Morgunblaðið - 26.05.1979, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1979
Framkvi
Útgefandi
amdastjóri
Ritstjórar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinaaon.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aóalstraati 6, sími 10100.
Aóalstrseti 6, sími 22480.
Sími83033
Askriftargjald 3000.00 kr. á mánuöi innanlands.
' lausasölu 150 kr. eintakiö.
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og skrifstofur
Auglýsingar
Afgreiösla
Ríkisstjórnin brást
í málefnum bænda
Marjrvíslejíir erfiðleikar steðja nú að bændastéttinni. Þótt
það þinjí, sem nú var verið að slíta, hafi setið lengur en
flest önnur var ekki tekið á þessum málum og er þar ekki við
aðra að sakast en ríkisstjórnina og þá sérstaklega landbúnaðar-
ráðherra. Eins og Geir Hallgrímsson tók fram á blaðamanna-
fundi nú í vikunni hafa sjálfstæðismenn verið tilbúnir til þess að
veita liðsinni sitt til þess að leysa vandamál bænda og m.a.
fluttu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í landbúnaðarnefnd tillögu
í neðri deild, sem gat verið grundvöllur heimildar til lausnar á
þessu máli áður en gengið var frá lánsfjáráætlun yfirstandandi
árs. Allt stjórnarliðið rétti upp höndina til að fella tillöguna. Þá
var ekki talað um ofstæki í garð bænda.
Geir Hallgrímsson minnti á að Gunnar Guðbjartsson,
formaður Stéttarsambands bænda, hefði ekki sýnt lit á því í tíð
fyrrverandi ríkisstjórnar að leysa vanda offramleiðsiu með
nægum fyrirvara. Hann hefði neitað að taka þátt í störfum
nefndar vegna þess, að fulltrúi ASÍ átti þar sæti og þannig tafið
störf hennar óhæfilega mikið.
Geir Hallgrímsson sagði í sambandi við þá 3,5 milljarða
- lántökuheimild, sem farið hefði verið fram á, að ekki hefði verið
gerð grein fyrir því, hvernig ætti að endurgreiða hana, hvort það
yrði gert með aukinni skattheimtu eða annarri tekjuöflun. Ekki
hefði legið fyrir, hvernig dregið yrði úr offramleiðslunni og þá
hvort vandamálið og þar með skattheimtan yrðu varanleg. Loks
hefðu sjálfstæðismönnum ekki verið veitt svör við því, hverjum
þessir 3,5 milljarðar ættu að koma til góða. — Er það bændum
eða sölusamtökum þeirra? Fer hluti þessarar upphæðar til að
greiða söluiaun SÍS? Er þá ekki hægt að leysa vanda bænda á
ódýrari hátt? spurði hann.
Geir Hallgrímsson lagði að lokum áherzlu á, að greina yrði á
milli vanda bænda vegna offramleiðslu og vegna hinna sérstöku
vorharðinda. Það væri ekki hlutverk stjórnarandstöðu að leysa
ágreining milli stjórnarflokka, — annaðhvort yrðu þeir að una
ágreiningi og aðgerðaleysi eða segja af sér.
Vandi bænda vegna vorharðinda er geysilegur. Ekki er að efa,
að samstaða getur tekizt milli allra flokka um lausn hans og er
ástæða til að grípa á þeim vanda fyrr en síðar.
Vandi bænda vegna offramleiðslu er annars eðlis. A
undanförnum árum og áratugum hefur miklum fjármunum
verið varið til útflutningsbóta. Nú liggur dæmið þannig fyrir, að
verulega aukna fjármuni þarf í útflutningsbætur, ef bændur
eiga að fá fullt verð fyrir alla framleiðsluna. Bændur eru svo
íhugulir og sanngjarnir menn, að þeir skilja áreiðanlega, að
þingmenn eru ekki tilbúnir til að samþykkja aukna fjármuni í
þessu skyni, að lítt athuguðu máli. En harma ber hve illa
Steingrímur Hermannsson landbúnaðarráðherra hefur staðið
að kynningu og meðferð í þessum sérstöku vandamálum
landbúnaðarins.-
Stórhugur
Sl. laugardag var mikið um dýrðir á Ólafsfirði, þegar hinn
nýi og glæsilegi skuttogari, Sigurbjörg, kom fyrsta sinni í
heimahöfn. Hundruð manna söfnuðust við bryggjuna til að
fagna komu þess, enda ástæða til, þar sem Sigurbjörgin er eitt
fullkomnasta fiskiskip hér á landi, hannað og smíðað að öllu
leyti í Skipasmíðastöðinni á Akureyri.
