Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979
31
greiddan af kaupfélögum, í nafni
baenda, að þeir hefðu sjálfir óskað
eftir því.
Félagsfrelsi og
rekstrarform
Finnur Torfi Stefánsson (A), sagði
að þrátt fyrir stjórnarskrárákvæði
um félagafrelsi væri í íslenzkri
löggjöf heilir lagabálkar og fjölmörg
ákvæði um félög og félagastarfsemi.
Löggjöf sem slík brýtur ekki á móti
félagafrelsi. Það er iðulega svo, að
það er þörf þess, vegna hagsmuna
félagsmanna sjálfra, að setja lög um
félagið. Þannig sé það t.d. með
hlutafélög. Hlutafélagalöggjöfin er
auðvitað ekki skerðing á félagafrelsi.
Nákvæmlega eins er þetta með
samvinnufélögin. Þar er verið að
skapa samvinnufélögum tiltekin
réttindi. Það eru í gildi í dag lög um
samvinnufélög, sem kveða m.a. á um,
hvernig á að skipa og kjósa í stjórn
KÍS. Þessum lagaákvæðum verður
ekki breytt nema með lagafrumvarpi
hér á Alþingi. Þetta veit og skilur
hver heilvita maður, hvern veg sem
hann rangtúlkar tilgang frumvarps
míns, sem er sá einn að auka
lýðræði, áhrif hins almenna félags-
manns, í samvinnuhreifingunni, en
ekki að setja henni sem slíkri neinar
skorður. Gera verður og skýran mun
á rekstrarformi (samvinnrekstri)
annarsvegar og stéttarfélagi hins
vegar í þessu sambandi.
Misnotkun á
kaupfélögum_______________
Jónas Árnason (Abl) spurði,
hvern veg mönnun gæti dottið í hug
að fara með hálfkveðna vísu um
„tengsl samvinnuhreifingar og
sjúklingar úr Hafnarfirði áttu
hlut að máli.
Stuttu eftir að rannsóknarlög-
regla ríkisins tók til starfa var
málið framsent henni til
meðferðar. Vegna veikinda þess
rannsóknarlögreglumanns sem
falin var rannsókn málsins dróst
það nokkuð að rannsókn hæfist af
fullum krafti. Það gerðist hins
vegar um áramót 1977/‘78 og hafa
2 rannsóknarlögreglumenn unnið
við hana að staðaldri m.a.s. unnu 4
menn að henni á tímabili.
Gögn hafa þegar borizt frá
öllum sjúkrasamlögum á landinu
og hafa þegar verið yfirheyrðir 265
sjúklingar af þeim tæplega 1200
sem við sögu koma. Máli þessu
fylgir að auki gífurlegur skjala-
fjöldi og mikil vinna hefur farið í
það að bera saman reikninga við
aðgerðarbækur og dagbækur
læknisins. Á þessu stigi málsins er
ekki hægt að gera sér grein fyrir
því hvenær rannsókn þess lýkur.
Til samanburðar er rétt að
greina frá því hér að nú mun
nýlokið í Danmörku rannsókn á
hliðstæðu máli þar sem sér-
fræðingur var staðinn að því að
senda ranga reikninga til sjúkra-
samlags. Mun sú rannsókn hafa
tekið 2 ár og við hana unnu að
staðaldri 5 rannsóknarlögreglu-
menn.
8. Alþýðubankamál
Mál þetta er til meðferðar hjá
sakadómi Reykjavíkur. Það var
dómtekið 26. f.m. og er dóms að
vænta innan skamms.
9. Finansbankamál
Ekki er með fullu ljóst við hvaða
mál fyrirspyrjandi á þegar hann
spyr um „Finansbankamálið". Eigi
hann við rannsókn á meintu
gjaldeyris- og skattsvikum þeirra
sem innistæður áttu í Finansbank-
en í Danmörku þá er því til að
svara að hér er að sjálfsögðu um
fleiri en eitt mál að ræða.
