Morgunblaðið - 20.03.1979, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 20.03.1979, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979 Uppreisnar Liu krafizt Tokyo, 19. marz. AP VEGGSPJALD hefur verið hengt upp í Peking með kröfu um að Liu Shao-chi, fyrrum forseti, sem var settur af í menningarbyltingunni, fái upp- reisn æru. Hann mun nú vera látinn. Fundað um Namibíu New York, 19. marz. AP FULLTRÚAR 11 landa komu saman í New York í dag til að reyna að bjarga tilraunum þeim sem hafa verið gerðar á undanförnum árum til að tryggja Namibíu sjálfstæði að afstöðnum kosningum undir alþjóðlegu eftirliti. Bandaríkin, Bretland, Vest- ur-Þýzkaland, Frakkland og Kanada stungu upp á fundinum í síðustu viku þar sem bardagar höfðu magnazt á sama tíma og vopnahlé sem Sameinuðu þjóð- irnar stóðu fyrir átti að taka gildi. Styttist í Saltsamning New York, 19. marz. Reuter. CYRUS Vance utanríkisráð- herra sagði í dag að Banda- ríkjamenn og Rússar væru iangt komnir með að leggja síðustu hönd á nýjan Salt-samning um takmörkun gereyðingarvopna og að árang- urinn kynni að koma í ljós eftir nokkra daga. Ehn hefur ekki verið ákveðið hvenær eða hvar Carter forseti og Leonid Brezhnev hittast til að undirrita samninginn, en Vance taldi að það yrði í Bandaríkjunum. Listaverki stolið Quhhio, 19. marz. AP VERÐMÆTU málverki frá fimmtándu öid „Madonna del Melograno", var stolið úr lista- safni i bænum - Qubbio á Mið-Italíu um helgina. Það er svo þekkt að ekki er hægt að setja það á markað. Höfundur verksins er ýmist talinn vera Filippo Lippi, Nieri di Bicci eða Pier Francesco Fiorentino. Snjókoma á fyrsta sumardegi Iaindon. 19. marz. AP. MIKLUM snjó kyngdi niður á Bretlandi um helgina og á Norður-Englandi voru iúmlega þriggja metra háir skaflar í gær, á fyrsta degi brezks sum- artíma. „Astandið er ótrúlegt og eng- inn trúir því án þess að sjá það,“ sagði forstöðumaður hjálparmiðstöðvar félags bif- reiðaeigenda í Newcastle. Félagið telur að 1500 bifreiða- eigendur hafi íeyðzt til að skilja eftir bíla sína á vegum sem lokuðust vegna snjókomu. Miklir kuldar eru líka á meginlandinu. Hlutar Bret- lands hafa einangrazt svo dög- um skiptir og þetta hefur verið versti vetur þar síðan 1963. Afieiðingar jarðskjálfta í Mexíkóhorg í síðustu viku. Jarðskjálftar hafa verið nokkuð tíðir í landinu að undanförnu. Tíðir jarðskjálftar ergja Mexíkóbúa Mexíkóborg, Mexíkó, 19. marz. AP. JARÐSKJÁLFTI skaut íbúum Mexíkóborgar skelk í hringu á sunnudag, en þrátt fyrir skcmmdir á mannvirkjum urðu engin slys á fólki. Skjálftinn mældist 5,5 stig á Richterkvarða og reyndust upptök hans vera í um 350 kflómetra fjarlægð suðvestur af höfuðborginni. Stórar bygg- ingar sveifluðust til í skjálftanum, en engar meiriháttar skemmdir urðu. Fólk flúði hins vegar út á götur víðs vegar um landið og talsverður ótti greip um sig meðal íbúa. Ástandið lagaðist þó brátt þar sem rafmagn fór ekki af og vatnsból breyttu sér ekki. I fyrri viku varð í Mexíkó skjálfti sem mældist 7,9 stig á Richter og urðu meiriháttar skemmdir á mannvirkjum í höfuðborginni. Fimm manns fórust í þeim skjálfta og um 100 