ráðgera að flytja út fyrir
um 4 milljarða á þessu ári
UM þessar mundir eru
liðin 10 ár frá því Álafoss
hóf að flytja út ullar-
fatnað og nam út-
flutningur á árunum
1968 — 1969 tæpum 4
milljónum króna en var á
síðasta ári 2 milljarðar
og mun á þessu ári verða
um það bil 4 milljarðar
króna eftir því sem for-
ráðamenn Álafoss upp-
lýstu á fundi með frétta-
mönnum þar sem kynnt
var starfsemi og sýnd
framleiðsla
fyrirtækisins.
Pétur Eiríksson fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
sagði að saga framleiðslu
fatnaðar úr ull til út-
flutnings væri ekki löng, hún
væri að vísu þekkt sem
heimilisiðnaður í margar
aldir, en það hefði ekki verið
fyrr en um síðustu aldamót
að menn tóku að huga að
þessari grein að marki. Ála-
foss var sett á stofn skömmu
fyrir aldamót, en hefði á
árunum eftir 1960 hafið
framleiðslu á ullarbandi til
vélprjóns og hafið útflutning
fyrir um 10 árum sem áður
er getið.
Að þessu sinni kynnir
verksmiðjan nýjung og nýjar
flíkur í „Álafoss línunni
Fatnaðurinn er ýmist
hannaður af hönnuðum
fyrirtækisins þeim Evu
Vilhelmsdóttur og Guðrúnu
Gunnarsdóttur, þekktum
erlendum hönnuðum eða af
starfsfólki prjóna- og
saumastofa víðs vegar um
landið, sem framleiða fatnað
sem Álafoss flytur út. Auk
prjóna- og saumastofu Ála-
foss h/f er nú u.þ.b. 20
prjóna- og saumastofur sem
framleiða fatnað úr hráefn-
um frá Álafoss h/f og Ála-
foss h/f selur og flytur út
fyrir, en hjá þessum fyrir-
tækjum vinna u.þ.b. 400
manns, en fast starfsfólk hjá
Álafoss h/f er um 300
manns.
Frumvarp forsætisráðherra:
BSRB hafnar vísitölu-
ákvæðum frumvarpsins
STJÓRN BANDALAGS starfsmanna ríkis og bæja heíur sent forsætisráðherra umsögn sína um frumvarp
hans um efnahagsráðstafanir og lýsir handalagið yfir stuðningi við fyrsta kafla þess, þar sem fjallað er um
markmið frumvarpsins. Hins vegar telur BSRB ekki að setja eigi samráð ríkisstjórnar og aðila
vinnumarkaðarins í lög og mótmadir ákvæðum um að kjaramálaráð eigi að leggja grundvöll að
ákvarðanatöku á sviði kjaramála. Með því sé þrengt að frjálsum samningsrétti.
Bandalagið er algjörlega á móti
því, að skattar og niðurgreiðslur
séu teknar út úr vdsitölu og að
greiðslu verðbóta á laun 1. júní, 1.
september og 1. desember 1979
umfram 5% verði frestað í 9
mánuði frá hverjum framan-
greindra daga. Á hinn bóginn
getur BSRB á það fallizt að sama
regla gildi um alla skatta við
vísitöluútreikning. Þannig verði
beinir skattar teknir inn í vísitölu-
grundvöllinn, en svo var það áður
fyrr.
Bandalagið sér ekki ástæðu
til að gera breytingar á útreikn-
ingi áfengis og tóbaks í vísitölu frá
því sem nú er.
Bandalagið getur og ekki fallizt
á að grunntalan 100 verði sett á
vísitöluna við útreikning hennar
hverju sinni, en segist hafa lýst
því yfir, að það télji að til greina
komi að taka upp viðskiptakjara-
vísitölu og gæti grundvöllur henn-
ar og útreikningsaðferð orðið eitt-
hvað í líkingu við það, sem sett
hefur verið fram í vísitölunefnd af
formanni hennar. Aftur á móti
getur bandalagið ekki fallizt á þá
tímasetningu, sem sett er fram í
45. grein. Verði viðskiptakjaravísi-
tala tekin upp, þá þarf að semja
um viðmiðunartíma og gildistíma
slíkrar ákvörðunar milli
samningsaðila. Þá segist BSRB
vera fylgjandi hlutfallslegri breyt-
ingu verðbóta eins og fram kemur
í 46. grein, en ítrekar mótmæli
gegn því að núverandi vísitöluþak
háldist áfram í grunni eins og gert
er ráð fyrir í ákvæðum til bráða-
birgða.
Þá lýsir BSRB því að það sé
hlynnt stofnun sérstakrar vinnu-
málastofnunar, en telur að væn-
legri til árangurs sé að stofnunin
verði sjálfstæð í stað þess að vera
deild í félagsmálaráðuneytinu eins
og frumvarpið gerir ráð fyrir. Loks
lýsir BSRB andstöðu sinni við að
flýtt sé gildistöku frumvarps um
verðlagsmál og minnir á að það
hafi, þegar það veitti umsögn um
það frumvarp, verið á móti því.
Hafi sú skoðun ekki breytzt.
fE
Marty Feldman með stór-
stjörnum í Laugarásbíói
Laugarásbió byrjar nú sýning-
ar á gamanmyndinni Síðasta
endurtaka á Beau Geste sem
brezki gamanleikarinn Marty
Feldman hefur samið, leikstýrir
og fer mað aðalhlutverkið í.
Fjöldi stjórstjarna leggur þarna
hönd á plóginn með Marty, svo
sem Ann-Margaret, Michael York,
Peter Ustinov, James Earl Jones,
Trevor Howard, Terry Thomas og
Spik Milligan, svo einhverjir séu
nefndir.
Myndin er gamansöm útgáfa af
þeirri margendurteknu Holly-
wood-mynd Beau Geste í út-
lendingaherdeildinni og fetar
söguþráðurinn í aðalatriðum í
fótspor upphaflegu myndarinnar
en með handbragði Marty Feld-
man að sjálfsögðu.