Morgunblaðið - 26.05.1979, Side 15

Morgunblaðið - 26.05.1979, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1979 15 rar / fljótir að læra söngva og leiki barnanna. Snemma kom það Upp hjá fram- kvæmdanefndinni að enda þessa hörpugleði myndarlega með því að fara út fyrir Reykjavík og leika sér þar. Og á laugardaginn var svo haldið af stað í 10 rútubílum, 540 manns, börn og aðstandendur þeirra. Sjálfsagt þótti að bjóða upp á pylsur og aðstaða fengin í Víkingsskálanum til að hita þær. Síðan afgreiddu foreldrar úr framkvæmdanefndinni og aðrir pylsur með öllu handa öllum í hléi milli leikja. Það var kátur og ærslafullur hópur sem hljóp og skemmti sér á Kolviðarhólstúninu. Þar fóru for- eldrar og börn í boltaleik, snú, snú, naglaboðhlaup, pokaboð- hlaup, reiptog, fótkrók o. fl. Síðan var haldið að Víkingsskálanum í pylsurnar og á eftir farið í ýmiss- konar keppni og sungið saman. Heim var komið um sexleytið. Það var glaður hópur, sem hélt heim til Reykjavíkur. En hvað svo? spyrjum við Inga. Þetta var tilraun, sagði Ingi, nú þarf að setjast niður og athuga vel framhaldið. Mér er ljóst, að svona starf dregur dám af árstímanum. Að haustinu þarf þetta að hafa annan blæ. Framkvæmdanefndin er ekki búin að gera úttekt á tilrauninni, en allir eru þó sam- mála um að þráðinn verði að taka upp aftur. Það var einstaklega gott og duglegt fólk sem valdist til framkvæmdanna og auðvitað er Mömmu og dóttur miðar vel áfram í þrífótahlaupi (fætur þeirra bundnir saman) f keppni við feðga. Þarna er bóra Kristjánsdóttir á ferð með dóttur sinni. það því að þakka, hversu vel tókst til. En þetta átak hefur sýnt að ýmislegt er hægt að gera, ef vilji er fyrir hendi, þótt ekki kosti það mikla peninga. (í ferðinni greiddi hver 1000 kr.) En það útheimtir að vísu heilmikla fyrirhöfn. Það er mjög skemmtilegt að finna við- brögðin við þessu, og sjá hve fólkið skemmtir sér vel. En það verður vandi að skipuleggja þetta áfram. En ég held að þetta hafi spírað hjá okkur og sé góður vísir að áfram- haldandi starfi. - E.Pá. Skólastjórinn og framkvœmdanefndir í pylsuafgreiðslunni: Ingi Kristinsson. Gerður Pálmadóttir, Kjartan Trausti Sigurðsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Guðmundur Arason og Guðrún Norberg. Fyrir framan þau standa tveir neytendur. Beethoven tónleíkar Efnisskrá: Beethoven Leonore-forleikur nr. 3. Píanókonsert nr. 1. Sinfónía nr. 4. Stjórnandi: John Steer. Einleikari: Leonidas Lipovetsky. Leonora-forleikurinn var mjög vel leikinn af sinfónikkerunum okkar, enda er verkið magnaður galdur og stjórnandinn var góð- ur. John Steer er kvikur og lifandi i stjórn sinni og fékk ýmislegt skemmtilegt út úr hljómsveitinni. Um það leyti, sem Beethoven var að gefa út tvo fyrstu konsertana sína, hefur hann þegar lokið við þann þriðja, en bíður eftir tækifæri til að flytja verkið. í bréfi rituðu í Vín 15. desember árið 1800, til Hofmeister í Leipzig, býður Beethoven fjögur verk til útgáfu og þar á meðal „píanókonsert, sem ég raunverulega get ekki sagt að sé með beztu mínum. og raunar gildir einnig fyrir ann- an, sem verður gefinn út hér af Mollo, vegna þess að ég vildi halda þeim betri fyrir sjálfan mig í næstu hljómleikaferð.