Mál þessi bárust rannsóknar-
deild ríkisskattstjóra í desember
1977. Með bréfi, dags. 19. janúar
1978, skýrði gjaldeyrisdeild Seðla-
banka íslands ríkissaksóknara frá
því að þessi mál væru til rann-
sóknar hjá rannsóknardeild ríkis-
skattstjóra. Síðan hefur sak-
sóknari fylgst með gangi rann-
sóknarinnar hjá skattrannsóknar-
stjóra, en hefur talið rétt að bíða
þess að öll málin væru afgreidd frá
Framsóknarflokks". Eða dottið í
hug, algerlega tilhæfulaust, að um
misnotkun á kaupfélögum sé að
ræða. Enda þótt ýmsar tilviljanir
berji að dyrum, eins og t.d. að bann
var sett við sölu Þjóðviljans í til-
teknum kaupfélögum, eða að Tíman-
um var dreift eins og nauðsynjavöru
og innheimt fyrir hann eins og
nauðsynjavöru. Já þetta er að sjálf-
sögðu tilviljun, að það skyldi ekki
vera Tíminn sem var bannaður í
þessum kaupfélögum.
Enn ein tilviljun. Ung efnileg
stúlka skipaði 3. sætið á lista Fram-
sóknarfl. í vor. Einum, eða tveimur
mánuðum fyrir kosningar kemur
heilsíðuauglýsing í málgagni Fram-
sóknarfl. í kjördæminu (Vestur-
landskjördæmi) þess efnis, að þessi
unga stúlka sé tekin við Samvinnu-
tryggingum fyrir Snæfellsnes, og
ekki aðeins Samvinnutryggingum
heldur líka Samvinnuferðum, og
allir þeir, sem þurfi að athuga
eitthvað varðandi tryggingar og
ferðir, geri svo vel að snúa sér til
hennar. Já, heilsíðuauglýsing, rétt
fyrir kosningar, og ekki í neinu öðru
blaði en flokksblaði Framsóknar í
kjördæminu. Skrítin tilviljun þetta.
Ljúfustu menn stjórnar í Kaup-
félagi Borgfirðinga, sagði Jónas. En
sums staðar gengur þetta kaup-
félagavald svo fram af mönnum, að
þeir fyllast uppreisnarhneigð. Eg
veit t.d. um eitt kaupfélag fyrir
norðan, þar „seni menn gerðust
íhaldsmenn vegna ofríkis kaup-
félagsins"! „Það væri hræsni að
halda öðru fram en því, að Sam-
vinnuhreyfingin er komin óralangt
frá eðli sínu, fyrst og fremst siðferði-
lega séð, frá þeim hugmyndum, sem
upphafsmenn hennar hér á landi
grundvölluðu starf hennar á.
skattyfirvöldum áður en tekin
væri ákvörðun um það hvort mál
yrði höfðað á hendur reiknings-
eigendunum. Nú mun rannsókn
22ja mála vera lokið hjá skatt-
rannsóknarstjóra, en u.þ.b. 30 mál
eru þar enn til meðferðar.
Með bréfi, dags. 6. marz 1978, fór
Seðlabanki Islands þess á leit við
rannsóknarlögreglu ríkisins að
rannsókn færi fram á því með
hvaða hætti upplýsingar úr póst-
og ábyrgðarbréfabók bankans
hefðu komizt í hendur óviðkom-
andi, óþekkts aðila. Sú rannsókn
stendur enn, (en líklega er fyrir-
spyrjanda fullkunnugt um stöðu
þeirrar rannsóknar enda tel ég
hæpið að hann hafi átt við þetta
mál þegar hann spurði um
„Finansbankamálið").
_______10. Antikmál________
Mál þetta er til meðferðar hjá
sakadómi Reykjavíkur. Enn er
óákveðið hvenær mál þetta verður
flutt, en væntanlega verður þess
ekki langt að bíða.
