Morgunblaðið - 26.05.1979, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.05.1979, Blaðsíða 26
2 6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ1979 Minning: Stefán Jens Sigurðsson Kammertónleikar í Norræna húsinu Fæddur 1. október 1%3 Dáinn 20. maí 1979 Fátækleg orð megna ekki að lýsa tilfinningum vegna sviplegs fráfalls skólabróður okkar, Stefáns J. Sigurðssonar. Við skólasystkinin glöddumst yfir þeim áfanga sem senn var náð, prófum að ljúka og fram undan sumarið með gleði og áhyggjuleysi áður en við tæki aivara framhaldsnámsins. En gleði okkar hvarf er fréttin um þetta bílslys barst. Fyrir einu og hálfu ári lést besti vinur Stebba, Magnús Garðarsson. í minningargrein sem um hann var skrifuð var meðal annars sagt: „Dauði hans minnir á að ekki eru allir hlutir sjálfsagðir. Það veit enginn hver er næstur, hvenær kallið kemur." Hvern hefði grunað að Stebbi yrði næstur og að kallið kæmi svo fljótt. „En enginn veit á undan ævi sinnar kjör.“ eins og stóð í sálmi sem sunginn var við ferminguna okkar. Stebbi var góður vinur vina sinna og reyndist öllum vel ef eitthvað bjátaði á. Alltaf var hann í góðu skapi, stríðinn og skemmti- legur. Hann var ákveðinn í skoðunum og sem dæmi um það má nefna að hann var búinn að ákveða hvað hann ætlaði að gera að ævistarfi. Þó að okkur finnist við hafa misst mikils við fráfall skólabróð- ur og vinar er þó sorgin sárust hjá foreldrum og bróður. Við viljum votta þeim okkar innilegustu samúð. Skólasystkin. NOKKRIR nemendur í Tónlistar- skólanum í Reykjavík halda tón- leika í Norræna húsinu sunnu- dagskvöld 27. maí kl. 20.30. Á efnisskránni eru eingöngu kammerverk, en iðkun kammer- tónlistar hefur farið ört vaxandi í skólanum síðustu árin. Fyrst á SOFFÍA Þorkelsdóttir, fimmtug bóndakona af Snæfellsnesinu, opnar málverkasýningu í dag kl. 14.00 í Ásmundarsal við Freyju- götu í Reykjavík. Á sýningunni eru yfir fimmtíu myndir sem efnisskrqá er Sonata da camera eftir Corelli, þá Tríósónata eftir C.P.E. Bach og að lokum Píanó- kvintettinn í Es-dúr eftir Schumann. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill. Soffía hefur unnið í frístundum hin síðari ár. En hún hefur teikn- að frá unga aldri og málað síðustu 15 árin. Sýningin verður opin alla daga til fjórða júní milli kl. 14.00 og 22.00. Bóndakona af Snæfellsnesi opnar málverkasýningu Skátar ralla á kassabílum Ýta tólf ökutækjum yfir Hellisheiði FYRSTA kassabflarall á íslandi verður haldið helKÍna 26. — 27. maí, en það eru skátar sem standa fyrir ralli þessu. Með keppni þessari er vakin athygli á fjársöfn- uninni Gleymt, — Gleymdara — Gleymdast, en hún er haldin til styrktar Kópavogshælinu. Að rallinu standa öll skátafélög á Stór-Reykja- víkursvæðinu en keppendur verða frá skátafélögum úr Reykjavík og nágranna- sveitarfélögunum. Keppt verður á 12 kassabílum og hefst keppnin kl. 14 í Hveragerði en Magnús Magnússon heilbrigðis- málaráðherra mun setja keppnina og „ræsa“ fyrsta bílinn. Ekið verður sem leið liggur frá Hveragerði, upp Kamba, yfir Hellisheiði en áð verður í Hveradölum í skála Dalbúa, Dalakoti, en þar fer fram kvöldvaka og er hún öllum opin. Fyrsti bíll verður síðan ræstur af stað frá Dalakoti kl. 4 á sunnudagsmorgun en þá verður haldið áleiðis að Kopavogshælinu. Á leiðinni munu bæði bílar og menn leysa ýmsar þrautir m.a. fara yfir vatnsföll og ýmsar torfærur. Stefnt er að því að fyrsti bíll komi að Kópavogshæli- nu um kl. 14 á sunnudag, en þar verður kaffisala, hlað- borð og ýmis skemmtiatriði og eru allir velkomnir. Öllu fé sem safnast í keppninni, en seldir verða styrktarmiðar á öllum tímastöðvum og