Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979
23
Áhöfn sovézka geimskipsins Soyuz—32, V. Lyakhov
(fyrir ofan) og V. Ryumin, kveður áður en lagt er af
stað út í geiminn.
Carter á undir
högg að sækja
Washington, 28. febrúar. AP.
HREYFINGU sem heíur það að
aðalmarkmiði að koma í veg
fyrir endurkosningu Jimmy
Carters í forsetaembætti á
næsta ári vex nú stöðugt fiskur
um hrygg víða í
Bandarikjunum.
Sérstaklega hefur verið gerð
hörð hríð að forsetanum úr
röðum þingmanna sem við eðli-
legar aðstæður styðja hann, svo
og hafa valdamiklir verkalýðs-
leiðtogar atyrt hann að undan-
förnu fyrir stefnu hans í utan-
ríkis- og innanlandsmálum.
Hvort það verður hlutskipti
Carters að enda sem eins kjör-
tímabils forseti og verða hafnað
af flokksbræðrum sínum mun
væntanlega skýrast á næstu
mánuðum, þ.e. hvort honum
tekst að endurvekja þá mynd
sem Bandaríkjamenn höfðu af
honum fyrir síðustu kosningar:
að hann væri þessi táknræni
heiðarlegi og duglegi Banda-
ríkjamaður sem myndi rífa for-
setaembættið upp úr þeirri lægð
sem það hefur verið í s.l. ár.
Skoðanakannanir sem gerðar
hafa verið nýverið sýna að
Bandaríkjamenn skiptast’ alveg
í tvö horn í afstöðu sinni gagn-
vart stefnu Carters í málefnum
Kína og Taiwan, og í nýlegri
skoðanakönnun sem NBC-sjón-
varpsstöðin gerði kemur í ljós
að aðeins um 28% Bandaríkja-
manna eru fullkomlega ánægðir
með árangur Carters í forseta-
stóli og er það um það bil 8%
lækkun á fylgi forsetans frá því
í desember s.l. þegar sjónvarps-
stöðin gerði sams konar könnun.
Þá kemur fram í könnun sem
bandarískt tímarit gerði á stöð-
unni gagnvart forsetakosning-
unum á næsta ári að fólk telur
Carter almennt „þennan trú-
verðuga" dugnaðarfork, en hann
ætti samt að snúa sér að öðru
starfi. Það fylgir sögunni að
efstur á lista lesenda blaðsins sé
Edward M. Kennedy öldunga-
deildarþingmaður frá Massa-
chusetts.
Læknar í Noregi í verkfalli:
Fá ekkiað ákveða
hvar þeir starfa
Ósló, 28. febrúar. Frá fréttaritara Mbl. Jan Erik Laure.
FLESTIR þeirra 8.000 lækna sem starfa í Noregi efndu til verkfalls í dag til að mótmæla lagafrumvarpi
um aðsetur lækna. bað er félagsmálanefnd Stórþingsins sem lagt hefur frumvarpið fram og búist er við að
þingið samþykki það.
Aðeins 150 læknar fóru ekki í verkfall. Læknar á „aðgerðarleysisvakt" gerðu að lífshættulegum
meiðslum, en sinntu engu öðru.
Verði frumvarpið að lögum geta
norskir læknar ekki sjálfir ákveðið
hvar þeir starfa í landinu. Opinber
nefnd mun skera úr um hvar
vantar lækna og hvar ekki og
Gœti
gerzt í dag?
London, 28. febrúar. AP.
Myntverzlun Stanley Gibbons
skýrði frá því í dag, að hún ætti í
fórum sfnum nokkrar persneskar
myndir og hefði andlitsmynd
keisarans verið afmáð en islömsk
orðtök komið í stað myntarinnar.
Islömsk stjórn tók við völdum og
sparaði sér nýja myntsláttu með
því að nota áfram þá mynt sem
fyrir var. Keisarinn flýði til Kína.
