Morgunblaðið - 18.03.1979, Síða 7

Morgunblaðið - 18.03.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1979 7 HUG- VEKJA eftir séra Jón Auðuns í síöustu hugvekju var mér í hug, hve frjálsræöiö, frelsiö í einkalífi manna getur veriö tvíeggjaö sverö, en hvaö er um frelsi einstaklinganna sem þegna þjóöfélagsins, sam- ' félagsins? Yfir öld okkar, 20. öld- inni, hvíla þungir skuggar, um þaö þarf ekki aö hafa mörg orö, en þaö verður ekki af henni haft aö á henni hafa menn víöa um lönd lært aö losa um gamla fjötra, hrinda úr vegi aldagamalli kúgun og skilja betur en fyrr jafn- réttiskröfur einstakling- anna í lýöræðisríkjum. í heilum heimshlutum búa menn ekki viö lýöfrelsi í vestrænum skilningi, en hvernig förum viö meö þaö, viö sem búum viö þaö? Okkur þykir ógn- vekjandi tilhugsun, aö glata því, en hvaö gæti ekki gerst? Viö krefjumst réttindanna, sem þaö veit- ir, en gleymum tíöum hinu, manns fyrir frelsi. Lýöræö- inu hættir ætíö viö aö leggja of einhliða áherslu á frjálsræöiö sem lausn allra mála, en gleymir nauösyn agans. Án frelsis til aö tjá sig, hugsa og starfa vill heil- brigöur maöur ekki lifa, en hitt er Ijóst, aö frelsiö eitt getur oröiö sem beittur hnífur í hendi óvitans og aliö upp ábyröarlausa ein- staklinga og skefjalausa einstaklingshyggju, ef ekki fylgir hollusta viö æöra markmiö, — og þá kem ég aö hinum kristilega aga, sem Hebreabréfiö brýnir fyrir lesendum sín- um. Hann er ekki fólginn í hræðsluhlýðni viö boö og bönn. Hann er fólginn í því aö maöurinn eigi lífshug- sjón, sem setur frelsi hans skoröur, sem honum er Ijúft aö þola. Eigi maöur- inn ekki hollustu viö hug- sjón hreinleikans gerir frjálsræöiö hann aö siö- sem heimurinn hefur séö hins frjálsa manns. Hvor er frjálari, mannssonurinn sem af hlýöni viö hina æöstu hugsjón tekur fús- lega á sig sárustu fjötra, kvalir og kross, eöa múg- urinn umhverfis hann á kvalagöngunni, sem þykist vera frjáls en er í fjötrum girnda og heimsku? Hvor er frjálsari, bandinginn sem af ósveigjanlegri hollustu viö æöstu hugsjónina, sem jaröarbúum hefur veriö flutt, þolir meö háleitri tign dóm og dauöa, eöa Pílatus sem fyrir hræöslu sakir dæmir hann gegn betri vitund? Á píslar- göngunni lætur Krists- myndin okkur skyggnast dýpst inn í hiö fullkomna lögmál frelsisins. Þegn í lýðræðisríki, — frjáls eða...? Hvar sem kristin lífssannindi eru flutt óhindruö af ofsóknum, réttarmoröum, fangels- unum, fjötrum og geö- veikrarhælum, getur þaö Þegn í lýðrœðisríki frjáls eða...? aö þaö bindur okkur ákveðnar skyldur. Viö heimtum frelsi, frjálsræöi, jafnvel frelsi til aö koll- varpa lýöræöinu, en gleymum hollustunni, hlýöninni, aganum. Á lög- legan og ólöglegum leiö- um leitum viö skefjalaust þess, sem hægt er aö bera úr býtum af þjóöfél- aginu, en gleymum því sem skylda er aö gefa því. Einkahagsmunir teyma menn til margskonar óhæfu á sviöi atvinnumála og viöskiptalífs og fleira framiö í myrkri en þaö sem í Ijósi fréttamiðla birt- ist, en lýðræðið fær ekki staöizt til frambúöar ef gleymist, aö viö erum samfélagsverur, sem eiga samflot um velferö eöa voða, hamingju eöa harm. Hér er vá fyrir dyrum, því aö þegar veikleiki lýö- ræöisins er fyrir aögeröir okkar öllum Ijós, og margskonar glæpsamlegt misferli tíökast í skjóli frelsis og frjálshyggju, þá á einræöiö sterkan leik á boröi: Þú tilheyrir ríkinu og hugsjón þín á aö vera sú aö vera viljalaust tæki í höndum sterkra valdhafa! Einræöiö leggur einhliöa áherslu á agann og stingur svefnþorni meðfædda þörf hins heilbrigöa leysingja, sem aö lokum stendur meö öskuna af útbrunnum ástríöum eina í hendi sér. Virði hann ekki hugsjón bræðralagsins, samfélagsins, getur frelsiö gert hann þjóöfélaginu hættulegan. „Gefðu mér frelsi eöa láttu mig deyja“, baö hinn