Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979 Kristín Jóhannesdótt- ir — Minningarorð Fædd 17. ágúst 1895. Dáin 22. febrúar 1979. I dag er til moldar borin Kristín Jóhannesdóttir Selásbletti 3, Reykjavík en hún andaðist eftir stutta sjúkdómslegu á Land- spítalanum 22. febr. s.l. Kristín var fædd 17. ágúst 1895 og hefði því orðið 84 ára á þessu ári. Árið 1919 giftist Kristín eftirlif- andi manni sínum Filippusi Guðmundss. múrarameistara og hefðu þau því á þessu ári átt 60 ára brúðkaupsafmæli. Það má með sanni segja að á þessum 50 árum hafi þau hjónin varla verið við- skila einn einasta dag. Þau eignuðust 7 börn, Helga sem kvæntur er Sigríði Einarsd., Val og Guðrúnu er bæði dóu ífrum- bernsku, Huldu sem gift er Árna Kjartanss., Pétur sem kvæntur er Guðjónu Guðjónsd., Þórhallur ókvæntur, og Þóru sem gift er Þórmundi Sigurbjarnasyni. Auk þess ólu þau upp eina stúlku Þóreyju Sigurbjörnsd. Barnalán þeirra hjóna var mikið og barna- börn og barnabarnabörn orðinn stór og mannvænlegur hópur. Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu þau Kristín og Filippus við Lauga- veginn en árið 1922 fluttust þau í stórhýsi að Þórsgötu .19 sem Filippus byggði. Árið 1944 fluttust þau í nýbyggt hús sitt að Selás- bletti 3. Stærð hússins og umsvif báru merki athafnamannsins og stórhugans Filippusar en er inn var komið, duldist engum að þar réð smekkvísi og mildi mikillar húsmóður. Þau hjónin voru með eindæmum gestrisin og þægileg heim að sækja. Móttökurnar voru ávallt jafn hlýlegar og á þann veg að þeir er þeirra nutu mun seint gleymast. Enda var heimili þeirra ávallt opið fyrir gesti og gangandi og á þeim árum er byggð í Selásn- um var dreifð varð heimili þeirra nokkurs konar miðstöð hverfisins. Á þeim árum var til dæmis iðulega messað í stofu þeirra hjóna en hverfið tilheyrði þá Lágafells- prestakalli. Ég sem þessar línur rita átti því láni að fagna að kynnast Kristínu fyrir rúmum áratug. Ég hafði mikið heyrt talað um þau hjónin og mér er í fersku minní er ég leit þessa glæsilegu konu fyrsta sinni. Fundum okkar bar saman er verið var að undirbúa stofnun kven; félags í Selás og Árbæjarhverfi. I mörg ár hafði Kristín unnið að velgjörðarmálum og hlúð að kirkjulegu starfi innan hverfisins og stundum hefur verið haft á orði að hún ein hafi unnið á við heilt kvenfélag og ég efa ekki að það er rétt. Hún hafði lengi alið þá von í brjósti að með nýrri og aukinni byggð í hverfinu yrði draumur sinn um öflugt sóknarkvenfélag að veruleika. Þessi fyrstu kynni mín af Kristínu þróuðust síðar meir upp í vináttu sem aldrei bar skugga á og hafa verið mér mikill og góður lærdómur. Það var bæði mér og öðrum sem á þessum árum unnum að uppbyggingu Kven- félags Árbæjarsóknar ómetan- legur styrkur í því að hafa við hlið okkar þessa konu sem bjó yfir reynslu langra lífdaga, víðsýni og mannkærleika. Enda varð það svo að þær urðu ófáar ferðirnar sem farnar voru upp í Selás til skrafs og ráðagerða og ekki hvað síst til þess að sækja góð ráð og uppörvun þegar eitthvað virtist vera að fara úrskeiðis. Kristín gegndi fyrstu árin varaformannsstarfi félagsins og bæði þá og síðar gaf hún okkur sem yngri vorum á árum ekkert eftir í starfi nema síður væri. Hún var síðar gerð að heiðursfélaga