Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979
11
TÓNLISTARFÉLAGIÐ í
Reykjavík gengst næst-
komandi laugardag fyrir
víólutónleikum í Austur-
bæjarbíói og hefjast þeir
kl. 14:30. Þar koma fram
víóluleikarinn Ingvar
Jónasson og undirleikari
hans Hans Pálsson, en
þeir eru báðir starfandi
tónlistarmenn í Svíþjóð.
Á efnisskrá tónleikanna
eru sónötur fyrir víólu og
píanó eftir Hallnás,
Brahms og Sjostakovitz.
Þeir Ingvar Jónasson og
Hans Pálsson hafa að undan-
förnu undirbúið tónleikaför
sína hingað til lands og ræddi
blm. við þá stuttlega er þeir
voru við æfingar í Lundi í
Svíþjóð.
— Ég hefi verið við nám í
Þrjár víólusónötur á tón-
leikum Tónlistarfélagsins
Kaupmannahöfn og Ósló í
tónlistarháskólum þar, sagði
Hans Pálsson aðspurður og
síðar var ég í Hannover hjá
Hans Leygraf og lauk einleik-
araprófi vorið 1972. Síðan hefi
ég verið búsettur í Lundi og
ekki haft reglulega fast starf
með höndum, en tekið að mér
nokkra nemendur í einka-
kennslu og ferðast um og
spilað.
Hans Pálsson kveðst hafa
leikið á Norðurlöndunum og
auk þess í Frakklandi, Þýzka-
landi, Póllandi og Tékkó-
slóvakíu. Hann hefur einu
sinni áður komið til Islands,
árið 1972 er hann var þátttak-
andi í keppni píanóleikara.
Var þá keppt til úrslita hér á
landi, en Hans Pálsson varð
hlutskarpastur í Svíþjóð og
komst í úrslitin. Þeir Ingvar
og Hans hafa ekki leikið sam-
an áður, en kváðust hafa hitzt
áður og þekktu hvor annan.
— Það má segja að þessir
tónleikar nú séu til að minnast
þess að um þetta leyti eru 25
ár liðin frá því ég kom fyrst
fram á tónleikum í Reykjavík,
sagði Ingvar Jónasson, en það
var 2. og 3. nóvember 1953. Þá
var við flygilinn Jón Nordal og
stóð upphaflega til að hann
léki einnig með mér nú, en af
því gat því miður ekki orðið að
þessu sinni, en milli okkar
Jóns hefur verið mikið og gott
samstarf í gegnum árin.
Ingvar Jónasson stundaði
nám í fiðluleik hjá Birni
Ólafssyni við Tónlistarskólann
og síðar við Royal College of
Music í London og lék síðan
um 2 ára skeið í Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Þá fór
hann aftur utan til náms og
dvaldi nú í Vínarborg í 2 ár og
er hann kom heim starfaði
hann í Sinfóníuhljómsveitinni,
kenndi í Tónlistarskólanum og
kom fram á kammertónleik-
um. Árið 1967 skipti hann frá
fiðlu yfir í víólu og hefur síðan
eingöngu leikið á hana. Ingvar
fluttist til Svíþjóðar árið 1972
og gerðist fyrsti víóluleikari
Sinfóníuhljómsveitar Malmö
og kenndi við Tónlistarháskól-
ann þar, en lét af starfi sínu
við hljómsveitina 1975 og hef-
ur síðan kennt við tónlistarhá-
skólana í Malmö og Gautaborg
og kemur fram sem einleikari
og á kammertónleikum. Ingv-
ar starfar t.d. með kammer-
kvintett og skipa hann Einar
G. Sveinbjörnsson konsert-
meistari í Malmö og sænskir
hljóðfæraleikarar, en Ingvar
er um þessar mundir að undir-
búa ferð kvintettsins til Is-
lands í vor.
— Já, þessi undirbúningur
hefur kostað allmikla vinnu og
eitt af því sem við rekum
okkur svo oftlega á sem störf-
um erlendis er hve seint og illa
gengur að fá svör að heiman.
Ferð sem þessa þarf að skipu-
Hans Pálsson og Ingvar
Jónasson á æfingu, en
myndin var tekin í Lundi
fyrir stuttu.
leggja allmarga mánuði fram í
tímann, jafnvel ár, og því .
kemur það sér mjög illa að fá
ekki svör við spurningum um
ferðatilhögun og skipulagn-
ingu tónleika, en .þeir sem
helzt svara eru nánustu ætt-
ingjar á viðkomandi stöðum.
Það getur því meira en verið
að þetta verði í síðasta sinn
sem ég tek þátt í að standa
fyrir tónleikaferð til íslands.
Ingvar var á ferð hérlendis í
september sl. er hann lék
einleik á ísafirði í tónleikaferð
Sinfóníuhljómsveitarinnar um
Vestfirði og verður því ferð
hans næsta vor sú þriðja á
þessu starfsári. Einar G.
Sveinbjörnsson leikur með
Sinfóníuhljómsveitinni á tón-
leikum 5. apríl, en á næsta
starfsári hennar munu þeir
báðir leika saman á tónleikum
og þá eru í undirbúningi tón-
leikar þeirra með Sinfóníu-
hljómsveitinni í Malmö í verki
er hljómsveitin hefur pantað
frá Jóni Nordal.
Verkin sem Ingvar Jónasson
og Hans Pálsson leika á tón-
leikunum á laugardag eru sem
fyrr segir eftir Hilding Hall-
nás, Johannes Brahms og
Dimitri Sjostakovitz. Hallnás
er eitt þekktasta tónskáld Svía
og hefur lengst af starfað ,í
Gautaborg. Sónatan sem leik-
in verður er samin 1943 og
tileinkuð Sten Broman.
Brahms samdi tvær sónötur
fyrir klarinett eða víólu og
píanó og eru þær meðal síð-
ustu verka skáldsins. Sónata
nr. 147 fyrir víólu og píanó er
síðasta sónatan er Sjostakov-
itz samdi áður en hann lézt 9.
ágúst 1975 og hefur að líkind-
um ekki verið leikin á Islandi
áður.
Já, nú er bara aö prútta til aö fá sem bezt verö því
ALLT Á AÐ SELJAST!
Viö tökum restina af öllum vörum fram í dag og má Þar m.a. nefna:
Dömujakkar Punk Teryleneföt Kjólar
Kakhi buxur Dömufínflauelsdragtir Bárnaúlpur
Flauelsbuxur Peysur Anórakkar
Herra og dömu
teryleneföt
Blazerjakkar Erlendar plötur .................... frá kr. 800.-
Sjóliðajakkar Innlendar plötur ................... frá kr. 1.900,-
Utsalan Iðnaðarmannahúsinu v/Hallveigarstíg,
Saumastofa Karnabæjar — Belgjagerðin — Karnabær _______
Björn Pétursson heildverslun — Steinar h.f.
Útsalan
stórkostlega
stendur nú
aðeins í dag
á morgun og
nú er um aö gera
aö PRÚTTA.'