Þetta gerðist fyrir rúmum þúsund
árum, eða árið 650 eftir Krist. Og
nú er að sjá hvort sagan endurt.ek-
ur sig.
Friðartilraun
í Jemenstríði
Amman, 28. febrúar, Reuter — AP
ARABÍSKIR diplómatar hófust
f dag handa um að reyna að
binda enda á bardagana á landa-
mærum Norður- og Suður-Jemen
og leyfi hermanna voru aftur-
kölluð í grannríkinu
Saudi-Arabíu.
Sendimenn frá Sýrlandi, írak
og Jórdaníu komu til
Norður-Jemen og fara seinna til
Suður-Jemen til að kynna sér
ástandið og ástæðurnar fyrir
átökunum. Ráð Arababandalags-
ins kemur saman til skyndi-
fundar á sunnudag.
Fréttir herma að
Suður-Jemener hafi náð á sitt
vald þremur bæjum norðanmegin
landamæranna — Qaataba,
Moryes og Harib.
Norður-Jemenar segja að endur-
teknum árásum á fylkishöfuð-
borgina Al-Baida hafi verið
hrundið.
Utanríkisráðherrar Kuwait og
Bahrain og fulltrúi Oman eru líka
komnir til Sanaa, höfuðborgar
norður-Jemen. Samkvæmt
friðaráætlun sem Saudi-Arabar
hafa lagt fram verður fyrirskipað
tafarlaust vopnahlé, bannað
verður að skjóta skjólhúsi yfir
glæpamenn eða hjálpa þeim
beggja vegna landamæranna og
arabískri nefnd falið að hrinda
friðaráætluninni í framkvæmd.
yfirvöld munu þannig neyða lækna
til að setjast að í héruðum sem búa
við læknaskort.
Meðal lækna gætir mikillar ólgu
út af frumvarpinu. Þeir segja það
skerða frelsi þeirra til að ákveða
sjálfir hvar þeir starfa. Ennfrem-
ur segja læknar, að það leysi ekki
vándamál ýmissa héraða að neyða
lækna til að starfa þar.
Verkfallið hafði það í för með
sér að vonlaust var að fá lækna í
húsvitjanir. Kom það sér einkum
illa fyrir þá fjölmörgu íbúa Óslóar
sem liggja i rúminu með inflúensu,
en nýr faraldur hefur nú stungið
ERLENT
sér niður í Ósló. í gærdag var
tilkynnt um 400 ný inflúensu-til-
felli.
Þinglausnir
í Rhódesíu
Washington, 28. (ebrúar — AP — Reuter
BANDARÍSKU öldunadeildar-
þingmennirnir George McGovern
og S.I. Hayakawa lögðu í dag
fram tillögu í þinginu þess efnis,
að þingið sendi lið hlutlausra
eftirlitsmanna til að fylgjast með
kosningunum í Rhódesiu 20. aprfl
næstkomandi.
Ian Smith, forsætisráðherra
Rhódesíu, sleit í dag þingi lands-
ins, en kosið verður nýtt þing 20.
apríl og fara svartir með meiri-
hluta þar að þeim kosningum
loknum. Frá því að Smith sleit
tengslum við Bretland 1965 hafa
hvítir verið í miklum meirihluta á
þinginu.
Þetta gerðist
1. marz
1974 — Sjö embættismenn ákærð-
ir vegna Watergate.
1970 — Rhódesía rýfur síðasta
sambandið við Breta.
1966 — Sovézk geimflaug lendir á
Venusi.
1961 — Kennedy stofnar Friðar-
sveitirnar.
1959 — Makarios snýr aftur til
Kýpur.
1954 — Fyrsta ráðstefna Samtaka
Ameríkuríkja (OAS) í Caragas —
Fimm þingmenn særast í skotárás
í bandaríska þinginu.
1952 — Fyrstu þingkosningar á
Indlandi.
1950 — Klaus Fuchs fundinn
sekur um að afhenda Rússum
kj arnorkuleyndarmál.