Kvenfélags Árbæjarsóknar enda sómi og stolt félagsins. Kristín hafði óvenjulega sterkan persónuleika til að bera, af henni geislaði fíngerður kvenleiki en um leið staðfesta og ákveðni sem ekki fór framhjá neinum. Ég held að kærleikur og umhyggjusemi fyrir öllum samferðamönnum sínum hafi verið einhver sterkasti þátturinn í persónugerð hennar. Ekkert aumt mátti hún vita og mér er kunnugt um að margur hefur þar notið gjafmildi hennar og umhyggju og sjálfsagt hafa þar notið mun fleiri en nokkur veit. Kristín var mjög trúuð kona og bar alla tíð mikla umhyggju fyrir kirkju og safnaðarstarfi og þetta starf sitt vann hún á þann hljóð- láta hátt sem henni var lagið. Ég votta eftirlifandi manni hennar, börnum og öðrum aðstandendum samúð mína og fjölskyldu minnar. Kristín átti sjálf þá ómetanlegu sannfæringu að tilveru okkar væri stjórnað af æðri máttarvöldum og dauðinn væri aðeins tilfærsla á annað tilverusvið. Bænir okkar munu nú fylgja henni yfir fljótið mikla að ströndinni hinum megin þar sem ríkir eilíft vor, birta og friður. Margrét S. Einarsóttir. Sœlir þeir, sem. hó^vœrt hjarta hafa í líking freisarans. Þeir, sem heizt með hógværð skarta, hlutdeild fá f arfieifð hans. Vald. Briem. Þessar Ijóðlínur koma mér í hug, þegar minningarnar af kynnum mínum við elskulegan heiðurs- félaga Kvenfélags Árbæjarsóknar, frú Kristínar Jóhannesdóttur, rað- ast upp hver af annarri. Allar minna þær á góðvild Kristínar, heiðarleika og allt það, sem til góðs gat orðið bæði mönnum og málefnum á hennar langa og starfsama ævidegi. Frú Kristín Jóhannesdóttir og maður hennar Filippus Guð- mundsson múrarameistari voru með fyrstu íbúum Seláss- og Ár- bæjarhverfis. Þau reistu sér og börnum sínum myndarlegt íbúðar- hús árið 1942, sem nú er Selás- blettur 3, og hafa þau búið þar fram á þennan dag. Á þessum árum tilheyrði byggð- arlag þetta Lágafellssókn, en árið 1954 verður Seláss- og Árbæjar- hverfi sérstök sókn. Báðum þess- um sóknum helgaði frú Kristín krafta sína, svo sem henni var frekast unnt. Það gladdi frú Kristínu mjög, að hinn ungi Ár- bæjarsöfnuður skyldi fá litlu kirkjuna í Árbæ sem sóknar- kirkju, er hún var vigð vorið 1961. Var Kristín kosin í sóknarnefnd það ár, og átti hún þar sæti til hinzta dags. Frú Kristín hafði lengi átt þá ósk og von, að stofnað yrði kven- félag í Árbæjarhverfi, sem þá vár óðum að byggjast upp, og vann hún að stofnun þess ásamt nokkr- um framtaks- og áhugasömum konum í hverfinu. Reyndar má segja, að frú Kristín hafi áður í langan tíma unnið á við gott kvenfélag að safnaðarstörfum í orðsins fyllstu merkingu. Hinn 3. desember 1968 var Kvenfélag Árbæjarsóknar stofnað. Var frú Kristín kosin varaformað- ur þess, og var hún í því starfi til ársins 1971, en þá var hún kosin heiðursfélagi þess. Við sem höfum átt þess kost að kynnast og starfa með þessari elskulegu konu, ættum að hafa að leiðarljósi þann heiðarleika, kær- leika og göfuglyndi, sem hana prýddi. Við þökkum henni samfylgdina í félaginu okkar þessi 10 ár, og við minnumst hennar með djúpri virð- ingu og þökk. Við vottum eftirlifandi eigin- manni og öðrum ástvinum innilega samúð. Blessuð sé minning hennar. F.h. Kvenfélags Árbæjarsóknar Halldóra V. Steinsdóttir Mig langar til að minnast nokkrum orðum