Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979
47
Myndin var tekin af fundi þeirra Yassers Arafats. leiðtoga PLO, samtaka Palestínuskæruliða, og Husseins
Jórdaníukonungs þar sem leiðtogarnir ræddu um samningsuppkast Carters Bandaríkjaforseta að
friðarsamningi ísraelsmanna og Egypta. Símamynd AP
Fór Brzezinski
erindisleysu?
Kairó, Egryptalandi,
19. marz. AP.
ZBIGNIEW Brzezinski,
ráðgjafi Jimmy Carters
Bandaríkjaforseta á sviði
öryggismála, sagði í gær
að för hans til Jórdaníu og
Saudi-Arabíu hefði verið
uppörvandi, en þar reyndi
hann að afla stuðnings
ráðamanna við friðarsam-
komulag Israelsmanna og
Egypta.
Brzezinski er ekki sagð-
ur hafa haft erindi sem
erfiði í för sinni, því flest
þótti benda til þess, að
yfirvöld Jórdaníu og
Saudi-Arabíu héldu áfram
að gagnrýna samkomulag
ísraelsmanna og Egypta á
þeirri forsendu, að sam-
komulagið leysti aðeins
innbyrðis deilur Egypta og
ísraelsmanna en væri eng-
in lausn á vandamálum
Miðausturlanda í heild.
Yfirvöld í Riyadh og Amman
gáfu út yfirlýsingu að loknum
fundurri við Brzezinski og sögðu
þar, að þau væru hlynnt því að
samið yrði um allsherjarfrið í
löndunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs.
Embættismenn í Kairó gáfu í
skyn, að þeir yrðu ánægðir ef
árangur af för Brzezinskis yrði sá,
aö Saudi-Arabar beittu Egypta
ekki efnahagsþvingunum vegna
samninganna við Israelsmenn.
Saudi-Arabar veittu Egyptum
tæpan milljarð Bandaríkjadala í
efnahagsaðstoð á síðasta ári.
Eftir komuna frá Jórdaníu og
Saudi-Arabíu átti Brzezinski rúm-
lega klukkustundar fund með An-
war Sadat forseta. Greindi Brzez-
inski Sadat frá viðræðum sínum í
Jórdaníu og S-Arabíu og að fund-
inum loknum sagðist Brzezinski
vera þeirrar skoðunar, að aldrei
fyrr hefði framtíð friðarsáttmála
ísraelsmanna og Egypta verið eins
björt. Sáttmálinn væri hyrningar-
steinn varanlegs friðar í Miðaust-
urlöndum.
Veður
víða um heim
Akureyri -5 snjóél
Amsterdam 4 skýjað
Apena 22 heiðskírt
Barcelona vantar
Berlín 0 snjókoma
BrUssel 7 skýjaö
Chicago 21 rigning
Frankfurt 11 skýjaó
Genf 7 mistur
Helsinki -7 heióskírt
Jerúsalem vantar
Jóhannesarb. 29 heiðskírt
Kaupmannah. -5 heiöskírt
Lissabon 13 heiðskírt
London 10 rigning
Los Angeles 16 rigning
Madríd 10 skýjað
Malaga vantar
Mallorca vantar
Miami 22 heiöskírt
Moskva 2 heiðskírt
New York 11 heiðskírt
Ósló -7 heiðskírt
París 10 rigning
Rio De Janeiro 30 skýjað
Reykjavík -4 léttskýjað
Rómaborg 15 skýjað
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Tel Aviv vantar
Tókýó 12 skýjað
Vancouver 11 heiöskírt
Vínarborg 13 heiðskírt
Rómaborg. 19. marz, AP.
NÆR öruggt er talið, að
efnt verði til þingkosninga
á Ítalíu á næstu mánuðum,
eða um tveimur árum fyrr
en gert hafði verið ráð
fyrir.
Helzta ágreiningsefni
þingflokkanna er hvenær
efnt skuli til kosninganna
og eiga mikil átök sér stað
bak við tjöldin um dagsetn-
ingu þeirra.