Eigendur skipsins eru Magnús Gamalíelsson og synir og
sannast hér sem oftar hið fornkveðna, að „sjaidan bautasteinar
standa brautu nær nema reisi niður að nið.“ Sú var hin gamla
speki Hávamála, og vel má það á sannast enn, hvílík gifta það
er, þegar synir taka við af föður og halda uppbyggingunni
áfram.
Fyrir meira en hálfri öld kom Magnús Gamalíelsson fyrst til
Ólafsfjarðar. Þá stóð útgerð þar þegar með nokkrum blóma að
þeirrar tíðar hætti. En það fannst fljótt, að vaskur maður hafði
bætzt í hópinn og sér verka hans víða stað. Þegar hin fyrri
Sigurbjörg var smíðuð í Skippstöðinni á Akureyri árið 1966,
markaði það þáttaskil í skipasmíðum hér á landi. Slíkur var
stórhugur Magnúsar Gamalíelssonar, að hann hikaði ekki við að
leggja þessum unga iðnaði lið. Hið sama endurtók sig nú. Þótt
hann sé kominn fast að áttræðu, er stórhugurinn sá sami og
áður, svo að ekki er að sjá að elli hans saki í þeim efnum.
Magnús Gamalíelsson er einn þeirra manna, sem með
lífshlaupi sínu sýnir það og sannar, hvaða kraftur og frumkvæði
býr í einstaklingnum, þegar hann fær að njóta sín. Um leið og
Morgunblaðið óskar honum til hamingju með hið nýja skip,
óskar það þess, að gæfa og gifta megi fylgja þeim stórhug, sem
lýsir sér í smíði Sigurbjargar.
Birgir ísl. Gunnarsson:
Reykjavík
og Sjálf-
stœðisfíokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn minnist
um þessar mundir 50 ára afmæl-
is síns. Þessi tímamót hafa orðið
tilefni ýmissa athafna af hálfu
flokksins og ýmislegt hefur verið
ritað í blöð, m.a. hér í Mbl. í
tilefni afmælisins. Þegar saga
flokksins er hugleidd, fer ekki
hjá því, að minnst sé hinna
miklu áhrifa, sem flokkurinn
hefur jafnan haft í Reykjavík.
Sjálfstæðis-
flokkurinn
hefur mótað
Reykjavík
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
haft meiri áhrif á þróun Reykja-
víkur en nokkur annar stjórn-
málaflokkur og Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur mótað Reykja-
vík meir en nokkra aðra stofnun
í þjóðfélaginu. í áratugi hafði
Sjálfstæðisflokkurinn meiri-
hluta í borgarstjórn Reykjavíkur
og á störfum flokksins þar má
sjá í framkvæmd þá stefnu og
þær hugsjónir, sem flokkurinn
hefur barizt fyrir.
Grundvallarstefna Sjálfstæð-
isflokksins byggir á trúnni á
manninum sem einstakling og
gildi hans. Athafnafrelsi og sér-
eignarréttur er því eitt af bar-
áttumálum flokksins. Hinar
miklu framfarir í Reykjavík,
sem gert hafa borgina að blóm-
legasta byggðarlagi landsins,
eru öðru fremur því að þakka, að
hér hefur þessi stefna verið
framkvæmd í ríkari mæli en
annarsstaðar á landinu.
íbúðir í eigu
fjölskyldnanna
Tökum t.d. húsnæðismálin. Sú
var tíðin, að andstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins héldu því fram,
að hið opinbera, ríki og sveitar-
félög ættu að eiga sem mest af
húsnæði og leigja það út. Sú
stefna skýtur reyndar alltaf upp
kollinum öðru hvoru. Sjálfstæð-
ismenn tóku upp andstæða
stefnu og báru hana fram til
sigurs. Stefna þeirra var sú, að
sem flestar fjölskyldur ættu að
eiga sínar eigin íbúðir og því
skyldi miða stefnuna í skipu-
lagsmálum, lánamálum, skatta-
málum og húsnæðismálum al-
mennt við þetta markmið. Eng-
inn vafi er á því, að þessi stefna
hefur verið til mikillar blessunar
fyrir Reykjavík og íbúa hennar
og reyndar landið allt.
Örva einstakl-
inginn í at-
vinnumálum
í atvinnumálum hefur verið
reynt að örva einstaklingana og
félagasamtök þeirra til dáða.
Reykjavíkurborg hefur með
margskonar óbeinni fyrir-
greiðslu stuðlað að því. Má þar
nefna að hér er öruggasta orku-
öflun á öllu landinu, bæði raf-
orku og hitaorku. Hér er bezta
höfn landsins og hér er ýmiskon-
ar þjónusta við atvinnurekstur
betri en víðast annars staðar,
t.d. í formi varanlegrar gatna-
gerðar.
