Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979
13
Framhandleggur hafði brennzt og var stungið niður í vatn til kælingar, en ekki nógu langt, því ofan
hins sýnilega bruna komu fram ljót brunasár.
landinu. Brúsinn er festur
innan á vegg bílsins þegar
hann er ekki í notkun.
5. Smærri bruna er hægt að
lækna á fáeinum klukku-
stundum í heimahúsum.
6. Sjúklingar með meiriháttar
bruna þurfa venjulega að
fara á sjúkrahús ef ekki er
læknir til að annast þá á
staðnum. Þó verður að taka
tillit til áhættunnar, sem
langur og erfiður flutningur
getur haft í för með sér fyrir
þann sjúka. Þegar á sjúkra-
húsið er komið er haldið
áfram með kælingu í Dan-
mörku og ýmsum öðrum
löndum eftir því hvaða
læknar eiga í hlut.
7. Það er ekki aðeins heimsku-
legt heldur hættulegt að
rjúka með brenndan mann
beina leið til læknis eða á
sjúkrahús áður en bruninn
hefur verið kældur nógu vel
til þess að allur ofhiti fari úr
holdinu, en það tekur a.m.k.
margar mínútur í styttsta
lagi. Eg er ekki í nokkrum
vafa um að þetta atriði getur
skipt sköpum ef um mjög
útbreiddan bruna er að
ræða.
Ef slysið á sér stað langt frá
mannabyggðum (í tjaldi
osfr.) þá á að veita sjúkling-
um alla þá þjónustu á staðn-
um, sem unnt er: Halda
áfram viðstöðulausri kæl-
ingu, aldrei skemur en
‘/2-tíma við smæstu bruna og
allt upp í sólarhring ef ætla
má að bruninn sé djúpur;
úða óbrenndu partana í hlý
föt og hafa eins heitt og
þægilegast er fyrir sjúkling-
inn. Þó má hann ekki svitna.
Ef honum finnst vatnið of
kalt og ef hann fær minnsta
hroll þarf að hækka hitastig
þess þar til honum líður vel.
Gefið honum sæmilega heit-
ar, nærandi súpur, en ekki
áfengi eða örfandi lyf. Gefið
allan drykk og næringu í
smáum en tíðum skömmtun
svo sjúklingurinn missi ekki
lystina eða verði óglatt.
Fyrstu sólarhringana erftir
meiriháttar bruna þarf alla
þá umönnun og nærgætni,
sem hægt er að veita (gjör-
gæsla á sjúkrahúsum).
8. Setjið ekki umbúðir á brun-
ann nema alveg nauðsynlegt
sé. Það veldur venjulega
miklum óþægindum (sviða,
kláða), stóreykur öndun,
súrefnisþörf og efnaskifti
hinna veikluðu fruma, sem
auðveldlega getur leitt til
dauða þeirra. Þetta er í
algjörri mótsetningu við
vatnskælingu, sem dregur úr
starfsemi frumunnar svo
hún hefur miklu meiri
möguleika á að ná sér.
9. Opnið ekki brunablöðrur.
Þær koma í veg fyrir að
blóðvatnið (plasma) geti
runnið óhindrað út úr líkam-
anum og eins að sýklar geti
borist inn í hann. Við út-
breiddan bruna getur líkam-
inn. misst 10—12 lítra af
plasma fyrsta sólarhringinn.
Plasmaið inniheldur næst-
um öll efni blóðsins nema
blóðflögur og blóðfrumur.
Það liggur því í augum uppi
hversu afdrifarík þessi blóð-
taka getur orðið fyrir heilsu
og líf sjúklingsins.
10. Forðið þeim slasaða frá öllu
hnjaski eins og frekast verð-
ur við komið. Berið ekki
áburð, smyrsl eða annað á
brunann.
11. Ráðleggingar um kælingu.
Það er vandalaust að kæla
hendur og fætur í plastfötu
eða bala (plast er betra en
málmur) og bæta köldu í
eftir þörfum. Eins er best að
kæla neðri hluta líkamans
sitjandi í baði. Þó þreytist
sjúklingurinn fljótt sitjandi
flötum beinum. Það verður
því að gera allt til að styðja
við efri hluta líkamans og
eins að setja eitthvað undir
hnésbæturnar.
Ef andlitið eitt er brennt er
best að hafa það stöðugt í
vatni nema rétt á meðan
maðurinn dregur andann.
Þetta er þó ekki Hægt við
smábörn. Þá er best að tveir
haldi barninu upp í loft með
höfuð þess hangandi það
mikið niður að ekki blotni
klæði á hálsi og brjósti, ausa
svo mátulega hlýju vatni (ca.
20—25°) úr könnu úr bala á
andlit og augu þess, þannig
að hægur, stöðugur straum-
ur renni yfir andlitið. Varast
verður að vatnið fari í nasir
og munn. Reyna að síbleyta
þessa staði með mjúkri rýju.
Ég hef reynt þetta og það
tekst vel. Barnið sættir sig
furðu fljótt við meðferðina.
Ef háls, brjóst eða bak er
brennt má nota sömu að-
ferðina á sjúklingum liggj-
andi.
12. Gefið sjúklingnum vítamín-
ríka og eggjahvítuauðuga
fæðu og stóra skammta af
C-vítamíni oft á dag. Við það
gróa sárin fyrr en ella.
§fii#s®s
Mest seldu sjónvörp á Islandi.
Hvers vegna?
Þaö hefur sýnt sig aö íslendingar eru vandlátir, vanda valiö og velja NordMende
^nordíTIende^
Okkur er það ánægja aö kynna yður árgerð 1979. Sjaldan hefur tæknin þjónaö manninum jafn
dyggilega. Ein mesta byltingin á árgerö 1979 er nýr myndlampi PIL (precicion in-line) sjálfvirk
samhæfing á lit, sem gefur miklu skarpari mynd en áöur þekktist, jafnvel þó bjart sé inni.
BUÐIN
Skipholti 19, símt 29800.
1979
nordIIIende
1979
Sértilboð fra 1. til 10.
Nu geta
allir eignast
vönduö
litsjónvörp.
' ■: ..i • *1
eftirstöóvar
:
/ ^ /
a 6 man
■.... •?.......
Dæmi 22“ kr. 555.265 — Utb. 194.343 og eftirstöðvar ca. 60 Þús. á mánuði.