Morgunblaðið - 01.03.1979, Síða 18

Morgunblaðið - 01.03.1979, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979 FRIÐHELGI EINKALÍFSINS Fordast skal einhJióa áróóur í skólastarfinu Á fundi Hvatar og heimdallar 14. þ.m. um „friðhelgi einkalífs- ins með tilliti til barna og foreldra“ komu fram ýmis sjónarmið varðandi frumvarp Ragnhildar Helgadóttur um sama efni. Ilalldóra Rafnar kennari var meðal pallborðs- ræðumanna. Hún sagði eftirfar- andi: Halldóra Rafnar kennari þakkar það framtak að flytja frumvarpið um breytingar á grunnskólalögunum. Taldi hún mjög brýnt að festa í lög þau grundvallaratriði er þar er kveð- ið á um þ.e. 1. að forðast skuli einhliða áróður í skólastarfinu, 2. að setja skuli reglur um leyfisveitingar til handa þeim er stunda vilja fræðilegar rannsóknir í skólum landsins. Sagði Halldóra að foreldrar þyrftu að fylgjast mun betur með hræringum í skólamálum og efla tengsl sín við þá skóla sem börn þeirra sæktu. Þeir þyrftu að kynna sér námsefni sem til meðferðar væri hverju sinni og hvernig það væri fram sett. Það væri ástæðulaust að taka því þegjandi þegar kennari segði börnunum að Berlílnar- múrinn hefði verið reistur vegna þess að Austur-Berlínarbúar versluðu of mikið í Vestur— Berlín. Einnig væri ástæðulaust að einstakir kennarar eða aðrir legðu spurningalista fyrir nemendur án þess að hafa fengið til þess sérstakt leyfi. Við vissum að nemendur væru yfir- leitt vanir að leysa athuga- semdalaust þau verkefni sem fyrir þá væru lögð. En vonandi myndi sú umræða er upp hefði nú sprottið verða til þess að nemendur yrðu sér meðvitaðir um rétt sinn til að neita að svara. Síðan vék Halldóra talinu að því að menntamenn meðal Alþýðubandalagsmanna hefðu skapað sér sérstakan hugmynda- heim varðandi íslenskt skóla- kerfi. Þeir setji fram tilgátur og dragi síðan ályktanir af þeim sem staðreyndir væru. Þeir tali stöðugt um skólann sem „tæki“ hinnar kapitalisku að skólakerf- ið þjóni auðstéttinni fyrst og fremst en blekki lágstéttirnar; að skólinn sé tæki til að auka þá stéttaskiptingu sem á íslandi sé. Máli sínu til stuðnings bendi þeir á ýmsar „fræðilegar rann- sóknir" sem gerðar hafi verið hérlendis og erlendis. Margir þessara manna hafi komist til áhrifa í menntastofn- unum þeim sem annast kennara- menntun á íslandi. I máli sínu þar ganga þeir út frá þessum „staðreyndum" um stétta- baráttuna. Má nærri geta að slíkt hefur áhrif á nemendur þ.e. væntanlega kennara sem ekki hafa nein mótrök. Þeir sem gerast fylgismenn þessara skoðana líta síðan á það sem hlutverk sitt að uppfræða aðra um þann stóra sannleik sem þeir hafa höndlað. Halldóra benti á að Helga Sigurjónsdóttir kennari hefði ritað athyglisverða grein í Þjóð- viljann 10.5. 1978, þar sem hún segi, að til þess að gera að veruleika markmiðsgrein grunn- skólalaganna um réttindi ein- staklingsins til náms „þyrfti vitaskuld að koma til fræðsla um eðli þjóðfélagsins, fræðsla sem einmitt gæti kollvarpað ríkjandi þjóðskipulagi". Einnig segi Helgi að á skólamálaráðstefnu Alþýðubandalagsins síðastliðinn vetur, hafi mikið verið rætt um það hversu langt mætti komast í að koma á sósíalistískum skóla innan ríkjandi kerfis. Kennarar sem álíta að nemendur eigi að sjá heiminn í gegn um gleraugu kennaranna og byrgja þeim þannig sýn til annarra átta eru e.t.v. ekki margir en þeir eru sannfærðir um réttmæti skiðana sinna. Frumvarp Rágnhildar er því