Hefur þó haft
forgöngu um
stórátök í at-
vinnumálum
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
þó ekki verið meiri kredduflokk-
ur en svo, að þegar nauðsyn
hefur borið til, þá hefur flokkur-
inn beitt sér fyrir því, að sveitar-
félagið hefði forgöngu um stór-
átök í atvinnumálum. Dæmi um
það er stofnun Bæjarútgerðar
Reykjavíkur um rekstur þeirra
togara, sem einstaklingar feng-
ust ekki til að kaupa, þegar
endurnýjun togaraflotans fór
fram eftir stríðið. — Fyrir rúmu
ári síðan beitti flokkurinn sér
fyrir því, að samþykkt var í
borgarstjórn stefnuskrá í at-
vinnumálum, sem fyrst og
fremst fól í sér að örva einka-
framtakið til eflingar atvinnu-
lífs í borginni, en því miður hafa
vinstri flokkarnir lítið eða ekk-
ert gert til að koma þeirri
stefnuskrá í framkvæmd.
Frumkvæði í
félagslegum
aðgerðum
Einstaklingshyggja Sjálfstæð-
isstefnunnar hefur leitt til þess,
að flokkurinn hefur í Reykjavík
haft frumkvæði að margvísleg-
um félagslegum aðgerðum, sem
miða að því að örva sem flesta til
sjálfsbjargar og aðstoða beint
þá, sem undir hafa orðið í lífs-
baráttunni. Má þar nefna endur-
skipulagningu Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkur og stórátök í
byggingum stofnana fyrir aidr-
aða og margvíslega aðstoð við
aldrað fólk.
Af öðrum félagslegum fram-
kvæmdum má nefna byggingu
barnaheimila, félagsmiðstöðva,
sjúkrastofnana, íþróttamann-
vtrkja o.m.fl. Hvað sem hver
segir, þá er það staðreynd að um
allar slíkar framkvæmdir hefur
Reykjavík, undir forystu Sjálf-
stæðismanna, verið brautryðj-
andi, en önnur sveitarfélög eða
jafnvel ríkið síðan fylgt á eftir.
Reykjavík er
stolt Sjálfstæðis-
flokksins
Sjálfstæðismenn geta með
stolti bent á Reykjavík sem
dæmi um það, hvernig til tekst,
þar sem stefna flokksins hefur
fengið að njóta sín án þess að slá
hafi þurft af í hrossakaupum við
aðra flokka.
Ein af þeim heitstrengingum
sem Sjálfstæðismenn gera á 50
ára afmæli flokksins er að ná
aftur meirihluta í Reykjavík,
sem tapaðist fyrir réttu ári, og
beina borginni aftur inn á
glæsta braut framfara, en nú
stefnir í óefni um stjórn borgar-
innar undir sundurþykkri
vinstri stjórn.
Guðrún A. með kvöld-
skemmtun í dúr og moll
GUÐRÚN Á. Símonar óperu-
söngvari mun efna til sérstæðra
tónleika í Háskólabíói miðviku-
daginn 6. júnf n.k. og kaliar hún
skemmtunina, Kvöldskemmtun
með Guðrúnu Á. og kompaný í
dúr og moll. Skcmmtunin verður
í léttum stfl og m.a. mun Guðrún
rifja upp lög sem hún söng á
sfnum tfma með hljómsveit
Bjarna Bö. Á efnisskrá kvöld-
skemmtunarinnar eru annars
fjölmörg lög f flutningi Guðrún-
ar úr heimskunnum söngleikjum
eins og t.d. West Side Story,
Sound of Music og Oklahoma, lög
frá Napólf og lög eftir t.d. Jón
Múla og Árna Johnsen. Þá mun
Guðrún syngja ýmis létt lög eins
og t.d. hið franska Apres toi. lög
um hunda og ketti og Þurfður
Pálsdóttir óperusöngvari mun
syngja kattadúcttinn með Guð-
rúnu. Þá verða að sjálfsögðu
mættir til leiks nokkrir af kött-
um Guðrúnar og má þar nefna
John John, Mimi og Nino og
hundana Rudi og Puskin sem
munu leika kúnstir.
Auk þess að Guðrún flytur ýmis
lög, bæði íslenzk og erlend, þá
hefur hún fengið til liðs við sig
fleiri. Guðmundur Jónsson og
Magnús Jónsson taka lagið, Krist-
ín Sædal og Árni Johnsen, félagar
úr kór Söngskólans í Reykjavík og
undirleikarar eru Guðrún Krist-
insdóttir og Árni Elvar.