Morgunblaðið - 26.05.1979, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ1979
21
Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn hefur í tilefni 50
ára afmælis flokksins sent frá sér eftirfar-
andi ávarp:
Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 25. maí
1929, þegar þingmenn íhaldsflokksins og Frjáls-
lynda flokksins lýstu því yfir, að þeir hefðu
sameinazt í einn flokk, sem hefði þessi
aðalstefnumál.
1. Að vinna að því að undirbúa það, að ísland
taki að fullu öll sín mál í sínar eigin heldur
og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn
eina, jafnskjótt og 25 ára samningstíma
sambandslaganna er á enda.
2. Að vinna í innanlandamálum að víðsýnni og
þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstakl-
ingsfrelsis og stvinnufrelsis með hagsmuni
allra stétta fyrir augum.
Til þessarar yfirlýsingar hafa Sjálfstæðismenn
síðar mjög vitnað. Þar er að finna skýrum orðum
stefnu flokksins. Stefnan er einstaklingshyggja.
Sjálfstæðismenn miða við einstaklinginn og kjósa
frelsi hans innan marka laganna. Frelsi einstakl-
ingsins er skilyrði fyrir lífshamingju hans og
almennum, efnalegum framförum. Og stefnan er
þjóðernishyggja, því að Sjálfstæðismenn telja,
að ávaxta beri menningararf þjóðarinnar, kunna
söguna, þekkja bókmenntirnar, gæta tungunnar,
bera virðingu fyrir kristinni trú og vernda
þjóðleg verðmæti. Sjálfstæðisstefnuna má þannig
kenna við einstaklingshyggju og þjóðernishyggju,
við frjálslyndi og íhaldssemi.
Stétt með stétt. — er kjörorð Sjálfstæðis-
manna. Þjóðinni vegnar bezt, þegar einstakl-
ingarnir vinna saman þannig að hver sinni sínu,
en ríkið tryggi frið með þeim og afkomu
lítilmagnans. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
flokkur einnar stéttar, heldur allrar þjóðarinnar,
allra einstaklinganna. Hann vill ekki umsvif og
vald ríkisins nema þar, sem einkaframtakið getur
ekki leyst vandann. Þar skilur Sjálfstæðis-
flokkurinn og aðra stjórnmálaflokka.
Sjálfstæðisflokkurinn náði ekki forystuhlut-
verki í íslenzkum stjórnmálum vegna ranglátrar
kjördæmaskipunar fyrr en 1942. Hann hafði
þrisvar forystu um að leiðrétta kjördæmaskipun-
ina, 1933, 1942 og 1959, þannig að hún yrði
samkvæmari flokkaskipun og byggðinni í land-
inu.
Með stofnun lýðveldis á Þingvöllum 17. júní
1944 var öðru megintakmarki Sjálfstæðisflokks-
ins náð. En Sjálfstæðisbaráttan er ævarandi.
Hún er í raun lífsbarátta þjóðarinnar. Öryggis
lýðveldisins varð að gæta, og það með aðildinni að
Atlantshafsbandalaginu og varnarsamvinnunni
við Bandaríkjamenn. Sjálfstæðisflokkurinn er
einn flokka óskiptur í þessu sjálfstæðismáli
þjóðarinnar.
Efnalegt sjálfstæði er þjóðinni lífsnauðsynlegt,
en yfirráð yfir auðlindum hennar, fiskimiðum og
fallvötnum, skynsamleg nýting þeirra og
aðgangur að útlendum mörkuðum tryggja það.