11. Mál bílasala sem
kærður voru á fyrra ári
Þann 14. september sl. barst
rannsóknarlögreglu ríkisins kæra
frá lögmanni í Reykjavík vegna
meintra fjársvika í sambandi við
bílaviðskipti. í kjölfar þessarar
kæru fylgdu fjölmargar aðrar
kærur, sama eðlis, auk þess sem
rannsóknarlögregla ríkisins hefur
haft frumkvæði að rannsókn
fjölda slíkra afbrota.
Mál þessi varða meint fjársvik,
skjalafals, ranga skýrslugjöf til
stjórnvalda o.fl. Að meginstefnu
til tengjast kærur þessar starf-
semi 3ja starfandi bílasala í
Reykjavík og hefur alls 21 aðili
verið kærður, ýmist fyrir beina
aðild eða hlutdeild.
Rannsókn flestra þessara mála
er nú lokið, en önnur ehi á loka-
stigi. Stefnt er að því að ljúka
rannsókn allra þessara mála í
þessum mánuði og verða þau þá
send ríkissaksóknara til frekari
ákvörðunar.
Hér að framan hefur verið
greint frá stöðu þeirra mála sem
fyrirspyrjandi hefur spurzt fyrir
um. Nú hefur verið útbýtt hér á
Alþingi skýrslu minni um gang
dómsmála og mun ég gera nánari
grein fyrir stöðu þeirra mála
þegar skýrslan verður tekin til
umræðu hér í þinginu.
Kaupmenn
vilja aðild að
verðlagsnefnd
KAUPMENN hafa krafist þess að
samtök þeirra fái aðild að verð-
lagsnefnd með fullum réttindum.
í ályktun aðalfundar Félags mat-
vörukaupmanna segir svo:
„Aðalfundur Félags matvöru-
kaupmanna, haldinn að Marargötu
2, 21. febrúar 1979, samþykkir að
beina því til viðskiptaráðherra að
Kaupmannasamtök íslands fái að-
ild að verðlagsnefnd með fullum
réttindum."
Hálir
vegir
hœtta
áferð
Fótlaga skór
Gott skinn.
bólstraðir kantar.
Skinnfóöraðir.
Sterkir, rifflaöir botnar.
Teg. 3563.
Litir: gult og brúnt (með hrágrúmmísólum).
Stærðir 28—46. Verð frá kr. 9.195,-
Póstsendum
samdægurs.
Verndið fæturna.
andið skóvalið.
Styrkið og fegríó líkamann
Ný 4ra vikna námsskeid hefjast 5. mars.
Dömur nýjung — Herrar
Höfum opnað nýjan tíma, sem er sérstaklega ætlaöur eldri dömum, og
þeim sem eru slæmar í baki eöa þjáöar af vöðvabólgum.
Þá viljum við minna á hinn vinsæla herratíma í hádeginu.
Mætið sumri hress á sál og líkama.
údódeild Armanns
Ármúla 32.
Búlgórsk víka
i———i á Loftleiðum
Efnt verður til búlgarskra skemmtikvölda í Víkinga-
salnum að Hótel Loftleiðum dagana 22. febrúar til
4. mars n. k.
Vandað verður til skemmtiskrár.
Á borðum verða búlgarskir veisluréttir framreiddir
afHr. Mitev yfirmatreiðslumeistara frá Grand Hotel
Vama, Drusba og búlgörsku aðstoðarfólki hans.
Matar verð er kr. 4.480,-
Þá munu búlgarskir dansarar sýna þjóðdansa á
hverju kvöldi.
Á eftir skemmtiatriðum leikur Trio Grand Hotel
Vama fyrir dansi.
Efnt verður til gestahappdrættis hvert kvöld og að
lokum dregið um þriggja vikna Búlgaríuferð fyrir
tvo.
Húsið opnar klukkan 19 öll kvöld.
Borðpantanir í símum 22321 og 22322.
Verið velkomin *
HOTEL
LOFTLEIÐIR