Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979 47 Frá Ágústi Inga Jónssyni á Spáni: ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik þuríti alls ekki stórleik til þess að sigra Holland í B-keppninni í Barcelona í gær- kvöldi. En það þurfti hins vegar talsvert átak til þess að vinna þá með meira en 10 marka mun, sem þýddi að leikið yrði um 3.-4. sætið í keppninni. Þetta tókst strákunum í gær og þeir gerðu gott betur, því úrslit í leiknum urðu 28—14, eftir að staðan hafði verið 11 — 5 í leikhléi. Slíkur sigur vinnst ekki nema liðsheild- in sé öll að verki en Viggó Sigurðsson stóð sig þó öllum öðrum betur í þessum leik og sannarlega hefur þessi ákafi Vík- ingsleikmaður blómstrað í keppn- inni hér á Spáni. ísland tók strax afgerandi for- ystu í leiknum í gærkvöldi og eftir 12 mínútur var staðan orðin 6—1, þrátt fyrir að liðinu urðu á mistök í byrjun, vítakast frá Axel var varið og sóknirnar gengu ekki upp. Hægt og bítandi jókst munurinn Viggó Sigurðsson heíur átt mjög góða leiki með íslenska landsliðinu íhandknattleik íB-keppninni á Spáni. Heíur Viggó skorað mikið aí mörkum og verið mjög ógnandi í sóknarleiknum. Hér sést Viggó svíía inn úr teignum og skora örugglega íramhjá markverðinum. Hollendingar teknir í kennslustund ísland leikur um 3.-4. sætið á föstudag og var mestur 11—4, en Hollend- ingar áttu síðasta orðið í hálf- leiknum og staðan því 11—5 í leikhléi. ísland fékk sjö vítaköst í fyrri hálfleiknum en Holland tvö og Ólafur Benediktsson varði ann- að þeirra. Þriðja eða fjórða sætið hér í keppninni á Spáni þýðir í raun og veru að viðkomandi lið er 10. eða 11. besta handknattleikslið í heim- inum í dag. Eitthvað hlýtur ís- lenska liðið að hafa verið sér meðvitandi um þetta, er seinni hálfleikurinn hófst og lék nú enn betur en í fyrri hálfleiknum. Viggó Sigurðsson var tekinn úr umferð í síðari hálfleiknum^)g um tíma var sóknarleikurinn þung- lamalegur vegna þess en leikið var af skynsemi og sóknarloturnar héldu áfram að ganga upp. Hol- lendingar hættu um miðjan hálf- leikinn að elta Viggó. Ólafur Vík- ingur Jónsson var notaður allan seinni hálfleikinn og var hann EINN leikur fór fram í bikar- keppni HSÍ í gærkvöldi. Léku Fylkir og Þróttur í 16 liða úrslit- um keppninnar. Fylkismenn sigruðu örugglega með 28 mörkum gegn 21. Staðan í leik- hléi var 15 — 9 Fylki { hag. Leikurinn var frekar illa leikinn af báðum liðum og var sem leikmenn hefðu takmarkaðan áhuga á verkefninu. Fylkismenn voru þó öllu líflegri og voru allan timann betra liðið. Mesti munur á liðunum var 9 mörk, 20—11. mjög atkvæðamikill eins og Bjarni Guðmundsson hafði verið í fyrri hálfleiknum. Þegar munurinn var orðinn 11 mörk 19—8, og hálfleik- urinn hálfnaður höfðu menn á orði í blaðamannastúkunni að nú væri rétt að flauta leikinn af, en leik- menn íslenska liðsins voru ekkert á því og voru ákveðnir í að vinna enn stærra. Þeir lengdu nú sóknar- loturnar þegar hér var komið sögu og spiluðu stíft upp á markið og engan bilbug var að finna á ís- lensku leikmönnunum. En það sama verður ekki sagt um Hol- lendingana, sem voru orðnir úr- vinda af þreytu. Úrslitin urðu 28—14, sætur sigur og sannarlega kærkominn fyrir íslenskan hand- knattleik. Viggó Sigurðsson gerði átta mörk í þessum leik, þar af þrjú úr vítaköstum, en fyrir utan mörkin fékk Viggó vítaköst í þessum leik sem hann tók sjálfur eða Axel Axelsson og átti Viggó einnig Varnarleikur og markvarsla beggja liða var hálfslök, þó sér- staklega hjá Þrótti. Erfitt er að gera upp á milli leikmanna Fylkis, voru þeir allir jafnir og enginn skar sig úr. Hjá Þrótti var Konráð Jónsson bestur og skoraði flest mörk eða átta. Mörk Fylkis skoruðu Gunnar Baldursson 7, Magnús Sigurðsson 6, Einar Ágústsson 5, Einar Einarsson 4, Sigurður Símonarson 3 og Guðni Hauksson 2. margar frábærar línusendingar. Það hefur verið stórkostlegt að fylgjast með Viggó í þessari keppni, ekkert hnoð hefur verið, en það hefur oft fylgt honum, og meira hefur verið leikið fyrir liðið en oftast áður. Að vísu datt hann niður í meðalmennskuna í lok leiksins við Tékka og ekkert betri en aðrir á móti Israel