Sjálfstæðisflokkurinn hóf sóknina í landhelgis-
málinu og beitti sér fyrir setningu landgrunns-
laganna 1948 og hafði forustu um útfærslu
fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur 1975, sem
tryggði okkur óskoruð yfirráð yfir auðlindum
hafsins. Islenzka þjóðin hlaut ekki einungis sigur,
heldur einnig sóma af sem friðsöm lýðræðisþjóð.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði einnig forystu um
virkjun fallvatnanna og samvinnu Islendinga við
aðrar þjóðir í viðskiptamálum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur fjórum sinnum
gengið til sjórnarsamstarfs, þegar í óefni hefur
verið komið vegna lítillar fyrirhyggju stéttar-
flokkanna, 1939, 1950, 1959 og 1974, enda þótt
honum hafi ekki tekizt að ná öllum markmiðum
sínum og takizt það varla fyrr en hann nær
hreinufn meiri hluta á Alþingi. Hann hafði
frumkvæði að þeim breytingum á hagkerfinu í
anda frjálshyggju 1950 og 1960, sem leystu þá
fjötra, sem voru á einkaframtakinu, og færðu
þjóðarbúskapinn fjær haftabúskap og nær
markaðsbúskap, þannig að sjálfsbjargarhvöt og
sérþekking einstaklingsins nýttust betur en áður
öllum í hag.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur óhræddur störf
sín í 50 ár undir dóm þjóðarinnar. En framtíðin
skiptir þó mestu máli, þótt að fortíð skuli hyggja.
Framtíðin kann að bera í sér margar hættur —
en við þeim mun Sjálfstæðisflokkurinn bregðast
með því að leggja enn áherzlu á stefnu sína,
þjóðlega frjálshyggju, stefnu einstaklingsfrelsis
og mannúðar sem ein getur tryggt Islendingum
góð lífskjör, almenn mannréttindi trausta
þjóðmenningu.
í stjórnmálayfirlýsingu 23. Landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins 3.—6. maí s.l. segir:
„Á næstu árum og áratugum bíða okkar
Islendinga verkefni, sem miklu skiptir að
giftusamlega séu af hendi leyst. Við þurfum að
treysta lýðræði og öryggi og efla samstöðu og
samskipti við nágranna okkar. Við verðum að
styrkja einingu þjóðarinnar á grundvelli aukins
jafnréttis í kjöri fulltrúa til Alingis og vaxandi
jafnvægis í atvinnu og aðstöðu á milli landshluta.
Við þurfum að tryggja varðveizlu og hagkvæma
nýtingu á auðlindum lands og sjávar. Við verðum
að auka framleiðslu með haganlegri beitingu
fjármagns og þekkingar. Við verðum að stuðla að
velmegun hvers og eins og samhjálp allra. Við
þurfum að standa vörð um þjóðerni og tungu,
kristindóm og kirkju og styrkja heimili og
fjölskyldu í umróti harðstígra þjóðlífsbreytinga.
Sjálfstæðisflokkurinn er þess fullviss, að þessum
markmiðum verði bezt náð á grundvelli frelsis
einstaklinga og ábyrgðar þeirra og heitir að
stuðning þjóðarinnar við þá stefnu“.
Ritgerðasamkeppni Ríkisútvarpsins:
Húsf rey ja f rá
Kjalamesi sigrar
Dómnefnd og sigurvegarar í ritgerðasamkeppni Ríkisútvarpsins. Talið frá vinstri: Auður Auðuns. Hjörtur
Pálsson, Hulda Pétursdóttir, Pétur ólafsson, Gunnar Erlendsson og Stefán Júlíusson.
Rannsaka oMuverziunina
ÁKVEÐIÐ var í fyrra, af þáver-
andi útvarpsráði, að efna til
ritgerðasamkeppni, þar sem fólki
gæfist kostur á að senda útvarp-
inu ritgerðir, sem fjölluðu um
reynslu þess og kynni af hernám-
inu eða væru byggðar á endur-
minningum frá styrjaldarárun-
um síðari.
Tilgangur þessarar ritgerða-
samkeppni var tvíþættur, í fyrsta
lagi sá að afla útvarpinu efnis og í
öðru lagi að hvetja fólk til að
stinga niður stílvopni og færa
þannig í letur ýmislegt sem orðið
gæti til að skýra það sem gerðist á
þessum umbrotatímum í íslensku
þjóðlífi. Ákveðið var að veita
þrenn verðlaun, 100 þúsund, 75
þúsund og 50 þúsund krónur.
Dómnefnd skipuðu: Auður Auðuns
fyrrv. ráðherra, Stefán Júlíusson
rithöfundur og Hjörtur Pálsson
dagskrárstjóri af hálfu ríkisút-
varpsins.
