Morgunblaðið - 26.05.1979, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ1979
Miðvikudagsnótt kl. 4.35. Hér er vélin svo að segja allsber og ekki
líkleg til stórræðanna. Frá vinstri: Kristinn, Birgir og Sigurður.
Björn Emilsson skrifar:
i dag veröur Kapelluhraun viö Straumsvík Mekka
kvartmílunnar á íslandi. Þar fer fram fyrsta kvartmílu-
keppni undir stjórn fimmtíu ungmenna. Flestir sprask-
ustu bílar okkar veröa par saman komnir, bílar sem
fara kvartmíluna á undir 13 sekúndum. Frá pví
kvartmíluklúbburinn var stofnaöur fyrir tæpum fjórum
árum hefur verió stefnt aö byggingu keppnisbrautar,
par sem aMar öryggisráóstafanir sætu í fyrirrúmi. Á
keppnissvæöinu í dag veröa sjúkra- og slökkvibíll
ásamt hjálparsveitum, svo eitthvaó sé nefnt. Mótiö
hefst klukkan tvö og keppt veröur í eftirfarandi
flokkum: Standard, Modified Standard, Pro-Stock,
Street Altered og mótorhjólaflokki. Félagar í klúbbnum
hafa nú undanfarið lagt nótt vió dag til aö gera bíla sína
keppnisfæra. Nýmæli hérlendis er samvinna manna um
einn bíl til kvartmíluaksturs. Þeir premenningar Birgir
Pálsson, Kristinn Kristinsson og Sigurður Jakobsson
hafa sameinast um bíl Birgis, 302 Chevy Moxu,
virkjaöan bíl í meira lagi. Þeir, eins og fleiri, hafa unniö
stíft í bíl sínum undanfariö, en mæta pó hressir í
Kapelluna í dag.
(Ljósmyndir Páll Reynisson)
„ Iss,
hann
virkar
ekkert"
I hunum kvartmílinga til-
heyrir það fortíðinni að stel-
ast út fyrir boríjarmörkin í
skjóli nætur ofí spyrna bílum
sínum. Hættumerki eins og
„allir í bílana, salatfatið er
mætt á svæðið“ eru þöttnuð.
Entjinn þarf lentjur að hræð-
ast verði lat;anna. Salatföt
tilheyra nú kjúklinuum oj;
borðbúnaði. Draumur kvart-
milintía hefur frá upphafi
verið beinn oj; breiður vetjur.
Með duunaði of; án utanað-
komandi fjárhat;saðstoðar
hefur félötíum tekizt að
b.VKÍíja sinn eitíinn vetí-
Brautarbytttíintíin hefur tekið
um þrjú ár og kostað félatjið
35 milljónir.
Einn af stofnendum Kvart-
míluklúbbsins ok aðalsprauta
hans í upphafi er Sitjurður
Jakobsson. Hann hefur nú,
ásamt þeim Kristni Kristins-
syni Fordmanni ok Birt;i
Pálssyni bakara, sameinast
um kvartmílubíl ok bundizt
böndum um að baka sem
flesta í kvartmílunni. Vínár-
brauð þeirra félatta, Chevý
Monza, sem í raun er ei{in
Birt;is, er ekki af lakara
ta^inu. Hann var kjörinn
Fimmtudagsmorgunn kl. 7.40. Vélln sígur endanlega niður I
bflinn.
Fimmtudagur kl. 16.45. Sjálfskiptibarkinn er ekki rétt stilltur.
Kristinn skrfður undir bflinn, Sigurður vinnur í vélarsalnum og
Birgir hlær að öllu saman.
Fimmtudagur kl. 17.05. Monzan f hreinsunareldinum. ídag verða
fjórir menn á „burn outu svæðinu (hreinsunareldinum). Þeirra
verkefni er að halda við bflana meðan ökuþórarnir hreinsa dekk
þeirra með tilheyrandi gjöfum og gúmmífnyk.
verklegasti kvartmílubíllinn
á síðustu bílasýningu klúbbs-
ins og átti þann heiður svo
sannarlega skilið. En eins og
framsóknarformaðurinn
sagði forðum, þá ekur maður
ekki á króminu einu saman.
Því hafa þeir þremenningar
sett sér það takmark að vera
með sprækan bíl í höndunum
í dag, þegar fyrsta löglega
kvartmílukeppnin fer fram.
S.l. iniðvikudagskvöld
ákváðu þeir félagar að taka
vélina, sem er 302 Chevy, úr
bílnum. Ætlunin var að auka
orku hennar í samræmi við
útlit bílsins. Þá nótt var
unnið til morguns og lítið
sofið, því óðum styttist í
keppnina. Kl. 10 á fimmtu-
dagskvöld komu þeir félagar
að vélarblokkinni eins og þeir
höfðu skilið við hana, alls-
bera á gólfinu, og hófust
handa við að raða utan á
hana. Þá nótt var einnig
vakað og ekki hætt fyrr en
vélin hafði fest rætur í bíl-
skrokknum. Um miðjan dag á
föstudag var bíllinn dreginn
út í Kapelluhraun. Þar stóð
hann gljáfægður og öskureið-
ur, tilbúinn til æfingar, ná-
kvæmlega kl. 4.30. Hann var
greinilega ekki eins syfjaður
og aðstandendur hans þegar
hann var gangsettur, en þeir
höfðu þá ekki sofið í tvo
sólarhringa. Það bergmálaði
í Straumsvíkurturnunum er
Monzan stóð rymjandi á
brautarendanum. En allt í
einu hljóðnaði boli. Eitthvað
var að. Sjálfskiptibarkinn
var ekki rétt stilltur. Krist-
inn skreið undir bílinn og
kom barkanum á sinn stað.
Birgir sat við stýrið, greini-
lega nokkuð taugaóstyrkur:
„Eg hef aldrei keyrt bílinn
eins og hann er nú útbúinn“.
Aftur bergmálaði í Straums-
vík og þögn sló á áhorfendur.
Birgir renndi bílnum inní
fótósellugeislana. Tréð
tendraðist og bíllinn hentist
af stað með ógurlegum há-
vaða. „Iss, hann virkar ekk-
ert, komum heim“ heyrðist
einhver segja. Sannleikurinn
var sá, að þeir Kristinn,
Sigurður og Birgir höfðu
ákveðið að reyna ekki meira
á bílinn en nauðsynlega
þyrfti. Þeir vildu hann óbrot-
inn og í lagi fyrir keppnina.
Við skulum vona að svo verði
í dag á þessum fyrsta keppn-
isdegi Kvartmíluklúbbsins.
Fimmtudagur kl. 17.30. Kristinn heldur á viftureiminni, en hún hafði hrokkið af f einni
æfingarspyrn unni.