** í næsta bréfi verðleggur Beethov- en verkin til útgáfu og vill fá 20 dúkata fyrir 1. sinfóniuna op. 21, sömu upphæð fyrir píanósónöt- una í B-dúr, ópus 22 og aftur 20 dúkata fyrir septettinn, ópus 20, en aðeins 10 dúkata fyrir píanó- konsertinn, ópus 19. í bréfi til Breitkopf og Haertel, dagsettu 22. april 1801, kemur fram að annar konsertinn, ópus 19, er saminn fyrr og útgáfa hans ekki verið ætluð fyrr en Beethoven hafði haft tækifæri til að leika hann og fullgera. píanóröddina eins og kemur fram í bréfi til Hofmeister, dagsettu sama dag og bréfið til Breitkopf: „T.d. átti ég eftir að rita pfanóröddina í raddskrána. sem ég venjulega Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON geri síðast, en hef nú lokið við og til að koma í veg fyrir frekari tafir, sendi ég yður verkið í eigin handriti (þ.e. 09) þó illlæsilegt sé.“ Beethoven hafði eftir því sem vitað er af heimildum, mjög sérkennilegan leikstíl og vakti leikur hans því ekki aðeins athygli fyrir yfir- burða tækni, heldur og sérstæða og magnaða túlkun, sem stakk nokkuð í stúf við mjósleginn píanóstil samtímans. A meðan Beethoven kom fram sem píanó- leikari, voru konsertarnir því nokkurs konar aukanúmer. Flutningur á 1. konsertinum var kraftmikill hjá Leonidas Lipovetsky, en ekki hnökralaus. Eitt af því sem gefur tónlist Leontd&K LipovptNky John St«r kraft er stundvísi í tóntakinu. Ef tónninn er vakinn eins framar- lega og unnt er, gefur það honum blæ, sem útskýra mætti sem ákafa. Þessi ákafi eða ætlun þarf ekki að ganga á háttbundið hljóðfallið en magnar það aftur á móti spennu og krafti. And- stæða stundvísinnar er tóndvöl- in, sem verður mjög áhrifarík í hægferðugri tónlist en þar er hrynmögnunin biðin. Þessar andstæður, hvetjandi hrynkraft- ur og hraðri tónlist og þung biðin í hægri tónlist, eru oft undarlega öfugmæltar í flutn- ingi Sinfóníuhljómsveitar ís- lands. Þetta kom glögglega fram í samleik hljómsveitarinnar og Lipovetsky, sem var mjög hryn- hvass í leik sínum. Á hlustand- ann orkar slík linmælgi hljóm- sveitarinnar eins og leti eða áhugaleysi. Þeir grimmustu í gagnrýni sinni telja slíkan sila- hátt stafa af listrænu getuleysi. Það mátti þó heyra góða spretti í samspili, þar sem einleikari og stjórnandi bókstaflega rifu hljómsveitina með sér. Fjórða sinfónían var hressilega leikin og tónleikarnir í heild skemmti- legir, sem vel má þakka sér- kennilegri og lifandi stjórn John Steer. Jón Ásgeirsson. Karlakór frá Wales í heimsókn Laugardaginn 26. maí kemur hingað til lands karlakórinn „The Moelwyn M. V. Choir“ frá Wales. Kemur kórinn í heimsókn til Kirkjukórs Vestmannaeyja, en meðlimir þessara kóra hittust í Englandi s.l. sumar þegar Kirkju- kór Vestmannaeyja tók þátt í söngvahátíð í Llangholen í Wales. I Reykjavík mun Karladórinn Fóstbræður taka á móti Waleskórnum. Fyrstu tónleikar kórsins verða í Aratungu sunnudaginn 27. maí kl. 16.00. Mánudaginn 28. syngur kórinn í hátíðarsal Menntaskólans í Hamrahlíð kl. 20.30. Þriðjudaginn 29, maí fer kórinn síðan til Vest- mannaeyja, þar sem kórfélagar dvelja á einkaheimilum og halda tónleika í Félagsheimilinu við Heiðarveg miðvikudaginn 30. maí kl. 20.00. Fimmtudaginn 31. maí fara þeir síðan til Selfoss og syngja í Selfossbíói kl. 20.30, en gestgjafar þeirra þar eru Karla- kór Selfoss. Kórinn heldur síðan utan laugardaginn 2. júní. Moelwyn-kórinn er mjög þekkt- ur og gamalgróinn karlakór, og má því búast við góðri skemmtun, enda Wales-búar þekktir fyrir mikla tónlistarmenningu og söng- gleði. Er það von gestgjafanna, að fólk lyfti sér upp úr vorharðindunum og hversdagsleikanum og sjái af einni kvöldstund með Wales-búunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.