Morgunblaðið - 01.03.1979, Síða 38

Morgunblaðið - 01.03.1979, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979 Minning: Georg Lúðvíksson framkvœmdastíóri Georg Lúðvíksson fram- kvæmdastjóri, Kvisthaga 23, Reykjavík, andaðist á heimili sínu hinn 21. f.m., og fer útför hans fram í dag. Georg Lúðvíksson var fæddur í Norðfirði, nú Neskaupstað, hinn 25. apríl 1913. Foreldrar hans voru þau Lúðvík Sigurðsson útgerðar- maður, sem kominn var af þekkt- um ættum í Skaptafellssýslu og á Austurlandi, og kona hans Ingi- björg Þorláksdóttir, er átti til kunnra ætta að telja í Gullbringu- sýslu. Georg var yngstur af 11 systkinum. Eru enn á lífi fjórar systur hans og þrír bræður. Lúðvík Sigurðsson var maður mjög framtakssamur. Hafði hann um langan aldur á hendi umsvifa- mikinn starfsrekstur til lands og sjávar. Var ráðdeild hans við brugðið. Heimili hans og Ingi- bjargar var mjög mannmargt. Auk fjölskyldunnar voru á heimilinu margt manna, sem unnu að út- gerðinni og búrekstrinum. Heimilishaldið hvíldi vitaskuld að miklu leyti á húsfreyjunni, en hún var dugnaðarforkur, viljasterk og svo ósérhlífin, að undrun sætti. Ætlaði hún sér aldrei af við störf sín. Georg Lúðvíksson tók ungur að vinna að öllum störfum í atvinnu- rekstri föður síns. Hann lagði leið sína til Reykjavíkur og gekk á Samvinnuskólann. Þaðan braut- skráðist hann 1934. Því næst vann hann um sinn á skattstofu Reykja- víkur, en hóf í janúar 1936 störf á skrifstofu Ríkisspítalanna. I apríl 1953 var hann skipaður fram- kvæmdastjóri nefndra spítala og hélt þeirri stöðu til dauðadags. Það lætur að líkum, að það er vandasamur og erilsamur starfi að standa fyrir rekstri stórra sjúkra- húsa. Spítalar þurfa margs við, og óteljandi eru þær þarfir þeirra, sem nauðsyn ber til að sinna, en fjármunir eru oft af skornum skammti til að leysa úr hverjum þeim vanda, sem upp kemur. Reynir þá mjög á þolrif þess manns, sem skera skal úr, hvernig og í hvaða röð verkefnin skuli leysa. Þessum verkefnum helgaði Georg Lúðvíksson alla starfs- krafta sína. Hann lagði leið sína oftsinnis til Norðurlanda og ann- arra landa til þess að kynna sér rækilega rekstur sjúkrahúsa og var fyrir sakir náms og starfs- reynslu einkar vel heima í öllum þeim greinum, sem lutu að starfa sínum. Hann dró ekki af sér við embættisstörfin, þá er heilsa hans tók að bila. Má vera, að kostgæfni hans og hárðfengi við sjálfan sig hafi valdið því, að líf hans varð ekki lengra. Georg Lúðvíksson var mikill áhugamaður um íþróttamál. Hann var ötull og framtaksmikill stjórnarmaður í KR. Georg Lúðvíksson verður eftir- minnilegur öllum þeim, sem kynntust honum. Fyrirmannlegur var hann og látprúður. Gæddur var hann eðliskostum ættar sinn- ar. Skapfesta hans og höfðings- lund vöktu sérstaka athygli. Hann hafði sínar fastmótuðu skoðanir á mönnum og málefnum. Mikill bókamaður var hann og hélt áfram að auka menntun sína tii hinztu stundar. Georg Lúðvíksson kom ungur að árum á heimili mitt og systur sinnar og var þar heimilismaður um tíma. Minnist ég þeirrar dval- ar hans með mikilli ánægju. Georg Lúðvíksson kvæntist hinn 19. desember 1943 Guðlaugu Láru Jónsdóttur. Guðlaug