ítalir kjósa fulltrúa sína á
Evrópuþing 10. júní næstkomandi
og ríkir ágreiningur meðal flokk-
anna um hvort efna skuli til
þingkosninganna samtímis.
Kommúnistar eru því einkum mót-
fallnir þar sem þeir telja að það
geti haft áhrif á fylgi þeirra þar
sem þeir eru sammála öðrum
ítölskum flokkum um evrópskt
samstarf en berjast hinsvegar
hatrammri baráttu um völdin
heima fyrir.
Kristilegir demókratar eru
hlynntir þingkosningum 10. júní,
en smærri flokkar óttast að kosn-
ingar þá verði til þess að þeir falli tjöldin að reyna að negla saman
í skuggann af innbyrðis átökum
kommúnista og kristilegra
demókrata.
Andreotti forsætisráðherra hef-
ur fært sér þetta ástand í nyt og
unnið að því öllum árum á bak við
minnihlutastjórn. Takmark hans
er að móta stjórn og láta koma til
kasta þingsins að ákvarða lífdaga
slíkrar stjórnar, en nær öruggt er
talið að minnihlutastjórn hans
yrði hafnað.
Gæfan brosir
á ný við Amin
Nairobi. 19. marz. AP.
IDI Amin Ugandaforseti
spáði sigri í dag og sagði
að hann og herforingjar
hans hefðu samið „nýja
hernaðaráætlun“ til þess
að hrekja innrásarlið Tanz-
aníumanna og útlaga frá
Uganda.
„Með festu munum við
sigra,“ sagði Amin þegar
hann kom úr heimsókn til
hermanna á vígstöðvunum.
„Enginn ætti að hafa
áhyggjur. Við ráðum við
ástandið.
Ummælum Amins var útvarpað
og þau gefa til kynna að aðstaða
Ugandamanna hafi gerbreytzt.
Aðeins eru nokkrar vikur síðan
fréttir hermdu að Amin hefði
fengið liðsauka og vopn frá Araba-
löndum, að hann hefði sagt að
ástandið væri alvarlegt og bað
Ugandamenn að biðja fyrir þjóð-
inni.
Síðustu fréttir af innrásinni
herma að hún hafi stöðvazt nálægt
bænum Lukaya 80 km fyrir sunn-
an Kampala þar sem báðir aðilar
segja að gífurlegt manntjón hafi
orðið í meiriháttar orrustu fyrir
einni viku.
Blað Tanzaníustjórnar, Sunday
News segir, að andstæðingar Am-
ins hafi náð Lukaya á sitt vald
eftir harða orrustu sem hafi staðið
í þrjá daga. Það segir að 2.000
Ugandahermenn hafi barizt í bæn-
um. Aðrar fréttir herma að lið
Ugandastjórnar hafi notið stuðn-
ings Líbýumanna og Pal-
estínu-Araba. Sagt er að lið Tanz-
aníumanna og útlaga hafi verið
skipað 7.000 mönnum.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í blaðinu að tvær af
hersveitum Amins hafi verið „nær
algerlega útrýmt" og tveir af
æðstu foringjum hans hafi fallið.
Blaðið segir að lið andstæðinga
Amins hafi tekið herfangi mikið af
hergögnum sem Amin hafi fengið
nýlega. Að sögn blaðsins treysta
Tanzaníumenn og útlagar vígstöðu
sína við Lukaya um þessar mundir
til undirbúnings áframhaldandi
baráttu.
Uganda-útvarpið gaf í skyn í
dag að gripið yrði til hefndarað-
gerða gegn óbreyttum borgurum
ef Amin tækist að ná suðurhluta
Uganda aftur á sitt vald.
Útvarpið hafði eftir Ali Fadul
hershöfðingja og Ibrahim Garandi
ofursta, sem er landbúnaðarráð-
herra, að allmargir Baganda-menn
og Banyankore-menn ynnu með
„landráðamönnum".