fyllilega tímabært og vona ég að það verði samþykkt á þessu þingi, sagði Halldóra að lokum. Félag matvörukaupmanna: Jónas Gunnarsson endurkjörinn formaður Aðalfundur Félags matvöru- kaupmanna var haldinn 21. febrúar að Marargötu 2. Formaður félagsins, Jónas Gunnarsson, setti fundinn og tilnefndi Magnús E. Finnsson sem fundarstjóra og Jón I. Bjarnason sem fundarritara, og var það samþykkt samhljóða. Formaður flutti skýrslu stjórnarinnar og bar hún það með sér, að félagsstarfið hefur staðið með miklum blóma og hefur verulegur árangur náðst í mörgum málefnum félagsins. Gjaldkeri félagsins, Ingibjörn Hafsteinsson, las upp og lagði fram endurskoðaða reikninga félagsins og voru þeir sam- þykktir samhljóða. Jónas Gunnarsson var einróma endur- kjörinn formaður félagsins, en með honum í stjórninni eru Ólafur Björnsson, Ingibjörn Hafsteinsson, Baldvin Eggerts- son og Jón Þórarinsson. í varastjórn voru kjörnir þeir Listkynning erlendis Það hefur mikið færst í vöxt á þessum áratug, að íslenzkar myndlistarsýningar séu settar upp erlendis, bæði hóp- og ein- staklingssýningar, og áð drif- fjöðrin sé eigið framtak og frumkvæði. Af virðist sú tíð, er sýningar Islendinga erlendis voru stórviðburðir, sem viðkom- andi lifðu lengi á og þótti drjúgur ávinningur að og vegs- auki. Nú er svo komið, að sýningar íslendinga ytra eru orðnar hversdagsviðburður og um margar þeirra fréttist aðeins á skotspónum. Þær virðast og ekki teljast girnilegt fréttaefni fjöl- miðla. Þó hlýtur það ótvírætt að teljast nokkur frétt, ef menn sýna í virtum sýningarsölum eða listahöllum og hljóta góðar viðtökur og dóma. Þyrftu fjöl- miðlar tvímælalaust að senda sérfróða menn á vettvang á hina stærri listviðburði, ekki síður en t.d. á íþróttakappleiki — því að allstór hópur fólks fylgist af lifandi áhuga með listrænum frama landans erlendis. Um leið hefðu viðkomandi listrýnar mik- inn ávinning af að vera í návígi við strórviðburðina. Það virðist þó í sumum tilvik- um vera takmarkaður vilji aðstandenda sýninga að kynna þær nema eftir vissum leiðum, eins og viðkomandi telji sér ávinning af því að leika öðrum þræði píslarvotta afskipta og áhugaleysis. — Þrátt fyrir mik- inn áhuga kom undirritaður því ekki við að skoða sýningu ellefumenninganna í Listahöll Málmeyjar (Malmö?, en ég von- ast til að geta sagt frá henni á einhvern hátt við tækifæri, — sýningunni er lokið en ennþá hafa engin gögn borist mér, Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON hvorki í formi sýningarskrár né blaðadóma. Ég hef lengi verið þess full- viss, að allnokkur markaður sé fyrir íslenzka myndlist erlendis og að hann takmarkist ekki við neina eina listastefnu. Þetta hef ég einnig fengið staðfest á ferð- um mínum ytra í viðtölum við áhrifamenn í listum, og svo hefur þróunin undirstrikað þetta rækilega. Kynning á íslenzkri list er- lendis er mikilsvert menningar- framlag og í raun réttu lífsnauð- synlegt eldsneyti til viðgangs lista innan lands — hér á að koma til heilbrigð víxlverkun. Þá er brýn nauðsyn á því, að íslenzk myndlist verði hlutgeng á alþjóðlegum listamarkaði. Innlendur markaður er mjög þröngur, takmarkaður og sveiflukenndur og er ennþá að mestu einangraður við höfuð- borgarsvæðið. A tímum verð- bólgu þrengir mjög að kjörum listamanna, — allt verðmæta- mat verður rangsnúið og brengl- að, varanleg verðmæti rýrna, um leið og hin forgengilegu þjóta upp úr öllu