er dóttir Jóns Magnússonar skipstjóra og konu hans, Margrétar Jónu Jónsdóttur. Guðlauger hin mikilhæfasta kona. Hafa þau hjónin, hún og Georg, verið samhent í því að gera heimili sitt að hinum mesta unaðsreit. A sumrum notuðu þau tómstundir ,sínar til að prýða umhverfi húss síns, nr. 23 við Kvisthaga. Hefur skrúðgarður þeirra vakið verð- skuldaða athygli. Börn þeirra eru: Margrét, læknir að mennt, Lúð.vík, verkfræðingur að mennt, kvæntur Sonju Garðarsdóttur félagsráðgjafa, Ingibjörg, læknir að mennt, gift Reyni Jónssyni tannlæknanema og Gísli, verkfræðingur að mennt. Valmenni hefur lokið lífsferli sínúm. Honum fylgir vinátta og virðing samferðamannanna. Konu hans og börnum er vottuð innileg samúð. Gizur Bergsteinsson. í DAG er til moldar borinn vinur minn Georg Lúðvíksson. Við Georg kynntumst fyrst í desember 1969. Þá var verið að skipuleggja þvottahús ríkisspítala og starfaði ég með Georg að því verkefni í nokkra mánuði. Þegar svo ég var ráðinn til ríkisspítala í ársbyrjun 1972 lágu leiðir okkar aftur saman. Strax þá tókst með okkur mikil og góð vinátta og engum manni hef ég kynnst um dagana, sem ég hefði heldur viljað eiga að trúnaðar- og einkavini. Georg var góður drengur og léttur í fasi. Um hann má segja, að þar fóru saman gæfa og gjörvi- leiki. Ófá kvöld höfum við setið saman að loknu dagsverki og látið hugann reika um allt frá átökum stórveld- anna og samskiptum við yfirlækna eða spennandi íþróttaleiks og góðrar bókar. Ekkert mannlegt var Georg óviðkomandi. Það er tómt og skarð fyrir skildi að heyra Hallgrímskirkju slá fimm í lok dags og engan Georg að spjalla við. Þessar rabbstundir okkar voru, auk þess að vera dýrmætur skóli í þróun sjúkrahúsa og heil- brigðismála, einhverjar bestu stundir lífs míns. Georg var mikill gæfu maður í lífinu. Hann átti yndislega eigin- konu, Guðlaugau, sem ásamt börn- unum, tengdabörnum og barna- börnum syrgja elskulegan eigin- mann og föður. Heimilið og vinnan var Georg allt. Það var táknrænt fyrir Georg, að þegar mest var að gera þá leið honum best. Síðasta ævidegi sínum eyddi hann á skrifstofu sinni til kvölds við skriftir. Þær munu fáar stofnanirnar, sem stát- að geta af öðrum eins stjórnanda og höfðingja og Georg var. Deyr fé, deyja frædr, deyr sjálfr et sama; en orðstírr deyr aldrigi hveims sér góðan getr. Um leið og ég og fjölskylda mín v'ottum eiginkonu og fjölskyldu Georgs okkar dýpstu samúðar- kveðjur, vil ég einnig flytja samúðarkveðjur félaga í Félagi forstöðumanna sjúkrahúsa á íslandi og félaga í bræðrafélögum hinna norðurlandanna. Hvíli hann í friði. Davíð. Við hið skyndilega fráfall okkar góða vinar, Georgs Lúðvíkssonar, koma í hugann ótal minningar frá áratuga kynnum. Við minnumst allra þeirra góðu stunda, sem við höfum átt saman allt frá því að við fórum í fyrstu skíðaferðir okkar fyrir meira en fjörutíu árum, og síðan er við unnum saman að byggingu skíðaskála KR. Þar skip- aði dugnaður og ósérhlífni Georgs honum fljótlega í forystusveit. Ahugi hans og stuðningur við skíðamál KR hélst óbreyttur alla tíð, því að ef Georg sneri sér að einhverju máli, þá var ekki um neina hálfvelgju að