glæsilegi boöberi mannréttinda, Patrick Henry, en þaö er hægt aö hljóta hvorttveggja í senn: Frelsið og dauöann. íslensk æska býr viö mikiö sjálfræöi í siöferöi, en bergja ekki of margir dauöann af lokkandi bikar lífsnautnanna? Viö viljum búa viö mikiö frelsi í þjóö- felagi okkar, en notum viö ekki frelsiö í ískyggilegum mæli til aö krefjast, án þess aö hugsa um hvort efnalegt buröarmagn þjóöfélagsins þolir þær kröfur sem þrýstihópar meö sterka aöstööu gera? Er ekki óbrúanlegt djúp staöfest milli frelsis og aga? Þeirri spurn er auövelt aö svara í kristinni kirkju, og þó einkum á föstunni. Hún leiöir okkur fyrir sjón- ir hann, sem í ríkari mæli en nokkur annar sem á jöröinni hefir lifaö, var frjáls. Einmitt á píslar- göngu hans blasir viö okk- ur stórkostlegasta mynd, ekki gleymst, aö hug- myndin um mannréttindi, lýöfrelsi og mannhelgi er sótt í kristindóminn, þangaö fyrst og fremst þótt heimurinn standi í þakkarskuld viö hámenn- ingu Forngrikkja um lýö- ræöi aö vissu marki. En jafnhliöa kröfunni um frelsi, sem kirkjan hefur raunar á liönum öldum margsinnis smánaö og troöiö fótum, flytur krist- inn dómur boðskap um skilyröislausa nauösyn agans, — ekki aga sem gerir samviskur mannanna ófrjálsar og elur upp í þeim sjálflygi, þýlundaöa þjónustu og hræsni, — heldur þann aga, sem kemur innan frá, nærist af hollustunni viö háa hugsjón og leggur á manninn þá Ijúfu fjötra, sem göfga hjarta hans og gera honum kleift aö lifa sem siöaöur þegn í siöuöu lýöræðislandi. Til þess aö þjóö vor eignist svo vammlaus börn og viö þegnar þess svo göfugt samfélag eig- um viö mikiö ólært af honum, sem fastan sýnir okkur fegurst myndina af, — hvernig hlýðnin og frelsiö, aginn og sjálf- ræöiö runnu eftir einum farvegi í sálu hans. sölu Honda Civic árg. 1977. Upplýsingar í síma 20206. Þetta er Pontiac Trans-Am TA 6’6 1975 Fallegasti sportbíll landsins og þótt víöa væri leitað. Hann er til sölu. Upplýsingar í síma 92-2163, Keflavík. J^Stjórnunarfélag íslands^É^ STJÓRNARMENN, FORSTJÓRAR OG EIGENDUR HLUTAFÉLAGA Vitið þið að nk. áramót tekur gildi gerbreytt löggjöf um hlutatélög? Hinn 26. marz nk. verður haldið námsskeið um NÝJU HLUTA- FÉLAGALÖGGJÖFINA á vegum Stjórnunarfélags íslands. Náms- skeiðið verður haldið að Hótel Esju kl. 14—18. A námsskeiðinu verður farið yfir nýju hlutafélagalöggjöfina og m.a. ræddar þær breytingar sem hugsanlega þarf að gera á samþykktum einstakra hlutafélaga vegna hinnar nýju löggjafar. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Björn Friðfinnsson, lögfræðingur. Björn Friðfinnsson, lögfræðingur. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags íslands, Skipholti 37. S: 82930. Stjórnunarfélag íslands Sóar Þú eigin fjármunum? Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiði um FJÁRMÁL EINSTAKLINGA að Hótel Esju dagana 21. og 22. marz kl. 15—19 og 23. marz kl. 10—14, eða alls 12 klst. Á námskeiöinu veröur sérstök áherzla lögö á aö kenna gerö greiðsluáætlana fyrir einstaklinga í þeim tilgangi aö ná betri tökum á eigin fjármálum. Námskeiðið á erindi til þeirra sem vilja: — minnka tilkostnaö og auka tekjur viö hinar ýmsu fjár- ráðstafanir sínar — koma betra skipulagi á eigin fjármál — fá vitneskju um greiöslugetu í náinni framtíö — ná betri árangri í baráttunni viö verðbólguna — auka ráöstöfunarfé sitt. Meðal námsgagna er tyrra hefti af Fjárfestingahandbókinni sem er nýútkomin. Leiðbeinandi verður Gunnar Hel){i Ilálfdanarson -forstöðumaður verðbréfamarkaðar Fjárfestingafélags íslands og ritstjóri Fjárfestingahándbókarinnar. Þáttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags íslands, Skipholti 37, simi 82930. Gunnar Hel/ti Hálf- danarson, li&skiptajr. EFÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.