særðust. Sakaruppgjöf í boði í Rhódesíu Salisbury, 19. marz. AP. RHÓDESÍSKAR herflug- vélar, sem venjulega eru notaðar til að flytja her- menn til að berjast gegn skæruliðum, vörpuðu yfir stöðvar þeirra um helgina flugmiðum með áskorun- um um að hætta bardögum þar sem þeir hefðu fengið skilyrðislausa uppgjöf saka. Aden, 19. marz. AP. Brottflutningi liðsafla Norður- og Suður-Jemena frá stöðvum sem þeir hafa tekið herskildi í landa- mærabardögum á undan- förnym þremur vikum er lokið að sögn yfirmanns vopnahlésnefndar Araba- bandalagsins Ibrahim Mohammed Younis hers- höfðingja frá Sýrlandi. Brottflutningurinn hófst á laugardag og honum lauk um helgina, fimm dögum fyrr en stefnt var að. Younis hershöfðingi kvað þetta bera vott velvild og einlægni beggja deiluaðila og sýna skilning á alvöru ástandsins er ríkti um þessar mundir í Araba- heiminum. Vopnahlésnefndin var skipuð á skyndifundi utanríkisráðherra Afababandalagsins í Kuwait fyrir tveimur vikum. Hvor deiluaðili um sig hefur sakað hinn um að hafa átt upptökin að bardögunum sem hófust 23. febrúar. Arababandalagið kallaði utan- ríkisráðherrana saman til fundar- ins í Kuwait þar sem það óttaðist að bardagarnir gætu leitt til tog- streitu milli Bandaríkjamanna og Rússa um yfirráð yfir Arabíu. Samkomulagið um vopnahléð Æðsti yfirmaður rhódrsíska heraflans, Peter Walls hershöfð- ingi, kunngerði sakaruppgjöfina um helgina, einum mánuði fyrir þingkosningarnar sem skæruliðar hafa ákveðið að grafa undan. Yfirlýstur tilgangur sakarupp- gjafarinnar er að fá skæruliða sem eru orðnir þreyttir á sex ára skærustríði til að gefast upp og taka þátt i kosningunum þannig að auknar líkur verði á því að nýja stjórnin fái alþjóðlega viðurkenn- ingu. tókst fyrir nokkrum dögum í kjölfár heimsóknar forseta suður-jemenska herráðsins til Sanaa, höfuðborgar Norður-Jemens, og heimsóknar forseta norður-jemenska herráðs- ins til Aden um helgina. Viðræður hershöfðingjanna leiddu til þess að aftur var komið á fjarskiptasambandi og flugsam- göngum milli landanna. Vega- samgöngur verða aftur leyfðar 26. marz. 1956 — Frakkar viðurkenna sjálfstæði Túnis. 1848 — Lúðvík I, konungur Bæjaralands, leggur niður völd. 1815 — Napoleon kemur til Fontainebleau („Hundrað dag- arnir" byrjar). 1602 — Hollenzka Aust- ur-Indíufélagið stofnað. 1549 — Thomas Seymour, æðsti maður enska flotans, tekinn af lífi. Afmæli: Ovid, rómverskt skáld (43 f. Kr. - 17 e. Kr.) - Henrik Ibsen, norskur ieikritahöfundur (1828—1906) — Benjamino Gigli ítalskur óperusöngvari Tveir af fjórum leiðtogum rhódesísku stjórnarinnar, Abel Muzorewa biskup og Ndabaningi Sithole, höfnuðu í gær síðustu friðaráætlun Breta og Bandaríkja- manna. Þar er gert ráð fyrir þingkosningum undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna og með þátt- töku skæruliðaleiðtoganna Joshua Nkomo og Robert Mugabe. Alls hefur einni milljón flug- miða með tilboðinu um skilyrðis- lausa sakaruppgjöf verið varpað yfir stöðvar skæruliða. Bæði Nkomo og Mugabe hafa hafnað kosningum og skæruliðasamtökin Zapu hótuðu í dag að skjóta niður allar flugvélar sem flygju yfir stöðvar