ræða. Minnis-- stæðar eru líka fjallgöngurnar og- sumarferðirnar, sem við fórum saman um landið, þar sem Georg var hinn sjálfkjörni foringi og glaðværð hans og gott skap naut sín vel. Nokkur undanfarin ár höfum við hitzt á hverjum sunnudags- morgni og farið í langar göngu- ferðir um borgina og nágrennið okkar til andlegrar og líkamlegrar hressingar. Nú er skarð fyrir skildi og er Georgs sárt saknað úr hópnum. Ekki sízt minnumst við ótelj- andi ánægju- og gleðistunda, sem við höfum átt saman á heimili Georgs og Guðlaugar. Þau voru samhent í því að skapa það góða viðmót og hjartahlýju, sem þar mætti okkur ávallt. Nú þegar við kveðjum kæran vin er okkur ekki einungis í huga söknuður og tregi, heldur einnig þakklæti. Þakklaeti til forsjónar- innar fyrir að hafa fengið að njóta samfylgdar Georgs og mannkosta hans öll þessi ár. Við og fjölskyld- ur okkar þökkum vináttu hans og tryggð við ókkur og sendum Guðlaugau og fjölskyldunum að Kvisthaga 23 innilegar samúðar- kveðjur og biðjum þeim blessunar. Franz, Jóhann og Leó. í dag er kvaddur góður vinur og samferðamaður Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri Ríkisspítal- anna. Skyndilega og hljóðlega hverfur hann héðan og hljóðlega gekk hann um meðal okkar, þótt hann sinnti mikinn hluta æfi sinnar einu umsvifamesta og eril- samasta starfi sem býðst hér á landi. Mig langar í örstuttu máli að þakka Georg ánægjulegt sam- starf og samvinnu um tuttugu ára skeið, eða síðan ég hóf störf ví sjúkrahúsarekstur Reykjavíkur- borgar. Allan þann tíma hefur samstarf okkar verið mjög náið og hefur aldrei skuggá á það borið. Sjúkrahúsarekstur er svo flókið fyrirbæri og margslungið, að enginn einn situr inni með þá þekkingu sem til þarf og enginn einn fylgst með þeirri þróun sem verður sífellt á þeim vettvangi. Þetta skildi Georg manna best og var hann óþreytandi að afla sér þekkingar og miðla henni til annarra. Georg var félagslyndur maður og má til marks um það nefna margra áratuga þrotlaust starf hans fyrir K.R. enda var hann mikill unnandi íþrótta og útiveru. Um þann þátt í lífi Georgs er þó aðrir færari að fjalla en ég. Árið 1962 beitti Georg sér fyrir stofnun Félags forstöðumanna sjúkrahúsa og veitti hann þeim samtökum forstöðu fram á síðustu ár. Hann skildi manna best þörf- ina fyrir slík samtök, sem nota. mætti til að koma á framfæri fræðslu og upplýsingum, og berjast fyrir sameiginlegum áhugamálum forstöðumanna og hag sjúkrastofnanna sem víða var mjög bágur á þessum árum í litlu uppáhaldi. Georg hafði á starfs- ferli sínum fram að þeim tíma stofnað til mjög víðtækra sam- skipta við sjúkrahússtjórnendur á Norðurlöndum sérstaklega í Dan- mörku og Svíþjóð, en þangað höfðum við lengst sótt þekkingu enda þessi lönd í fremstu röð á þessu sviði. Þessi sambönd Georgs opnuðu allar dyr fyrir okkur hinum sem á eftir komum og auðveldaði okkur aðgang að stofnunum og sérhæfðu starfsliði þeirra. Varð ég þess var þegar við undirbjuggum rekstur Borgar- spítalans á sínum tíma og allt þurfti að skipuleggja frá grunni. Ég og samstarfsmenn mínir í Borgarspítalanum sem höfum átt við Georg samneyti gegnum árin þökkum honum