einnig verður tekið á móti frjáls- um framlögum, verður var- ið til styrktar Kópavogs- hælinu. Ætlunin er sú að kaupa fólksflutningabíl fyrir hælið en honum er ætlað að sinna brýnustu þörfum sjúklinganna, svo sem ferðum milli staða og þ.h. Skátarnir hafa reynt að fá fellda niður tolla af bifreiðinni og hafa þeir von um að sú ívilun nái fram að ganga. Er það ósk þeirra að sem flestir leggi leið sína upp á Hellisheiði og fylgist með keppninni. Fjársöfnun verður í gangi báða keppnisdagana, seldir verða styrktarmiðar sem jafnframt eru happ- drættismiðar en vinningur er fjallaferð. Kappasktur á kassabflum. Styrktarmiðarnir verða seldir á Stór-Reykjavíkur- svæðinir, svo og í Borgar- nesi, á Akranesi og í Hveragerði og að sjálf- sögðu við Kópavogshælið. Tekið verður á móti frjáls- um framlögum á gíróreikn- ing 63336-4, kassabílarall. Söfnunin stendur til 1. júní, en þá verður dregið í happ- drætti keppninnar. Ljó»m. KrÍHtjín. Veg og vanda af undir- búningi rallsins á nefnd skipuð fimm drottskátum en að hennar sögn munu u.þ.b. 150 manns taka þátt í keppninni, ýmist sem öku- menn eða vélarafl. Skátarnir hafa sjálfir smíðað bílana að mestu leyti, en þeir eru hin verk- legasta smíð og líklegir til stórræða. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar Frá Sjómannafélagi Reykjavíkur Styrkveiting Stjórn styrktar og sjúkrasjóös Sjómannafé- lags Reykjavíkur mun á þessu ári veita styrk til barnasjómannsekkna og annarra félags- manna S.R. er viö erfiöar heimilisaöstæður búa og hug hafa á aö láta börn sín til sumardvalar á barnaheimili Sjómannadags- ráös að Hrauni í Grímsnesi. Skriflegar umsóknir meö upplýsingum um heimilisað- stæöur þurfa aö hafa borist til skrifstofu félagsins eigi síöar en 31. maí. Sumarbúðir Hlíðardalsskóla Hinar vinsælu sumarbúöir hefjast 19. júní og eru fyrir börn á aldrinum 8—12 ára drengi og stúlkur samtímis. Fjölbreytt dagskrá dag hvern. Sund, föndur, leikir og íþróttir er á meöal þess sem sumarbúðirnar bjóöa uppá. Innritun er hafin í Ingólfsstræti 19—21 í Reykjavík. Upplýsingar eru gefnar í síma 13899 og 19442. Hestamannafélagið Andvari Garðabæ Firma- og gæöingakeppni félagsins veröur haldin laugardaginn 26. maí 1979 á hringvelli Gusts í Kópavogi. Firmakeppnin hefst kl. 10 árdegis og gæðingakeppnin kl. 14.30 síðd. Stjórnin. Arður til hluthafa Á aðalfundi H.F. Eimskipafélags íslands, 23. maí 1979 var samþykkt aö greiöa 10% — tíu af hundraði — í arð til hluthafa fyrir áriö 1978. Arösgreiðslur fyrir árið 1978 veröa á aöal- skrifstofu félagsins í Reykjavík frá 11. júní n.k., en hluthafar, sem ekki vitja arðsins innan þriggja mánaöa fá hann sendan í pósti. Meö því aö lagöir eru niður arömiöar viö arðsgreiðslur frá árinu 1978, eru hluthafar beönir að framvísa persónuskilríkjum er þeir vitja ársarðsins. Hluthöfum skal bent á, aö ógreiddur arður frá fyrri árum veröur greiddur á aöalskrif- stofu félagsins í Reykjavík og á afgreiöslum félagsins úti á landi gegn framvísun arömiöa, eins og veriö hefur. Eimskipafélag íslands F,rma’ °9 l^llo gæðingakeppni SÖRLI Sörla, Hafnarfirði fer fram á völlum félagsins viö Kaldárselsveg í dag laugardaginn 26. maí kl. 10 f.h. (gæðingakeppnin) og kl. 2 e.h. (firmakeppnin). Komiö tímanlega og missið ekki af góöri skemmtun. Skráning kappreiðahrossa í kappreiðar Sörla sem verða laugardaginn 2. júní er í símum 50985 og 50250 til þriðjudagskvölds 29. maí. Keppt verður í: 150 m skeidi 250 m skeiði 250 m unghrossahlaupi 300 m stökki. Hestamannafélagið Sörli Hafnarfiröi. Síminn á afgreiöslunni er 83033 2H«r0unt>!«t>ib

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.