þeirra. Samtökin hafa viðurkennt að hafa skotið niður tvær rhódesískar áætlunarflug- vélar, í september og í síðasta mánuði. Castro lét 500 lausa Havana, 19. mars. Reuter. KÚBUYFIRVÖLD létu í fyrri viku um fimm hundruð pólitíska fanga lausa úr haldi. Er þetta liður í áformum þeirra um að sleppa þrjúþúsund og sex hundruð slíkum föngum en tafir hafa orðið á framkvæmdinni til þessa. (1890-1957). Andlát: Hinrik IV Englands- konungur 1413 — Sir Isaac Newton, vísindamaður, 1727 *— Lúðvík Kossuth, stjórnmálaleið- togi, 1894 — Curzon lávarður, stjórnmálaieiðtogi, 1925 — Ferdinand Foch, hermaður 1929 — Brendan Behan, leikritahöf- undur, 1964. Innlent: Landsnefndin fyrri skipuð 1770 — Castenskioid skipaður stiftamtmaður 1813 — Tilskipun um peningagildi 1815 — Bær ferst í snjóflóði í Skutulsfirði 1818 - f. Jón Ólafs- son 1850 - d. Páll Pálsson Boeing biðl- ar til Araba Kuwait, 19. marz. AP. TVEIR af forstjórum banda- rísku flugvélaverksmiðjanna Boeing buðu í dag fjárfesting- araðilum í olíuríkinu Kuwait við Persaflóa að kaupa hluta- bréf í fálaginu. En stjórnarformaður Boeing, T.A. Wilson, sagði að félagið væri mótfallið því að Kuwait- búar eða aðrir Arabar kæmust í meirihlutaaðstöðu þar sem það mundi vekja ótta hjá öðr- um hlutabréfaeigendum í Bandarikjunum. Flugslys í Moskvu Moskvu, 19. marz. AP — Reuter. SOVÉZK farþegaþota af gerðinni TU-104 fórst í nágrenni Vnukovo-flugvallar í Moskvu á laugardag og með henni nokkrir farþegar. Flug- vélin var í áætlunarflugi milli Moskvu og Odessa. Fréttastofan Tass hefur varist allra frétta af slysinu. Af þeim sökum er ekki vitað hve margir fórust, en vélar af þessari gerð geta flutt allt að 100 farþega. Sjónarvottar skýrðu frá því, að margar sjúkrabifreiðar og slökkvibifreiðar hefðu farið með miklum hraða til flug- vallarins á laugardagskvöldið þegar slysið varð. Ekkert hefur verið látið uppi um tildrög slyssins, en dimm- viðri var í Moskvu á laugardag og mikil snjókoma. Hermaður fórst á N-írlandi Newton Hamilton, N-írlandi, 19. marz, AP. BREZKUR hermaður fórst og fjórir særðust í árás hryðju- verkamanna á her- og lögreglu- stöð í Newton Hamilton í Armagh-héraði í dag. Tveir Lögregluþjónar særðust einnig svo og óbreyttur borgari. Að sögn talsmanns hersins var allt að sjö fallbyssukúlum skotið frá vöruflutningabifreið sem stóð á bílastæði í 450 metra fjarlægð frá stöðinni. Flestar kúlnanna hæfðu her- stöðina og ollu miklum skemmdum. Ein kúlan tætti í sundur þak á hóteli í grenndinni og skemmdi þrjár verzlanir. Engin samtök hafa lýst sig ábyrga fyrir sprengjuárásinni, en grunur leikur á að írski lýðveldisherinn (IRA) hafi ver- ið að verki. Starfsemi IRA er einna öflugust á Armagh— héraði. stúdent 1877 — „íslendinga- bragur“ Jóns Ólafssonar birtur 1870 — „Kong Trygve" ferst út af Langanesi 1907 — „Brúar- foss“ kemur 1927 — d. Jón Þorláksson 1935 — f. Björn Þorsteinsson 1918. Orð dagsins: Markaðurinn er afmarkað svæði þar sem menn' geta svindlað hver á öðrum — Anacharsis, skýþískur heim- spekingur (um 600 f. Kr.). Brottflutningi lokið í Jemen Þetta gerðist

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.