en eigi að síður er þetta keppnin hans Viggós. Hann hefur skorað 26 mörk í leikjunum fjórum hér á Spáni og er langmarkhæstur í íslenska liðinu. Hornamenn ís- lenska liðsins voru drjúgir í leikn- um í gær eins og áður í ferðinni. Bjarni Guðmundsson gerði fjög- ur mörk í leiknum og það telst til tíðinda, að eitt þeirra var úr langskoti. Ólafur Víkingur Jóns- son gerði tvö mörk úr horninu. Þeir Arni Indriðason og Ólafur H. Jónsson stóðu sig báðir mjög vel og gerði Ólafur þrjú mörk en það var einkum í varnarleiknum sem þessir leikmenn nutu sín og báru hita og þunga dagsins. Ekki má gleyma Ólafi Bene- diktssyni markverði íslenska liðs- ins sem stóð í markinu allan tímann og varði 17 skot og var þetta besti leikurinn hans í ferð- inni. Þá áttu Páll Björgvinsson og Jón Pétur ágætan leik. Mörk íslenska liðsins skoruðu: Viggó 8 (3v), Axel 5v, Bjarni 4, Ólafur H. 3, Ólafur J. 2, Jón Pétur 2, Páll B. 2, Steindór 1, Árni I. 1. Leikmönnum liðsins var vikið af velli í fjórar mínútur í leiknum, Hollendingunum sömuleiðis. Þeir sem hvíldu í leiknum voru Þorbjörn Guðmundsson og Þor- björn Jensson, Erlendur Her- mannsson og Jens Einarsson. Sagt eftir leikinn í gærkvöldi Viggó Sigurðsson: Ég er mjög ánægður með þennan góða árang- ur minn í ferðinni, sem ég þakka góðum þjálfara minum í Víkingi, Bodan, sem hefur kennt mér að leika agaðan handknattleik. Jón Pétur Jónsson: Ég er virki- lega óhress með hve lítið ég var notaður í þessum leik. Ég er alveg góður af þeim meiðslum sem ég hef hlotið og get því beitt mér að fullu. Hollensku leikmennirnir eru hálfgerðir kettlingar og því ekki að marka þann mikla mun sem við unnum þá með. Þeir hafa hrein- lega ekki úthald í fjóra leiki í svona keppni. Páll Björgvinsson: Þetta sýnir getu liðsins ef á þarf að halda. Nú fékk ég að vera með í varnarleikn- um á réttum stað og fann mig mun betur en áður og er ánægður með útkomuna. Ólafur H. Jónsson: Svona leikjum höfum við klúðrað niður, en við gerðum okkur grein fyrir stöðunni. Við verðum að vera raunsæir og viðurkenna að Spán- verjar eru með betra lið en við. Leikurinn við Israela olli mestum vonbrigðum í þessari ferð. En við höfum sýnt að íslenska liðið er enn með í alþjóðlegum handknattleik. Adalfundur KDR Knattspyrnudómarafélag Reykjavíkur heldur fram- haldsaðalfund sinn í Krist- alsal Hótel Loftleiða 8. mars n.k. og hefst fundurinn kl. 20.00. Stjórn KDR. Fylkir tór létt með Þróttara "i is-m leika íkvöld EINN leikur fer fram í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í kvöld. ÍS og ÍR leika í fþróttahúsi Kennara- háskólans og hefst leikurinn kl. 20.00. Strax að leiknum loknum leika sömu lið í 1. deild kvenna. A-námskeið hjá KSÍ TÆKNINEFND KSÍ gengst fyrir A-námskeiði fyrir knattspyrnuþjálfara dag- ana 2.-5. mars n.k. Enn er möguleiki á að komast að á námskeiðinu. Allar upplýs- ingar eru véittar á skrif- stofu KSÍ. Krankl skorar og skorar Hansi Krankl. austurríski landsliðsmaðurinn í knatt- spyrnu, sem leikur með spænska liðinu Barcelona, skoraði þrennu er lið hans vann 3—0 sigur á Hercules frá Alicante í spænsku deild- arkeppninni um helgina. Krankl hefur verið á skot- skónum í vetur og er nú markhæsti leikmaðurinn á Spáni með 23 mörk. Quimi sem leikur með Gijons kem- ur þar næstur með 18 mörk. Santiliana hjá Real Madrid hefur skorað 16 mörk. Afturelding á móti KR EINN leikur fer fram í 16 liða úrslitum bikarkeppni HSÍ í kvöld. Afturelding leikur við ÍR að Varmá í Mosfellssveit og hefst leik- urinn kl. 20.30. Stóll fyrir dyr Real! Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur sett stólinn fyrir dyr Real Madr- id, en spænska stórliðið ætl- aði sér að halda myndarlegt 4 —liða mót til minningar um hinn nýlega látna for- seta félagsins Santiago Bernbeu. Ajax frá Hollandi, Bayern Munchen frá Vest- ur-Þýskalandi og AC Mflanó frá Ítalíu hafði verið boðin þátttaka og öll kváðu já við og ætluðu að mæta í slaginn. Forráðamenn UEFA halda því fram, að þeir einir hafi vald til að koma á fót keppn- um sem þessum, a.m.k. eigi að hafa fullt samráð við UEFA. s ! s I \ X 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.