valdi. Oafvit- andi virðast fjölmiðlar sterk- ustu bandamenn þessarar öfug- þróunar í hugsunarhætti. Lítið dæmi um þetta mátti líta í blöðunum á dögunum, er það var sett upp sem rosafrétt, að stórt Kjarvalsmálverk hefði selst á rúmar tvær milljónir á uppboði í K.höfn. Nokkrum dög- um seinna gat að líta smáfrétt þess efnls, að tízkujeppi nokkur kostaði 12 milljónir kominn á götuna! — Þeir sem fylgjast með verði á myndum frægra málara skynja hér dæmi um hringleika- hús fáránleikans ... Mig langar til að stuðla að þeirri þróun í skrifum mínum hér í blaðinu, að aukinn áhugi vakni á sýningum landans er- lendis og auglýsi hér með eftir upplýsingum um slíkt framtak og mun þá leitast við að koma þeim á framfæri. Það fellur inn í þennan ásetn- ing minn, að nýlega fékk ég fregnir af væntanlegri mál- verkasýningu tveggja íslenzkra myndlistarmanna í Frankfurt am Main, þeirra Valtýs Péturs- sonar og Jónasar Guðmunds- sonar. Ég fór á stúfana og fékk þær upplýsingar eftir nokkra eftirgangssemi; að sýningin verði haldin í þekktum sýning- arsal á norðurbakka Main, „Galerie Wagner", dagana 3.-25. marz. Báðir sýnendurnir sýna ný verk. Valtýr eingöngu olíumálverk, 7 að tölu og eru 5 þeirra að vissu marki hlutlægs eðlis, en tvö þeirra óhlutlæg. Jónas sýnir 10 vatnslitamyndir, aðallega stemningarhughrif af gömlum húsum í höfuðborginni. Hinn nýskipaði sendiherra Is- lands í Bonn, Pétur Eggerz, mun opna sýninguna. Mér leist svo á við skoðun verka þeirra félaga, Valtýs og Jónasar, að þetta yrði allsterk sýning og verður fróð- legt að fylgjast með því, hvaða viðtökur hún fær í hinni fornu iistaborg. Bragi Ásgeirsson. Matvörukaupmenn andvíg ir frjálsum opnunartíma Örn Ingólfsson, Óskar Jóhanns- son og Kristján Fr. Guðmunds- son. Hreinn Sumarliðason var endurkjörinn formaður félags- ins, en með honum í stjórninni eru Ólafur Björnsson, Ingibjörn Hafsteinsson Baldvin, Eggerts- son og Jón Þórarinsson. I varastjórn voru kjörnir þeir Örn Ingólfsson, Óskar Jóhanns- son og Kristján Fr. Guðmunds- son. Hreinn Sumarliðason var endurkjörinn fulltrúi í fulltrúaráð Kaupmannasamtaka Islands og Ólafur Björnsson til vara. Endurskoðendur voru kjörnir þeir Einar Eyjólfsson og Reynir Eyjólfsson. EFTIRFARANDI ályktun hefur borist frá aðalfundi Félags mat- vörukaupmanna, þar sem harðlega er mótmælt hugmyndum um breytingar á afgreiðslutíma versl- ana: „Aðalfundur Félags matvörukaup- manna, haldinn 21. febrúar að Marargötu 2, mótmælir harðlega framkomnum hugmyndum sumra borgarstjórnarmanna, um afnám Reglugerðar um afgreiðslutíma verzlana í Reykjavík o.fl., frá 26. júlí 1971. Fundurinn bendir á, vegna fenginnar reynslu, að slíkt frjálsræði sem þannig skapaðist, mundi einungis leiða til glundroða og óreglu á afgreiðslutíma verzlana, til skaða og óþæginda fyrir neytendur, þar sem að verðlag er ekki frjálst í landinu. Augljóst er, að vegna aukins tilkostnaðar verzlunarinnar, yrði stórfelld álagningarhækkun, og þar með verðhækkun, að koma til framkvæmda, ella yrði um óyfir- stíganlegan kostnaðarauka fyrir verzlunina að ræða. Það er hins vegar álit fundarins, að regiugerðinni mætti breyta lítil- lega í einstökum atriðum, vegna breyttra aðstæðna, síðan hún var sett. Algjör forsenda fyrir slíkum breytingum yrði að vera fullt sam- komulag milii Kaupmannasamtaka íslands og Verzlunarmannafélags Reykjavíkur."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.