Alls bárust 66 ritgerðir eftir 64
höfunda, en tveir þeirra sendu
tvær ritgerðir hvor. Höfundar
skiluðu ritgerðum sínum undir
dulnefnum, en hin réttu nöfn
þeirra voru látin fylgja með í
lokuðum umslögum. Ritgerðir
bárust af öllu landinu, þó að
stærsti hlutinn kæmi frá höfuð-
borgarsvæðinu eða nágrenni.
Fyrir skömmu lauk dómnefnd
störfum og ákvað hvaða ritgerðir
skyldu hljóta efstu sætin. Fyrsta
sætið hreppti höfundur ritgerðar
sem send var undir dulnefninu
„275“ og reyndist vera Hulda
Pétursdóttir, húsfreyja í Utkoti á
Kjalarnesi. Önnur verðlaun hlaut
Pétur Ólafsson hagfræðingur,
Marklandi 8, Reykjavík, en dul-
nefni hans var Jóm III. Þriðja
sætið kom í hlut Gunnars Er-
lendssonar tæknifræðings, Kópa-
vogsbraut 87, Kópavogi.
Að áliti dómnefndar voru þess-
ar þrjár ritgerðir falla vel inn í
þann ramma sem ritgerðunum var
markaður. Hulda lýsir fjölskyldu-
lífi á venjulegu heimili í Reykja-
vík á persónulegan hátt og áhrif-
um hernámsins á hversdagslíf
fólks, atvinnu og hugsunarhátt og
er frásögn hennar krydduð nokk-
urri kímni, mannleg og lýsandi.
Pétur dregur upp fjörlega og
fróðlega mynd af hernámsdegin-
um sjálfum í Reykjavík þar sem í
senn er skyggnst á bakvið tjöldin
og lýst ástandi þjóðlífsins á árinu
1944. í ritgerð Gunnars Erlends-
sonar, sem er að verulegu leyti
bundin við Hafnarfjörð, kemur
skýrt fram hvernig samskipti við
erlent herlið urðu stór þáttur hins
daglega veruleika í lífi drengja á
hans aldri.
I ráði er að þær ritgerðir sem
viðurkenningu hlutu verði lesnar í
útvarp í sumar en ekki hefur enn
verið tekin ákvörðun um, hvenær
að því kemur. Ætlunin er að lesa
fleiri ritgerðir en þær þrjár sem
viðurkenningu hlutu, en þær verða
lesnar í framhaldi af verðlauna-
ritgerðunum, ef um semst við
höfundana.
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið
að skipa sérstaka nefnd til þess
að rannsaka alla helstu þætti
olíuverslunar og olíunotkunar í
landinu.
Verkefni nefndarinner eru að
athuga eftirfarandi þætti:
a) olíukaup erlendis,
verðviðmiðanir í olíuinnkaup-
um og olíufragtir,
b) flutninga til landsins, strand-
flutninga með olíu, flutninga
innanlands, geymslurými,
smásöludreifikerfi olíufélag-
anna,
c) rekstur olíufélaganna á þeim
áratug sem nú er að líða,
fasteignamyndun þeirra,
kostnað og tekjumyndun,
d) verðmyndunarkerfi olíu
innanlands, þ.m.t. skattlagn-
ingu hins opinber,
bankakostnað, álagningu
olíufélaga og vísitölu
rekstrarkostnaðar olíufélag-
anna,
e) olíunotkun landsmanna með
tilliti til orkubúskapar lands-
manna í heild.
Nefndinni er ætlað að gera
tillögur um úrbætur varðandi
ofangreinda efnisþætti.
í nefndinni eiga sæti: Eyjólfur
Sigurðsson, framkvæmdastjóri,
Finnbogi Jónsson,
verkfræðingur, Gunnlaugur
Stefánsson, alþm., Halldór
Ásgrimsson, lögg.
endurskoðandi, Ingi R. Helgason
hæstaréttarlögniaður og Stefán
Jónssoon, prentsmiðjustjóri.
Ingi R. Helgason er formaðu
nefndarinnar.