fyrir samfylgdina, fyrir hans jákvæðu afstöðu til samstarfs og fyrir ómetanlegt framlag hans til þróunar sjúkra- húsmála á Islandi. Georg var mikill gæfumaður í einkalífi sínu og hafði við hlið sér mikilhæfa eiginkonu, Guðlaugu Jónsdóttur, og áttu þau 4 mann- vænleg börn. Ég og kona mín þökkum þeim hjónum samveru- stundir sem gáfust hér heima og erlendis og færum Guðlaugu og börnunum innilegar samúðar- kveðjur. Haukur Benediktsson. Ég sá Georg Lúðvíksson fyrst á sólbjörtum sumardegi úti í Gauta- borg fyrir tæpum 12 árum. Það var vel við hæfi að kynnast honum við slíkar aðstæður. í huga mínum verður alltaf birta og ylur í kring- um hann. Nokkuð kynntist ég honum við þetta tækifæri. En ekki var Georg þó, fremur venju, á neinni skemmtireisu, heldur í er- indum Ríkisspítalanna. Maðurinn vakti strax forvitni mína og áhuga. Að sjálfsögðu vissi ég, að hann var framkvæmdastjóri lang- stærstu spítalastofnana á Islandi, reyndar eins stærsta fýrirtækis landsins, en mér þótti Georg ekki líkjast þeim sjúkrahúsforstjórum, er ég hafði áður átt samskipti við. Maðurinn var einstaklega þægileg- ur í fasi og virtist hafa nógan tíma til alls og eiga auðvelt með að skiptast á orðum við hvern sem var. Síðar hefi ég átt mikil og góð samskipti við Georg Lúðvíksson og komist að raun um, að þetta mat mitt á manninum var rétt. Ég hefi oft gengið með honum um ýmsar deildir Ríkisspítalanna og undrast, hversu margt starfsfólk hann þekkti með nafni og oftast gaf Georg sér tíma til að staldra við og skiptast á við það orðum. Ég ætla, að fram á síðustu stund hafi yngsti og lægstsetti starfsmaður Ríkisspítalanna átt greiða leið að skrifborði forstjórans til þess að ræða við hann um vandamál í starfi. En þessi friðsami og kurt- eisi maður þurfti lengst af á starfsferli sínum sem fram- kvæmdastjóri Ríkisspítalanna að standa í stríði og það á tvennum vígstöðvum. Annars vegar sóttu að honum læknar og annað starfsfólk með kröfur, oft háværar, en vissu- lega oftast réttmætar um meira húsnæði, betri tæki, fleira fólk. Hins vegar fjárveitingavaldið, sem að sjálfsögðu vildi spara. Þótt Georg Lúðvíkssyni væri flest vel gefið, tókst honum ekki fremur en gullgerðarmönnum miðalda að búa til gull, og þó. Ég tel, að allir yfirlæknar Ríkisspítalanna þekki mörg dæmi þess, að hann leysti vandann, enda þótt hann vissi, að það myndi kosta stríð á hinum vígstöðvunum. Það er vissulega auðveldara að neita um aðstoð, ef menn þekkja ekki nákvæmlega aðstæður, en Georg þekkti hverja kompu innan Ríkisspítalanna og hann var svo nákunnugur allri starfsemi þeirra, að undravert mátti teljast. Honum var því flestum öðrum betur ljóst hvar skórinn kreppti og reyndi ætíð að leysa vandann. En hann var hvorki skaplaus maður né skorti hann viljafestu. Stundum þegar hart var deilt, fór honum eins og Skarphéðni Njálssyni, að honum spratt sviti í enni og komu rauðir flekkir í kinnar honum, en hann var Skarphéðni þar fremri, að ætíð kunni hann að stilla skap sitt, og fataðist aldrei kurteisi. Fáum finnast fundarsetur skemmtilegar. Einu skemmtilegu fundirnir, sem ég hefi setið, voru fámennir fundir á skrifstofu Georgs, en þá