Morgunblaðið - 18.03.1979, Side 1

Morgunblaðið - 18.03.1979, Side 1
64 SÍÐUR 65. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 18. MARZ 1979 Morgunbiaósinv Finnar að kjörborði Helsinki. 18. marz. Reuter. FINNAR ganga að kjörborðinu um þessa helgi og kjósa nýtt þing. Búist er við að Íhaldsílokk- urinn vinni verulega á í þessum kosningum. en þó er fastlega gert ráð fyrir því að valdahlutföllin raskist ekki verulega og að sam- steypustjórn núverandi stjórnar- flokka sitji áfram. Ótrúlegt er talið að íhalds- flokkurinn verði aðili að sam- steypustjórninni, þar sem við því hefur verið varað af opinberri hálfu í Sovétríkjunum. Rússar segja að þátttaka íhaldsmanna í stjórn kunni að stofna góðri sam- búð Sovétríkjanna og Finnlands í hættu. Núverandi stjórnarflokkar ráða 134 af 200 sætum á finnska þing- inu. Lestun eftir þrjátíu ára hlé í KÍNA New Orleans. Louisiana. 18. marz. AP. BANDARÍSKT flutninga- skip kemur til Shanghai í Kína í dag og lestar þar um 4.000 tonn af vörum, en það er í fyrsta sinn í 30 ár að bandarískt fraktskip leggur að bryggju í Kína. Skipið heitir Letita Lykes og er í eigu Eim- skipafélags Lykes bræðra í New Orleans. Skipið mun lesta m.a. gæsafjaðrir, nagla, saltaðar garnir til pylsugerðar, niðursoðnar marglyttur, te, hunang og ýmsar fleiri vörutegundir. Það er létt yfir klerkunum tveimur á myndinni, séra Jóni Auðuns (t.v.) fyrrum dómprófasti og séra Ólafi Skúlasyni dómprófasti, en myndina tók ól. K.M. í Austurstræti í blíðviðrinu í vikunni. Ekki náðum við brandaranum sem fýkur þarna en báðir eru þekktir fyrir að bregða fyrir sig góðum sögum. Khmerar sækja enn BanKkok. 17. marz. AP. TALSMAÐUR hcrja hliðhollra Pol Pots fyrrverandi leiðtoga Kambódi'umanna. sagði í dag að þeir hefðu ýmist fellt eða sært yfir 1200 óvinahermenn í bardög- um síðustu daga. þar á meðal 13 kúbanska hermenn. A sama tíma ítrekaði útvarp uppreisnarmanna sem aðsetur hefur í Kína fyrri upplýsingar sínar um að mikill fjöldi kúb- anskra hermanna berðist með Víetnömum í Kambódíu. Enn- fremur sagði útvarpið að tölu- verður fjöldi sovéskra hernaðar- sérfræðinga væri ennþá í Kamb- ódíu til stuðnings innrásarliðinu. Að sögn útvarpsins eru mestu bardagarnir í skógarsvæðum í norðvesturhluta Kambódíu og að sögn fréttaskýrenda í Bangkok í Thailandi eiga Víetnamar í tölu- verðum vandræðum í átökunum við uppreisnarmenn þar. Mestu hefði munað að nauðsynlegt hefði verið að flytja mikið lið til kín- versku landamæranna meðan átökin stóðu sem hæst þar Skíðaför á Norðurpól Moskvu. 17. mars. AP. SJÖ-MANNA leiðangur er lagður af stað á skíðum frá Sovét- ríkjunum með það markmið í huga ná til Norðurpólsins, að því er segir í frétt frá Tass. Sovéska fréttastofan segir að garparnir sem allir eru þraut- reyndir skíðamenn, hafi farið af stað frá Henríetta-ey á föstudag en eyja þessi mun vera í hópi þeirra nyrstu í íshafinu. Leiðangursmenn gera sér vonir um að vera komnir til Norður- pólsins eftir u.þ.b. sjötíu daga. Flestir munu þeir vera vísinda- menn og er foringi þeirra Dmitry Shparo, aðstoðarprófessor við Stál- og málmblöndunarstofnun- ina í Moskvu. Beðið griða París, 17, marz. AP. SEX fyrrverandi forsætisráð- herrar Frakklands sendu í dag Ayatollah Khomeini trúarleið- toga írana beiðni um að væntanleg réttarhöld yfir Abbas Iloveita fyrrverandi for- sadisráðherra írans færu fram á grundvelli réttlætis og til- finningar yrðu ekki látnar ráða ferðinni. Undir beiðnina rituðu: Edgar Faure, Michel Debre, Maurice Couve de Murville, Jacques Chaban-Delmas, Jacques Chirac og Pierre Messmer. Rússar beittu S.Þ., 17. mars. AP. RÚSSAR beittu neitunarvaldi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á föstudag er borin voru fram drög að friðartillögu þess efnis að allir þeir aðilar er hlut eiga að máli í milliríkjaskærum í Indókina dragi heri sína til baka frá öðrum löndum. Uppástungan var undirrituð af fulltrúum þjóðanna fimm í Suðaustur-Asíu bandalaginu og beindist hún að árás Kínverja inn í Víetnam í síðasta mánuði svo og innrás Víetnama í Kambódíu í desember. Þrettán ríki greiddu atkvæði með tillögunni en Sovét- Egyptum settir úrslitakostir ? Kairó, Nicosia, WashinRton, 17. marz. AP SÝRLENZKA útvarpið skýrði frá því í dag að Saudi-Arabar hefðu tilkynnt Egyptum að allri efna- hagsaðstoð við þá yrði hætt, ef Egyptar undirrituðu friðar- menn og Tékkar greiddu atkvæði á móti. Sovétmenn geta, í krafti þess að þeir eru einir af fimm fastaaðil- um Öryggisráðsins, beitt neitunar- valdi og var það neitun þeirra, sem réð úrslitum um að tillagan var kveðin niður. Aðrir fastafélagar eru Bandaríkin, Frakkland, Bret- land og Kína. Sendiherra Rússa, samninginn við ísraelsmenn, í því formi sem hann nú er. Útvarpið sagði, að Hosni Mubarak varaforseta Egyptalands hefði verið tilkynnt þetta þegar hann var í heimsókn í Saudi-Arabíu í vikunni. Oleg Aleksandrovich Troyanovsky, sagðist hafa greitt atkvæði á móti drögum tillögunnar þar sem þau í raun spyrtu saman innrás Kínverja í Víetnam og ófriðinn í Kambódíu. „Það þýðir ekkert annað en að fórnarlömbin eru dregin í sama dilk og kínverska innrásarliðið," sagði sendiherrann. Að mati sérfræðinga yrði það gífurlegt áfall fyrir Egypta ef efna- hagsaðstoðar Saudi-Araba nyti ekki við. Þeir hafa á síðustu árum verið langstærsti fjárhagslegi bakhjarl Egypta. Þessar fréttir útvarpsins hafa hvorki fengist staðfestar í Egvpta- landi né í Saudi-Arabíu. Egj’ptar gera sér góðar vonir um að Zbigniew Brzezinski öryggis- fulltrúa Carters Bandaríkjaforseta sem nú er kominn til Saudi-Arabíu takist að fá Saudi-Araba ofan af þessum hugmyndum sínum og jafn- vel vinna þá til fylgis við samkomu- lagið að því er haft var eftir áreiðan- legum heimildum í Kairó í dag. Er Brzezniski hefur lokið viðræðum sínum við stjórnvöld í Saudi-Arabíu mun hann halda til Jórdaníu til að freista þess að vinna þarlend stjórn- völd til fylgis við samkomulagið. neitunarvaldi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.