Kristínar Jóhannesdóttur en hún var móðir vinar míns. Ég kynntist Kristínu fyrst þegar ég var unglingur, en ég var tíður gestur á heimili hennar. Allt hennar fas og framkoma auðkenndist af hispursleysi og látleysi og ég man alltaf hve auðvelt henni var að ræða við æskufólk um hin ólíkustu mál. Undirtónninn í öllum þeim sam- ræðum mótaðist af sanngirni og samúð í garð náungans, ásamt glöggskyggni fyrir réttum mál- stað. Kristín var mjög gestrisin kona, og' eru þau ekki fá kvöldin, þegar ég var staddur á heimili hennar að boðið var upp á kaffi eða kvöldverð, eftir því hvernig á stóð, en það var alltaf eins og að setjast að veisluborði. Hún hafði létta lund og glaðværa og var oft kátt á hjalla við kaffiborðið. Ég minnist Kristínar sem skapfastrar konu með þroskaðan persónuleika, mótaðan af íslenskri alþýðumenn- ingu. Hún var rausnarleg í hjarta- hlýju, hjálpfýsi og gestrisni og er ég þakklátur fyrir þær minningar frá æskuárum og síðar, sem tengd- ar eru henni og heimili hennar. Eiginmanni Kristínar, Filippusi Guðmundssyni, byggingarmeist- ara og afkomendum hennar sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Hinrik Thorarensen. I dag fer fram útför minnar elskulegu tengdamóður Kristínar Jóhannesdóttir, sem lést 22. febrúar síðastliðinn eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu á sjúkrahúsi. Þegar hún er nú kvödd þá langar mig að minnast hennar með nokkrum fátæklegum orðum. Okkar fyrstu kynni hófust með þeim hætti að Rut bróðurdóttir hennar varð vinkona mín þegar við vorum samtímis í Kvenna- skólanum í Reykjavík 1936, en hún var þá til heimilis hjá Kristínu frænku sinni á Þórsgötu 19. Ég fór oft með henni heim á Þórsgötu, ekki síst fyrir það hve gaman var að koma á það hlýlega heimili. Þar mætti mér alltaf vinsemd og hlýleiki Kristínar, sem hún sýndi mér alltaf sem og öllum er um- gengust hana. Þótti mér vænst að eignast hana að tengdamóður, þegar við Helgi sonur hennar gengum í hjónaband. Þegar nánir vinir hverfa sjónum okkar yfir á svið eilífðarinnar hrannast endurminningarnar upp í huga manns. í fáum kveðjuorðum verður ekki hægt að minnast nema á lítið eitt sem á hugann sækir. Fyrst kemur í huga minn hin ríka tilhneiging Kristínar í að koma sem mest til móts við þá sem þurftu samúðar og aðhlynningar við. Þá vil ég minnast barnelsku hennar, en hann er stór barna- hópurinn sem nú syrgir ömmu, langömmu og langalangömmu. Nú geta litlu börnin ekki lengur komið til hennar en minningin um elsku- lega ömmu verður ekki frá þeim tekin. Nú snýst hugur minn um hennar elskulega eiginmann og tengda- föður minn, að hann nú í hárri elli fái guðlegan styrk til að sætta sig við hinn mikla missi sem hann hefir orðið fyrir við fráfall hennar. Megi friður guðs, sem æðri er öllum skilningi fylgja Kristínu yfir á lönd eilífðarinnar handan við gröf og dauða. Hafi hún þökk fyrir allt. Sigriður Einarsdóttir. Göfug og elskuð kona er gengin. Einhvern veginn vonuðum við að hún færi ekki frá okkur strax. Hún hafði barist svo ötullega því hún ætlaði sér ekki að yfirgefa mann- inn sem hún hafði fylgt í 60 ár. En enginn fær flúið örlög sín. í kvæðinu Skapfestukona eftir Jakob Thorarensen standa þessar línur. „Hennar aðall háttur prúður, hugðir stilltar, orðin mild, alls staðar og ávallt brúður, einatt vor í hennar fylgd.