Morgunblaðið - 20.03.1979, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979
• Steinn Sveinsson lék kveðjuleik sinn með körfuboltaliði ÍS er Þórsarar voru lagðir að velli um helgina.
Steinn hefur um árabil verið einn af lykilmönnum ÍS og verður sjónarsviptir af honum. Ljósm.: GI
Vonir Þorsara
að engu orðnar
Vonir Þórsara á Akureyri um
að haida sæti sínu í úrvalsdeild-
inni í körfubolta urðu að engu nú
um helgina. Þeir léku tvo leiki
hér syðra og töpuðu þeim báðum,
þeim síðari gegn stúdentum í
Kennaraskólanum á sunnudag.
Því fer þó fjarri að Þórsarar
þurfi að örvænta þó að svona hafi
farið, því að liðið hefur innan
sinna vébanda margt efnilegra
'eikmanna, sem eiga framtíðina
fyrir sér. Leiknum á sunnudag
lyktaði með sigri stúdenta.
104—96, en í hálfleik var staðan
49—41, stúdentum í vil.
Leikur þessi var allan tímann
heldur leiðinlegur á að horfa,
mistök leikmanna beggja liða voru
tíð og auk þess var mikið um gróf
brot. Stúdentar náðu góðri forystu
strax í upphafi fyrri hálfleiks, en
þá kom góður kafli hjá Þórsurum
og 'leikurinn jafnaðist talsvert.
Sem fyrr segir höfðu stúdentar í
hálfleik 7 stiga forystu, 48—41.
Stúdentar héldu fengnu forskoti
nánast allan síðari hálfleikinn, eða
allt þar til um fimm mínútur voru
til loka leiksins, en þá náðu Þórs-
arar að jafna. Var talsverður
barningur á lokamínútunum, þar
sem stúdentar höfðu ívið betur og
sigurinn var þeirra.
Stúdentar virtust heldur áhuga-
litlir í þessum leik og barátta var
með minnsta móti hjá þeim. Tveir
leikmenn báru af í liðinu að þessu
sinni, en það voru þeir Trent
Smock og Jón Héðinsson. Þeim
fyrrnefnda gekk þó illa að finna
leiðina í körfuna framan af fyrri
hálfleik, en bætti um betur í þeim
síðari. Jón Héðinsson er ótrúlega
kraftmikill leikmaður og lætur
aldrei deigan síga. Þess má geta,
að Steinn Sveinsson lék á sunnu-
dag sinn síðasta leik með stúdent-
um, en hann hefur í hyggju að
Staðan í úrvalsdeild
KR 20 14 6 1843:1658 28
UMFN 20 13 7 2033:1854 26
Valur 19 13 .6 1658:1624 26
ÍR 20 10 10 1789:1752 20
ÍS 20 6 14 1717:1833 12
Þór 19 3 16 1557:1874 6
Einkunnagjöfin
KR: Árni Guðmundsson 2, Ásgeir Hallgrímsson 1, Birgir Guðbjörnsson 2,
Einar Bollason 3, Eiríkur Jóhannesson 1, Garöar Jóhannsson 3, Gunnar
Jóakimsson 1, Jón Sigurðsson 3, og Þröstur Guðmundsson 2.
Þór: Ágúst Pálsson 2, Alfreð Túliníus 1, Birgir Rafnsson 1, Eiríkur Sigurösson
2, Karl Ólafsson 2, Jón Indriðason 1, Ómar Gunnarsson- 1, Sigurgeir
Sveinsson 1, Þröstur Guðjónsson 1.
ÍS: Albert Guömundsson 1, Bjarni Gunnar Sveinsson 2, Gunnar Halldórsson
1, Gísli Gíslason 2, Ingi Stefánsson 2, Jón Oddsson 1, Jón Héðinsson 3,
Steinn Sveinsson 2.
Þór: Alfreð Tuliníus 1, Birgir Rafnsson 2, Eiríkur Sigurðsson 3, Jón Indriöason
3, Karl Ólafsson 2, Ómar Gunnarsson 1, Þröstur Guðjónsson 1.
Valur: Gústaf Gústafsson 3, Hafsteinn Hafsteinsson 2, Kristján Ágústsson 2, Lárus Hólm 1, Ríkharöur
Hrafnkelsson 3, Siguröur Hjörleifsson 2, Torfi Magnússon 2, Þórir Magnússon 2.
UMFN: Árni Lárusson 1, Brynjar Sigmundsson 1, Geir Þorsteinsson 2, Gunnar Þorvaröarson 3,
Guösteinn Ingimarsson 2, Jónas Jóhannesson 3, Júlíus Valgeirsson 1, Stefán Bjarkason 4.
draga sig í hlé. Verður vissulega
sjónarsviptir að honum, en Steinn
hefur sem kunnugt er verið einn af
lykilmönnum í liði stúdenta um
langt skeið.
Mark Christensen, þjálfari
þejrra Þórsara var bestur norðan-
manna í leiknum, eins og svo oft
áður. Mark er ótrúlega fjölhæfur
leikmaður. Mark þykir einnig
góður þjálfari. Eiríkur Sigurðsson
átti einnig góðan leik á sunnudag,
svo og Jón Indriðason, sérstaklega
í síðari hálfleik.
