Morgunblaðið - 23.03.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1979
29
kvöldum, á hátíðisdögum að
ógleymdum öllum þeim tugum
barnatíma sem lagðir eru undir
þessa auglýsingu.
Á móti hverjum einum þætti
sem aðrar plötur fá í sjónvarpinu
(og sumar fá enga þætti) fá plötur
Hljómplötuútgáfunnar fimm.
Sem dæmi getum við tekið, að
meðlimir Brunaliðsins hafa komið
tugum sinnum oftar fram í sjón-
varpinu en allir aðrir íslenskir
skemmtikraftar. Þó kom Brunalið-
ið ekki fram opinberlega fyrr en
s.l. vor og var þá auðvitað vígt í
nokkrum sjónvarpsþáttum.
Afleiðing þessa er sú að plata
Brunaliðsins varð söluhæsta plata
síðasta árs eins og við mátti búast.
Og eftir því sem fram kom í
lesandabréfi í síðdegisblaði um
daginn getur Brunaliðið sett upp
900.000 krónur fyrir að spila í 60
mínútur á einu balli og boðið á
sama tima öðrum að spila á sama
balli fyrir 60—100 þúsund krónur.
Það sem verst er við þetta allt er
að tónlistarframleiðsla Hljóm-
plötuútgáfunnar er á lægsta plani
hvað gæði snertir. Og jafnvel þótt
hún væri betri þá hlýtur svona
gróft hlutdrægnisbrot að flokkast
undir hneyksli.
• Hvaðan koma
þá fljúg-.
andi diskar?
Velvakandi!
í dálkum þínum 21.3. ræðir
„María “ um skrif Ingvars Agnars-
sonar og um skoðanir nýalssinna á
heimi, lífi og æðri tilveru — en
þær skoðanir eru líklega allvíða til
umræðu núna. „María" er ekki alls
kostar ánægð með þessar skoðanir,
og segir að þær minni sig á
líffræði þá sem henni var kennd í
skóla. Þó að ég líti dálítið öðruvísi
á þetta en María, finnst mér það
vel til fundið hjá henni að nefna
líffræðina í þessu sambandi. Ég
minnist líffræðikennslunnar á
dálítið líkan hátt og hún. Annars
vegar var hin skipulega, efnislega
útlistun á því sem séð verður og
skoðað — hins vegar eins konar
uppreisn í huga manns gegn því að
lífið sé nú ekkert annað en þetta.
Ég hygg að flestir, sem einhvern
tíma hafa opnað líffræðibók hafi
orðið varir við þessa togstreitu í
sjálfum sér, og að í sjálfum líf-
fræðivísindunum megi finna vott
um hana. En svo kemur að
svörunum eða lausninni. Svar
Maríu er: lífið er kraftaverk.
ÞeSvSÍr hringdu . . .
• Gott morgun-
útvarp
Maður hringdi og vildi koma á
framfæri þökkum til aðstandehda
inorgunútvarpsins.
„Mér finnst sjálfum sem öll
dagskrá þess sé vel við hæfi.
Morgunpósturinn er yfirleitt líf-
legur og skemmtilegur og þulirnir
standa sig vel í sínu starfi, sér-
staklega í lagavali milli 8.30 og 9.
Vil ég færa þeim Páli Heiðari og
Sigmari Haukssyni bestu þakkir
fyrir að aðstoða mig við að opna
augun á morgnana."
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Skákþing Moskvu 1979 er nú
hafið. í fyrstu umferð mótsins
kom þessi staða upp í skák Cehovs,
fyrrum heimsmeistara unglinga,
og Zotkins, sem hafði svart og átti
leik.
HÖGNI HREKKVÍ SI
1979
McNaught Synd.. lnc.
'Höwi A/JJAfWZÐ (rVlLi>r)J€> >"
03? SIGGA WöGA £ \iLVt9AH
Spænskunám í Madrid
Látum svo vera. En þegar gætt er
að sögu lífsins hér á jörð frá fyrstu
byrjun verður ljóst, að það krafta-
verk fylgir ákveðnum lögmálum
eða farvegum (framþróun,
verðandi). Maðurinn var ekki
skapaður á einum degi fyrir sex
þúsund árum, heldur liggur að
baki hans og annarra líftegunda
óralöng saga. Og framundan er
óralöng saga, fyrir komandi kyn-
slóðir hér á jörð (ef vel fer) og
fyrir okkur, sem nú erum, á öðrum
hnöttum.
Það er áreiðanlega mikill mis-
skilningur hjá Maríu að þeir sem
leitast við að gera sér grein fyrir
möguleikum lífsins í alheimi og
þróun þess, hérlendir sem erlendir
— horfi aðeins á þetta eina sól-
hverfi sem jörðin tilheyrir. Sólin
er aðeins ein af trilljónum sólna,
og hver sem segir að þetta sólkerfi
eitt sé til umræðu setur sig á háan
hest gagnvart sköpunarverkinu.
María spyr um sannanir fyrir
því að líf sé í alheimi víðar en á
þessari einu jörð. Hvað um alla þá
fljúgandi diska, sem sézt hafa um
alla jörð síðastliðin 39 ár og
lengur? Hvaðan heldur María að
þeir komi?
Þorsteinn
Skólastjóri Málaskóla Halldórs,
Halldór Þorsteinsson, hefur ^
hyggju að fara með hóp spænsku-
nemenda til frekara tungumála-
náms í Madrid. Ætlunin er að
fljúga héðan í lok maí og setjast á
skólabekk í 4 vikur í einum þekkt-
asta málaskóla Spánar, Estudio
International Sampere. I gjaldinu,
sem skólinn býður nemendum, er
þetta innifalið: námsgjald,
kennslubækur, fullt fæði og
húsnæði, 3 dagsferðir (með nesti)
til Escorial/ Valle de los Caídos,
Segovia og Toledo, auk skoðana-
ferða á söfn og sögustaði í höfuð-
borginni sjálfri.
Forstöðumaður skólans, Alberto
Sampere, kemur hingað og kennir
væntanlegum þátttakendum á degi
hverjum í eina kennsluviku (þ.e.
7,—11. maí) í Málaskóla Halldórs
og er það m.a. gert í því skyni að
búa þá betur undir ferðina. Öllum
er heimil þátttaka og er þá líka átt
við nemendur, sem stundað hafa
spænsku annars staðar en í Mála-
skóla Halldórs.
Reyfarakaup
Verð frá kr. NYJU
74.695. DRAKTirA
Greiðsluskilmálar ", i •”
velarnar loksins
komnar aftur
Nú einnig PRAKTICA LINSUR
Opið á laugardögum kl 10—12
Verslið hjá ^ _ fagmanninum
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI f78 REYKJAVIK SIMI 85811
Nýtt frá Woman 2000
Finnsk
gædavara
Teg. 2045
Litur: Ijós
Nr. 4—7%
Verð kr. 27.500,-
Domus Medica
síml 18519.
32 ... Dxal+!, 33. Rxal — Hdl+,
34. Bfl - Bxfl. 35. f4 - Bh3+ og
hvítur gafst upp, því að hann er
mát í næsta leik. I sovézka skák-
vikuritinu „64“ er mjög kvartað
yfir því að enginn stórmeistari sé
með á mótinu. „Hvar eruð þið
stórmeistarar?“ spyr blaðið í fyr-
irsögn. Sterkasti skákmaðurinn á
mótinu er að öllum líkindum hinn
þekktti meistari K. Grigorjan.
[y'Qö
WG, Q06&U V/ÚAl
fMBXTAR A9 YAtf A
„ ^AIóiAvl smí/