“ Þeir eru lánsamir sem fengu að kynnast Kristínu Jóhannesdóttur, því hennar háttur var að umgang- ast alla með blíðu og ástúð hvort heldur þeir voru sterkir eða veikir, en eins og slíkum er gjarnt mátti hún ekkert aumt sjá og mörg voru verkin hennar fyrir sjúka og þjáða í gegnum árin. Kristín Jóhannesdóttir fæddist 17. ágúst 1895 í Stykkishólmi. Foreldrar hennar voru Guðbjörg Jónsdóttir og Jóhannes Einarsson sjómaður að Ási. Hún ólst upp í stórum systkinahópi, þau voru 13 og var hún næst elst. Eins og oft var á svo barnmörgum heimilum var mikil fátækt heima hjá Kristínu og kynntist hún því hinni hörðu lífsbaráttu strax á unga aldri. Vegna þessa fór Kristín 7 ára í fóstur til móðursystur sinnar Jófríðar Jónsdóttur og manns hennar Guðmundar Guðmunds- sonar útvegsbónda á Rifi. Strangleiki var mikill á heimili þeirra hjóna og lærðu allir vel til verka og hafa ár Kristínar á Rifi eflaust mótað hana æði mikið, því „vart hún sleppir úfnu orði aldrei sést hún drembileg, samt í geði gnógur forði göfugs þótta á margan veg.“ Á Rifi dvaldist Kristín til 14 ára aldurs en hvarf þá aftur í „Hólm- inn“. Ekki naut hún mikillar skólagöngu, einn vetur var hún í skóla, en Guðmundur á Rifi kenndi henni í þess stað að lesa, reikna og skrifa. Næstu árin dvaldist hún og starfaði í Stykkishólmi. Ekki var mikið um vinnu og er hætt við að mörgum unglingnum á æskuslóð- um hennar brygði við ef þeim byðist jafn stopul vinna og þegar hún gekk þar til verka. En það lýsir vel skapgerðareinkennum hennar að ætíð brosti hún þegar hún sagði frá vinnu sinni þar fyrir vestan hvort heldur það var við að bera kol upp úr skipi eða vaska fisk. En gæfuhjólið snerist henni í hag. Árið 1914 réðst Kristín í vist til frú Áslaugar og séra Bjarna Jóns- sonar dómkirkjuprests. Var hún hjá þeim í tvö og hálft ár, en þá vantaði séra Friðrik Friðriksson starfsstúlku og réðst hún til hans að Amtmannsstíg 2B. Um leið og Kristín fluttist til Reykjavíkur kynntist hún þeim félagsskap sem hafði meiri áhrif á hana en nokkur félagsskapur annar, en það var KFUM og K og var hún alla daga síðan félagi í KFUK. Trúin á frelsarann var henni þýðingarmikil og studdi hana á erfiðum stundum. Á Amtmannsstíginn kom, eins og gefur að skilja, mikið af táp- miklum ungum mönnum. Þeirra á meðal var sá er hreif Kristínu með sér. Skömmu áður en Kristín réðst til séra Friðriks kynntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Filippusi Guðmundssyni. I heilagt hjónaband gengu þau 23. maí 1919 og hefðu þau því átt 60 ára brúðkaupsafmæli í vor. Fyrsta heimili þeirra var í lítilli íbúð að Laugavegi 27 og þar fæddist frumburðurinn. Árið eftir byrjaði Filippus, sem varð mikil- virkur múrarameistari hér í borg, að byggja húsið sem varð heimili þeirra næstu 20 árin, þ.e. Þórsgötu 19, fyrst eina hæð en síðan tvær hæðir og ris ofan á. Eins og lætur að líkum var mikill gestagangur á Þórsgötunni. Filippus hafði marga menn í vinnu og allir voru í fæði hjá Kristínu og var oftast svo þröngt við matar- borðið að elsti sonurinn mátti standa við það og átti hann sinn fasta stað á horninu hjá pabba sínum. Margir urðu næturgestirn- ir, ættingjar og kunningjar sem fengu að hvíla lúin bein. Á Þórsgötunni