bauð hann stundum upp á kaffi og kex. Sérlega var hann í essinu sínu, þegar hann velti fyrir sér teikn- ingum arkitekta. Hann var undra- fljótur að átta sig á hlutunum og oftast hafði hann einhverjar skyn- samlegar ábendingar. Hann hafði og langa reynslu af því að koma fyrir ýmiss konar starfsemi í of þröngum húsakynnum. Fyrir nokkrum árum hlaut hann alvarlegt hjartaáfall, svo alvar- legt, að fæstir bjuggust við honum aftur til starfa, en Georg Lúðvíks- son bar hag Ríkisspítalanna meir fyrir brjósti en allt annað og aftur kom hann til starfa og hlífði sér hvergi og síst síðustu vikur ævi sinnar. Það er víst nokkuð almenn skoð- un hérlendis, helst þeirra sem minnst til þekkja, að opinberir embættismenn séu yfirleitt áhuga- litlir og fákunnandi í starfi. Marg- ir góðir opinberir embættismenri hafa starfað og starfa meðal okkar og einn þeirra var Georg Lúðvíks- son. Vonandi eignumst við marga slíka framvegis. Ég flyt honum þakkir fyrir allt það, sem hann gerði fyrir Vífils- staðaspítala. Það, sem vel hefur tekist, er honum fremur öðrum að þakka. Ekki verður hann sakaður um það, sem miður kann að fara. Hann var gæfumaður í einkalífi sínu. Hann átti góða konu og góð börn. Fyrir mína hönd og konu minn- ar og fyrir hönd Vífilsstaðaspítala flyt ég honum alúðarþakkir, og við sendum öll fjölskyldu hans samúð- arkveðjur. Hrafnkell Helgason. Kveðja frá starfsfólki skrifstofu ríkisspítalanna Hið snögga fráfall Georgs Lúð- víkssonar framkvæmdastjóra kom eins og reiðarslag yfir okkur þriðjudagsmorguninn 20. þ.m., er vinnudagur hófst í skrifstofu ríkisspítalanna. Daginn áður hafði hann verið við störf fullur áhuga á þeim málefnum er hann þá þurfti að leysa. Okkur samstarfsmönnum hans, sem unnið höfum undir hans handleiðslu um langt árabil finnst nú skarð fyrir skildi. Við munum ávallt minnast Georgs Lúðvíkssonar sem góðs manns, samviskusams embættis- manns sem ekki mátti vamm sitt vita, sanngjarns húsbónda og veituls höfðingja þegar við sóttum hann heim á merkisdögum. Við þökkum frú Guðlaugu vel- vild og rausn í okkar garð á liðnum árum og vottum henni, börnunum og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúð. Georg Lúðvíksson fram- kvæmdastjóri Ríkisspítalanna lést á heimili sínu aðfararnótt þriðjudagsins 20. febrúar, 65 ára að aldri. Georg hóf störf hjá skrifstofu Ríkisspítalanna 1936 og vann þar síðan óslitið til dauða- dags, eða í 42 ár, þar af var hann framkvæmdastjóri í 25 ár eða frá 1953. Ríkisspítalar hafa á þessum tíma þróast og eru nú ein stærsta ef ekki alstærsta stofnun landsins. Læknar Landspítalans þekkja þann eril og ónæði, sem fylgdi starfi Georgs, en á hans herðum hvíldi framkvæmd reksturs þessa stóra fyrirtækis. Það gefur auga leið, hvaða álag þetta hefur verið og áreiðanlega ekki á allra færi, en Georg var mikill dugnaðarforkur og með afbrigðum samviskusamur, enda vildi hann ávallt hag stofnunarinnar sem bestan. Fyrir nokkrum árum varð hann fyrir heilsutjóni og gekk ekki heill til skógar eftir það, en hann hlífði sér hvergi þegar hann hóf störf að nýju og vann af sama dugnaði eftir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.