Stigin fyrir ÍS: Trent Smock 40,
Jón Héðinsson 22, Steinn Sveins'-
son og Ingi Stefánsson 12 hvor,
Bjarni Gunnar Sveinsson 11, Gísli
Gíslason 5 og Jón Oddsson 2.
Stigin fyrir Þór:"Mark Christen-
sen 41, Jón Indriðason 25, Eiríkur
Sigurðsson 14, Birgir Rafnsson og
Karl Ólafsson 6 hvor, Alfreð
Tuliníus og Ómar Gunnarsson 2
hvor.
Dómarar voru Jón Otti Ólafsson
og Guðbrandur Sigurðsson og
dæmdu þeir sæmilega. —GI.
Körluknalllelkur
Stigahæstu
leikmenn
Stigahæstu menn (leikir)
John Hudson KR 577 (19)
Mark Christensen Þór 566 (19)
Ted Bee UMFN 526 (20)
Paul Stewart ÍR 511 (18)
Tim Dwyer Valur 490 (18)
Kristinn Jörunds ÍR 405 (20)
Jón Sigurðsson KR 392 (19)
Jón Indriðason Þór 352 (19)
Bjarni Gunnar S. ÍS 327 (20)
Kristján Ágústs. Valur 320 (19)
Dirk Dunbar ÍS 317 (11)
Jón Jörundsson ÍR 314 (20)
I
Stefnir í úr-
slitaviðureij
milli Vals oc
Valur vann UMFN 92:79 i c
Ve
ÞAÐ verða Valur og KR, sem leika að öllum líkindum til
úrslita í íslandsmótinu í körfuknattleik, þ.e.a.s. svo
framarlega sem Valur sigrar Þór í síðasta leik sínum, en
það er nokkuð sem flestir reikna með. Valur sigraði
UMFN sannfærandi í Laugardalshöll í gærkvöldi með 92
stigum gegn 79 eftir hörkuleik, en í leikhléi var staðan
43:34, Val í vil.
Fyrir leikinn í gær var orðrómur
á kreiki þess efnis, að Pétur
Guðmundsson myndi leika með
Val, en þegar á hólminn var komið
reyndist svo ekki. Það kom ekki að
sök fyrir Valsmenn, því að þeir
léku skínandi vel og tryggðu sér
sannfærandi og verðskuldaðan
sigur fyrir framan fleiri áhorf-
endur en áður hafa komið á leik
milli íslenskra körfuknattleiksliða.
í upphafi leiksins var greinilegt,
að leikmenn beggja liða voru
þrúgaðir af taugaspennu, enda
mikið í húfi. Mistökin á báða bóga
voru ótrúlega mörg og t,d. þegar
tvær og hálf mínúta var liðin af
leiknum var staðan 2:2. Um
miðjan fyrri hálfleikinn breyttu
Njarðvíkingar yfir í pressuvörn og
lifnaði þá mikið yfir leiknum.
Hálfleikurinn var mjög jafn allt
upp í 32:32, en þá kom góður kafli
hjá Vai og að sama skapi slæmur
hjá UMFN og staðan breyttist í
43:34 Val í vii fyrir lékhlé.
Síðari hálfleikur var mun betri
leikinn en sá fyrri og jafnframt
skemmtilegri á að horfa. Vals-
menn héldu áfram að auka for-
skotið og munurinn varð mestur
17 stig, 80:63, á 14. mínútu, og allt
virtist stefna í öruggan sigur Vals.
Njarðvíkingar voru þó ekki alveg
af baki dottnir og tókst að minnka
muninn í 7 stig, 77:84, en lengra
komust þeir ekki, því að Valsmenn
léku mjög skynsamlega lokakafl-
ann og tryggðu sér öruggan sigur,
92:79.
Valsmenn léku þennan leik mjög
vel og fremstur í flokki var þjálf-
ari þeirra, Tim Dwyer, sem sýndi
enn einu sinni hvílíkur yfirburða-
maður hann er. Hann var allt í
öllu hjá Val og sýndi stórkostlegan
leik, skoraði 37 stig og hirti ara-
grúa frákasta. Er óhætt að segja
að það hafi öðru fremur verið
stórleikur hans sem vann sigurinn.
En Dwyer var ekki sá eini sem lék
vel hjá Val í gærkvöldi. Ríkharður
Hrafnkelsson átti mjög góðan leik
og sýnir hann nú hvern leikinn
öðrum betri. Þá kom Gústaf
Gústafsson skemmtilega á óvart
og reyndist drjúgur bæði í sókn og
vörn. Torfi Magnússon var sterkur
í síðari háifleik eftir lélegan fyrri
hálfleik. Þá komust Kristján
Ágústsson og Sigurður Hjörleifs-
son ágætlega frá leiknum. Ekki
má skilja svo við Valsliðið að
minnast ekki á góðan varnarleik
liðsins, sem átti ekki lítinn þátt í
sigrinum. Má geta þess að það er
ekki oft sem UMFN skorar undir
80 stig i leik, reyndar hefur það
ekki gerst áður í vetur.
Enn einu sinni rennur titill úr
höndum Njarövíkinga á síðustu
stundu og var engin furða að þeir
væru vonsviknir eftir leikinn, en
það afsakar ekki þá framkomu
sem sumir leikmanna og forráða-
manna liðsins sýndu bæði meðan á
• KR-ingurinn Þröstur Guðmundsson finnur engar torfærur á Ieið
sinni að körfu Þórsara í leik liðanna um helgina.