1935 — Þjóðverjum skilað Saar.
1932 — Syni Lindberghs flug-
kappa rænt.
1918 — Þjóðverjar taka Kiev.
1905 — Orrusta Rússa og Japana
við Mukden hefst.
1896 — Italir bíða ósigur fyrir
Eþíópíumönnum við Adowa.
1870 — Styrjöld Paraguay við
Brazilíu, Argentínu og Uruguay
hefst.
1815 — Napoleon gengur í land í
Frakklandi og Loðvík VXIII flýr.
1811 — Fjöldamorð Mehmet Ali á
Manelúkum í Egyptalandi.
1767 — Karl III rekur Jesúíta frá
Spáni.
1562 — Fjöldamorðin á Húgenott-
um í Vassy: fyrsta trúarstríðið
hefst.
1553 — Heidelberg-bandalagið
stofnað.
1498 — Floti Vasco da Gama
finnur Mósambík.
Afmæli: Theophile Declassé,
franskur stjórnmálaleiðtogi
(1852—1923) — Lytton Strachey,
brezkur höfundur (1880—1932) —
Leó páfi XIII (1810-1903).
Andlát: G. Frescobaldi, tónskáld,
1643 — Leopold II keisari 1792 —
Gorchakov fursti, ráðherra 1883 —
Gabriele d'Annunzio, rithöfundur,
1938.
Innlent: Aðild að EFTA hefst 1970
— Mótmælaverkfall 1978 — d.
Davíð Stefánsson 1964 — Flóð á
Selfossi 1968 — Vantraust á ríkis-
stjórn Ólafs Thors samþykkt 1950
— „Kristján" kemur að landi eftir
12 daga hrakninga 1940 — Lands-
bankahúsið nýja tekið í notkun
1924 — „Prótest" Síra Sveinbjörns
Hallgrímssonar við banni við út-
komu „Þjóðólfs" 1848 — d. Lauritz
Gottrup lögmaður 1721 — síra
Ólafur Egilsson 1639 — herra
Oddur Þorvarðarson 1301 — Boðs-
bréf til íslendinga um útgáfu
„Fjölnis" 1834 — f. Ólafur
Jóhannesson 1913 — Árni Johnsen
1944.
Orð dagsins: Friður: í alþjóðamál-
um, tími til að hafa rangt við milli
tveggja tímabila átaka —
Ambrose Bierce, bandarískur smá-
söguhöfundur (1842—1914).
Vill enn semja
um Jan Mayen
Frá fréttaritara Morgunblaðsins í Ósló í gær.
KNUT Frydenlund utanríkisráðherra ítrekaði í umra'ðum Stórþings-
ins um utanríkismál í dag að norska stjórnin teldi vera þjóðréttarleg-
ar forsendur yfir því að lýst yrði yfir efnahagslegri lögsögu umhverfis
Jan Mayen.
Hann sagði að Norðmenn
mundu taka sér þessa lögsögu
þegar stjórnin teldi það hag-
kvæmt, en hún vildi komast að
samkomulagi við íslendinga sem
grannþjóð um fiskveiðarnar á
þessu svæði.
Paul Thyness úr Hægri flokkn-
um sagði að lögsaga umhverfis Jan
Mayen væri talsvert umfangsmik-
ið utanríkismál og að gildar
ástæður væru fyrir því að farið
yrði að öllu með gát í þessu máli.
Samskiptin við Efnahagsbanda-
lagið bar einnig á góma og margir
ræðumenn héldu því fram að timi
væri kominn til þess að Norðmenn
tækju raunsærri afstpðu til banda-
lagsins. Reiulf Steen, formaður
utanríkisnefndar, nefndi í því
sambandi samstarf um siglingar,
fiskveiðar, orkumál og gjaldeyris-
mál.
Margir andstæðingar EBE
héldu því fram að þannig færi
Noregur í bandalagið um bakdyrn-
ar, en því var eindregið vísað á
bug.