Fimdiðstórt
olíusvæði
við Mexíkó
Kosningar taldar
yfírvofandi á Italíu
Cadereyta, Mexíkó, 19. marz, AP.
MEXÍKANAR hafa fundið
nýtt og hugsanlega stórt
olíusvæði undan vestur-
strönd landsins, að því er
forstjóri olíufyrirtækis
ríkisins tilkynnti í gær.
Alls er svæðið 47,200 fer-
kílómetrar að stærð, en
undirbúningsrannsóknum
á svæðinu er ekki lokið og
því enn óljóst hve mikil
olía kann að leynast þar.
Rannsóknir Mexíkana að
undanförnu benda til þess,
að olíu sé að finna víða við
strendur Mexíkó, en
Mexíkanar eru á góðri leið
með að verða eitt mesta
olíuveldi veraldar. Sérfræð-
ingar segja að í dag hafi
aðeins tíundi hluti hugsan-
legra olíusvæða landsins
verið rannsakaður.
Um síðustu áramót var talið að
olíu- og jarðgasauður Mexíkana
hljóðaði upp á rúma 40 milljarða
tunna.
Með
tvö
hjörtu
Madison, Wisconsin, 19. marz, AP.
IIJARTA var grætt í konu í
fyrri viku þar sem hjarta
hennar var mjög veilt og slá
því tvö hjörtu hlið við hlið í
brjóstholi konunnar. Líðan
konunnar er eftir atvikum
góð.
Aðgerðin var að því leyti
sérstæð að auk hjartans var
einnig beinmergur úr hjarta-
gjafanum græddur í konuna.
F áfræði og eigingirni undirrót
offjölgunar og pínu mar gs konar
Washington 16. marz. AP.
EIGINGIRNI karla og fáíræði kvenna er meginástæða hinnar
hamslausu offjölgunar í heiminum og margra þrauta og þjáninga
sem vandamálið leiðir af sér í fátækum löndum heims.
Þetta kemur fram í bók sem bandarísk kona, Pamela Huston,
liðsstjóri í Friðarsveitum Bandarfkjamanna hefur sent frá sér.
Bók Pamelu heitir „Third World Women Speak out“ og þar
greinir frá inntaki samtala við konur í Túnis, Kenya, Súdan,
Egyptalandi, Sri Lanka og Mexico.
I E1 Medani í Súdan greindi hópur kvenna henni frá umskurði á
konum sem þar er við lýði. Súdanskar konur mega ekki láta í ljós
ánægju meðan þær hafa kynmök, sagði ein þeirra. Þess vegna er
gerð aðgerð á kynfærum þeirra, snípurinn skorinn af, svo að engin
hætta sé á að þær hafi ánægju af eða hug á samræði. Eftir
umskurðinn er holdið saumað saman, en fyrir barnsfæðingu verður
þó að spretta því upp. Ein kona, sem hún talaði við, hafði átt sjö
börn og verið saumuð saman átta sinnum.
Höfundur segir, að þessi kona hafi enga möguleika á að neita
níunda saumnum ef eiginmanni hennar hugnaðist það að eiga með
henni stund, sem hann teldi vera sinn rétt.
I Suður-Mexico spurði hðn Indjánakonu hvort karlar í þorpinu
leyfðu konum sínum að nota getnaðarverjur. Svarið var afdráttar-
laust nei. Hún sagði það skoðun karla að eina ástæðan, sem
eiginkona hefði til að láta í ljós þá ósk væri sú, að hún hefði fellt
hug til annars manns.
Mary Mwado, fjölskylduráðgjafi í Mombasa, sagði henni hvers
vegna karlar í Kenya væru andsnúnir því að nota getnaðarverjur:
„Sumir segja, að þeir geti séð fyrir börnuð sínum og sjá ekki
tilgang í því að takmarka barnsfæðingar. Aðrir segja að þeir sjái
ekki af hverju þeir ættu að sinna slíku þar sem hugmyndin sé ekki
afríkönsk heldur aðskotahugmynd frá Vesturlöndum."