áttu þau sínar gleðistundir, en sorgin kvaddi þar líka dyra. Alls eignuðust þau 7 börn. Helgi fæddist 1919 á Lauga- veginum, en hin 6 á Þórsgötunni. Guðrúnu fædda 1921 og Val fædd- an 1922 misstu þau bæði aðeins sólarhrings gömul, Hulda Guðrún fædd 1924, Pétur 1926, Þórhall 1930 og Þóru 1935. Þá tóku þau eina fósturdóttur, Þóreyju Sigur- björnsdóttur fædda 1935. Öll gift- ust þau og kvæntust. Helgi Sigríði Einarsdóttur, Hulda Arna Kjartanssyni, Pétur Guðjónu Guðjónsdóttur, Þórhallur Hansínu Elíasdóttur, en þau slitu samvist- um, Þóra Þórmundi Sigurbjarna- syni og Þórey Birgi Ágústssyni, en þau slitu samvistum. Samtals eiga þau Kristín og Filippus 23 barna- börn, 22 barnabarnabörn og 1 barnabarnabarnabarn. Á Þórsgötu 19 bjuggu þau til 1940, en þá flytjast þau í sumarhús uppi í Selási, sem Filippus byggði 1932. 1933 hafði hann keypt stórt land þar efra og hóf hann nú að byggja húsið sem átti eftir að hýsa síðasta heimili Kristínar. í árs- byrjun 1944 flytjast þau inn í „stóra hvíta húsið í Selásnum", en þannig er það enn auðkennt, þó nú sé farið að byggja ámóta stór hús rétt hjá því. Þó að heimilið hefði nú verið flutt þangað sem kallaðist sveit þá minnkaði ekki umgangurinn. Þar varð símstöð og pósthús og af því nokkur erill. Þar átti einnig sér stað þáttur í söguþróun, sem ef til vill verður skráður síðar. Krakkarnir voru nefnilega öll gripin flugu og fluga þessi var sviflug og eru þeir Helgi og Þórhallur einhverjir snjöllustu svifflugmenn sem Islendingar hafa átt. Miðstöð svifflugsins varð á Sandskeiði, en fyrst var komið við í Selásnum hjá Kristínu og var oft hellt upp á könnuna af því tilefni og hef ég sem þetta rita heyrt Kristínu kallaða ömmu svifflugs- ins hér á landi svo mikið lagði hún á sig vegna þessa áhugafólks. Allar götur síðan hefur verið mikill umgangur í Selásnum. Börnin og barnabörn hafa búið þar og bræðurnir ráku í sameiningu fyrirtækið Flugmó og enn eru þeir Helgi og Pétur með fyrirtæki þar, þó sjálfstæðir séu í dag. Vegna þessa hafa barnabörnin og barna- barnabörnin mikið komið í Selásinn og hændust þau öll að ömmu og langömmu, því að alltaf tók hún brosandi á móti þeim. Eigi rek ég hér hið óeigingjarna starf hennar fyrir kirkjuna í hverfinu eða kvenfélagið, sem hún átti þátt í að stofna, það munu aðrir gera, en eitt er víst að öllum kirkjum landsins og félögum væri fengur að slíkum sjálfboðaliða. Ekki er gott að segja hvort eða hvenær Kristín fann fyrir sjúk- dómi þeim sem leiddi hana til dauða. Hún harkaði slíkt af sér. Að vísu fundu hennar nánustu að hún var á stundum eins og sagt er ónóg sjálfri sér en ekki meir. Hinn alvarlegi sjúkdómur kom í ljós á síðastliðnu* ári og reyndist hann hafa búið lengi um sig. í ágúst 1977 dundi ógæfan yfir, Filippus veiktist alvarlega, en hann hafði aldrei kennt sér nokkurs meins. Var hann frá þeim degi næstum algjörlega háður sinni elskuðu eiginkonu enda er harmur hans mikill við fráfall hennar. Það var því von Kristínar að ekki yrði fyrst kallað á hana. Sjúkrahúslega Kristínar varð ekki löng. 1. febrúar var hún lögð inn til rannsóknar. í ljós kom að hún varð að gangast undir upp- skurð sem keppnaðist mjög vel. En umfang aðgerðarinnar reyndist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.